Tíminn - 30.04.1952, Page 8
„ERLEVT YFIRU1“ 1DAC.
aiímun um ÞýzkaUtnd
36. árgangrur.
Reykjavík,
30. apríl 1953.
96. blað.
r .
„Leigjandinn” í staö „Rakel-
ar” f ramhaldssaga ótvarpsíns
Flutiiingur sögiuanar í úívarp miimli koma
í Iiága við kvlkniyiitlasamniníí um sögnna
Framhaldssögustríði því, sem staðið hefir undanfarna daga
mdli útvarpsins og Morgunblaðsins virðist nú iokið á þann veg,
að útvarpið mun hætta lestri sögunnar Rakel. Verður hafinn
lestur nýrrar sögu, sem að öilum líkindum nefnist Leigjandmn.
Enskur bræðslumað
ur skaðbrenndur
af vítissóda
í fyrrakvöld kom enskur
togari til hafnar í Patreks-
firði með mann, sem hlotið
hafði mikil brunasár. Var það
bvæðslumaður togarans, og
hafði hann hellt yfir sig
miklu af vítissóda. Hann var
ilia haldinn og hafði mikil
brunasár víða um líkamann.
Á enskum togurum er enn
notaður vítissódi við lifrar-
bræðsluna, þótt því sé ann-
ars að mestu leyti hætt á tog-
urunum, til dæmis þeim ís-
lenzku.
Fundur Framsókn-
arfélagsins í kvöld
Framsóknarfélag Reykja-
vílcur heldur fund i Edduhús-
inu í kvöld, og hefst hann
kíukkan 8,30. Rætt verður um
Framsóknarflokkinn og höf-
uðstaðinn, og er Þórður
Björnsson bæjarfulltrúi frum
mælandi.
Orsakir þær, sem til þess lágu,
að útvarpið varð að hætta við
sögu þessa, eru þær, að skeyti
kom um það frá umboðsmanni
höfundarins í BretlandL, að sam
kvæmt samningi, sem hann
hefði gert um kvikmyndun sög
unnar, væri ekki heimilt að
leyfa flutning hennar í útvarp.
Nýja sagan.
Saga sú. sem að líkindum verð
ur tekin til flutnings í stað
Rakelar, nefnist Leigjandinn og
er eftir brezka skáldkonu, kunn
og allfræg sakamálasaga, enda
ágætlega rituð. Lýsir hún lífi
gamalla hjóna í London, sem
fá undarlegan leigjanda, er hef
ir með höndum dularfulia efna
blöndun og fer í kynlegar næt-
urferðir um borgina, en jafn-
framt eru framin dularfull
kvennamorð hér og þar í borg-
inni. Sagan er spennandi en
gildi hennar er að mestu fólgið
í glöggum sálarlífslýsingum og
(Framh. á 7. siðu).
*
Aætlunarbílarnir
fara yfir Öxna-
dalsheiði
Frd fréttaritara Tímans d B’önduósi.
Áætlunarbíl?." Norðurleið'
ar komu hingað á norður-
leið í gær og héldu áfram
ferðinni. Er langt komið að
rvðja snjó af veg'num vfir
Öxnada'sheiði og gerðu bil-
stjóravnir ráð fyrir að kom-
ast yfir heiðina og til Akur-
eyrar í gærkvöldi eða nó.t.
Hafa áætiunarbílar ekki far
ið yfiv heiðina alilengi og
segja má, að' þetía sé fyrsta
ferð þeirra á þessu vori.
Iþróttablaðið viku-
blað í nýju formi
íþróttablaðið mun fram-
vegis koma út vikulega í nýju
formi. Verður það allt í senn
fréttaþlað, heimildablað og
vettvangur til þess að ræða
íþróttamál. Á blaðið eftirleið-
is að koma út á mánudögum
með getraunaspá fyrir næstu
viku, og nýjum íþróttafrétt-
um frá helginni.
Ritstjóri blaðsins er Gunn-
ar M. Magnúss, en blaðstjórn
skipa Benedikt G. Waage,
Guðjón Einarsson, Gunnlaug
ur J. Briem, Jens Guðbjörns-
son og Þorsteinn Einarsson.
Hvað verður um hum-
ar- og rækjuveiðarnar
Ilmsóknir um undanþágur cnn óafg'reiddar
Um 20. maí í fyrra hóf vélbáturinn Aðalbjörg humarveiðar í
tilraunaskyni og gekk þessi tilraun allvel, og hefir nú aftur verið
sótt um leyfi til þess að halda þessum tilraunum áfram, en svar
yfirvaldanna við umsókninni er ekki enn komið.
