Tíminn - 23.12.1951, Blaðsíða 4

Tíminn - 23.12.1951, Blaðsíða 4
4. TÍMINN, suunudaginn 23. desember 1951. 292. bla», Honolulu, 13. des. 1951. Kæri ritstjóri. Það var svo mikið af prentvill um í bréfinu mínu, sem ég skrif aði þér frá Montana og þú birt- ir í Tímanum síðast í október (en síðan í nóv.-byrjun hef ég ekki séð Timann), að það fauk svo í mig, að ég hugsaði mér helzt að ég skyldi ekki skrifa þér fleiri bréf til birtingar í blaðinu í þessu ferðalagi. En líkl. hefir þú farið að lesa betur próf- arkirnar af síðari bréfunum, þvi rétt áður en ég lét frá ströndum Ameríku fékk ég bréf frá þrem ur góðkunningjum mínum að heiman, sem allir báðu mig m. a. um að halda áfram að skrifa ferðapistla í Tímann. Ræð ég þar af, að eitthvað hafi birzt í blaðinu frá mér, án þess að vera stórskemmt af prentvill- um. Og fyrir áhrif þessara manna og í von um að nokkrir fleiri góðkunningjar og aðrir vilji láta huga sinn fljúga í fylgd með ferðalangnum, ætla ég að skrifa þér og þeim dálitla stund núna. Veðráttan í Kaliforníu. Það er talsverður metingur milli Kaliforníubúa og Flórída- búa um í hvoru ríkinu sé dásam legri veðrátta. íbúar Kaliforníu segja, að hún sé ennþá betri í sínu ríki, því að í Flórída sé oft svo óþægilega heitt. En við önn ur ríki Bandaríkjanna vilja þeir ekki heyra talað um neinn sam- anburð! — Og það er satt, að veðráttan í Kaliforníu er dásam leg. Þó verður nokkuð heitt þar sumstaðar, einkum þegar dregur dálítið upp frá ströndinni, eða yfir 100 stig á F. Og eina sein- ustu nóttina, sem ég var í Los Angeles, fór hitinn þar niður í um 40 stig á F. eða rúmlega 4 stig á Celsíus. Þá fraus upp til landsins. Þótti þá mikill kuldi! Oftast eru þetta 12—16 stig á Celsíus í skugganum á daginn og lítið kaldara á nóttunni — nú um þetta leytiö. Nokkrar rign ingar voru öðru hvoru eftir að kom fram í nóvember og grænk ar þá jörðin óðfluga. Á sumrin eru sífelldir þurrkar og skrælnar þá allt, sem ekki er vökvað. En vatnsveitur eru ofan úr fjöllun- um og eru þær bæði langar og stórkostlegar. Til dæmis sækir San Francisco-borg sitt vatn urn 400 mílna veg og er það á- líka vegalengd og úr Reykjavík eftir þjóðveginum langt norður í Þingeyjarsýslu. En þótt landið sé gott í Kali- forníu, þegar það er vökvað, þá eru það veðurgæðin, sem munu valda því aðallega, hve fólkinu fjölgar þar ört. Það drifur þang að víðs vegar að og fæstir vilja fara þaðan, sem einu sinni eru þangað komnir. Þótt grasið sé slegið sex sinnum á ári og tvær uppskerur séu af appelsínum ár lega o. s. frv., þó er efnahagsaf- koman ekkert betri þar heldur en annarsstaðar. fslendingar í Kaliforníu. Talsvert marga Islendinga fann ég í Kaliforníu og þar á meðal nokkra Borgfirðinga, sem ég man eftir heima í Borgar- firði á barns- og unglingsárun- um. Þeir voru í öllum stærstu borgunum þar, svo sem San Francisco, San Diego, Los Angeles og útborgum hennar: Hollywood, Inglewood o. fl. Tóku þeir mér með mestu á- gætum og buðu mér m. a. að búa hjá sér yfir lengri eða skemmri tíma og sýndu mér