Tíminn - 15.12.1951, Blaðsíða 10

Tíminn - 15.12.1951, Blaðsíða 10
10. • TIMINN, Iaugardaginn 15. desember 1951. 285. blað Lííið er dýrt (Knock on Any Dcor) Mjög áhrifamikil ný amerísk ! stórmynd eftir samnefndri j sögu sem komið hefir út í j íslenzkri þýðingu. Myndin j hefir hlotið fádæma aðsókn j hvarvetna. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Shuldaskil Sýnd kl. 3. JT = NYJA BIO Bularfulli maðurinn (The Saxon Charm). (liucuuiiimiiumiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiummiuujiiiiiii I Austurbæjarbíó I 99' Carnegie Ifufl” j Afburðavel leikin og áhrifa- I I rík ný amerísk mynd. Aðalhlutverk: Susan Hayward, John Payne, Kobert Montgomery. § Sýnd kl. 5, 7 og 9. | j Einu sinni var . • . . f Falleg barnamynd, er sýnir 1 fjögur ævintýri, sem heita: | Bamasirkusinn, Dúkkulísan | Britta, Kappaksturinn og = Ævintýri jólasveinsins. Þetta 1 er veruleg jólamynd barn- \ anna. Sýnd kl. 3. | Sala hefst kl. 11 f. h. = BÆJARBÍÖ ( - HAFNARFIRÐI - Kalifornía viðburðarík og spennandi i amerísk kvikmynd. Barbara Stanwick, Ray Milland, Barry Fitzgerald. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. I Útvarps viðgerðir I c RaeífovlssiiHSfofan 1 LAUGAVEG 166 1 Bergur Jónsson Málaflutningsskrifstofa Laugaveg 65. Sími 5833 Heima: Vitastíg 14 J*ujAningJoé£iiA7iaA <b áeJtaJO 0uafeUi$icr% Glæsilegasta músíkmynd, er j framleidd hefir verið. Sýnd kl. 9. Gimsteinarnir með Marx-bræðrum. Sýnd kl. 3, 5 og 7. (TJARNARBÍOj í Keisaruvalsinn (Emperial Waltz). | Bráðskemtileg og hrífandi fög É ur söngva- og músíkmynd í | eðlilegum litum. 1 i Aðalhlutverk: Bing Crosby, Joan Fontaine. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Autningja Sveinn litli Aðalhlutv.: NHs Poppe. Sýnd kl. 3. E fiiiiiiimmrimiiMiiii"iiiiiii"iimiii|"iiiii"iinim •> r iiimiiniiiniiiiiiiiiiiiniimiiniiiiiiíiiiiiiiniiiiiinii ; IGAMLA BÍÖ( BATVK (Crossfire) i Afar spennandi og eftirtekt- I I arverð amerísk sakamála-1 | mynd. Robert Young, Robert Mitrhum, Robert Ryan. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. i Bönnuð börnum innan 14 ára i 1HAFNARBÍO) = = S r = | Kynsloðir kotna ... | (Tap Roots). | Mikilfengleg ný amerísk stór I | mynd í eðlilegum litum, § i byggð á samnefndri metsölu | | bók eftir James Street — i | Myndin gerist í amerísku | 1 borgarastyrjöldinni og er tal | | in bezta mynd, er gerð hefir 1 1 verið um það efni síðan „Á i 1 hverfanda hveli“. Susan Hayward, | Van Heflin, Boris Karloff. I Bönnuð börnum innan 14 ára. | i Sýnd kl. 5, 7 og 9. | Sonur Hróa Hattar l Sýnd kl. 3. Sala hefst kl. 11 f. h. (TRIPOLI-BÍÓj Berlínar- hraðlestin (Berlin Express) = 3 | Spennandi amerísk kvikmynd | | tekin í Þýzkalandi með að- I | stoð hernámsveldanna. Merle Oberon, Robert Ryan, Paul Lukas. Sýnd kl. 7 og 9 Börn fá ekki aðgang. Smámyndasufn I j Sprenghlægilegar amerískar § ! teiknimyndir o. fl. Sýnd kl. 5. Askriftarsími; TÍMINN 2323 Jólamaturinn frá SÍLD & FISK Gæsir Andir Kjúklingar Hamborgarhryggir Svínakótelettur Svínasteik Wienarsnitsel Buff Beinlausir fuglar Franskar steikur Gulíach Fyllt dilkakjöt m/ávöxtum Hangikjöt Hamborgarlæri Dilkasvið Bragðbætir með jólamatnum Grænar baunir, ísl. og útl. Gulrætur Bl. grænmeíi Blómkál Sveppir Aspargus Asíur Agúrkur (súrar) Greskar Pickles Hvítkál Áskurður og salöt, fjölbreytt úrval. Gerið svo vel að pantið i jólamatinn meðan úr nógu er aö velja. SÍLO & FÍSKUR »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦« Sápuspænin í allan viökvaaman þvott AKUREYRI ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< mm ÞJÓÐLEIKHÚSID íí „Hve gott og fagnrt' Sýning sunnudag kl. 20,00, Síðasta sýning fyrir jól. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13.15—20,00. — Sími 80000. Kaffipantanir í miðasölu. KJELD VAAG: HETJAN ÓSIGRANDI ______________10. DAGUR ----------—________1 í reksturinn, og tvöfaldur eða jafnvel þrefaldur bátahringur var sleginn um vöðuna-. ííeini renndi bát sínum á sinn stað í rekst- urinn. Loks voru þeif komnir á vettvang. Mennirnir störðu á hvalina blóðhlaupnum augum. Þeir drógu andann djúpt, studdu sig við þófturnar og struku sveittum hönd- um um brennheit ennin. Prófasturinn renndi augunum yfir vöð- una. Þetta voru senniléga um tvö þúsund hvalir. Á geysistóru svæði var sjórinn allur eitt löður, þar sem skelkaðir hvalirnir byltu sér með þungum’ sporðaslögum. Reksturinn var þegar haf- inh. Mennirnir öskruðú hásum rómi sem mest þeir máttu, og grjóti frá bátunum rigndi yfir flýj.andi skepnurnar. Árum var barið í sjóinn, svo gusur gengu yfir áhafnir bátanna. Grindin var rekin hægt og hægt inn í hvalavoginn, þar sem grynningar voru í botni fjarðarins. Forustuhvalurinn stefndv beint að þeim stað, þaf sem svo margar vöður höfðu á liðnum árum átt sín endalol:. Hinir fylgdu á eftir í blindni. Ef örfáir tóku sig út úr hópnum og ætluðu að fara leiðar sinnar, voru þeir óðar hraktir aftur inn í aðalreksturinn. Hinn mikli flokkur nálgaðist stöðugt crlagastaðinn. Bátahringurinn þét-tist sífellt, og það voru ekki horfur á, að mennirnir í bátunum, sem síðastir fóru, þyrftu að neinu að stárfa, fyrr en sjálf slátrun hvalanna hæfist.. Snögglega renndi forustuhvalurinn á grunn. Hann byltist litla stund í hafrótinu, sem hann gerði, en svo tókst honum með þung- um sporðaköstum að losa sig. Hann sneri við og æddi í tryll- ingi beint á móti vööunni. Hundruð hvala sneru við á svipstundu og runnu eins og flóðbylgja beint á móti innsta bátahringnum. En mennirnir voru viðbúnir. Þeir æptu enn tröllslegar enn áður, böðuðu út öllum öngum, börðu árunum í sjóinn eins og vitfirrt- ir væru og ráku spjót sín í þá af hvölunum, er þeir náðu til. Fjöldi hvala brauzt þó út úr'Lvínni, en þá tóku þeir næstu við. í mesta lagi nokkrum tugum hvala tókst að komast út úr bátaþvögunni og flýja til hafs ... Grindin var hrakin æ þéttar saman, og sjórinn var allur eitt freyðandi löður við hamfarir trylltra dýranna. Bylgjurnr gengu yfir bátana. Einn af Leirvíkurmönnum hóf spjót sitt á loft og rak það á kaf í hval, en í sömu andrá skrikaði honum fótur á borð- stokknum, svo að hann steyptist í löðrið. Félagar hans gáfu því engan gaum, nema einn. Hann dró manninn innbyrðis, er honum skaut upp. Allir aðrir börðust í tryllingi með spjótum og hníf- um, grjóti og árum. Nasirnar þöndust út við blóðþefinn, og hás ópin voru orðin að æðisgengnu öskri. Sjórinn rann úr hári manna og klæðum, og bátarnir köstuðust til eins og korktappar á straum vatni. Ungur