Tíminn - 25.09.1951, Síða 8
35. árgangur.
Reykjavík,
25. september 1951.
216. blað.
BRÍDGEMÖTIÐ í FEXEYJl’M:.
ísiand með 14 stig —
ein umferð eftir
Ítalía hefij* sigrað — ísiazul vann Aasínr-
l'íki, Hollanel og EgypiaL, lapaði fyrir Engl.
íslenzka sveitin hefir staðið sig allsæmilega á Evrópu-
meistaramótinu í bridge. Er nú aðeins ein umferð cftir og
er ísland í 6. sætj með 14 stigum. Tíminn hefir áður skýrt
frá úrslitum í fyrstu umferðunam, en í þeim fjórum, sem
síðan hafa verið spilaðar, hefir ísland unnið Austurríki,
Egyptaland og Holland, en tapao fyrir Englandi. ísland
mætir Sviss í síðustu umferðinni.
Úrslit í ein^tökum umferð
um hafa oröið, sem hér segir:
9. umferð.
ísland vann Egyptalancl,
Danmörk vann írland, Ítalía
vann Svíþjóð, Bretland vann
Noreg, Sviss vann Holland,
Frakkland vann Finnland og
Austurríki og Belgíu.
10. umferð.
England vann ísland,
P’rakkland vann írland,
Egyptaland vann Danmörk,
Holland vann Noreg, Belgia
vann Svíþjóð, Sviss vann
Austurríki og jafntefli varð
hjá Finlandi og Ítalíu.
11. umferð.
ísland vann Holland, Austur
ríki vann Noreg, Svíþjóð vann
Finnland, England vann
Danmörk, Sviss vann Belgíu,
Egyptaland vann Frakkland
og írland og Ítalía gerði jafn
tefli.
12. umferð.
ísland vann Austurríki,
England vann Frakkland,
Holland vann Danmörk, Sví-
þjóð vann írland, Ítalía vann
Egyptaland og tryggði sér
með því sigur í mótinu, en
þeir hefðu einnig mátt tapa,
þar sem ísland vann eina
landiS, Austurríki, sem hafði
möguleika til að komast upp
fyrír þá. Þá varð jafntefli
milli Finnlands og Belgíu og
Noregs og Sviss.
Staðan.
Staðan í mótinu er nú þann
ig að Ítalía er efst með 21
stig. England og Austurríki
hafa 16 stig, Egyptaland og
Svíþjóð 15, ísland;,er í 6.
sæti með 14 stig, þá kemur
Frakkland með 12 stig, Sviss
og Noregur með 11, Belgía 8,
Finnland 7, Danmörk 6 og ír
land 4 stie. Ef Frakkland vinn
ur í síðustu umferðinni og ís
Siátrun hafin
á Biöncfyósi
Frá fréttaritara Tímans
á Biönduósi.
Slátrun hófst hér hjá kaup
félagnu í dag og er ráogert aö (
slátra 12^—15 þús. fjár. Dílk- ;
ar virðast vera vænir. Fjár- !
eign bænda er nú orðln all- j
mikii, svo að fjöldi slátur-
fjár er aftur að ná því, sem
var fyrir niðurskurð.
Ágæt veður hafa verið und
anfarið og eru flestir bændur
búnir að alhirða og heyskap
svo til lokið í héraðinu.
land tapar .verður ísland í 7.
sæti, þar sem Frakkland vann
ísland. ísland hefir staðið sig
vel gegn beztu þjóðunum. Af
þeim löndum, sem eru ofar,
hefir íslsnd unnið Austurríki,
| Egyptaland og Sviþjóð, en að
j eins tapað fyrir Ítalíu og Eng
lantíi. íslenzka sveitin byrj-
aði mjög ilia í mótinu og tap
aði þá fyr Danmörku, Noregi
og Frakklandi. Hefði slíkt
ekki komið fyrir, sem hefði
ekki verið ástæða til eftir
spilamennsku þeirra síðar í
mótinu, hefði ísland getað
náð fyrsta eða öðru sæti.
Samt sem áður er lítil ástæða
að vera óánægður með stöðu
þeirra í mótinu. Á síðasta
móti var ísland í þriðja sæti
rireð jafn mörg stig og Sví-
þjóð, sem var í öðru sæti.
England bar þá sigur úr být-
um.
Ný búð í
Bankastræti
Véla- og raftækjaverzlun-
in í Tryggvagötu hefir nú opn
að nýja útsölu í Bankastræti
10. Verða þar seld alls konar
rafmagnstæki og ýms heim-
ilistæki, svo sem þvottavélar,
sem verzlunin hefir fyrir-
liggjand.
