Tíminn - 15.03.1952, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.03.1952, Blaðsíða 3
62. blað. 3. TIMINN, laugardagr’nn 15. marz 1952. í sLendingaþættir Níræður: Sigurður Þorsteinsson Neðri þjóðleiðin milli Norður og Austurlands liggur um bæ- inn Hólsel á Fjöllum. Þann rausnargarð hafa margir gist fyrr og síðar, og margur hefir feginn orðið þangaðkomu sinni eftir erfiða för um Hólssand. Þar hefir í meira en hálfa öld búið og býr enn ein mesta kempa íslenzkrar bændastéttar, Sigurður Þorsteinsson. Sigurður í Hólseli átti í gær níræðisafmæli. Bóndi hefir hann verið í 66 ár á næsta vori. Hann mun nú vera með elztu starfandi bændum í landinu, ef ekki sá elzti. Til skamms tíma hefir hann gengið til flestrar vinnu á búi sínu. Sigurður er af Mývetningum kominn, fæddur í Vindbelg í Mývatnssveit 14. marz 1862, en þai; bjuggu þá foreldrar hai|s, Þorsteinn Jóhannesson (bónda á Geiteyjarströnd, Þorsteinsson- ar bónda sst., Helgasonar bónda sst., Þorsteinssonar frá Skörð- um í Reykjahverfi) og kona hans Kristjana Guðlaugsdóttir (bónda í Álftagerði, Kolbeinsson ar bónda sst., en kona Guðlaugs var Kristín dóttir Helga á Skútu stöðum, sem Skútustaðaætt er frá talin, Ásmundssonar). Hann ólst upp með foreldrum sínum í Mývatnssveit fram yfir ferm- ingaraldur, en fluttist síðan með skyldfólki sínu austur á Hóls- fjöll, að Grundarhóli. Þaðan réð ist hann sem vinnumaður til Kristjáns Jóhannssonar bónda í Fagradal i sömu sveit, er nefnd ur var hinn ríki, en Kristján fluttist síðan að Haugsstöðum í Vopnafirði og Sigurður með hon um. Á Haugsstöðum var Sigurð ur ár í vinnumennsku, unz hann gekk að eiga fósturdóttur þeirra hjóna þar, Karolínu Jónasdóttur frá Krákárbakka í Mývatnssveit. Þau Sigurður. og Karolína hófu búskap vorið 1886 í Skálamó í Haugsstaðaheiði. Þar heitir nú Arnarvatn. í Skálamó bjuggu þau í fjögur ár, og þar íæddist fyrsta barn þeirra. Þaðan fluttust þau að Hólseli hið fyrra sinn 1890, og höfðu þá ábúð á hálfri jörðinni, en síðar bjuggu þau á Víðibóli um hrið á móti sr. Hannesi Þor steinssyni. En árið 1897 réðst Sigurður í að festa kaup á Hól- seli, og fluttust þau þá þangað á ný. Blómgaðist mjög hagur þeirra, og var Hólselsbú mjög lengi eitt fjárflesta í sýslunni, og þótt víðar væri farið. Konu sína missti Sigurður árið 1924. Bæði sveitungar hennar og aðr- ir, er af henni höfðu kynni, lofa minningu hennar, skyldurækni, alúðlegt viðmót og hjálpfýsl við þá, er minnimáttar voru. Börn þeirra eru: Jakob bóndi í Kolla- vík í Þistilfirði, Kristján fyrr- um bóndi í .Þórunnarseli í Keldu hverfi, Kaien húsfreyja í Hól- seli, er starfað hefir með mikilli prýð'i fyrir heimili föður síns í seinni tíð, Þorsteinn bóndi í Víðidal á efri Fjöllum, Gunnar bóndi á Auðbjargarstöðum í Keldulaverfi, Guðný María hús- freyja á Grimsstöðum á Fjöll um og Lára húsfreyja í Hólseli. Það mun ekki ofmælt, að Sig urður í Hólseli hafi verið einn vaskasti maður sinnar samtíð- ar, og mjög hefir hinum yngri mönnum fundizt til um atgervi hans. Hann var á yngri árum manna fráastur á fæti, ratvísin og karlmennskan óbilandi, enda beitti hann sér þá mjög fyrir til hvers konar hættuferða. Spor hans eru mörg fyrr og síðar um víðáttur norðurfjalla — til bjargar bústofninum um hinar miklu óbyggðir, til að afla nauð synja til heimilisins og koma búsafurðum á markað um óra- vegu, til að leita sjúkum hjálpar í fjarlæg byggðarlög, við dagleg störf í heimahögum. Hólsel er erfið jörð, þótt kjarni sé þar í landi sem annars staðar á Fjöll um. Þar