Tíminn - 23.03.1952, Qupperneq 2
•! 11,‘í.ti i'. ,yi¥CiVi\X
TÍMINN, sunnudaginn 23. marz 1952.
•I*i*k*» Vu’
69. blað.
Umfangsmikil fiskirækt eitt af
stórmálum okkar nú
Fiskiræktarkvikmyndir í Stjjörnubíó kl.
hálf-tvö í dag — í kvöld í Hlégarði
Það er vafasamt, að allir hafi
gert sér það ljóst, að fiskirækt
í ám og vötnum er eitt af stór
málunum, sem nú liggja fyrir
hér á landi. Það er alveg tví-
mælalaust, að ár okkar og vötn
geta borið margfalt stærri fiski
stofn en í þeim er, og þó að
stofninn stækki, þar sem fiski
gengd er fyrir á annað borð, ef
vel er með vötnin og vatnsföll-
in farið, þá er þó til önnur leið
og miklu fljótvirkari til þess að
fylla íslenzkar ár af fiski á
skömmum tíma, ef einbeittlega
er að því unnið. Það er klak
í miklu stærri stíl og með full-
komnara hætti en tíðkazt hefir.!
Kvikmyndasýning- í Stjörnubíó.
Eftir hádegið í dag mun Skúli
Pálsson fiskiræktarmaður sýna
í Stjörnubíói kvikmyndir, sem
sýna laxagengdina í Alaska, lax
veiðar þar og nýtingu fisks-
ins og fiskrækt á vísindaleg-
um grundvelli. Klukkan níu í
kvöld verða myndirnar sýndar í
Hlégarði í Mosfellssveit. Það
mætti halda, að ýmsum yrði
ærið minnisstæð laxmergðin,
sem þar getur að líta, og margir
spyrðu sjálfa sig, hvort ekki
væri hægt að rækta hér í án-
um, þótt ekki væri nema eitt-
hvað í áttina við þaö, sem þarna
getur að líta.
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Kl. 8,30 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 11,00 Messa í Hall
grímskirkju (séra Sigurjón Árna
son). ,12,15 Hádegisútvarp. 13,00
Erindi: Móðir jörð; III. Sjórmn
og sjávarnytjar (Ástvaldur Ey-
dal licensiat). 15,15 Fréttaútvarp
til íslendinga erlendis. 15,30 Mið
degistónleikar (plötur). 16,30
Veðurfregnir. 18,25 Veðurfregn
ir. 18,30 Barnatími (Baldur
Pálmason). 19,30 Tónleikar:
Jascha Heifetz leikur á fiðlu
(plötur). 19,45 Auglýsingar.
20,00 Fréttir. 20,20 Tónleikar:
Sónata i a-moll fyrir flautu án
undirleiks eftir Bach (Ernst
Normann leikur). 20,35 Erindi:
Snorri og Hplberg (Martin Lar-
sen). 21,00 Óskastundin (Bene-
dikt Gröndal ritstjóri). 22,00
Fréttir og veðurfregnir. 22,05 j
Danslög (piötur). 23,30 Dag-'
skrárlok.
Útvarpið á morgun:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádeg
isútvarp. 15,30—16,30 Miðdegis-
útvarp. 18,10 Framburðar-
kennsla í ensku. 18,25 Veður-
fregnir. 18,30 fslenzkukennsia;
I. fl. 19,00 Þýzkukennsla; II. fl.
19,25 Tónleikar: Lög úr kvik-
myndum (plötur). 19,45 Aug-
lýsingar 20,00 Fréttir. 20,20 Út-
varpshljómsveitin; Þórarinn
Guömundsson stjórnar. 20,45
Um daginn og veginn (Sigurður
Magnússon kennari). 21,05 Em-
söngur: Frú Elín Dungal syng-
ur; Fritz Weisshappel leikur und
ir. 21,20 Erindi: Um sjóvinnu
(Jónas Jónasson skipstjóri).
21,45 Tónleikar: Sænski karla-
kórinn „Orfei drángar“ syngur;
Hugo Alvén stjórnar (plötur).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Passiusálmur (36). 22,20
Erindi: „Halda skal til halla
Montezuma", kafli úr landvinn-
ingasögu Spánverja í Mexikó;
fyrri hluti (Þórður Valdimars-
son þjóðréttarfræðingur). 22,45
Tónleikar: Gellins og Borgström
kvintettinn leikur (plötur). 23,10
Dagskrárlok.
