Tíminn - 21.03.1952, Qupperneq 8

Tíminn - 21.03.1952, Qupperneq 8
„ERLENT YFIRLIT“ 1DAG: Lund miUillu niöquleiha 36. árgangur. Reykjavík, 21. marz 1952. 67. blað. Acheson aðvarar bandaríska þingið Acheson utanríkisráSherra Bandaríkjanna aðvaraði banda ríska þingið í gær um að lækka ekki fjárhæðina í frumvarpi for setans um hjálp til erlendra ríkja. Sagði hann, að þá væri öryggi Bandaríkjanna sjálfra í’ hættu, og það raskaði öllum þeim Jandvarnaundirbúningi, er stjórn Bandaríkjanna hefði gert til þessa. Breskir hermenn hverfa frá Ismailia Nú er langt komið að rífa öll virki, sem brezkir hermenn settu upp í Ismailia í janúar, og munu brezkir hermenn í dag hverfa frá öllum þeim borgarhverfum, sem þeir hersettu þá. Erskin hers höfðingi lét jafnframt svo um mælt, að brezki herinn mundi hverfa tafarlaust á ný til þess ara staða, ef óeirðir brytust út. Fólk flytur nú aftur unnvörpum til heimila sinna í Ismailia. 110 nemendur stunda nám í verknámsdeildum í Rvík Verlinámsdeild gagnfræðaskólanna tók til starfa í haust og veitir Ármann Halldórsson skólastjóri henni forstöð'u. 110 ncmendur stunda nú nám í verknámsdeildunum og hafa aðallega aðsetur á tveimur stöðum. Frönsk þýzk kosn- inganefnd í Saar Það var tilkynnt í París í gærkveldi, að Adenauer og Schuman hefðu orðið sammála um það í viðræðum sinum um Saarmálið, að leggja til við Ev- rópuráðið, að skipuð yrði þýzk- frönsk nefnd til að rannsaka skilyrði til frjálsra allsherjar- kosninga í Saar í haust um framtíð landsins. Mynd þessi er frá Alpadalnum, sem nú er a3 verffa að stöðuvatni., Síðustu íbúarnir voru íluttir brott naúðugir á bátum undan flóð- ! inu. Hér sést bátur hermanna, sem fer um bæinn milli húsa í há'fu kafi og leitar að íbúum. íbúar Alpadals fluttir brott á bátum með valdi undan flóði Daliipinn verðnr 20 km. langt stöðuvatn, sem veitir nýju orkuveri vatnsafl Um síðustu helgi varð að flytja um 100 íbúa brott með valdi frá heimilum sínum í bænum Tignes í frönsku ÖIp- unum til þess að forða þeim frá því að farast í vatnsflóði, sem hleypt hefir verið í dalinn þeirra og á að gera að stöðu- vatni, sem veitir vatnsafli í stórt orkuver. Það hafði verið tilkynnt, að flóðgáttirnar yrðu opnað- ar og vatni árinnar Isere, yrði hleypt niður í dalinn á föstu- daginn var. íbúum dalsins, sem eru um 500, hafði verið taoðað að verða á brott fyrir þann tíma, og hafði þeim er það vildu, verið látið í té hús- næði og land í nágrenninu. Hæstiréttur S.-Afríku dæmir ógild blökkumannalög Stjórnarandstaðan krefst, að Mafan seg’i af sér, en hann lýsir dóm réttarins lögleysn Hæstiréítur Suður-Afríku hefir dæmt lög Malans for- sætisráðherra um sérstaka kjörskrá blökkumanna ógild, þar sem þau séu brot á stjórnarskrá ríkisins frá 1909. Hafi þau ekki hlotið tvo þriðju atkvæða í sameinuðum deildum þings- ins þegar þau voru samþykkt eins og stjórnarskráin tilskilji. Lög þessi, sem eru talinn hyrningarsteinn blökku- mannalöggjafar Malans, höfðu inni að halda ákvæði um það, að blökkumenn skyldu kjósa fulltrúa sína á þing eftir öðrum reglum