margskonar vinsemd. Virðist mér hugur margra þeirar mjög hlýr til íslands og talsverð al- menn löngun hjá þeim að skreppa heim til þess að sjá BRÉF FRÁ HAWAII Ferðaþættir frá Kaliforníu, Mexico og Hawaii gamla landið og ættingja sína þar. Eru íslendingarnir yfirleitt mjög efnilegt og gott fólk og komast vel af, þótt um fáa veru- lega efnamenn sé að ræða meðal þeirra í Kaliforníu. Þó eru til menn þar af algerlega íslenzku bergi brotnir, sem eru margfald ir milljónerar í dollurum. En almennast er aðaleignin ein í- búð (oft góð) og 1—2 bifreiðar. — Það er annars meiri fjöldinn af bifreiðunum í Ameríku, og þó eru þær langflestar í Kali- forníu. En eitt mesta vandamál ið í stærri borgunum þar, er að geta lagt bifreiðunum einhvers staðar á daginn, þegar stanza þarf. Og oftast kostar það meiri og minni peninga að leggja þeim stundarkorn. Til dæmis í Los Angeles-sýslunni (district), sem hefir um fjórar milljónir íbúa, ' kváðu vera um 2 milljónir bif- reiða! — Það virðist vera aðeins dáliítið imaspursmál, hvenær öll sú sýsla verður ein samfelld borg og eftir því, sem fólkinu fjölgar þar ört, er ekki ólíklegt að fyrir næstu aldamót verði ' hún orðin stærsta borg í heimi. Kalifornía er á margan hátt heillandi land og komi ég heim j á Island aftur mun ég reyna að segja kunningjunum og öðrum, er heyra vilja, frá ýmsu nánar. j En hér er ekki ætlunin að stikla nema á örfáum steinum, hvorki ^ í Kaliforníu né annars staðar. I Mexikó. j Ég skrapp frá Kaliforníu suð- ur í Mexíkó að litast um sunn- I ! an vð landamærin. En þar var mikill munur, þótt landið sé svipað. Þó að borgir Bandaríkj- j anna vaxi ört, þá skákaði þó sú borgin (Tijuana), er ég helzt stanzaði í þar syðra, bæði þeim og Reykjavík okkar. Fyrir 10—20 árum voru þar aðeins um 20 þús. íbúar, en nú kváðu þeir vera j um 70 þús.! Einhvernveginn finnst mér þar syðra fólkið og 1 menningin minna mig mest á Algier á Afríkuströndinni og að j sumu leyti á Napoli og víðar á ' ítalíu — af þeim stöðum, þar' j sem ég hefi ennþá komið. Ibú- arnir eru yfirleitt blakkir á hör und. Eru víst mest kynblending ar Spánverja og Indíána. Þar er söluprangið úti á strætum álíka og við Miðjarðarhafið. Varla er' hægt að komast áfram á gang- J stéttunum fyrir sölulýð með, margskonar varning. En þó var, sá lýður ekki nærri eins lipur eins og t. d. í Napoli — ekki a. j m. k. í liðamótunum! Kvenfólk ið virtist þarna minna mjög á I kynsystur sínar á Afríkuströnd- | inni — og líka á þær í Mílanó! t En ég skal ekki tala nánar um það kvenfólk. Yrði það máske tilefni „lifandi" mynda hjá góð kunningjum mínum Páli Skúla- syni og Haraldi Á. Sigurðssyni. Bezt að hvíla sig frá þeim „menn ingartengslum" í þetta sinn. Eitt mesta „sportið" þarna er að fara í uxakerrum eins og tíðk ast mjög á Afríkuströndinni. Og þó fara líklega ferðalangarnir aðallega í þær í Mexíkó til þess að láta mynda sig í þeim. Sá þykir ekki maður með mönnum, sem fer suður fyrir landámærin til Mexíkó, láti hann ekki mynda sig í uxakerru!! Nautaat og fangahús. Kaupgjald