Tíminn - 30.04.1952, Blaðsíða 2
t.
TIMINN, miðvikudaginn 30. apríl 1952.
96. blað.
Hvaða æskulýðsfélög
eru heilladrýgst?
Það getur ekki hjá því farið,
að athygli manna beinist að
því, hversu mikil brögð eru að
afbrotum og óknyttum meðal
unglinga hér á landi um þessar
mundir, og þá meira um vert
að kanna orsakir þessa óheilla
faraldurs en hitt að kveða upp
áfellisdóma yfir þessu fólki.
Hvernig reynast
æskulýðsfélögin?
í þessu sambandi væri nokk-
urt rannsóknarefni, hvernig
féiagsskap þeim, sem haldið er
uppi fyrir börn og unglinga,
tekst að forða þessum ungu borg
urum frá glapstigum og mis-
ferli. Eru einhver þau félög, sem
starfa meðal þeirra, þess um-
komin að hafa svo heilladrjúg
áhrif á unglingana, að tiltölu-
tega fáir, er þeirra njóta, leið-
:ist afvega?
Fólk þarf að þekkja
heilladrvgstu æskulýðsfélögin.
Það er alveg vafalaust, að góð
ur félagsskapur getur haft mikil
og blessunarrik áhrif, og það
væri mikils vert að fá beinlínis
úr því skorið með rannsókn á
félagsskrám og ferli unglinga,
sem brotlegir hafa gerzt á einn
eða annan hátt, hvaða félags-
samtök verða mest virði í þessu
efni. Komi það í ljós við slíka
rannsókn, að einstök félög eigi
innan sinna vébanda tiltölulega
mjög fáa afbrotaunglinga eða
óknyttadrengi eða stúlkur, sem
ganga í skip og sækjast eftir
kynnum við hermenn, ber að
nota sér þau heillavænlegu upp
eldisáhrif, sem slíkur félagsskap
ur hefir, veita honum mestan
stuðning og vinna að því, að
hann nái til sem flestra ungl-
Úívarpið
'Ótvarpið í dag:
8,00—9,00 Morgunútvarp. 10,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Há-
iegisútvarp. 15,30 Miðdegisút-
'varp. 16,25 Veðurfregnir. 18,00
Frönskukennsla. 18,30 Islenzku
kennsla; I. fl. — 19,00 Þýzku-
kennsla; II. fl. 19,25 Veðurfregn
:ir. 19,30 Tónleikar (plötur).
19,45 Auglýsingar. 20,00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: „Morgunn
'J.ífsins" eftir Kristmann Guð-
nundsson (höf. les) — XXIII.;
sögulok. 20,45 Tónleikar: Ball-
ettmúsík úr óperunni „Faust“
eftir Gounod (plötur). 21,00 Frá
söguþáttur: Opinber hýðing á
lusturvelli (Árni Óla ritstjóri).
21.30 Tónleikar (plötur). 21,35
Vettvangur kvenna. Frú Soffía
Ingvarsdóttir les frumsaminn
sögukafla: „Kirkjugangan“. —
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 „Rakel“, saga eftir Daphne
iu Maurier (Hersteinn Pálsson
ritstjóri). IV. 22,30 Tónleikar:
André Kostelanetz og hljómsv.
jaans leika (plötur). 23,00 Dag-
skrárlok.
Útvarpið á morgim:
Kl. 8,00—9,00 Morgunútvarp.
10.10 Veðurfregnir. 12,10—13,15
Hádegisútvarp. 15,30 Miðdegisút
varp. 16,25 Veðurfregnir. 19,25
Veðurfregnir. 19,30 Tónleikar
iplötur). 19,45 Auglýsingar. 20,00
Fréttir. 20,20 Hátíðisdagur verka
lýðsíélaganna: a) Ávörp: Stein-
grímur Steinþórsson. félagsmála
ráðherra, Helgi Hannesson for-
seti Alþýðusambands íslands og
próf. Ólafur Björnsson formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja. b) Kórsöngur: Söngfélag
verkalýðssamtakanna í Reykja-
vík syngur; Guðmundur Jó-
hannsson stjórnar,- c) Leikrit:
„Móðir barnanna" eftir Guðm.
G. Hagalín. Leikstjóri: Indriði
Waage. 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. 22,05 Danslög (plötur).
24,00 Dagskrárlok.
inga. Ég er viss um, að slík fé-
lög eru til og starfa hér meðal
unglinga, en almenningur þarf
að vita á þessu full skil.
