Tíminn - 28.02.1952, Blaðsíða 8

Tíminn - 28.02.1952, Blaðsíða 8
86. árgangur. Reykjavík, 28. febrúar 1952. 48. blað. Sonur kærir föður fyrir að senda sig heilbrigðan í Kleppsspítala Undanfarnar vikur hafa orðið allkynleg og óvenjuleg við skipti föður og sonar hér í bænum, og mun málið nú vera komið í hendur sakadómara sem ksera. og verður ýtarleg rannsókn i því bráðlega. Faðirinn hefir krafizt fæðispeninga með syninum af Reykjavikurbæ, og síðan sent hann á Klepp og borið á hann árásartilraun við sig, en sonurinn hefir kært málið. Blaöinu hefir verið sögð sagan á þessa leið: Faðir þessi, sem er útlend- ur, hefir búið hér alllengi, á íslenzka konu og son, sem er um tvítugt. Pilturinn er sagð- ur hæglætismaður af þeim sem til þekkja. Hefir faðir- inn haft mjög horn í síðu son ár síhs, haldið hann naumt svo og heimilið allt og vart fengizt til að leggja því til nauðþurftir, þótt efnahagur hans sé góður. Biður um fæðispeninga fyrir soninn. Framan af vetri hafði pilt- urinn verið atvinnulaus og faðirinn einnig að nokkru eftir hátíðar. í janúar fór fað irinn á bæjarskrifstofurnar og krafðist þar að fá greidda fæðispeninga með syni sín- um, þar sem hann hefði ekki greitt fæði sitt. Var honum synjað um það/ Sendir soninn á Klepp. Leið nú skammur tíma, en dag einr^ koma fjórir lögreglu menn heim til piltsins og taka hann fastan. Spurði hann, hverju það sætti og kvaðst ekki vita til, að hann hefði neitt af sér brotið. Lögreglu- Lík skipverja á Ey- firðingi koma með Gullfossi Lík manna þeirra, sem fór- ust með vélskipinu Eyfirðingi við Hjaltlandseyjar á dögun- um, verða flutt hingað með Gullfossi, er hann kemur hing að næst. Mun skipið nú vera um það leið að koma til Leith á leið sinni frá Kaumanna- höfn. þjónarnir sögöu að hann mundi brátt fá vitneskju um það. Fór pilturinn síðan fús- lega með þeim. Var haldið beina leið inn á Klepp og pilt urinn afhentur þar. Fullkomlega heilbrigður. Þegar móðirin komst að þessu leitaði hún aðstoðar frændfólks síns og talaði við Helga Tómasson yfirlækni á Kleppi í síma. Sagði læknir- i inn, að pilturinn væri heil- brigður og ekkert við hann að gera annað en senda hann he;m. Var þá ófært inn að Kleppi, því að þetta var í versta snjóakaflanum í jan- úar. Bað móðirin, að piltur- inn fengi að gista á Kleppi um nóttina og var svo. Um morguninn fór móðir in inn að Kleppi og ræddi við lækninn. Kvað hann piltinn (hafa verið tekinn og sendan ; samkvæmt vottorði læknis eins, sem faðirinn hefði bor- | ið sig upp við vegna hættu- i legs athæfis piltsins. Fór pilt ' urinn síðan heim. Járnstöngin í forstofunni. Nokkru síðar var pilturinn að koma heim til sín að kvöld lagi og hafði hann smekklás lykil að útihurð en þegar hann kom að var hurðin einn ig læst með skráarlæsingu og komst hann ekki inn. Fór hann þá niður á lögreglustöð og bað um hjálp til að opna. Vildi svo til, að hann hitti þar tvo lögregluþjóna þá, sem áður höfðu farið með hann á Klepp og fóru þeir jmeð honum. Opnuðu þeir ! hurðina og var faðirinn iheima. Urðu einhver orða- 'skipti og barst fyrri heimsókn lögregluþjónanna í tal. Sagði faðirinn að það hefði ekki (Framh. á 7. síðu). Maður bíður bana í grjótnámi bæjarins Klukkan hálf-þrjú í gær lenti roskinn maður, Helgi Guð- mundsson, til heimilis aö Óðinsgötu 21. í grjóttrekt í grjót- námi bæjarins, þar sem hann var a'ð vinna, og beið bana. síðastliðið ár Samkvæmt skýrslum fram- leiðsluráðs landbúnaðarins nam innvegin mjólk í mjólk- ursamlög árið 1951 37,434,390 lítrum, en 37,733,377 lítrum árið áður. Söluvörurnc.r árið 1951 skiptust svo: Seld mjölk 19 143,533 litrar, seldur rjómi 702,440 lítrar, framleitt smjör 355,642 kg„ skýí- 