Tíminn - 04.12.1951, Blaðsíða 7

Tíminn - 04.12.1951, Blaðsíða 7
275. blað. TÍMINN, þriðjudaginn 4. desember 1951. 7. Vélahús breiinur að | Bráðskemmtileg Reykjiiíti i Hrútafirði ferðabók eftir Kliikkan rúmíega sex á sunnudaginn kom eldur upp í i líaíííburton vélahúsi á bænum Reykjum í ílrúíafirði, og varð það alelda á svipstundu, og eyðilagðist allt, sem inni var, en íbúðar- húsiö tókst að verja. Það' var skúrbygging, sem brann, og var í því rafmagns mótor heimilisins, fólksbif- reið, eign Sigurjóns Þprsteins sonar, bróður bóndans að Reykjum, Einars Þorsteinsson ar, ambo'ð' og búvinnutæki öll nema heyvinnuvélar , og fleira muna. Lítill neisti tendrar stórt bál. Maður var þarna að vinna að logusuðu og hafði dökk gleraugu. Mun hafa hrotið neisti frá logsuðunni, og vissi maðurinn ekki fyrr til en logarnir gusu upp. Bygg- ingin var fóðruð innan meö tjörupappa, og læstist eldur- inn sem hendi væri veifað um alla veggi. Vild| til, að logn var á. Vélabyggingin var áföst við íbúðarhúsið á Reykjum, en steinveggur á miili. En svo mikið varð bálið á skammri stundu, að íbúðarhúsið hefði vart eða ekki orðið varið, ef verulegur vindur Kefði verið. En svo vildi til, að' logn var, er þetta gerðist. Fólk dreif að frá Reykja- skóla og næstu bæjum, og var gengið rösklega fram um að verja bæinn og brjóta niður logandi skúrbygginguna. Mikið tjpn. Bifreiðin, sem brann, var óvátryggð fyrir eldi, en það annað, sem vátryggt var, að- eins mjög lágt. Hafa þeir Reykjabræður því orðið fyrir miklu tjóni af völdum elds- ins. SamningagerÖ um verð á togarafiski til vinnsln Endanlegir samningar 'um verð á togarafiski, sem hrað- frystihúsin kaupa til vinnslu, standa nú yfir, og er líklegt, að þeim verði ráðið til lykta á miðvikudaginn. Jafnframt er gert ráö fyrir því, að fara þess á leit við j verkalyðsfélögin, að uppskip- 1 un úr togurum hef jist klukk- j an sex að morgni og verði þó talin dagvinna, þar eð reynslan hefir sýnt, aö fyrstu tvo klukkutíma vinnudagsins hefir starfsfólk í hraðfrysti- húsum ekki verkefnj meö því fyrirkomulagi, sem nú er byrjun vinnutíma við upp- skipun. Af þessu leiðir er sennilegt að aftur leiðir, að strætis- vagnaferð'ir í Reykjavík verði að hefjast fyrr að morgn inum en nú er, svo að verka- menn úr úthverfunum kom- izt til vinnu í tæka tíð. Bókaútfáfan Setberg hefir sent frá sér eina af ferð'abók- um Bandaríkjamannsins Richards Halliburton í ís- lenzkri þýðingu Hersteins Pálssonar. Er þetta bókin The Flying Carpet og neínist á ís- lenzkunnj Furðuvegir ferð’a- langs. Halliburton er löngu heimskunnur fyrir hinar bráð' snjöllu ferðabækur sínar ogl kannast margir við Sjö mílnaj skóna, sem kom út hér á landi fyrir nokkru. í bók þessari lýsir Hallibur- ton flugferð sinni á flugvél- innj Klæoinu fljúgandi um lönd og álfur og kemur sann- j arlega víða við. Liggur leiðin; um Ameríku, Evrópu, Asíu og! Afríku, eyjar og höf milli álfa. Bókin er bráðskemmtileg og j henni fylgja margar vandað- | ar myndir. Hún er hátt á fjórða hundarð blaðsíður að stærð. Setberg hefir vandað mjög til útgáfunnar, hún er gerð á forkunnarvandaðan og þykk- an pappír og sérstaklega vönd uð að allri gerð. S. 1. F. (Framhald af 8. síSu.) vöruvöndun, sérstaka viður- kenningu. Verndun fiskimiðanna. Ánægja var látin í Ijós yfir, því, að með lögum um vísinda lega verndun fiskimiða land- grunnsins sé lýst yfir því að íslendingar geti gert allar nauðsynlegar ráðstafanir