eru lítil skilyrði til túnræktar. Hólselsbóndi aflar sér nú heyja vestan úr Eyjafirði hvert sumar til að gefa með vetrarbeitinni ásamt fóðurbæti. En Sigurður reisti rétt fyrir átt rætt stórt og mjög vandað íbúð arhús úr steinsteypu og fleira hefir hann byggt á jörðinni, þótt hér sé ekki talið. Orka hans er nú farin að dvína sem vænta má, heyrn og sjón eigi svo hvöss sem fyrrum. En vel kann hann enn að fagna gestum sínum, enda hefir það löngum verið eitt hans mesta yndi. Þá er hann glaður og reifur, með bjart bros sem ungur yagri. Hann hefir margs að minnast, sem enginn annar kann frá að segja. M. a. mun hann nú vera sá eini, sem á lífi er af stofnendum Kaup félags Norður-Þingeyinga árið 1894, og fyrir 60 árum síðan rak ‘Framhald á 6. síðu.) Áttræð: Sigrún Sigurða^dóttir í dag er Sigrún í Alviðru átt- ræð. Hún er ein af þessum hljóð látu heiðurskonum, sem vinna störf sín af festu og trygglyndi, svo að aldrei heyrist æðruorð, og aldrei hugsa um ávinning sjálfum sér til handa. Oft var margt heimilisfólk í Alviðru. Og þegar hinn gestrisni heimilisfaðir, Árni Jónsson, bauð gestum í bæinn, og slíkt gerist auðvitaö alveg fyrirvaralaust, þar sem bær er í þjóðbraut, þá reyndi stöðugt á skjót úrræði og dugnað húsmóðurinnar, sem jafnan leysti hlutverk sitt með sóma og bætti þannig seint og snemma allri slíkri fyrirgreiðslu ofan á margþætt heimilisstörf. Aldrei hef ég þekkt fólk, sem hefir sýnt jafn mikla alúð, og lagt á sig hvers konar erfiði við að greiða úr þörfum nágranna og gesta sem Alviðrufólkið. Þetta eru eins og þegjandi samtök. Annað kemur ekki til mála. ^Hjá Sigrúnu hefir sívaxandi starfsáhugi og ósérhlífni fylgzt að, enda hefir vinnudagur henn ar oft verið lengri en annarra. Og svo er oft um skylduræknar (Framhald á 6. síSu) „Nýtt menntaskólahús“ Eftir Pálma Haimesson rektor Hr. ritstjóri. Hinn 12. þ. m. birti blaðið grein eftir Jón Á. Gissurarson skólastjóra, allmikla ádrepu til mín vegna greinarstúfs, er ég hafði ritað um byggingarmál Menntaskólans í Reykjavík og birtist í blaðinu 22. febrúar. Leyfi ég mér því að biðja yður fyrir það, sem hér fer á eftir. Skólastjórinn segir svo: „Grein rektors hnígur öll að því, að færa rök fyrir því, að einn menntaskóli skuli vera í Reykjavík og honum valinn stað ur í Skildinganeshólum. Ég tel álit rektors fráleitt, bæði um staðarval fyrir nýjan skóla, svo og að vilja hafa einn skóla í stað tveggja“. Hér er um tvennt að ræða, og skal vikið að hvoru fyrir sig. 1. Staðarval. Ég hef hvergi rætt um „staðarval fyrir nýjan skóla“, heldur staðarval fyrir nýtt skólahús Menntaskólans í Reykjavík. í grein minni taldi ég Klambratún (Miklatún ákjós anlegri skólastað en Skildinga- neshóla. Það geri ég enn. Hitt get ég ekki fallizt á, að Skild- inganeshólar eða réttara sagt svæðið hið næsta norðan við þá, sé „allsendis óhæft sem skóla- staður“, og er ég ekki einn um það, því að skipulagsstjóri bæj arins, skipulagsnefnd og þó fyrst og fremst menntamálaráðuneyt ið virðast hafa verið sömu skoð- unar. Hins vegar taldi ég og tel þennan stað hafa þá ókosti, að hann liggur nærri flugvell- inum og afleiðis fyrir mikinn þorra nemenda. Jón Á. Gissurar- son telur flugvöllinn hafa í för með sér mjög mikla hættu fyrir skólann. Vera má, að hún sé mikil. Víst er þó, að sá skóla- staður, sem til mála kom, er utan við það hættusvæði, sem talið er fylgja flugvöllum sam- kvæmt aiþjóðareglum. Ég hef því litið á hávaða og truflun frá flugvellinum fremur en hætt- una. En ef talað er um