Tíminn - 14.02.1952, Qupperneq 6

Tíminn - 14.02.1952, Qupperneq 6
6. TÍMINN, fimmtudaginn 14. fcbrúar 1952. 36. blað. tisimuuiifisi Maðurinn frú Colorado 5 Stórbrotin, amerísk mynd í| eðlilegum litum. Mynd þessi | hefir verið borin saman við | hina frægu mynd „Gone with | the wind“. Glen Ford, Ellen Drew. Sýnd kl. 5, 7 og 9. NÝJA BIO| Cashnir á örlagastund Tilkomumikil og afburðavel § leikin þýzk mynd. Aðalhlutverk leika: Rudolf Forster Maria Holst í myndinni leikur Philharm- | oníska _ hljómsveitin í Vínar-| borg, Ófullgerðu hljómkvið- | una eftir Schubert. — Dansk \ ir tetar. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBÍÓ - HAFNARFIRÐI - M ississippi Bráðskemmtileg, amerísk i gamanmynd. Aðalhlutverk: I Bing Crosby I Joan Bennett Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. HAFNARBIOj Ósýnilega kanínanl (Harvey). f Afar sérkennileg og skemmti | leg, ný amerísk gamanmynd, \ byggð á samnefndu verð-1 launaleikriti eftir • Mary I Chase. James Stewart, Josephine Hull, Peggy Dow. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Frímerkjaskipti 1 Sendið mér 100 íslenzk frí- f merki. Ég sendi yður um 1 hæl 200 erlend frímerki. I I JÓN AGNARS Frímerkjaverzlun, P. O. Box 356. Reykjavík. I I C iiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii z 'Íáii íiial:jl4 1' Útvarps viðgerðir Radli»viiuiiistofaa VELTUSUNDI 1. j Austurbæjarbíó Sægmmnurhm (The Sea Hawk) | Hin afar spennandi og við- 1 burðaríka ameríska víkinga- | mynd, byggð á skáldsögu eft | ir Sabatini. Erroll Flynn, Brenda Marshall. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 7 og 9. | JLísa í Undralandi | | (Alise in Wonderland) | Bráðskemmtileg og spenn-1 | andi, ný kvikmynd tekin í | | mjög fallegum litum, byggð | | á hinni þekktu barnasögu. Sýnd kl. 5. TJARNARBÍÓ1 Stembrant | Hrífandi mynd um æfi Rem- | brandts, hins heimsfræga í hollenzka snillings. [ I 1 Aðalhlutverk leikur a Charles Laugthon | af óviðjafnlegri snilld. Sýnd kl. 5, 7 og 9. (GAMLA BÍÓ 1 JSorgarlyhlarnir (Key to the City). | Ný, amerísk kvikmynd með: Clark Gable, Loretta Young, Marilyn Maxwell. ^ Aukamynd: E Endalok „Flying Enterprise" | og Carlsen skipstjóri. Sýnd kl. 5, 7 og 9. (TRIPOLI-BÍO | Á ferð og flugi (Animal Crackers). | Sprenghlægileg amerísk gam | anmynd með hinum óviðjafn í anlegu MARX-bræðrum. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 1 Anglýsin^asíffiS T í M A ÍS er 81 30$. Erleffit yfflrilt (Framhald af 5. slðu.) Það féll í hlut Alexanders að und irbúa innrásina í Sikiley og í ítalíu. Síðar varð hann yfirhers höfðingi á ítalíuvígstöðvunum eftir að Eisenhower tók að und irbúa innrásina í Frakkland. Alexander þótti sýna með her stjórn sinni, að hann væri mjög glöggur og hygginn herstjórn andi. Áætlanir hans voru vel gerðar og vandlega undirbúnar. Margir telja, að hann hafi ver ið snjallasti hershöfðingi Breta í síðari heimsstyrjöldinni. Nokkru eftir stríðslokin skip- aði Attlee Alexander konungs- fulltrúa eða landstjóra í Kanada. Þar hefir hann dvalið síðan. Hann er sagður hafa unnið sér meiri vinsældir þar en nokkur annar maður, sem hefir gegnt þessari stöðu. Fulltrúi brezkrar skapgerðar. Alexander er þannig lýst, að hann sjáist aldrei bregða skapi. Rödd hans er alltaf jafn róleg og ekki verður séð á svipbrigð- um hans, hvort honum likar betur eða verr. Hermenn hans sögðu, að það væri eins og ekk- ért biti á hann og hann bregði sér hvorki við vosbúð eða lífshættu. Hann dvaldi oft með þeim í fremstu víglínu og vakti aðdáun þeirra fyrir ró lyndi sitt. Hann er laus við allt tildur og var annálaður fyrir það á stríðsárunum, hve ó- breyttir