Tíminn - 23.03.1952, Síða 6

Tíminn - 23.03.1952, Síða 6
6. TIMINN, sunnuðaginn 23. marz 1952. 69. blað. LEIKFEIA6; WKJAVÍKUR^ Pí-PA-Ití (Söngrur lútunnar). | ? Sýning í kvöld kl. 8.— Að- | I göngumiðasala í dag eftir kl. ] 2. Sími 3191. I I Hœttuleg sendiför | Viðburðarík, hrífandi og af- | burða spennandi amerísk | í kvikmynd. Larry Parks, Margaret Chapman. | Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. NÝIA BíÓ( Hér gengur allt a& óshum (Chicken every Sunday) | Fyndin og fjörug, ný, amerísk = gamanmynd. Aðalhlutverk: Dan Daily, | Celeste Holm. Aukamynd: Frá útför Georgs VI. Breta- § konungs. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9 BÆJARBÍÓ - HAFNARFIRÐ* s f| Parísarnœtur (Nuits de Paris). Mjög skemmtileg og opinská, | ný, frönsk dans- og gaman- | ; mynd, er fjallar um hið lokk | andi næturlíf Parísar, sem = alla dreymir um að kynnast. 1 — Myndin er með ensku tali i og dönskum skýringum. Aðalhlutverk: Bernard-bræður. Þetta er myndin, sem sleg- ] ; ið hefir öll met í aðsókn, þar | sem hún hefir verið sýnd. | £ Bönnuð innan 16 ára. ] Sýnd kl. 5, 7 og 9. ' ■■ 5 Veiðiþjófarnir ] Sýnd kl. 3. Sími 9184. ; W* . ÞJÓDLEiKHUSID [ GULLHA HLIDIÐ \ í Sýning þriðjudag kl. 20.00 | Barnaleikritið Litli Kláus og Stóri Klttus i Barnasýning í dag kl. 15.00 | „Þess vegna shiljum ri()" I eftir Guðmund Kamban. | 12. sýning í kvöld kl. 20.00 1 § Aðgöngumiðasalan opin i Í virka daga frá kl. 13,15 til 20. | i Sunnudaga kl. 11—20. Sími f 1 80000. I Kaffipantanir í miðasölu. = HAFNARBÍO ntAXis £ ! Óviðjafnlega skemmtileg, ný ] amerísk gamanmynd um | : asna, sem talar!!! Myndin f I hefir hvarvetna hlotið gífur- i ! lega aðsókn og er talin ein- | I hver allra bezta gamanmynd, § j sem tekin hefir verið í Am- i i eríku á seinni árum. Donald O’Connor Patricia Medina ] Francis mun enginn gleyma | | svo lengi sem hann getur i i hiegið. I E Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. I Sala hefst kl. 11 f. h. »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦ ELDURINN j gerir ekk< boð á undan sér. | ; Þeir, sem eru hyggnlr, | S tryggja strax hjá I »♦♦♦♦♦♦♦♦♦< Austurbæjarbíó Dönsum dátt á svelli (Rhythm hits the Ice). Sérstaklega skemmtileg og ] fjörug ný amerísk skauta- | mynd. Aðalhlutverk: Ellen Drew, i Richard Denning. i Ennfremur hópur af heims- i frægum skautalistdönsurum. | Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. I ►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦>♦♦ = TJARN ARBÍÓ j Dansinn ohhar (Let’s danre). | Bráðskemmtileg amerísk gam | I anmynd i eðlilegum litum. f Aðalhlutverk: Betty Hutton, Fred Astaire. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Þáttur kH’kjimnar (Framhald af 5. síðu Hvernig stendur á því, að hinn frjálshuga kristindóm- ur þjóðarinnar vinnur ekki að eflingu hugðarefna sinna, með hugtækum aðferðum og félagsskaps ungs fólks. Heyrzt hefir, að þannig sé starfið markvist og öflugt víða vestan hafs. Og sá starfsstraumur barst til Akureyrar, en hans gætir lítt eða ekki í höfuðborginni enn þá? Hvað veldur? Yl- straumur andans handa æskulýð íslands, og þá mun fólkið eignast vörn gegn kal- straumum upplausnar og þröngsýnis. Eyrarbakka 15. marz 1952 Árelíus Níelsson Á vlðavangi (Framhald aí 5. síðu.) til starfa. Síðan þetta svar var gefið, munu nú liðnir tveir mán uðir. Þesss ætti því að mega vænta, að nefndin færi að koma saman og skriður færi að kom- ast á það, að stjórnarskráin væri endurskoðuð. Það er ekki sæmandi lengur að búa við þess ar' leifar danska valdsins á ís- landi og láta fyrirmæli stjórnar skrárinnar hljóða á allt annan veg en ætlast er til. Þetta er því ekki aðeins mál þeirra, sem vilja breytingar á stjórnar- kerfinu, heldur engu síður þeirra, sem vilja halda þv-í. Ef stjórnarskrá er höfð á annað borð, þá á að fara eftir henni, en meira og minna af ákvæðum hennar eiga ekki að skoðast úr- elt og einskisnýt. — Þá hættir stjórnarskráin fljótt að vera þjóðfélaginu sú stoð, sem henni er ætlað að vera. KJELD VAAG: HETJAN ÓSIGRANDI 85. DAGUR SAMVINNUTRYGGINGUM Igamla bfó| | Hinir góðu gömlu l dagar 1 In the Good Old Summertíme 1 | Metro Goluwyn Mayer söngva | | og gamanmynd í litum. Judy Garland, Van Johnson, S. Z. Sakall. § Fréttamynd frá Vetrar-ÓIym | | píuleikunum í Osló. | Sýnd kl. 5, 7 og 9. ] MjaUhvít Sýnd kl. 3. Sala hefst kl. 11 f. h. i ♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦< i Itripoli-bíóí ] Tom Brotvn í shóla ] 1 (Tom Brown’s Sholl Days).| | Ný, ensk stórmynd gerð eftir f | samnefndri sögu eftir Thom- ] ] as Hughes. Bókin hefir verið I Í þýdd á ótal tungumál, enda i Í hlotið heimsfrægð, kemur út I i bráðlega á íslenzku. Myndin = | hefir hlotið mjög góða dóma I | erlendis. Robert Newton, John Howard Davies, = Í (Sá, er lék Oliver Tvist). Sýnd kl. 5, 7 og 9. ] ►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ] r + ! Utvarps viðgerðir | ] Radiovinnnstofaii I VELTUSUNDI 1. I 1 ......... BHHI——BBIHHmillllllMMM Islendingaþættir . . . (Framhald af 3. síðu.) fræðari, sem hægt var aðrta'fia til fyrirmyndar um fleira en það, sem bækurnar boðuðu. En þörfin fyrir slíka leiðtoga, er æskan getur tekið til fyrr irmyndar um háttvísi, dreng- lyndi og prúða framkomu, er jafnan mikil í sjávarþorpum, sem vaxa ört og byggja sam- félag úr misjöfnum efniviði, þar sem áhrifagjörnum ungl- ingum er hætt. í dag verður gestkvæmt á hinu myndarlega heimili þeirra hjóna, Pálínar Þor- steinsdóttur og Guðmundar. Þau eiga fimm mannvænleg börn og heimilinu er búinn staður á einum fegursta staðn um í kauptúninu, þar sem sér tU fagurra fjalla yfir grón- ar víðáttur i austur og norð- ur en hafið og höfnin í suð- ur. — Það er hverju bæjarfélagi góð gjöf að eiga slíka borg- ara. sem Guðmundur er. — menn, sem eru vakandi á- hugamenn um framfarir, prúðmenni og traustir í fram- göngu. Guðmundur hefir haft mikil afskipti af