til verndar fiskimiðunum, og skorað' á ríkisstjórnina aö nota þá heimild sem fyrst. Saltfisksamsalan. Loks voru samþykktar tvær tillögur um saltfisksöluna, þar sem andmælt var frum- varpj um breytingar á fyrir- komulagi um útflutning salt- fisks og lögð á það áherzla, að S. í. F. færi meö alla saltfisk sölu. Kaujiið Tímai'm! , Aagjlýsið í Tímauum. IJtbreiðið Tímann. Menningarfél. Austur- Skaftfellinga 25 ára Arlegí mót félagsms og afmælisins miimst í Möfu i Hornafirðl um síðustu Iielgi Frá fréttaritara Tímans í Hornafirði Hið árlega mót Menningarfélags Austur Skaftfellinga var haldið í Höfn laugardaginn og sunnudaginn, 1 .og 2. des. Var þetta um leið 25 ára afmæli félagsins og þess sérstak- lega minnzt. Stiideutafél. Rvíkur (Fi-amhald af 8. síðu.) Stúdentafélagi Reykjavíkur og sá stjórn félagsins um dag skrána. Var uppistaðan sam- felld dagskrá með ýmsum þáttum úr áttatíu ára ævi fé- lagsins og bar þar margt á góma, en því næst viötal, sem Tómas skáld Guðmunds- son átti við þrjá landskunna menntamenn, Ingimar Jóns- son skólastjóra, Lúðvíg Guð- mundsson skólastjóra og séra Sigurður Einarsson í Holti, sem allir hafa komið við sögu stúdentafélagsins. Stúdentafélag Reykjavíkur er staðráðið í að lifa enn lengi ög vel og er nú á áttræðis afmæli sínu með fullar hend ur óleystra verkefna, sem það hefir hug á að hrinda í framkvæmd. Á langri ævi þess er að minnast margra mætra félaga, er verið hafa þjóðkunnir skörungar og nú- verandi stjórn þess með for- manninn í broddi fylkingar mun einráðin í að láta ekki merkið falla, heldur láta til sín taka að hverju því máli, sem samrýmist verkisviði þess og stefnuskrá. VcAwy • •• UQjq Dorotfiy" eigmast son Sýning á miðvikudag kl. 8. Næst síðasta sýning fyrir jól. Aðgöngu miðar seldir í dag kl. 4—7 og eftir kl. 2 á morgun. Sími 3191. Leirmunir Þér þurfið ekki að leita að jólagjöfinni, ef þér viti'ð hvar ROÐI er. ROÐI, Laugaveg 74. Sími 81 808. Timaritið vinsæla Virkið í norðri Áskriftasími 6470 — Póst- hólf 1063, Reykjavík. Vasaljós og rafhlöður, sívöl, flöt og tvöföld. VÉLA- OG RAF- TÆKJAVERZLUNIN, TRYGGVAGÖTU 23. SÍMI 81279. BANKASTRÆTI 10. SÍMI 6456. Þorvaldnr (íarðar Kristjáissson málflutningsskrifstofa, Bankastræti 12. Hallgrímskirkju í kvöld kl. 20,30 verður efnt til kirkjukvölds í Haþgríms- kirkju, og er það hið annað í röðinni í vetur. Það eru nokkrir stúdentar úr ,,Brse3ralagi“, kristilegu félagi stúdenta, sem beita sér fyrir þessum kirkju- kvöldum í samvinnu við séra Jakob Jónsson. Munu slík kirkju kvöld verða halain að jafnaði annað hvert þriðjudagskvöld í vetur í Hallgrímskirkju. Áherzla verður lögð á að fá ræðumenn úr hópi þekktra leikmanna, en einnig munu stúdentar úr Guð- fræðideild Háskólans verða meðal ræðumanna. Einnig er það ætlunin að fá kunna söngv ara, leikara og skáld til þess að koma fram og syngja og lesa upp á kirkjukvöldunum. í kvöld gefst öllum kostur á því að heyra ungfrú Guðrúnu Á. Símonar, óperusöngkonu, syngja í Hallgrímskirkju. Ræðumenn í kvöld verða þeir Jónas B. Jónsson fræðslufull- trúi og Bragi Friðriksson stud. theol., sem einnig er kunnur íþróttamaður og hefir m. a. haft mikil afskipti af íþróttastarf- semi í skólum. Jónas mun ræða um óbein áhrif fullorðins fólks á börn og unglinga, en Bragi talar um æskuna og kristnilífið. Væntanlega fjölmenna Reyk- víkingar í Hallgrímskirkju í kvöld. Sigurður Jónsson í Stafa- felli, formaður félagsins, setti