íslenzka kinda-
kjötið sérstak-
lega gott, er
sagt vestra
íslenzk kona, som gift er
í Bandaríkjunum, en nú í
heimsókn, segir þessa sögu
um íslenzka dilkakjötið:
— Ég var stödd hjá
bandarísku kunningja-
fólki mínu í New York í
fyrravetur, og húsmóðirin
á heimilinu ræddi um það,
hvað kaupa skyldi í mat.
Varð úr, að hún sendi eft-
ir kindakjöti. Sá, sem
kaupa átti, kom aftur glað
hlakkalcgur. Hann hafði
spurt eftir kindakjöti í
kjötbúðinni, og þá verið
sagt að tjl væri kindakjöt,
en það væri langt að ■.
komið alla Icið frá íslandi.
En það kæmi ekki að sök,
því að þetta kindakjöt
væri sérstaklega gott og
þætti mörgum betra en
kindakjöt, sem það ætti að
venjast.
Akureyringarnir komn-
ir með Rauð í byggð
En liaiin reyndist vera úr Eyjaflrði
Rauði hesturinn, sem þeir Stefán Steinþórsson á Akur-
eyri og félagar hans fóru að sækja suður í Jökuldal við
Tungnafellsjökul, reyndist ekki vera frú Páfastöðum í Skaga
firði, heldur frá Ytra-Hóli í Kaupangssveit, eign Kristjáns
Sigfússonar.
enda var það ekki fyrir þeim,
sem þeir gengust, er þeir réð
ust í ferðina, heldur vildu
þeir forða hestinum frá
hungurmorða.
Nú hefir Kristján á Ytra-
Hóli hins vegar fengið Dýra-
verndarfélagi Akureyar Rauð
sinn til ráðstöfunar, og verö-
iur andvirði hans notað til
þess að greiða kostnað við
björgun hans úr fangi öræf-
Kartaflan var meira
en hálft kíló
Frá fréttaritara Tímans
1 Vestmannajeyjum.
Kartöfluræktun er mikil í
Vestmannaeyjum, og er upp-
skera yfirleitt góð úr görðun-
um. Er fólk sem óðast að taka
upp kartöfiur sínar þessa dag
ana og notar hverja góðviðris
stund til þess.
í gær, þegar frú Ásta Jóns-
dóttir frá Hlíð í Vestmanna-
eyjum, kona Óskars Jónsson-
ar útgerðarmanns, var að
taka upp úr garðinum sínum,
kom óvenjulega stór kartafla
undan einu grasinu. Vóg hún
550 grömm.
Hjónaskiinaðir auðveld
aðir í Bandaríkjunum
Það er við því búizt, að gullöld hjónaskilnaðarbæjarins
Reno, vcstast í Nevadafylki við landamæri Kaliforníu, sé
bráit á enda, því að brátt verði auðveldarj hjónaskilnaðir
annars siaðar.
I mörgum fyHcjum Banda-
ríkjanna hafa hjónaskilnað-
ir verið bannaðir að lögum,
en með lagakrókum hefir
þeim þó eigi síður orðið fram
gengt, fyllilega til móts við
það, sem þekkist í löndum,
þar sem löggjöf er sæmilega
frj.álslynd. Hefir Reno verið
miðstöð hjónaskilnaðanna og
þangað, mitt út í eyðimörk-
ina, hafa menn og konur far
íð í hópum siman til þess að
losa sig Við maka sína, ef svo
bar undir.
i orði kveðnu þurfti þó að
búa í sex vikur, en þó nægði
að leggja fram kvittaðan reikn
ing frá einhverju gistihúsinu,
en sagt var, að slíkir reikn-
ingar fengjust fyrir tiltölu-
lega væga borgun.
CFramhald á 7. síðu)
/H
n
Attlees og Bevans
Miðstjórn brezka verka-
mannaflokksins hélt fund í
gær og var Bevan fyrrum
heilbrigðismálaráðherra þa'r
einnlg staddur. Á fundinum
varð fullkomið samkomulag
um það milli hans og Attlees
að leggja á hilluna alla mis-
klíð þar til eftir kosningar og
ganga samhuga til kosning-
anna. Hefir Bevan nú gefið
yfirlýsingu þess efnis að,
hann fylgdi flokknum ein-
huga í kosningabaráittunni.
Talið er þó, að þetta sé aðéins
vopnahlé í bili.
100 kílómetra
dagleið.
Þeir félagar komu niður að
Hólsgerði í Eyjafirði um íjög
urleytið á laugardag og til
Akureyar um miðjan sunnu-
dag. Gekk ferð þeirra mjög
vel, og höfðu þeir stundum
langar dagleiðir. Þeir fóru til
dæmis úr Laugafelli suður í
Jökuldal og til baka aftur á
einum og sama degi, um 100
kílómetra leið. Reyndist ekki
hægt að hafa næturdvöl í
Jökuldal, því að grasvöxtur
var þar enginn, aðeins mosi.