Kleip farþegann
í lærið
Strætisvagnastjórar eru
kurteisir og stimamjúkir við
farþega, þegar ekki er verið að
ragast í þeim að óþörfu. Eiga
þeir marga kunningja meðal
þeirra, sem ferðast í vögnunum
á degi hverjum. Varð einum
þeirra hált á því, þegar kunn-
ingi hans kom inn í vagninn
á viðkomustað og tók sér stöðu
aftan við sæti hans, tilbúinn
að hefja við hann samtal. þeg
ar tími gæfist til. Ók svo vagn
stjórinn af stað og bjóst við
að kunningi sinn léti í sér
heyra, en hann var þögull sem
gröfin. Tók vagnstjórinn þá
það fangaráð að þrcifa aftur
fyrir sig og klípa vin sinn í
lærið, og reyna þannig að
koma honum til að segja eitt-
hvað. Fannst honum þá • sem
vinur sinn væri fremur vöðva-
mjúkur og leit i spegilinn yfir
sér. Sá hann þá, að þetta var
hin virðulegasta frú með blóm
í hatti, sem brosti sætt við
honum í spegilinn.
Rýmri gjaldeyris-
reglur í Þýzkalandi
Hinn 1. maí gengur í gildi
ný reglugerð um gjaldeyri
ferðafólks í Þýzkalandi. Frá
þeim degi mega menn hafa
með sér til landsins allt að
200 DM í þýzkum gjaldeyri
(áður allt að 100 DM), en úr
landi mega menn hafa með
sér allt að 100 DM (áður allt
að 40 DM). Reglur þessar ná
aðeins til ferðamanna, sem
fara til stuttrar dvalar til
Þýzkaiands. (Samkvæmt
frgen frá aðalræðismanni ís-
lands í Þýzkalandi).
(Frá utanríkisráðuneytinu)
Þcgar hjarta-
gæzkan sigrar
Ungur maður var á dansleik
um helgina og sá skammt frá
sér föngulega konu, sem hann
langaði mjög til að dansa við.
Lagði hann af stað, er danssyrpa
hófst og bauð henni upp. Kon-
an hristi höfuðið og neitaði dans
inum, og ungi maðurinn gekk
brott svo boginn í baki og von-
svikinn að ömurlegt var á að
horfa. Er hann hafði gengið
nokkur skref, var kippt þétt í
jakka hans að aftan, og var þar
konan komin. „Nei, annars,
þetta er allt í lagi, góði. Komdu
bara“.
HEFI OPNAÐ
lækningastofu
í Austurstræti 3 (gengið inn frá Veltusundi
Viðtalstími kl. 1—2. Sími 3113. Heimasími 5336
Sérgrein: barnasjúkdómar
HULDA SVEINSSON,
læknir
t
Ég undirritaður hefi opnað
lækningastofu
í Austurstræti 3 (gengið inn frá Veltusundi
Viðtalstími klukkan 3 til 4
Sími 3113. — Heimasími 3195
GÍSLI ÓLAFSSON
læknir
l
Jörðin Lyngholt
Tvö fiugslys, tvær ör-
lagastundir í lífi konu
Þann ellefta apríl siðastlið-
inn fórst amerísk farþegaflug
vél frá P.A.A. undan ströndum
Puerrto Rico. Sextíu og níu
farþegar voru með vélinni, þar
á meðal sex börn. Flugvélin
sökk á tveimur mínútum
Kvöldið eftir hafði tekizt að
bjarga átján manns, en ekki
búizt við að fleiri væru á lífi,
enda sjórinn orðinn svartur
af háka.rlí, þar sem slysið varð.
Meúi lilut; farþeganna voru
frá Puerto Rico.
Ilefir tvisvar lent í flugslysi.
Einn af þeim, sem náðist, var
Tveir japanir —
hittust í Khöfn
eftir 23 ár
Smávaxinn Japani kom um
daginn inn í lögreglustöð í
Hambrosgötu í Kaupmanna-
höfn og skýrði frá því, að hann
væri mjög einmana. Hann hafði
verið í Stokkhólmi, en farið það
an af leiðindum, því að þar var
enginn Japani annar.
Lögreglan í Kaupmannahöfn
brá við fljótt og vel og hóf
leit að Japana þar í borg. Á sjö
mínútum var farið yfir skrár
útlendingaeftirlitsins og bælcur
allra gistihúsa, og það reyndist
vera einn Japani í Hótel Am-
ager. Litli Japaninn hélt þang-
að, ljómandi eins og sólin í
heimalandi hans, og barði að
dyrum. Það var lokið upp og
hann kallaði:
— Yamaguchi?
