Tíminn - 28.08.1951, Síða 1
Rltstjórl:
Þórarínn Þórarlnsson
Fréttarltstjórl:
Jón Helgason
Útgeíandl:
Framsóknarílokkurinn
35. árgangur.
Skrifstofur i Edduhúsl
Fréttasímar:
81302 Og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
Reykjavik, þr'ðjudaginn 28. ágúst 1951.
193. blað.
Listasafn ríkisins
opnað í gær
Klukkan tvö 1 gær var mál
verkasafn ríkisins opnað í
fyrsta sinn hér í hinum nýju
húsakynnum safnsins í nýja
safnhús nu við Melaveg.
Björn Ólafsson menntamála-
ráðherra opnaði safnið með
ræðu en Valtýr Stefánsson for
maður menntámálaráðs rakt!
sögu safnsins i stórum drátt-
um. Ungfrú Selma Jónsdótt-
ir, listfræðingur annast um-
sjón safns ns. Það verður
opið almenningi alla virka
daga frá kl. 13 til 15 og sunnu
daga kl. 13 til 16. Aðgangur
verður 5 kr. fyrir fullorðna.
Drengur slasast á
berjamó
Ellefu ára gamail drengur,
Óli P. Friðþjófsson, Kirkju-
hvoli 6, sonur Kristjönu
Jósepsdóttur og Friðþjófs rak
ara Óskarssonar, féll á sunnu
daginn frarti af klettastalli i
uppþornuðum lækjarfarvegi
skammt frá Lögtaergi, þar sem
hann var á berjamó.
Skólabróðir Óla var með
honum á berjamónum, og
segir hann svo frá, að hann
hafi ætlað að kllfra niður af
klettinum til þess að leita sér
vatni til að drekka. Sá hann
er ÓIi var að hrapa, og kall-
aði á stúlku, sem var nær-
stödd. Vildi svo til, að það var
hjúkrunarkona.
Óli var meðvitunarlaus, er
hún kom að, og var nú bráður
bugur undinn að því að fá
sjúkrabifreið úr Reykjavík til
þess að sækja hann.
Drengurinn reyndist hand-
leggsbrotinn,. auk þess sem
hann hafði hlotið höfuðhögg
og heilahristing.
Fyrsti bíllinn kemur
til Ingjaldssands
í gær var í fyrsta skipti
ekið bifreið út á Ingjalds-
sand um ófullgerðan veg,
sem þangað er verið að
feggja. Var það enskur
jeppi, s'm Gunnlaugur
Finnsson í Hvilft í Önund-
arfirði ók, og var hann að
fara með Balvdin Þ. Krist-
jánsson, erindreka út eftir.
Frá Núpi í Dýrafirði er
tuttugu kílómetra leið á
Ingjaldssand, og voru þeir
hálfan þriðja klukkutíma
að fara þann kafla.
Hinn nýi vegur yfir heið
ina til Ingjaldssands er
ekki fulllagður og eftir að
bera ofan í hann. Ríkis-
sjóður hcfir lagt fram þrjá
tíu þúsund kr. úr f jallavega
sjóði til vegagerðarinnar,
Mýrahreppur hefir lagt
fram önnur þrjátíu þúsund
og mun sennilega Iáta
fimmtán þúsund til viðbót
ar, og nokkurn kostnað við
vegagerðina hafa bændur
á Ingjaldssandi borið.
Minningsrguðþjónusta
i Saurbæjarklrkju
Þrjí's luindriið ár HHiia frá því, aö Hallgrím-
nr Pétnrgsoii gerðist presttir að SanrSiæ
f fyrradag var þess minnzt með háíiðaguðsþjónustu i
Saurbæjarkirkju á Hvalfjarðarströnd, að þrjú hundruð ár
eru l'ðin ftá því, að Hallgrímur Pétursson gcrðist þar sókn-
arprestur.