hættu, má minna á það, að ekki er ábyrgðarlaust að hafa marga nemendur á efsta lofti skóla- húss, þar sem aðeins er einn stigi, heldur þröngur. Skólastjórinn bendir á nýjan stað fyrir menntaskóla, suður frá Vatnsgeyminum, og er það að sjálfsögðu þakkarvert. Þessi staður hefir komið óg kemur enn til álita auk annarra austan Skaftahlíðar. Um svæðið suður frá Vatnsgeyminum er þess að geta, að þar mun Kennaraskól- inn hafa fengið vilyrði fyrir byggingarlóð, en auk þess er ráð gert að reisa þar allstóran barna skéla. Sunnan Miklubrautar mun völ á góðum stað, og hef ég ástæðu til að vænta þess, að bæjarráð og bæjarstjórn láti ráðuneytinu í té nægilegt land á öðru hvoru þessara svæða, ef horfið verður að því ráði að reisa skólann austan við Skafta hlíð, en það mál er nú til at- hugunar. 2. Einn skóli eða tveir. Ég á að heita fyrirsvarsmaður Mennta- skólans í Reykjavík. Meðan svo er, tel ég það skyldu mína að hugsa um hag hans, en er ófá- anlegur til hins að vinna að sundrung hans eða klofnun. Þetta má hver, sem vUl, lá mér, en við það verður að standa. Alllengi hef ég klifað á þeirri þörf skólans að fá aukinn húsa- kost, en kalla, að ég hafi löng- um átt misjöfnum skilningi að mæta um þetta, jafnvel af hálfu gamalia nemenda hans. Ég hef látið mér lynda umtölulítið, að gagnfræðadeildin . var tekin af skólanum. Að likindum yrði ég einnig að sætta mig við það, að annar menntaskóli væri stofn- aður hér í bæ, ef stjórnarvöld landsins ákvæðu það. En ég vinn ekki að því sjálfur. Það verða aðrir að gera, ef af á að verða. Og þrátt fyrir allt tel ég vand- séð, að annar skóli, sem risi upp við hlið þessa, nyti sama vegs sem hann eða væri þess betur umkominn en hann að leiða nemendur sína til þroska. En ef stofna á nýjan mennta- skóla, hlýtur krafa mín að verða sú, að Menntaskólinn í Reykja- vík gangi fyrir um nauðsynlegar lagfæringar á húsakosti sínum. Og ég leyfi mér að ætlast til þess af gömlum nemendum skól ans, að þeir standi ekki gegn slíkri kröfu, enda þótt ýmsum þeirra virðist vera hitt allríkt í huga nú að gera þessa gömiu stofnun að einhvers konar hverf isskóla hér í bænum. Þess skyldu þeir þó gæta, góðir menn, að menntaskóli verður naumast hverfisbundinn. Sú mun að minnsta kosti reynslan víðast, þar sem ég þekk| til, að nemend- ur sækja menntaskóla hvaðan æva að úr bæjum, þótt þar séu margir menntaskólar og virðast ekki mæla lengd skólagötunnar í þumlunugum. Skólastjórinn spyr, hvort ég þekki „þess nokkur dæmi með öðrum þjóðum, að menntaskólar hýsi þúsundir eða jafnvel tug- þúsundir nemenda“. Litlu áður segir hann að vísu: „Ekki er heldur vitað, að útlendingar viti manna bezt, hvað hentar Reykja vík“. En sleppum því, og skal spurningu hans skjótt svarað. Ég þekki þess ærin dæmi, að menntaskólar hýsi eitt til tvö þúsund nemendur, jafnvel fleiri. En varla mun þurfa að gera ráð fyrir því, að menntaskólanem- endur hér á landi skipti tug- þúsundum fyrst um sinn, enda þótt að því sé stefnt að slaka á kröfum um kunnáttu nemenda er þeir setjast í menntaskóla. Enn skal þess getið, að hér í Reykjavík er annar skóli en Menntaskólinn, sem veitir nem endum stúdentsmenntun, og á ég þar að sjálfsögðu við Verzl- unarskóla íslands. Hann heitir að visu ekki menntaskóli, en hefir sams konar réttindi, og mun aðsókn að honum fara vax andi. Skólastjórinn endar grein sína á þessa leið: „Kannske erum vér íslending ar svo ríkir að aurum, að for- ustumönnum vorum þyki það engu skipta, hvort mál þetta verði leyst með nokkurra