er lágt í Mexíkó Blómarós frá Hawaii og sækja Mexíkanar fast á að komast norður fyrir landamær in i hærri launin þar, en eru eltir uppi af landamæravörðun- um, þótt allmörgum takist að sleppa norður fyrir og leynast þar, eftir því sem sagt er. — Matur er bæði mikill og góður hjá Mexíkóbúum og ódýrari að mun heldur en fyrir norðan landamæralínuna. — Nautaat var ein aðálskemmtun þeirra þar syðra og kostuðu ódýrustu sætin í nautaats-„leikhúsinu“ j $ 3,50, og er oftast mjög erfitt að fá aðgöngumiða, svo er að- sóknin mikil. Er það þó sóðaleg skemmtun og sýnir, hve villi- dýrið er enn ofarlega í mönn- unum, að þeir skuli fara oftar en einu sinni að horfa á slíkan „leik“. En fólkið þarna virðist yera mjög ruslborið, enda alls konar glæpir mjög tíðir: mann dráp, þjófnaðir, rán o. fl. Stórt fangelsi var fast við aðalstræti borgarinnar (margfalt stærra heldur en fangahúsið við Skóla- vörðustíginn!) og voru þar járn grindur út að gangstéttinni milli fanganna og vegfarendanna. Líklega hafa fangarnir átt að fá að skemmta sér við að horfa á umferðina — eða fólkið við að sjá fangana? Sýnist það vera dálítið einkennilegt, hvort það er í Mexíkó eða Reykjavík, að vera að hafa aðalfangahúsin við aðalstræti borganna. Voru fang arnir í þéttum fylkingum inn an við járngrindurnar og voru þeir m. a. að reyna að fá vegfar- endur til þess að stanza, með því t. d. að rétta fingurna út á milli járnrimlanna og virtust þá vera að sníkja eftir sígarett- um eða öðru þ. h. En vopnaðir varðmenn voru úti á stéttinni að líta eftir, að ekki væri sam- bandið of náið milli fanganna og þeirra, sem um götuna gengu. Minnti þetta fangahús mig á greinar Kristjáns Albertssonar í Mbl. hér um árið, þar sem hann stakk upp á því að reisa fangabúr úr járngrindum á Lækjartorgi í Reykjavík. Á Hawaii. Á leiðinni hingað út á Hawaii frá Los Angeles, var ég m. a. samferða inníæddri fjölskyldu hér á eyjunum (af japönskum ættum). Hafði hún flutt upp í Kaliforníu fyrir ári síðan og ætlaði sér að setjast þar að fyrir fullt og allt. En hún kunni ekki við veðráttuna þar! Datt mér þá í hug það, sem gömul kunningjastúlka mín frá Akra- nesi sagði við mig um daginn, eftir að vera búin að dvelja 3 ár í Los Angeles. Hún hvað sér þætti reyndar veðrið gott, en það væri betra þó, ef hægt væri að fá rok og stórrigningu eöa hríðarbyl, svona einu sinni í mánuði. Þessi veðurblíða og lítill munur á veðri mánuð eftir mán uö gerði mann leiðan á tilbreyt- ingaleysinu. Japansk-ættaða fjölskyldan var ekki alin upp við misjafnt veðurfar eins og Islendingarnir heima, því að hér er vetur, sumar, vor og haust nær því sama veðurblíðan. Fjöl skyldunni fannst veðurfarið í Kaliforníu ekki gott og mjög misjafnt að hita og kulda. Á sumrum væri máske stundum yfir 400 stig á F., en á vetrum færi hitinn niður í frostmark. Þetta fannst, einkum börnunum tveim, laglegum gjafvaxta dætr um, lítt þolandi! Og fluttu sig því aftur, að þær sögðu, alkomn ar hingað á æskustöðvarnar. En hér er hitinn nær jafn allt árið eða sem