lifnaðarhættir hans voru og hve lítið hann barst á. Jafnlyndi hans gerði hann ekki aðeins að frábærum hermanni, er skóp öðrum traust og öryggi, heldur einnig að mjög lægnum samningamanni, er kom málum sínurn fram með festu og hóg- værð. Þótt blöðin ræddu meira um Montgomery, hefir Alexand er þó sennilega verið enn vin- sælli meðal hermanna sinna og samstarfsmanna. Montgomery hefir oft heyrzt gagnrýndur, en það er sjaldgæft með Alexander. Það hefir því verið með réttu sagt um Alexander, að hann væri góður fulltrúi hinnar. beztu þátta í brezkri skapgerð, I rólyndisins og þrautseigjunnar,! sem eiga sennilega drýgsta þátt j inn í þeim áhrifum, sem Bretar | hafa náð. j Rólyndi Alexanders veldur því þó ekki, að hann sé ó- í skemmtilegur. Hann er léttur í samræðum og segir vel frá. Mála , maöur er hann mikill. Hann tal | ar frönsku, þýzku, ítölsku, rúss- nesku og urdu. Hann er vel les- j inn. Hann getur því rætt um' hin margvíslegustu efni á mörg um tungumálum og hefir það ekki sízt átt sinn þátt í að auka í vinsældir hans í Kanada. | ELDURINN i gerir ekkl boS á onðan sér. | Þeir, sem era hyggnir, 3 tryggja str&x hjá SamvinnutrysKlngum j Bergor Jónsson | Málaflutaingsskrifstofa 1 Laugaveg S5. Blml 5883 3 Heima: Vitaatlg 14 ÍLEIKFÉLAG! REYKJAVXMJR^ TONI vahnar tii íífsins Gamanleikur í 3 þáttum eftir Harald Á. Sigurðsson. — Leik- stjóri: Brynjólfur Jóhannesson. Sýning í kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 2 í dag. PÍ-PA-KÍ |V (Söngur lútunnar) Sýning annað kvöld föstudag kl. 8. Aðgöngumiðasala kl. 4—7 í dag. Sími 3191. frm* WODLEIKHUSID Sem yður þóhnast eftir W. Shakespeare Sýning íimmtudag kl. 20.00 „Sölumaður deyr66 Sýning föstudag kl. 20.00 „Sem ýiður þohnast6í Sýning laugardag kl. 20.00 Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 1-SU5—20.00. Sími 80000. ----------------- KJELD VAAG: HETJAN ÓSIGRANDI ----- 54. DAGUR -—J „Þú heldur ef til vill. að blóðhertoginn amist ekki neitt við okkur hérna í „Túlípananum““? sagði hann. „Látum þá koma“, svaraði Magnús, hvergi uppnæmur. „Þú berð þó ekki kvíðboga fyrir morgundeginum"? „Nei. En mér er favið að leiðast þetta stríð. Til hvers fjand- ans erum við hér? Kalvínstrúarmennirnir vilja rífa hvert altari úr kirkjunum og vilja ekki hlusta á orgelleik, og Spánverjarnir vilja tilbiðja guðsmðður. í sex ár höfum við hrellt tilbiðjendur Maríu. En nú er ég orðinn leiður á þeirri iðju.“ „Þú varst þó ákafur að komast í kast við páfatrúarmennina, þegar við fórum frá Björgvin". „Ég hélt, að við yrðum fésælir á hafinu. Við höfum líka oft íengið mikið herfang en ekki á ég neina tunnu gulls, því að inest af herfanginu hefir runnið til prinsins. Það er virðingar- vert, hve nákvæmur þú hefir verið í reikningum við prins- inn. En það er að minnsta kosti heimskulegt". „Hvað áttu við“? spurði Magnús reiðilega. Jakob yppti öxlum. „Það þarf ég varla að segja þér. Þú kemst tf til vill ekki hjá því að standa prinsinum skil á sínu. En þú hefir gleymt því. að þú átt skuld óinnheimta hjá Bretum“. „Hjá Bretum"? „Já. Eigum við ekki Jóhannesi postula það að þakka, að við erum hér í dag“? „Ég hefi oft sagt þér, að reikningarnir við hann skulu verða jafnaðir, enda þótt það verði hið síðasta, sem ég vinn mér til ágætis í þessum heimi. En ég get ekki hefnzt á öllum verzlunar- íiota Englendinga vegna misgerða eins manns". „Við tölum þá ekki meira um það“. Jakob bandaði frá sér hend- inni....„Ég hefi fengið bréf frá Lindenov“.... „Aftur“? sagði Magnús og brosti háðslega. „Hvað skrifar hinn t.’gni vinur þinn þér“? „Hið sama og s.