en hvítir menn. Skyldi samin sér stök kjörskrá um þá, og þeim aðeins leyft að kjósa ákveðna menn úr hópi hvítra, er væru sérstakir fulltrúar þeirra á þingi. Það voru fjórir mennta menn meðal blökkumanna, sem kærðu mál þetta til hæsta réttar. Malan hótar hæstarétti. Þegar kunnugt var um úr- skurð þennan.krafðist Strauss leiðtogi stjórnarandstöðunn- ar, að stjórn Malans bæðist þegar lausnar, þar sem hún væri orðin ber að stjórnar- skrárbroti. Malan hélt ræðu í neðri deild þingsins í gær, og var þinghúsið þéttskipað, því að atburðir þessir hafa vakið geysimikla athygli um allt landið. Hann sagði, að hæsti- réttur hefði gert sig sekan um mikið glapræði og réttar- öryggi þjóðarinnar stafaði mikil hætta af því, ef réttin- um héldist uppi að grípa þann ig fram fyrir hendur löggjaí- arvaldsins. Kvað hann stjórn ina mundu gera róttækar ráð- stafanir til að slíkt kæmi ekki fyrir aftur, og skorður yrðu reistar gegn slíku í framtíð- inni. Er ekki fullljóst, hvað Mal- an hyggst fyrir, en atburðir þessir hafa valdið óró víða í landinu, og er búizt við að til alvarlegra átaka kunni að koma, ef Malan grípur til þeirra ráða, að takmarka vald og úrskurðarrétt hæstaréttar vegna dóms þessa, eða skirrist við að hlíta úrskurðinum. Margir höfðu þegar tekið því boði, og voru fluttir, en þeg- ar að lokadeginum kom, varð ljóst, að um 100 íbúanna neit uðu að yfirgefa heimili sín. Fluttir brott á bátum. Vatninu var þó engu að síð- ur hleypt á, en jafnframt haf izt handa um að flytja íbú- ana brott nauðuga, og þar sem vatnið var þegar orðið alldjúpt á götum bæjarins í dalbotninum, varð að nota báta til þess að ná sumu fólk inu. Það var búizt við, að sum ir íbúanna mundu sína vopn- aða andstöðu og þótti ekki annað fært en senda hersveit á staðinn til öryggis. Fóru her mennirnir um bæinn á bát- um og tóku íbúana, sem eftir voru. Brottflutningunum er nú lokið, og vatnið hækkar æ meira í dalnum. Bæir og þorp, sem þar stóðu eru nú á kafi í vatni, en mikið af timbri húsa var þú búið að flytja brott. Á næstu tveim mánuð- um mun myndast þarna nýtt stöðuvatn, sem verður 20 km. á lengd og meira en hundrað metrar á dýpt. Þessi vatns- geymir mun geyma um 200 millj. rúmmetra af vatni. Norska útvarpið skýrir frá land- helgismálinu Útvarpið í Osló skýrði frá því samkvæmt fréttatilkynningu frá íslenzka sendiráðinu í Noregi, að íslendingar hefðu fært út landhelgi sína í fjórar mílur. Ræddi útvarpið málið ekki frek ar en sagði, að augljóst væri, að íslendingar hefðu byggt á- kvarðanir sínar á úrskurði Haag dómsins í norsk-brezku deil- unni. í húsnæði deildanna við Hringbraut eru kenndar tré- smíðar og járnsmíðar og er kennari Marteinn Sívertsen, í trésmíðadeildinni. Nemend- ur leggja sjálfir til efnið og eiga einnig þá hluti, sem þeir smiða. Eru þar gerðir margir gagnlegir munir, sem komið geta að notum á heimilum nemenda eða þeim sjálfum síðar í lífinu. Þarna er einnig kennd járn smíði, og er kennari þar Gylfi Hinriksson. Þar er nemend- um kennt að fara með vélar og skilja gerð þeirra, svo og smíða