mótið, j en síðan flutti Kristján Benediktsson í Ein- holi 25 ára minningu félags- ins. Knútur Þorstensson skóla stjóri minntist fullveldisdags ins. Þá flutti frú Sigurlaug Árnadóttir ferðamenningu. Á laugardagskvöldiö var kvöld- vaka með rímnakveðskap og söng. Á sunnudaginn hófst mótið með guöþjónustu í barna- skólahúsinu, og messaði séra Eiríkur Helgason. Síðan flutti Benedik.t Þorsteinsson erindi, er hann nefndi Hvort er betra að vera bóndi eða verkamaður. Séra Eiríkur Helgason flutti erindj um Austur-Skaftafellssýslu, íbúa og hérað. Rafn Einarsson Ný rauð bók Ný rauð bók er komin út hjá Bókfellsútgáfunni, Dísa sigliru um Suðurhöf, þýdd af Freysteinj Gunnarssyni skóla stjóra. Þetta er saga handa ungum stúlkum, eins og hin- ar rauðu bækurnar, og smekklega úr garði gerð. Áður hafa komið út í þess- um bókaflokki sögurnar um Pollýönnu, Rebekku frá Sunnulauk, Siggu Viggu og Stínu Karls. kennari flutti erindi, er hann nefndi Vetrarsýn. Sigurlaug Árnadóttir las upp smásögu eftir Guölaugu Benediktsdótt ur, og Sigurjón frá Þorgeirs- stööum las einnig upp fram- samdar smásögur. Sigurður í Stafafelli flutti frásöguþátt: Fyrir 50 árum. Dansaö var bæði kvöldin. Mótið var fjölsótt pg tókst hiö bezta. Bruðkaupsferð til Paradísar eftir Heyerdahl Draupnisútgáfan héfir gef- ið út bókina Brúðkaupsferð til Paradísar eftir norska náttúrufræðinginn og könn- uðinn Thor Heyerda,hl, sem heimsfrægur varð að Kon Tiki leiðangrinum og bókinni um hana. Sú bók hlaut hér á landi miklar vinsældir í fyrra einis og í öðrum löndum, þar sem hún hefir nú verið met- sölubók í sínum flokki nokk- uð á annað ár eða lengur en nokkur bók fyrr og síðar. í þessai’i bók, Brúökaups- ferð til Paradlsar, lýsir Heyerdahl brúðkaupsferð sinni til Suðurhafseyja, en þar komst hann að vitneskju Mæðrastyrksffiefml iFramhald af 1. síðn.) neinar stórupphæðir að ræða á hvern síað, mun þetta þó marg' an hafa glatt og hjá mörgtnn hafa gert hlýrra og bjavtara. Vafalaust er þörfin ekki minni nú en þá. í fyrra gafst ncfmlinni og mikið af fatnaði bæði nýjum og gömlum. Slíkar gjafir eru einnig mjög vel þegnar, en góð urn gefendum skal bent á, að betra er að slikar gjafir komi heldur fyrr en seinna. Öllum gjöfum er veitt móttaka í skrif stofu nefndarinnar í Þingholts stræti 18, sem er opin alla virka daga frá kl. 3—5. Síminn er 4349. um menningartengslin milli Suður-Ameríku og Suðurhafs eyja, og varð það upphaf flekaferðarinnar frægu. Lýs- ir hann lífinu á hinni undur- fögru ey Fatuhiva og fylgja frásögninni margar myndir og teikningar. Bókin er rituð af sömu fiminnj og iéttleikan um og Kon Tiki. Jón Eyþórs- son hefir íslenzkað bókina, en hann íslenskaði einnig Kon Tiki. ílíIíreiðlS fímánn ilnglýslð i liinanani Símar 7872 og 81 988. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Forðizt eldinn og eiguatjón Framleiðum og seljura flestar tegundlr handslökkvl cækja. Önnumst endurhleðsla á slökkvítækjum. Leitið upp- iýslnga. Koisýruhíeðsian ».f. Síml 3381 Trýggvaeötu 10 AMPER H.F. Raftækjavinnustofa Þingholtstræti 21 Sími 81556. Raflagnir — Viðgerðir Raflagnaefni ►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Frímerkjaskipti Sendið mér 100 íslenzk frí- merki. Ég sendi yður um hæl 200 erlend frímerki. JÓN AGNARS Frímerkjaverzlun, P. O. Box 356 .Reykjavík. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< tilM-oiðið TÍIHííSMI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.