íðast. Hann vill, að við komum til Björgvinjar og stofnum verzlunarfélag, og þú skalt vita, að það væri mikill gróðavegur. Séu lénsherrann í Björgvin og lögmaðurinn í Fær- eyjum á okkar bar.di, má græða mikið fé. Ég vil ekki vera tötra- riddari alla mína daga“ „Við getum ekki svikið prinsinn". „Hvers vegna getum við ekki gengið úr þjónustu hans“? „Þú spyrð eins og heimskingi, Jakob. Hann á erfiða tíma fram undan, og ég er ekki rotta, sem flýr af sökkvandi skipi.... “ „Fjandinn hirði alla þessa sómatilfinningu þína. Við komum til Niðurlanda til þess að auðgast, en við erum litlu ríkari en fyrir sex árum. Leyden verður hertekin næstu daga, og það er bezt fyrir okkur að sjá okkur farborða undir eins“. Hann þagnaði snögglega og rak upp óp. Inn um opinn glugg- ann var fleygt litlum böggli, sem hafnaði á borði þeirra Jakobs og Magnúsar. Jakob spratt á fætur, gekk út að glugganum, en sá engan úti fyrir. Gestirnir í veitingastofunni horfðu forvitn- isaugum til þeirra víkinganna, og augun ætluöu alveg út úr höfð- inu á Genetu Sigbritsdóttur. Magnús tók sendinguna upp af borðinu. Þetta var bréfmiði, vafinn utan um smástein. Hann breiddi úr miðanum. Þaö var eitthvað ritað á hann, en hvorki bar það yfirskrift né undirskrift. Það kom undrunarsvipur á hann, er hann las orðsendnguna. Loks ýtti hann miðanum til Jakobs og mælti lágum rómi: „Lestu þetta, en hafðu ekki hátt. Það er hlustað á okkur“. Jakob renndi augunum yfir miðann og varð ekki síður forviða en félagi hans. Þarna var í fám orðum gefið til kynna, að skipið ,Deventer“ myndi næsta dag fara frá Enkhuizen og væri látið’ svo heita, að það væri hlaðið vörum, sem senda ætti til hafnar- hæjanna í Gröningen. En í rauninni ætti það að fara til vestur- strandarinnar. Eigandi skipsins, Wilcken borgarráðsmaður, færi sjálfur með því, og auk hans og skipstjórans vissu fáir, hvernig allt væri í pottinn búið — öll farmbréf fölsuð! Þeir Magnús og Jakob gengu hratt út úr veitingastofunni. „Sé þetta satt, er Whcken viðbjóðslegasti svikarinn í öllu þessu landi“, sagði Magnús, er þeir komu út. „Hvað hyggst þú fyrir“? Magnús hleypti brúnum. Það var kunnugt, að spænska um- sátursliðið við Leyden skorti vistir, og það lá í augum uppi, að Wilcken hafð svik’ð land sitt og gengið á mála hjá óvinunum. Kann ætlaði að senda þeim skip, hlaðið vörum.;.. bókstaflega selja landa sína fyrir spænskt gull! En það skyldi honum aldrei takast! „Deventer“ skyldi sigla aðra leið.... Magnús vatt sér að Jakobi: „í nótt kallar þú saman al]a menn okkar. Hver, sem ekki verður ódrukkinn við sólarupprás, verður kjöldreginn“. „Hvað skal herfangið vera“? spurði Jakob háðslega. „Þú skalt ekki verða fyrir vonbrigðum. Það herfang eigum við sjálfir. Hraðaðu þér“! Jakob spurði einskis. Hann hraðaði sér niður að „Albert frá Nassau“ og stefndi skipsmönnum öllum saman. Að andartaki liðnu voru skipverjar þeir, sem þar höfðu verið, lagðir af stað upp í bæinn til bess að leita uppi félaga sína í veitingahúsum og krám. Enginn var kjöldreginn, því að um sólarupprás voru allir ódrukknir á sínum stað. Stundu síðar sigldi freigátan fyrir full- um seglum út Suðursjó. Stefnt var í norðvestur að venju. Samt íurðuðu margir sig á þessari siglingu. Þeim höfðu verið ætlaðir þrír dagar í höfn í Enkhuizen, en enginn áræddi að spyrja Magnús, hvað ylli þessari skyndilegu breytingu. Freigátan fór í gegnum sundið milli Helder og Texel um há- degisbil, og slagaði síðan vestur með ströndinni. Úti fyrir Alk- maar var aftur vent til norðurs, og þannig var siglt fram og aftur allan daginn og uæstu nótt. Skipverjar voru farnir aö stinga /VW1

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.