Þessar kvikmyndir eru svo
merkilegar og svo þýðingarmikil
innlegg í viðleitninni til þess að
vekja almennan áhuga á fiski-
rækt hér, að skylt er að hvetja
sem flesta til þess að sjá þær.
Arður án gífurlegs tilkostnaðar.
Það er auðvitað margt, sem
kallar að í landinu, og mörg
arðgæf stórvirki, sem þarf að
vinna. En það er með fiskrækt-
ina, að kostnaðurinn er alls ekki
gífurlegur, og þegar laxseiðun-
um hefir verið sleppt í ána, er
fyrirhöfnin ekki önnur en bíða
eftir því, að fiskurinn skili sér
aftur í ána vaxinn, að nokkrum
árum liðnum. Þetta er búskapur,
sem ekki er sérlega fyrirhafnar
samur miðað við margt annað.
Þarf góða uppeldisstöð.
Klakstöð, sem klekur út hrogn
um í tugmilljónatali, er ekki
svo ýkjadýrt fyrirtæki. Stofn-
kostnaðurmn er ekki meiri en
við gólf i eina væna verksmiðju.
En það þarf líka meira. Það
þarf aðstöðu til þess að ala seið-
inu upp, þar til þau eru orðin
vel fær í allan sjó. Því fylgir
auövitað allmikill aukakostnað
ur og seiðin verða dýrari, en
það er fengin reynsla fyrir því
erlendis, að seiði, sem þannig
eru fóstruð í uppeldisstöð, eru
margfalt öruggari, og veruleg-
ur hundraðshluti af þeim skil-
ar sér aftur sem veiði í því vatns
falli, sem þau eru látin í.
Það, sem þarf, er því að
koma slíkri uppeldisstöð upp,
þar sem laxaseiði eru fóstruð í
tugmilljónatali, og miklum
fjölda síðan sleppt í hverja lax-
á árlega. Með þessari aðferð
ættu árnar að geta gefið stór-
felldar tekjur, svo að sú leiga,
sem nú er greidd fyrir góðar
laxár, yrði smámunir í saman-
burði við eftirtekjuna, sem þá
fengizt. *
Nýtt sjónarsviff.
Það verður ekki fram hjá því
gengið, að hér er að skapast al-
veg nýtt sjónarsvið í þessum
málum. Það er gömul vitneskja,
að lax kemur ávallt aftur í árn-
ar, sem hann er upphaflega lát-
inn í, en þorra manna er fyrst
nú að verða fyllilega ljóst, hvaða
möguleikar eru hér ónotaðir.
Heimtaði skilnað
af því að maðurinn
burstaði skóna
hennar
Ósköp hversdagsleg kona í
Birmingham krafðist þess á dög
unum, að hún fengi skilnað við
mann sinn sökum þess, að hann
burstaði skóna hennar. Hinn
enski dómari varð hálfkindar-
legur á svipinn, kleip sig i hand
legginn og spurði:
— Er þetta í Birmingham?
Dreymir mig eða er ég vakandi?
Er ég kominn til Reno?
— Það er ekki aðeins yfirleðr
ið, sem hann burstar, sagði þá
konan, heldur burstar hann líka
sólana, svo að þeir verða flug-
hálir.
— Þvættingur, sagði dómar-
inn. Hver eiginkona má vera
því feginn, ef maðurinn hennar
burstar skóna hennar. Ég neita
ekki aðeins um skilnað. Ég
krefst, að þér farið heim til
manns yðar innan fjórtán daga,
svo að hann geti haldið áfram
að bursta skó yðar.
Afríkuför Nonna
Þegar Nonni í Firðinum frétti,
að hann hefði fengið ferðapistil
inn sinn frá Afríku birtan í
Tímanum, skrifaði hann pabba
sínum óðár annað bréf. Og hér
er það:
— Þiff muniff eflaust, hvernig
myntinni hér í Norffur-Afríku
er háttaff, og nú hefi ég koxnizt
aff því, hvaffa vogarmál er not
aff. Kona ættarhöfðingjans átti
barn á dögunum, og mér var
sagt, aff það hefði vegiff
tuttugu eyffimerkur. Ættarhöfff
inginn á auffvitaff' kvennabúr,
cg konui’nar þar nefnast búr-
konur, og sjálfur er ættarhöfff-
inginn eini búrlivalurinn, sem
þar fara sögur af. Mál búr-
hvalsins er kvennamál, en skip
eyffímerkurinnar, senx hann á,
nefnist kveixnafar. — Gelding
arnir, sem annast kvennabúr-
m, eru makalausir.