næst 23—24 stigum á Celsíus, enda er farið að stytt- ast hér til Miðjarðarlínunnar. En Islendingurinn kysi nú dál. meiri svala öðru hvoru. Reyndar er norð-austan gola hér mikinn hluta ársins, en hún er heldur hlýrri en landnyrðingurinn heima! Landslagið. Eyjarnar eru átta og allar byggðar nema ein, sú minnsta og óbyggilegasta, sem notuð er til heræfinga og þ. h. Er tæplega hálf m^illjón íbúa samtals á eyjunum. Aðeins eru þó 335 menn búsettir á einni byggðn eyjunni, en á þessari, sem Hono- lulu er á (Oahu) eru íbúarnir nú taldir vera 347,440 og er mik ill meiri hluti þeirra hér í borg inni. Ekki er þessi eyja nema 604 fermílur, svo hún er ekki nema nálægt einn sextugasti og fimmti hluti Islands að stærð. Sést á því að hún er nokkuð þéttbyggð. Eins og kunnugt er eru þessar eyjar eldfjallaland og eru hér einhver þekktustu eld- fjöll í heimi og umbrot oft ógur leg. Mauna Loa og Mauna Kea, sem eru hæstu og þekktustu eld fjöllin, eru hátt á 14 þús. fet á hæð og eru toppar þeirra snævi þaktir yfir úrkomutímann, sem er á vetrum, þótt svona sé hlýtt hér neðra. Milli eyjanna er sjór inn sums staðar um 2000 feta djúpur. Svo það er nokkuð óslétt hérna! Haleakala hefir einhvern stærsta eldgíg í heimi. Eyjarnar eru allar fjöllóttar (gamlir eldgígir) og rísa fjöllin sem snarbrattir, hvassyddir, ó- reglulegir tindar. Á þessari eyju, sem ég er nú á, eru þeir uppund ir þrjú þús. feta háir þeir hæstu (en miklu hærri samt annars staöar) og eru þeir klæddir lág- um skx-úðgrænum skógi, alveg frá rótum og uppúr, nema á ein staka stað standbergsklettar. Byggðin er mest meðfram strönd unum í smáþorpum. En nær ekkert af einstökum bændabýl- um. Þó sá ég í dag einstakt bóndabýli, þar sem eru átján hundruð mjólkurkýr. Þar er samt ekkert fjós! Kýrnar koma aldrei í hús. Atvinnuvegimir. Auðkýfingar eiga mest af land inu og leigja það svo út gegn okurleigu. Til dæmis á einn mað ur 208 fermílur af þessari eyju (Oahu) eða rúmlega þriðjung hennar og fær hann 3 milljónir dollara í leigu eftir landið. Er auðnum misjafnlega skipt und ir yfirráðum blessaðra Banda- ríkjamannanna eins og víðar í heiminum. Þessi mikla misskipt ing gefur byltingastefnun- um auðvitað byr undir báða vængi. Reyndar má viðurkenna það, að á síðari árum eru auð- kýfingar Bandaríkjanna skatt- lagðir mjög hátt, en það er líka allur almenningur. Hawaiibúar greiða t. d. um 170 milljónir doll ara í skatta á ári til sambands- ríkjanna. Þar fyrir utan svo alla sérskatta í þarfir eyjabúa sjálfra. Það kostar nokkuð að búa hér, þótt margt sé hægt. T. d. eru 103 þús. bifreiðar hér á þessari eyju og þær þurfa sitt. Bensínið kostar hér 31 cent gallonið. Atvinnuvegirnir eru ekki fjöl- skrúðugir. Verksmiðjur finnast fáar. Fiskveiðar litlar, en þó er fiskað dálítið af túnfiski. Málm ar engir og ekki nein kol né olía. Ávextir eru talsverðir, einkum (Framhald á 5. síðu) GLEÐILEG JÓL! Sláturfélag Suöurlands. GLEÐILEG JOL! Svanur h.f. GLEÐILEG JÓL! Skiþaútgerð ríkisins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.