Hesturinn kom sjálfur
til ferðamannanna.
— Við sáum Rauð fljótlega,
er við komum í Jökuldal,
sagði Stefán, og kom okkur
saman um það, að skipta okk
ur ekki af honum að svo
stöddu. Settumst við að snæð
ingi, en hesturinn tók brátt
að gefa okkur gaum. Er hann
hann hafði horft á okkur
svo sem hálftíma, kom hann
alveg til okkar, og át brauð
úr lófum okkar. Handsömuð
um við hann siðan og járn-
uðum og héldum síðan af stað
heim á leið.
Enda þótt hesturinn hafi
lengi orðið að nærast á mosa
einum, var hann í allsæmileg
um holdum.
Strauk snemma í vor.
Rauður er 12—14 vetra, og
var keyptur þrevetur frá
Ytri-Kotum í Norðurárdal í
Skagafirði. Hann hefir jafn-
an tollað illa í Eyjafirðinum,
en þó ekki leitað neitt sér-
staklega vestur í Skagafjörð-
inn.
í vor hvarf hann snemma,
en er smalað var til vorrún-
inga, sást hann á Garðsár-
dal. Þó tókst ekki að hand-
sama hann, og vissi síðan eng
inn um hann, og grunaði
ekki einu sinni. eigandann, að
það gæti verið hans hestur,
sem sézt hafði suður í Jökul
dal.
Urðti af ver;ð-
íaununum.
Ungfrú Edda Skagfield, eig
andi Rauðs frá, Páfastöðum,
hafði heitið: þeim Stefán
hesti sínum að verðlaunum,
ef það væri hann, sem í
Jökuldal var. Þau verðlaun
hljóta þeir Stefán nú ekki,
anna.
IsreÉakoniaiigtsr var
skoriim upp á sumiBi-
dag
Georg Bretakonungur var
skorinn upp s.l. sunnudag, og
í gær var hann mjög sjúkur.
í tilkynningu læknanna seg-
ir þó, að hann hafi hvílst vel
í fyrrinótt og líði eftir vonum,
en ekki muni koma í ljós fyrr
en nokkrum dögum liðnum,
hvernig uppskurðurinn hafi
heppnazt.
ök drukkiim á
stúlku, flúði slys-
staðinn, en gaf
sig fram
Aðfaranótt . sunnudagsins
var ekið á stúlku á mótum
Sóleyjargötu og Skothúsveg-
ar, og hlaut hún allmikil
meiðsl. Einkum skarst hún
í andliti.
Var stúlkan, Ástríður Helga
Gunnarsdóttir, skrifstofu-
mær, Óðinsgötu 9, á leið heim
til sín vestan úr bæ. Mun hún
hafa séð til bifreiðar, er kom
sunnan götuna, og stað-
næmdist á umferðarsteini á
götunni og hugðist bíða þar.
En í næstu andrá ók bifreiö-
in á hana, svo að hún kastað-
ist á götuna. Er bifreiðin var
komin framhjá, hægði hún
ferðina, og stukku út úr henni
tveir.menn, sem voru í henni
með bifreiðarstjóranum, er
hélt brott frá slysstaðnum.
Bifreiðarstjórinn ók síðan
um bæinn, en þorði ekki aft-
ur að slysstaðnum, þar sem
hann hugði jafnvel, að hann
hefði valdið dauðaslysi. Loks
ók hann að hliðinu við Reykjai
víkurflugvöll og gaf sig fram
við lögregluþjón, sem þar, var
á verði, Við rannsókn reynd-
ist bifreiðarstjórinn mjög
ölvaður.
Hann segist ekki hafa séð
stúlkuna fyrr en í sama mund
og hann ók á hana..
Bretar í Aliadan fá
15 daga frest
Olíunefnd íranska þingsins
bilkynnti í gær, að hún mundi
nú vísa brvckum starfsmönn
um brott úr' landi, ef þeir
hefðu ekki ráðizt til starfa
hjá persneskum aðilum inn-
an tíu daga. Eftir það munu
þeir fá 15 daga frest til að
hverfa úr landi. Með tilkynn
ingu þessari lítur íranska oliu
nefndin svo á, að fullkomlega
sé slitnað upp úr samningum
Persa og Breta í olíudeilunni.
Þá tilkynnti nefndin einn-
ig, að hún mundi taka eignar
námi flutningatæki ensk-
íranska félagsns í Aþadan, en
þau nema rúml. 10 miij.
punda að verðgildi.