En hinn svaraði: Toyoho?
Og það var engin furða, þótt
báðir yrðu undrandi. Þeir voru
skólabræður — og höfðu ekki
sézt í 23 ár.
við Hafnarfjarðarveg er til sölu nú þegar. Jörðinni
fylgja áhöfn og vélar. Hún er laus til ábúðar nú þegar.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
1»
D
I >
i • Svalbarði, Seltjarnarnesi. Sími 6181.
i >
♦♦♦♦♦
Semjið við eiganda jarðarinnar Jón Sæmundsson
11
<>
ii
u
ii
i>
11
i>
ii
i>
John Burn, flugstjóri vélarmn-
ar. Hann er giftur Jane Froman,
frægri ameriskri söngkonu, sem
lenti í flugslysi í Lissabon niu
árum áður, en John Burn flaug
einnig þeirri vél. Bæði slösuð-
ust þau alvarlega, en honum j
tókst að ná henni og halda
höfði hennar upp úr vatnsskorp
unni, unz þeim var bjargað. Eft
ir slysið lágu þau í sjö mánuði
í spítala í Lissabon. Fimm árum
síðar voru þau gift. í þrjú ár
eftir slysið varð Jane Froman
að vera í hjólastól, en nú hefir
henni tekizt að yfirstíga veik-
indi sín og hefir komið frarn
í útvarpi og á leiksviði. Ævi-
saga hennar hefir nýlega verið
kvikmynduð. Myndin heitir
„With a song in my heart“ og
leikur Susan Hayward aðalhlut
verkið. Það var einkennileg til-
viljun, að myndin um ævi henn
ar, sem m. a. sýnir flugslysið
í Lissabon, skyldi vera frumsýnd
sama kvöldið og maður hennar
barðist fyrir lífi sínu í hafinu
undan ströndum Puerto Rico.
il
i>
ii
(i
ii
(»
G
o mál.
!! Umbeðnir tvíhjóla vagnar á gúmmíhjólum tilbúnir
(, til afgreiðslu.
(i
(»
Votheysfergjur
Þeir, sem ætla að fá hjá mér votheysfergjur nú í
sumar, láti mig vita sem fyrst, og sendi mér nákvæmt
ÁRNI GUNNLAUGSSON, Laugavegi 71. Sími 7806.
TELKYNNING
Nr.6/1952
Fjárhagsráð hefir ákveðið nýtt hámárksverð á smjör-
líki sem hér segir:
Nið'urgr. Óniðurgreitt
kr. 4,01 kr. 9,83 pr.kg.
— 4,31 — 10,13--
— 5,00 — 10,88 -
— 5,10 — 11,10--
Heildsöluverð án söluskatts
Heildsöluverð með söluskatti
Smásöluverð án söluskatts
Smásöluverð með söluskatti
Reykjavík, 29. apríl 1952,
VERÐLAGSSKRIFSTOFAN
I
Leiksýning á
Suðureyri
Frá fréttaritara Tímans í Súgandaf.
Þann 20. þ.m. hélt kven-
félagið Ársól frumsýningu á
sjónleiknum Öldur eftir séra
Jakob Jónsson. Leikendur
voru Hermann Guðmundsson,
Ásthildur Briem, Ingibjörg
Jónasdóttir, Sigrún Sturlu-
dóttir, Guðbjörn Björnsson
og Jóhannes Jónsson.
Sviðsútbúnað annaðist Páll
Þórðarson. Leikurinn vakti
almenna hrifningu og þótti
hafa vel tekist. Ágóða af leikn
um verður varið til að reisa
vinnustofu fyrir félagskonur.
Formaður kvenfélagsins er
frú Lovísa Ibsen.
i
FORELDRAFUNDUR
Státtarfélag barnakennara í Reykjavík boðar til al-
menns foreldrafundar um skólamál í Gagnfræðaskóla
Austurbæjar, sunnudaginn 4. maí 1952, kl. 2 e.h. —
Framsöguenndi flytja:
Jónas B. Jónsson, fræðslufulltrúi,
Jón Sigurðsson, borgarlæknir og
Jónas Jósteinsson, yfirkennari.
Almennar umræður verða á eftir framsöguerindunum.
Þess er vænzt, að foreldrar og aðrir lögráðamenn
barna á skólaskyldualdri í Reykjavík sæki vel fund
þennan, og komi þar fram með óskir sínar og álit varð-
andi skólastarfið.
STJÓRNIN.
■ ♦♦♦♦<
Auglýsingasími Tímans 81300