Syngur í Gamla bíó á
föstudagskvöld kl. 7,30
Nýir læknar opna
lækningastofu
Tveir nýir læknar hafa
opnað lækningastofur í Aust-
urstræti. Eru það Hulda
Sveinsson, sem hefir barna-
£j úkdóma að sérgrein, og Gísli
Ólafsson.
Viðtalstími Huldu er klukk-
an 1—2, en Gísla 3—4.
Sfeinbítsganga
við Vestfirði
Frá fréttaritara Tinians í Súgandaf.
Gæftir hafa verið óvana-
lega góðar í vetur, en afli
tregur. Strax eftir páskana
brá þó til hins betra meö afla
og fengu bátar héðan 7—43
lestir í róðri siðastliðna viku.
Aflahæstur yfir vikuna var
Súgfirðingur með 44 lestir í
fimm róðrum, en samtals
fengu þeir 5 bátar, sem róa,
193 lestir um vikuna. — Afl-
inn er því nær eingöngu stein
bitur og er megnið af hon-
um fryst fyrir Ameríkumark-
aö og í'æst fyrir hann gott
verð. Nokkuð langt er á mið-
in, því að sækja verður á mið-
in út af Patreksfirði. Svo virð
ist sem betur fiskist á loðnu
en síld. Þessi steinbítsganga
gefur vonir um að eitthvað
muni aflast af steinbit hér
«ti fyrir í vor.
Þuríður Pálsdóttir er komin
heim frá söngnámi í ítalíu, þar
sem hún stundaði nám hjá
Albergoni í Mílanó. Blaða-
menn höfðu tal af Þuríði í
gær og lét hún vel yf«r dvöl
sinni í Mílanó. Þar hafa að
undanförnu dvalið Sex jsiend
ingar við nám. Þeirra á meðal
var Ketill Jensson og Magnús
Jónsson, sem enn er við söng
nám þar syðra.
Syngur í Gamla bíó
á föstudagskvöldið.
Á meðan Þuríður dvaldi í
ítalíu fór hún með hlutverk
Gildu í Rigoletto undir stjórn
Luige Malatezta. Næstkomandi
föstudagskvöld mun Þuríður
syngja í Gamla bíó og verða á
söngskránni lög eftir innlendá
og erlenda höfunda. M. a. mun
söngkonan syngja aríur úr óper
um eftir Gluck, Puccini, Mozart
og Donnizetti. Undirleik mun
annast Fritz Weisshappel.
M«k«l dýrtíð í ítalíu.
Söngkonan sagði, að góð kynni
væru á milli námsfólks í Mílanó
og kæmi það saman á hverj-
um degi í einhverju af veitinga
húsum borgarinnar og rabbaði j
saman. Mikil dýrtíð er nú í
Italíu og veldur hún íslenzku
námsfólki mjög miklum erfið-
leikum, eins og gefur að skilja.
Þuríður var Reykvíkingum að
góðu kunn, áður en hún fór
til frekara söngnáms í ítalíu,
fyrir söng sinn hér við ýms tæki
færi. Þarf því ekki að efa, að
Reykvíkingar fjölmenni á söng
skemmtun hennar í Gamla bíó
á föstudagskvöldið.
Kvöldskóla K.F.U.M.
lokið í ár
Nýlega er lokið 31. starfsári
þessa vinsæla skóla, er starf-
aði s. 1. skólaár í byrjenda- og
framhaldsaðaldeild. Þessar
námsgreinar voru kenndar:
íslenzka, íslenzk bókmennta-
saga, danska, enska, kristin
1 fræði, upplestur, reikningur,
bókfærsla og handavinna.
I Nemendur sóttu skólann
eins og að undanförnu hvað-
anæfa af landinu. Við vor-
prófin hlutu þessir nemendur
hæstar einkunnir:
i í byrjunardeild: Jórunn
Bergsdóttir frá Hofi í Öræf-
um (meðaleink. 9.3).
í framhaldsdeild: Guðrún
Skúladóttir og Ingibjörg Árna
dóttir úr Reykjavík (báðar
með meðaleink. 8.9).
Voru þessum nemendum af
hentar vandaðar bækur að
verðlaunum fyrir góðan árang
ur í námi sínu. En einnig veit
ir skólinn árlega bókaverðlaun
þeim nemendum, er sérstak-
lega skara fram úr í kristn-
um fræðum. Hlutu þau verð-
laun að þessu sinni: Jórunn
Bergsdóttir, sem hæsta eink-
unn fékk i byrjendadeild, og
Ingibjörg Árnadóttir, önnur
þeirra stúlkna, er efstar urðu
í framhaldsdeild. En ensku-
kennari skólans afhenti auk
þess Guðrúnu Skúladóttir í
framhaldsdeild verðlaunabók
frá sér fyrir frábæran árang-
ur við enskunámið. Hún hlaut
á burtfararprófinu 9.5 í ensku.