félagsmál- um og unnið mikið og ánægju legt starf í þágu samvinnu- stefnunnar, sem Guömundur er ótrauður baráttumaður fyrir. — Tíminn sendir hon- um þakkir og góðar óskir á þessum tímamótum ævinnar. I Frímerkjaskipti | ] Sendið mér 100 íslcnzk frf- | | merki. Ég sendi yður um ] ] hæl 200 erlend frfmerki. I JÓN AGNARS Frímerkjaverzlun, ] P. O. Box 356. Reykjavík. § - 5 jiiiiitiiimiiiiiiiiiVfiiiitfiiimvxiiiiiuiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiii TIITTLGASTI OG ANNAR KAFLI. Skógarslotið stóð á hæð sunnan við kaupstaðinn í Slagelse. f heiðskíru veðri sáust koparslegnar spírur turnsins bæði frá Hróarskeldu og Nýborg. Frá turninum var fögur útsýn yfir stóra skóga og lítil vötn. Þegar Jóhannítar náðu eignarhaldi á þessum bletti, gerðu þeir sér ekki aðeins grein fyrir hinu fagra umhverfi, heldur litu þeir einnig til þess, að þarna var nóg af góðum leir til tígulsteina- brennslu. Á fjórum öldum hafði klaustrið þróazt í volduga stofn un, en sá tími kom, að kórsöngur munkanna þagnaði. Hans Tav- sen sáði fræi hinnar nýju trúar innan múra klaustursins, hinum iétttrúaða Áskeli ábóta til mikús angurs. Og þar sem forðum krupu munkar á bæn og sungu guðsmóður og heilögum dýrðling- um eilíft lof, hljómuðu nú drykkjuvísur og glasaglaumur. Hinu gamla klaustri hafði verið breytt í kónglega höll. Hver sá, sem dirfðist að kenna þennan stað við klaustur, var tafar- laust sektaður, og sektin, sem gjalda skyldi var gott naut til veizlu- gerðar handa kónglegri mekt. Friðrik konungur hafði ávallt haft dálæti á þessu héraði, og oft dvaldi hann alllengi í slotinu. Síðustu fjögur árin h.öfðu verið gerðar miklar breytingar á hús- um. Byggingarefnið var sótt til allra hluta Danaveldis — kalk ið kom frá Maríuakri, steinn frá Faxa, málmur frá Kaupmanna- höfn, viður frá Noregi. Það var ekki fátítt, að kóngleg mekt léti það í ljós við lénsmanninn, Pétur Reedtz, sem þó naut kónglegr- ar hylli, að verkið sæktist æði seint. Það var. ekki fyrr en sumarið 1584, að verkamennirnir gátu haldið brott með vinnutæki sín, og 3. júlí kom svo kóngleg mekt frá Óöinsvéum með mikið og glæsi- legt föruneyti. Ekki kom það bó til af góðu, að allt þetta fylgdarfólk flykkt- ist í skógarslotið við Slagelse. Nokkru eftir Jónsmessu hafði ver- ið efnt til herradags 1 Óðinsvéum. Mjög hafði verið til alls vand- að, því að hylla skyldi Kristján prins, hinn sjö ára gamla. En þá kom til sögunnar annar, sem voldugri var en konungur jarðar. Það kom upp pest í hinum yfirfyllta bæ, og hún breiddist óðfluga út. Hönd dauðans hafði slegið Óðinsvé, og ekkert rauf þögnina, sem þar ríkti svo skyndilega, nema angistarkvein og skarkið í líkvögnunum, sem ekið var um göturnar á nóttunni og á leið til hinna kölkuðu grafa í pestarkirkjugarðinum. Það boðaði ærið illt, ef konungleg hátíð fórst fyrir, og þess vegna þráaðist kóngleg mekt við og lét hylla prinsinn, þrátt fyrir þessa atburði. En jafnskjótt og því