1,217,148 kg. ostur 388,789 kg„ mysuostur 90,761 kg„ undanrennuduft 63,050 kg„ nýmjólkurduft 5,550 kg„ undanrenna 1 kaseip 1,457,900 lítrar, mjólk i niður suðu 157,344. Birgðir voru um síðustu ára mót- 150,171 kg. af mjólkur- osti, 99,632 kg. af smjöri, 28,728 kg. af undanrennu- dufti og 718 kg. af nýmjólkur dufti. • I Helgi var fæddur vestur viö ísafjarðardjúp 2. marz 1884, og því tæpra 68 ára að aldri. Hann lætur eftir sig konu. Ætlaði að moka tll í trektinni. , Grjótmulningurinn rennur eftir rennum niður i trekt- ir, sem opnaðar eru að neð- an, þegar látið er á bíla. Þeg- ar trektirnar eru ekki losað- ar ört, hleðst mulningurinn upp við þann barm trektar- innar, sem rennan er við. M-un Helgi hafa ætlað að moka til í trektinni, og farið niöur 1 hana í því skyni. Sogaðist niður með ! grjótmulningnum. Það þykir sennilegt, aö annaðhvort hafi verið losað úr trektinni á bíl í sömu svif- um og Helgi fór upp í hana / Enn framinn fjöldi innbrota í fyrrinótt Elnn innhrotsjijófuriiin ó^naði löj»'ro«Ín- lijónum, scm að komn, mcð byssn í fyrrinótt voru hvorki meira né minna en sex innbrot framin í Reykjavik og Kópavogi. Var brotist inn í verzlun Hans Petersens í Bankastræti, Síld og fisk við Bergstaða- stræti, skrifstofur Jóhanns Ólafssonar við Hverfisgötu, verzlunina í Stórholti 16, Veiðafæragerð íslands við Ein- holt og búð KRON í Kópavogi. urðu innbrotsþjófsins varir. A fimm siðasttöldu stöðun- um var litlu stolið, aðeins nokkrum krónum, tóbaki og smádóti, nema í Kópavogin- um. Þar var stolið um 500 krónum og allmiklu af síga- rettum og vindlum. Hjá Hans Petersen var stolið riffli og 200—300 krónum í peningum. Miðaði byssu á lögreglu- þjónana. Innbrotið hjá Hans Peter- sen varð allsögulegt. Tveir lögregluþjónar á eftirlitferð Sáu þeir við athugun, að rúða hafði verið brotin í bak dyrahurð, en er þeir ætluðu að skyggnast inn, urðu þeir var- ir manns inni fyrir, og mið- aði hann á þá byssu. Hörfuðu þeir þá frá dyrunum, og fór annar lögregluþjónninn að sækja aukinn liðskost. En þá stökk maðurinn út úr húsinu með byssuna í hendinni, og komst hann undan lögreglu- þjóninum, sem eftir var, og vissi hann ekki, hvað af hon- um varð í myrkrinu. eða hann fengið aðsvif þarna í trektinni. Urðu vinnufélag- ar hans einskis varir, fyrr en sást á fætur hans niður úr trektinni. Var trektin þá tæmd í skyndi, en Helgi var örendur er hann náöist. Franska stjórnin völt í sæti á ný Hótar að leggja nióur völd Umræður um fjárlagafrum- varpið stóðu yfir í frariska þing inu í gsar og fram eftir nóttu. Faure forsætisráðherra hefir til lcynt, að stjórn hans muni gera það að fráfararatriði, ef eitt hvert hinna sex atriða, sem deil ur standa mestar um í frum- varpinu verði felld. Einkum er deilan um breytingar á rekstri járnbrautanna umdeildar, en þær gerir stjórnin til að hindra sívaxandi rekstrarhalla á þeim. Það er því búizt við, að stjórnin muni komast í allmikla hættu, þegar atkvæði verða greidd á morgun. Njósnamálin rædd í sænska þinginu Umræður um utanríkismál hafa farið fram í sænska þing- inu undanfarna daga, aðalleg um afstöðu Svíþjóðr til S.Þ. Inn í umræðurnar blönduðust mjög njósnamál þau, sem verið hafa á döfinni í Svíþjóð að undan- förnu, og var deilt á stjórnina fyrir að hafa svo slælegt eftir- lit með þessum málum, að menn gætu rekið umfangsmiklar og hættulegar njósnir árum saman án þess að uppvíst yrði. Undén utanríkisráðherra svaraði því, að stjórnin hefði ætíð tekið mjög hart á slíkum málum og mundi nú enn herða eftirlit sitt. C343EZS.; ten»> j-s««nnc>i» raæ - Búnaðarþingsfuiltrúar í boði forsætisráðherrahjónanna í fyrradag

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.