Kvöldskólinn nýtur mikilla
og almennra vinsælda um
land allt.
Humarinn er veiddur í litla
botnvörpu á allmiklu dýpi, og
eru helztu veiðisvæðin út af
Reykjanesi og við suðurströnd
ina. En mest af veiðisvæðinu er
innan landhelgi, og því þarf sér
stakt leyfi til veiðanna, þótt
botnvarpan, sem notuð er, sé
lítil og geti ekki valdið teljandi
tjóni.
Rækjuveiðarnar.
Einnig ríkir enn nokkur óvissa
um framtíð rækjuveiðanna, sem
stundaðar eru á ísafjarðardjúpi
og fjörðum inn af því. Veiðitím
anum er nú að ljúka, því að
rækjan fer að fara úr skel, og
verður ekki góð vara aftur fyrr
en kemur fram á haustið. Um
rækjuveiðar gildir hið sama og
humarveiðina, að undanþágu
þarf til þeirra, en úrskurður
stjórnarvaldanna um það enn
ókominn.
Námsflokkar Rvíkur
Námsflokkar Reykjavíkur
störfuðu í vetur í Miðbæjarskól
anum, og hafa námsskírteini
núverið afhent 284 nemendum,
og er það meira en síðastliðið
ár. Voru kenndar sextán náms
greinar í nálægt fjörutíu flokk
um. Það var nýbreytni, að sér-
stakir tungumálaflokkar voru
fyrir þá, sem ætla að lesa utan
skóla undir stúdentspróf og
aðra, er vilja hraða námi sínu.
Ritvélar voru lánaðar nemend
um til æfinga, og nægðu vélar
námsflokkanna ekki til þess að
fullnægja eftirspurn.
Aðsókn að námsflokkunum
fer nú vaxandi á ný, og sækjast
menn ekki sízt eftir hagnýtu
námi.
Björn Magnússon dósent
veitti námsflokkunum forstöðu
í vetur í fjarveru skólastjórans,
Ágústs Sigurðssonar magisters.
Fjölbreytt og fjölsótt
Húnavakaá
Þuríður sem Gilda.
Grikkir og Tyrkir
á varnarráðstefnu
Utanríkisráðherra Tyrkja og
forsætisrá'jherra komu með
föruneyti sínu tú Abenu í gær,
þar sem nú er hafin ráðstefna
um landvarnir Balkanskaga.
Var fyrsti fundur þeirra og
Venezelosar haldinn í gær-
kveldi. Meðal mála þeirra, sem
rædd verða, er hlutdeild og af-
staða Júgóslaviu til slíkrar sam
vinnu og hvort bjóða skuli Júgó
slövum þátt í henni. Ráðstefn-
an mun standa fjóra daga. Ekki
er búizt við, að Júgóslavar vilji
gerast beinir aðllar slíkrar sam
vinnu en líti hana heldur ekki
óvinsamlegum augum.
Leiksýningar, kvikmyndasýningar, söng-
skeanmtanir, fyrirlestrar og dans dagleg'a
Húnavaka þeirra Húnvetninga stendur yfir á Blönduósi
þessa dagana, en það er eins konar sæluvika þeirra. Lýkur
vikunni 1. mai. Hvern dag eru þar skemmtanir ýmis konar
og fræösluþættir og er vakan fjölsótt.
Leikfélag Blönduóss sýndi
fjögur kvöld í röð I.eynimel
13 og í gærkvöldi sýndi slysa-
varnadeildin í Höfðakaupstaö
smáleik. í kvöld sýnir Ung-
mennafélag Höfðakaupstaðar
Öldur eftir Jakob Jónsson.
Kjartan Ó. Bjarnason hef-
ir sýnt kvikmyndina ísland í
sumarsól viö ágætar viötökur.
Karlakóririn Húnar skemmt
ir meö samsöng og einnig
karlakór úr Miðfirði. Brynj-
ólfur Dagsson, læknir á
Hvammstanga flutti fyrirlest
ur og kona hans, frú Sigríö-
ur Pétursdóttir söng einsöng.
1 Dans hefir veriö á hverju
kvöldi. Skemmtanirnar hafa
veriö vel sóttar þrátt fyrir
bleytu og ófærð á vegum sið-
ustu dagana vegna bráðrar
ieysingar.
Lækkað faíavcrð
í Danmörku eru vorfötin nú
20—30% ódýrari en í fyrra, því
að margar fatagerðir hafa lækk
að verð vöru sinnar stórlega.
Gildir þetta bæði um föt karl-
manna og kvenna, og dæmi eru
tii þess, að kjólar séu nú boðnir
fyrir 30—40% lægra verð en áð-
ur. Á sokkum nemur verðlækk-
unin allt að 50% hjá verk-
smiðjunum.