mill- jóna króna meiri tilkostnaði eða minni. Þó svo kunni að vera farið, þá eigum vér samt fáar minjar liðinna tíma. Menntaskól inn er þó sú arfleifð, sem allir landsmenn hafa verið stoltir aí. Þó engu væri öðru til að dreifa, þá megum vér ekki leggja hann niður“. w Hér er fyrst vikið að því, að spara megi byggingarkostnað hins nýja skóla með því að láta gamla skólahúsið standa og hafa þar skóla framvegis. Það er skoðun fyrir sig. Á hitt er þó að líta jafnframt, að reksturskostn aður tveggja skóla hlýtur að vera meiri en eins. En ekki verð ur það mál rakið frekar hér. Niðurlagsorð skólastjórans eru harla merkileg. Ég fæ ekki bet- ur séð en hann rugli saman tvennu, skólanum og skólahús- inu. Eða er hitt réttara, að hann telji húsið vera skólann? Þessi skoðun er að vísu ekki næsta fágæt, en þó þykir mér sem skólastjóri ætti betur að vita. Hver hefir talað um að leggja niður Menntaskólann í Reykjavík, hver vill leggja niður menntaskólahúsið við Lækjar- götu? Að minnsta kosti vil ég hvorugt. En menn verða að gera greinarmun á húsi og stofnun og skilja það, að stofnunin sjálf skiptir meira máli en húsið, líkt og maðurinn skiptir meira má’i en fötin, sem hann klæðist, eða húsið, þar sem hann á heima. Þrátt fyrir aldur, virðingu, sögu og minjar skólahússins við Lækj argötu er það ekki höfuðatriðið, heldur stofnunin, sem á þar heima. Hún er lifandi eins og maðurinn, skipuð ungu fólki, sem henni er falið að koma til þroska og mun síðar meir tak- ast á hendur hín mikilvægustu störf í þágu þjóðarinnar. Þarfir stofnunarinnar, skólans, eru um fram allt þarfir þessa fólks, og húsakynnin mega ekki bröngva kosti þess, hversu kær sem þau kunna að vera. Menn unna æsku heimilum sínum, en láta það þó ekki standa fyrir hinu að endurreisa þau, þegar þess er þörf, jafnvel flytja þau um set. Jón Á. Gissurarson skyldi ekkl ætla, að ég hafi af eintómri léttúð og nýjungagirni hrapað að því að vilja flytja skólann brott frá þeim stað, þar sem hann hefir átt heima í fulla öld. Ég segi það dagsatt, að lengi vel fannst mér slíkt ekki taka neinu tali. Síðar varð ég að láta mér skiljast nauðsyn þessa, og ég býst við því, að hver, sem með fullri ábyrgðartilfinningu reynir að gera sér grein fyrir framtíð skólans, stofnunarinnar, komist fyrr eða síðar að sömu niðurstöðu. En er menn hafa hugsað þessa hugsun til enda, virðist ekki skipta öllu máii, hvar skólinn er settur niður, ef hlítandi er við hinn nýja stað á annað borð. Og það er vist, að hvorki ég né aðrir kennarar skólans mundu sársaukalaust flytjast brott úr menntaskóla- húsinu við Lækjargötu. Læt ég svo þessum umræðum lokið um sinn. Með þökk fyrir birtinguna. Menntaskólanum í Reykjavík, 13. marz 1952. Pálmi Hannesson. Upplestur Eggerts Stefánssonar Á sunnudaginn kemur mun Eggert Stefánsson söngvari lesa upp kafla úr ööru hefti ævisögu sinnar „Lifið og ég“, en það mun koma út um næstu mánaðamót. Upplestur inn fer fram í Gamla Bíó og hefst kl. 1,45. Fyrra bindið af ævisögu Eggerts leiddi í ljós, að hann er óvenjulega þfandi og skemmtilegur rithöfundur. Upplesari er Eggert í bezta lagi, eins og þeir munu minn ast, er heyrt hafa óðinn til ársins 1944. Það mun því vafa laust fleiri vilja hlusta á upp lestur hans, en húsrúm mun leyfa. Menn ættu því að tryggja sér aðgöngumiða í tíma, en þeir fást í bókaverzl unum Lárusar Blöndals, Sig- fúsar Eymundssonar og ísa- foldar. • iiaT^|ii«ilVliiwli!H8NiiiafflN«® • Auglýsið í Timanum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.