ýmsa smærri hluti úr málmi og gera við vélar. Netagerff verðandi sjómanna. í þakhæð Austurbæjarskól ans fer fram kennsla í neta- hnýtingu og netabætingu og er kennari þar Guðmundur Þorbjörnsson. Þar er stúlkum einnig kennd matreiðsla og ýmsar hannyrðir. Áhugi nem enda fyrir verknáminu er yf- irleitt mikill og er árangur talinn góður af þessari fyrstu byrjun verknámskennslunnar, þótt við marga örðugleika sé að etja í upphafi, einkum vegna ófullkominnar aðstöðu. Skrifar bók ura njósnastarf sitt Sænski njósnarinn Frithiof Enbom er farinn að skrifa bók um njósnastarf sitt fyrir rússneska sendiráðið í Stokk- hólmi. Handrit það, sem til er nú, er talið mjög athyglis- vert. Þar er rakið, hvernig sænski kommúnistaflokkur- inn er margflæktur í njósna- starf gegn Sviþjóð. Enbom segist þau 11 ár, sem hann hefir látið Rússum upplýsingar í té, átt yfir höfði sér fimm húsbændur. Hann skýrir frá því, að í kom- múnistaflokknum sé svo- nefndur „innri hringur," og honum var tilkynnt að skip- unum, sem bárust þaðan yrði að hlýða skilyrðislaust. Við réttarhöldin hefir En- bom einnig nefnt nöfn þeirra manna, sem voru í „innri hringnum,“ og öryggislög- reglan hefir kallað þá fyrir rétt, bæði í Stokkhólmi og Luleá. Eisenhower segist endurskoða fyrri yfirlýsingar um framboð Tniman segir, að hoimm sé hcimilt að hverfa heim, þegar hann vilji Eisenhower heishöfffingi lét svo um mælt við fréttamenn í gær, aff hið mikla fylgi, sem hann hefði hlotiff í prófkosningunni í Minnesota neyddi sig til að endurskoða fyrri yfirlýsingar sínar nm þátttöku í kosningabaráttunni. Er almennt litið svb á, að Eisenhower muni nú hyggjast hverfa heim til þátttöku í kosn ingabaráttunni. Yfirlýsing Trumans. Truman forseti lét svo um mælt á blaðamannafundi í gær, að hann gæfi fullkomið sam- þykki sitt til þess, að Eisenhower hyrfi frá störfum í París um sinn til þess að táka þátt í kosningabaráttunni, og væri honum algerlega í sjálfsvald sett, hvenær hann héldi heim, enda vissi hann það allra manna bezt sjálfur, hvenær það væri heppilegast og hættulausast. Hann sagði jafnframt, að hann hefði enga ákvörðun tekið um það enn, hvort hann gæfi kost á sér til framboðs fyrir demo- krata. Taft tekur framboð aftur. Taft öldungadeildarþingmað- ur skýrði frá því í gær, að ha'nn hefði ákveðið að taka aftur fram boð sitt í New Jersey, þar sem fylkisstjórinn hefði rofið heit sitt um fylgi við sig en lýst yfir fylgi við Eisenhower. Banna allan inn- flutning frá doll- aralöndunura Ástralska stjórnin hefir til- kynnt, að hún muni fyrst um sinn banna allan innflutning vara frá Bandaríkjunum og öðr um löndum á dollarasvæðinu. Viðskiptamálaráðherrann tú- kynnti í gær, að þetta væri lið (Framhald á 2. síðu.) Sigfúsar Sigurhjart- arsonar minnst Bæjarstjórnarfundur var hald inn í Reykjavík í gær, og minnt ist Hallgrímur Benediktsson, for seti bæjarstjórnarinnar, þar Sigfúsar Sigurhjartarsonar, er lézt síðastliðinn laugardag. Nokkur mál voru á dagskrá, en enginn tók til máls um þau.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.