Rétt eftir að núverandi stjórn Frakka var mynduð, bar það
við, að einn hinna nýju ráðherra, Pierre Chevalier, var
myrtur og reyndist morðinginn vera kona hans, sem sést
hér á myndinni ásamt honum. Hún skaut á hann fimm
skotum. Frúin tilkynnti sjálf morðið og sagði ástæðuna
hafa verið þá, að hún hefði verið afbrýðisöm vegna starfs
hans og ekkj þolað að hann vanrækti heimilið vegna
starfa sínna
Fegurðardrottningin í Höfn:
Haínaði boði um að
koma opinberlega fram
Ungt fwlk fór Itópuin saimtit s Ttvwlí að r.*áði
Poiitikeit tiE þess að sjá Itaaa þai*
Fegurð.-srdrottning Reykjavíksir, Elín Snæbjörnsdóttir,
kom 11 Kaupmannahafnar á laugarðagskvöldið var, þar sem
blaðamenn frá Folitiken tóku á móti henni á Kastrup-flug-
velii. Hafði blaðiö lagt clrög að því, að hún kæmi fram við
„Humcrets Parade“ í KB-hölIinni þá um kvöídið, en hún
hafnaffi boð mi, þar sem hún vgeri ekki komin tll Hafnar
til þess aff halda á sér sýningar.
Fólk úr Saurbæjarsókn fjöl
mennti til k rkjunnar þenn-
an dag, en auk þess voni þar
gestir af Akranesi, ofan úr
Borgarfirði og úr Reykjavík.
Séra Sigurjón Guðjónsson,
sóknarprestur í Saurbæ,
flutti skörulega stólræðu, en
biskupinn yfir íslandi þjón-
aði fyrir altari og mælti nokk
ur orð til safnaðarins. K'rkju-
kór Saurbæjarsóknar söng við
undirleik Þorvalds Brynjólfs-
sonar, organleikara kirkj-
unnar.
Að lokinni messugerð lagði
biskup sveig að legstað Hall-
gríms Péturssonar fyrir kirkj u
dyrum í Saurbæ, og séra FriÖ
rik Friðriksson mælti þar
nokkur orð og flutti kveðju
frá K.F.U.M. -félögum í Vatna
skógi.
Sigurður Nordal prófessor
flutti í kirkjunni erindi um
Hallgrím Pétursson og skáld
skap hans. Að erindinu loknu
las Gestur Pálsson leikari
kvæði Matthíasar Jochums-
sonar um Hallgrím PéturSson.
Gjafir bárust kirkjunni
þennan dag, 500 krónur frá
Ólafi Finsen, fyrrverandi, hér
aðslækni á Akranesi, og ný
útgáfa Passíusáima frá Kala-
staðasystkinum.
í Tívólí á sunudaginn.
Forstöðumenn Tívólí gerðu
fegurðardrottningunni he m-
boð á sunnudaginn, og það
þáði hún með þökkum. Var
margt af ungu fólki í Tívólí
um kvöldið — sumt af því
meðal annars komið þangað
í von um að sjá hina ungu,
ljóshærðu, fegurðardrottn-
ingu frá íslandi, sem er svo
ólík öðrum fegurðardrottn-
ingum, að hún vildi ekki koma
I fram á gleðisamkomu í stór-
j borginni og láta fclkið horfa
á sig og dást að sér.
Engar baðmyndir.
í viðtali, sem birtist í Poli-
tiken á sunnudag'nn, lét
fegurðardrottningin í ljós þá
ósk sína að heimsækja bað-
strcndina hjá Bellevue. En
þegar ljósmyndari blaösins
óskaði eftir því að fara þang
að með henni, vísaði hún þeim
tilmælum eindregið á bug.
Hún lýsti því yf ’r að hún væri
ófáanleg til þess að láta
mynda sig í baöfötum.
Einkaflugvél eyðileggst I
lendingu á Korpúlf sstaðatúni
Tveir mcmi. sem í vélinni voru, sluppu lílið
meiddsp, þótt vélin tættíst smtdui'
Á sunnudaginn skömmu eftir hádegi voru tveir menn i
einkaflugvél að æfa flug og lendingar við erfið skilyrði hér
í nágrenni bæjarins og ætluðu að lenda á túninu á Korpólfs
stöðum. Tókst þá svo illa til, að vélin stakkst á endann og
mölbrotnaði, en mennirnir tveir sluppu lítið meiddir.