hvalur renndi sér framhjá báti prófastsins. Magnús laut að borðstokknum og rak spjót sitt í svartan, gljáandi slcrokk lians. Hvalurinn lamdi sjóinn með sporði og bægslum, snarsner- ist við — og sökk. Magnús iét fallast niður í bátinn, og faðir hans leit ásökunaraugum til hans. Hvalurinn var dauður — sokk- inn í dýpi, þar sem ekki náðist til hans. Magnús leit undan, mið- ur sín af blygðun. Honum fannst sem hann heyrði orð Kolbeins: Hval má ekki drepa fyrr en í flæðarmálinu, aðeins stinga. Hvala- drápið byrjar ekki fyrr én inni í hvalavognum. Þessi orð hafði hann oft heyrt. Og hú hafði hann drepið fyrsta hvalinn sinn langt undan landi. - En það virtist enginn hafa séð þetta nema Heini. Allir aðrir höfðu gleypit stund og stað í bardaganum. í sífelldu lögðu þeir spjótum sínum gegn svörtum ferlíkjunum, sem freistúðu undan- komu. Sjórinn var rauður sem blóð, og margir virtust ekki ein- hamir. Senn leið að því, að vaðan stæði botn og drápið hæfist. Magnús öskraði eins og aðrir. Hann hafði stungið þrjá hvali, og hann beið þess með óþreyju, að hann mætti loks beita hvala- spjóti sínu skefjalaust. í hamslausu æði hóf hann þunga árina á loft og hugðist keyra hana í sjóinn. í sömu andrá riðaði Brynj- ólfur til falls á hálli þóftunni og skall á grúfu á borðstokkinn. Árin reið af firna þunga yfir herðar hans og hnakka, og þeir Magnús ultu báðir niður i kjölsogið. Magnús spratt þegar á fæt- ur, en Brynjólfur lá hreyfingarlaus á grúfu með höfuðið á kaf í sjónum, sem hafði hálffyllt bátinn. Magnús laut yfir hann, bylti honum við og skók mátfvana líkama hans. Nei — lifandi var hann áreiðanlega — lofaður veri líknsamur guð — það blæddi ekki vitund úr hnakka hans eða höfði. Hann hlaut að rakna viö — svo að hann missti ekki af síðast þætti bardagans við grindina! Jú — þeir voru byrjaðir að drepa hvalina! Magnús sleppti óð- ai hinum meðvitundarlausa manni og hljóp fyrir borð að dæmi hinna. Prófasturinri hrópaði eitthvað á eftir honum, en hann skeytti því ekki. Sjórinn tók honum undir hendur, eitthvaö flækt- ist um fætur honum svo að hann steyptist áfram, en hann reis á fætur jafnskjótt aftur, há-lfblindaður af sjávarseltunni. Hann rak upp siguröskur. Nú var hann loks fullgildur karlmaður í hópi hinna vöskustu Fæ»-eyinga. Fyrsti hvalurinn hans hafði sokkið í djúpið, en nú byltust dauðadæmdir hvalirnir allt í kringum hann og biðu banastungunnar. Þeir lömdu sporðunum, svo að mannhætta var, en Magnús Heinason kunni ekki að hræðast.... Hann rak hníf sinn í hvalinn, sem næstur honum var, og hann sökk á kaf í titrarídi skrokk hans. Magnús dró andann með þungum sogum, óð með reiddan hnífinn að næsta hval, féll aftur í blóðlitaðan sjöínn og var á svipstundu risinn upp á ný. Enn sökk hnífurinn titrandi spik dauðadæmds hvals. Maður varð á vegi Magnúsar, en hann hratt honum umsvifalaust frá sér. Blóðugt hár hans féll niður í augu honum, og hann reyndi að strjúka það frá með blóðugri hendinni. Blóð.... blóð.... blóð! Allt rann í rauða boku fyrii augum hans, og nasirnai' sugu í sig megnan blóðþefinn. Hvaö eftir annað hóf hann breiöblað- aðan hníf sinn á loft og stakk livalina, og blóðbogarnir stóðu úr

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.