PabM Nanna.
i'n
Vestfirðingafélagið’.
Vestfirðingamótið
1 verður í Þjóðleikhúskjallaranum, laugardaginn 29.
marz og hefst kl. 8,30 e. m.
SKEMMTIATRIÐI:
Ræða, formaður félagsins Guðlaugur Rósinkranz
Þj óðleikhússt j óri.
Ný kvikmynd frá Vestfjörðum.
Einsöngur Ketill Jensson.
DANS.
I)
O
o
<>
o
O
O
O
o
O
Aðgöngumiðar seldir 1 skrifstofu Vélasölunnar í
Hafnarhúsinu og við innganginn.
Stjórnin
W.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.WAV
il
aV.V,
ÁBÚÐ
Jörðin Fremri-Hlið í Vopnafjarðarhreppi er laus til
ábúðar í næstu fardögum. Þeir, sem kynnu vilja fá *;
jörð þessa til ábúðar snúi sér til undirritaðs sem allra £
fyrst.
Seyðisfirði, 17. marz 1952 í
HJÁLMAR VILHJÁLMSSON
Sýslumaður Norður-Múlasýslu
,v.v,
vv.v.v
.vv.v,
.Vv
innangarsy ning
Á MÁLVERKUM
Kristjúns H. JMatfnússonar
í LISTAMANNASKÁLANUM
Opin daglega kl. 1—11,15.
Gerist áskrifendur að
JJímctnum
Askriftnrsíml IZft
Þorstlátir menn:
304 flöskur á misseri
o
O
o
O
o
o
o
o
o
Furðuleg áfengisneyzla her-
námsliösins í Þýzkalandi er eitt
af þeim vandamálum, sem við
er að stríða í sambandi við her-
setuna þar, og hvað norsku sveit
ina þar snertir hafa mál af því
tagi jafnvel komið fyrir dóm-
stólana.
Tveir höfuffsmenn fyrir rétti.
Tveir norskir höfuðsmenn
hafa verið kærðir fyrir að vera
ofurölva við heræfingar á Lúne-
borgarheiði, en samkvæmt fram
burði dátanna hafa þeir iðulega
verið drukknir í einkennisbún-
ingi, bæði við -gkyldustörf og ut-
an þeirra. Meðal annars var
annar þeirra stórdrukkinn, er
.hann sjálfur var sæmdur stríðs
medalíu. Dátana höfðu þeir í
sendiferðum vegna brennivíns-
kaupa, sem stundum var stofn-
að til á ólöglegan hátt. Einu
sinni skipaði annar þeirra bíl-
stjóra sínum að vinna skemmd
arverk á bíl sínum, svo að höf-
uðsmaöurinn fengi tima til að
láta renna af sér, áður en hann
gengi fyrir menn, sem hann
vildi ekki láta sjá sig dauða-
drukkinn.
Rífleg áfengiskaup.
Við rannsókn kom í ljós, að
annar höfuðsmaðurinn hafði
keypt 118 flöskur áfengis í her
búð í Flensborg, en hinn 186.
Var sá síðartaldi ekki talinn
brennivínsberserkur á við hinn.
En ekki þykir loku fyrir það
skotið, að þeir hafi aukreitis
aflað sér áfengis annars staðar.
Þessi áfengiskaup gerðust á
hálfu ári.
0. J. Olsen
talar í Aöventkirkjunni
sunnudaginn 23. marz
kl. 8,30 um eftirfarandi
ef ni:
Atlanzhafsáttmálinn í
Ijósi spádómanna.
Allir velkomnir.
Aðventsöfnuðurinn.
<»
<<
<i
o
o
<1
O
O
o
<1
o
O
o
o
O
o
o
«»
O
o
o
o
o
o
o
.W.V.W.W.V.V,
■ ■ b a m m ■ ■
i ■■ ■ ■ ■
'.W.V
Rafmagnstakmörkun
Álagstakmörkun dagana 22.—29. marz
frá kl. 10,45—12,15.
Laugardag 22. marz. 4. hluti.
Sunnudag 23. marz 5. hluti.
Mánudag 24. marz 1. hluti.
Þirðjudag 25. marz 2. hluti.
Miðvikudag 26. marz 3. hluti.
Fimmtudag 27. marz 4. hluti.
Föstudag 28. marz 5. hluti.
Laugardag 29. marz 1. hluti.
raumurinn verður rofinn skv. þessu þegar og
að svo miklu leyti sem þörf krefur.
I
I
SOGSVIRKJUNIN.