Ætlar að feta í fótspor
föður síns.
Þegar blaðamennirnir frá
Politiken grennsluðust eft'r
þvi, hvað fegurðardrottningin
(Framhald uf 1. saðu.,
Flóð valda enn geysi-
íegii tjóni í Mexico
Mikil flóð af völdum felli-
byls eru enn I Mexico. í einu
þorpi hafa um 2000 manns
flúið brott vegna þess aö hús
in eru meira eða minna á
kafi í vatni og í hafnarborg
einni er talin hætta á að
fjöldi manns farist. Herinn
hefir verið kvaddur þangað
tii hjálpar. Tjónið af völd-
um fellibylsins er nú talið
nema að minnsta kosti 40
millj. doilara í Mtxico.
Mennirnir í fíugvélinni voru
Kristján Gunnlaugsson, flug-
maður, sem starfað hefir að
kennslu við flugskólann. Með
honum var Gunnar Berg sem
var að læra flug. Flugvél þessi
var tveggja sæta og af Miels
Magistergerö og var aðeins
ársgömul í íslenzkri eigu en
keypt, þá lítið notuð, frá
Bretlandi. Eigendur vélarinn-
ar voru nokkrir einkaflug-
menn.
Vélin tvístraðist.
Flugvélin tvístraðist alger-
lega við áreksturinn og er
(Framhald af 1. síðu.)
‘ Gerði Hallgríraur
Péíursson {tað
heit að yrkja veg-
legt trúarljóð ?
í erindi því um Hallgrím
Pétursson, sem Sigurður
Nordal flutti í Saurbæjar- ’
kirkju á sunnudaginn,
ræddi hann meðal annars
um það, hvernig hann áliti,
að Passíusálmarnir hefðu
orðið til. Rakti hann ald-
arhátt á dögum Hall-
gríms Péturssonar og við~
horf hans til tilverunnar
þessu til skýringar. Sagði
Nordal .vel geta trúað því,
að Haílgrimur Pétursson
hefði gert það heit að yrkja
stórverk guði til dýrðar, ef
hann kæmist frá Hvalsnesí,
þar sem hann hafði átt
illa ævi og haft litla virð-
ing.
- Hallgrímur Pétursson
hefði vorið. farinn að yrkja
verk út af Samúelsbók, en
hætt því skyndilega og al-
drei sncrt á því framar
Upp úr því heföi hann farið
að yrkja Passíusálmana og
að öllum líkindum áður en
hann kennds sér þeirrar
vanheilsu, sem síðar þjáði
hann — holdsveikinnar.
Þótti Nordal líklegt, að
hann hefði hætt við Sam-
úoissálmana og snúið sér
að Passísuálmunum, cftir
að hann hefði fengið í !
hendur píslarsálma Jóns
Magnússonar, og hefou
Samúelssálmarnir upphaf-
lega átt að vera efndir á
heiti hans frá Hvalsnesi,
en skáldinu síðar þótt
Passíusálmarnir stórbrotn
ara og verðugra viðfangs- ‘
efni. !
Sigriiðd í Höfn.
Finnbjörn Þorvaldsson og
Gunnar Huseby tóku þátt í
íþróttamóti í Kaupmanna-
höfn s. 1. miðvikudag. Huse-
by sigraði í kúluvarpi, varp-
aði 15,29 m. og í kringlukast
inu, kastaði 45,27 m., og er
þetta lélegur árangur fyrir
Huseby. Finnbjörn sigraði í
100 m. hlaupi á 11 sek. Ekki
var getið um mótstöðumenn
þeirra í þessari keppni. Keppt
var i nokkrum öðrum greinum
á mótinu, en yfirleitt var á-
rangur keppendanna mjög lé
legur.