var lokið, skipaði hann svo fyrir, að veizlan, sem á eftir fylgdi, skyldi haldin í skógarslotinu. Sum- ir hinna tignu gesta komust þó ekki langt. Dauðinn hafði brugð- ið á þá marki sínu, og þannig varð Kristófer von Donha eftir í Nýborg, þar sem þessi trúfasti borggreifi gaf upp öndina tveimur dögum síðar með nafn konungsins á vörum sér.... Hið tigna föruneyti kónglegrar mektar settist að í skógarslot- inu og í Slagelse, og snemma næsta morgun var gleðinni haldið áfram. En áður varð að sinna ýmsum stjórnarmálefnum. Það var kónglegri mekt mikil og sár raun. Þegar kom að máli Magnúsar Heinasonar gegn Pétri Hanssyni lögmanni, varð nokkur ókyrrð í salnum. Magnús Heinason var horfinn, og enginn vissi, hvert hann hafði farið. Síðast hafði hann sézt í Óðinsvéum, þar sem hann beið þess, að mál hans kæmi fyrir ríkisráðsrétt, en eftir það vissi enginn, hvað um hann hafði orðið. Valkendorf sneri sér glottandi að hinum ríkisráðsmönnunum: (.Leyfist mér að geta þess til, að Magnús Heinason hafi í ann- J að sinn flúið réttlátan dóm ríkisráðsins?" ,,Dóm“, sagði Lindenov. „Hvað átt þú við, Valkendorf? Að mínu viti er það Magnús Heinason, sem hefir ákært Pétur Hansson. Ég skil ekki viðhorí ríkisféhirðisins, nema....“ „Segðu það, sem þér býr í brjósti, lénsmaður", mælt Valken- dorf. „Nema það sé -fyrirfram ákveðið að dæma ákærandann í þessu máli.“ Valkendorf beit á vörina. „Er þetta ásökun, sem beint er að mér?“ spurði hann hvasst. „Þeirri spurningu verður samvizka þín að svara.“ Fleiri lögðu nú crð í belg, og einhver lét í ljós, að hann hefði heyrt, að Magnús teldi mál sitt tapað. „Hann hlýtur sjálfur að þekkja bezt gildi skilríkja sinna og sönnunargagna", sagði Eiríkur Hardenberg, „svo að sú skoðun hans er ekki undarleg." „Orð Magnúsar Heinasonar eru marghermd", sagði Lindenov reiðilega. „Hann lét svo um mælt, að tveir ríkisráðsmenn hefðu sagt, að hann ætti harðan dóm yfir höfði.“ Þetta vakti mikinn kurr, og snöggvast virtist sem ríkisráðsmenn irnir hefðu jafnvel gleymt nærveru konungsins. Pétur Munk reis á fætur, en fékk þó ekki strax hljóð. „Við eigum rétt á einni spurningu, Lindenov", sagði hann loks. „Nefndi Magnús Heinason nöfn þessara tveggja ríkisráðsmanna?" Lindenov renndi augunum yfir hópinn, sem var kjarninn úr aðli Danmerkur. Svo hristi hann höfuðið. „Nei, Munk. Nöfnin veit hann einn, og þau segir hann ekki, fyrr en hann telur sig tilneyddan." Andrés Bing, hinn frómi og réttláti lénsmaður frá Varbergi, mælti stillilega: „Þetta er þung ásökun, sem Magnús Heinason hefir borið fram. Vegna heiðurs okkar allra verður að rannsaka hana. Ríkisráðið getur ekki legið, undir slíkri ákæru“. „Eyðum ekki tíma að óþörfu í þetta þras“, sagði Valkendorf og renndi augunum til Hardenbergs. „Við höfum fengið sannanir íyrir heiðarleik Magnúsar Heinasonar. Nú er aðeins að vita, hvort kóngleg mekt skipar svo fyrir....“

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.