Tíminn - 10.05.1952, Side 2

Tíminn - 10.05.1952, Side 2
.(.< ,1') I.I.’ TÍMINN, laugardaginn 10. maí 1952. 104. blað. Klæðist ísl. búningi og flytur fyrir- lestra um Island á Kyrrahafsströnd Lesendur Tímans kannast margir við frú Láru Kr. Helga- dóttur Golden, sem heima á í San Diego í Kaliforníu, en kom í heimsókn til íslands í fyrra- sumar. Tíminn átti þá samtal við hana. Nú er frú Lára komin heim, og hefir nýlega sent blað inu eftirfarandi bréf, ritað seint í febrúar, sem lesendum er ætl að: „Kæru landar. Ég þakka inni lega ágætar móttökur í fyrra- sumar. í>að eru nú liðnir fimm mánuöir síðan ég steig upp í flugvélina og hélt heim eftir þriggja mámaða dvöl á íslandi, og þessir mánuðir munu verða mér í minni sem heiður himinn án skugga eða skýja. l»ú verður fyrir vonbrigðum. Þegar ég lagði af stað heim til íslands í júní í fyrra, eftir að liafa alið aldur minn í öðrum löndum í 29 ár, sögðu margir við mig: Þú verður fyrir von- brigðum, góða mín. Þú varst svo ung, þegar þú fórst að heim an, og það er aðeins æskuhug- mynd þín, að þar sé svo fagurt. Og svo er það kuldinn, þú únir þar aldrei lengur en mánuð. Þrjá mánuði, biddu fyrir þér.“ En ég dvaldi þrjá mánuði og hið eina sem mér fannst ama að eftir það, var að geta ekki dvalið þar allt árið. En því var nú ekki að heilsa, ég átti mann, börn og heimili í San Diego, en ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Á íslandi fann ég allt, sem mig hafði dreymt um. Ég fann þar stórkostlega fegurð, sem hlýt- ur að hrífa hvern, sem henni kynnist. Fólkið stórhöfðinglegt og gestrisnin frábær, tígulegt í sjón eins og fornkappar. Of fáar konur í þjóðbúningi. Ég held, að ég geti mælt fyr- ir munn allra íslendinga, sem búa erlendis, er ég segi, að þeir geti vel sameinað það að vera borgarar í öðru landi og elskað og virt sitt fósturland, án þess að gleyma nokkurn tíma Fjall konunni og geyma í brjósti sér ást og virðingu í hennar garð alla daga. Það var þó eltt, sem mér féll míoúr við komuna til íslands, og það var hve fáar Útvarpið Útvarpið í dag: Fastir liðir eins og venjulega. 20.0 „Ferð í tónum": Frú Inger Larsen kynnir ýmis vinsæl lög og söngvara (flutt af segul- bandi.) 21.05 Dagskrá slysa- varnadeildarinnar Ingólfs i Reykjavik. 22.00 Fréttir og veð- urfregnir. 22.10 Danslög (plöt- ur). — 24.00 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: 8.30—9.00 Morgunútvarp. — 10.10 Veðurfregnir. 11.00 Morg- untónleikar (plötur). 12.10—13. 15 Hádegisútvarp. 14.00 Messa í Aðventkirkjunni: Óháði frí- kirkjusöfnuðurinn í Reykjavík. 15.15 Miðdegistónleikar. 16.15 Fréttaútvarp til íslendinga er- lendis. 16.30 Veðurfregnir; 18.30 Barnatími. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tónleikar (plötur). 19.45 Auglýsíngar. — 20.00 Frétir. 20. 20 Tónleikar (plötur). 20.35 Er- indi; Á fimmtugsafmæli Hall- dórs Kiljans Laxness (Jón Heigason prófessor). 21.00 Ein- söngur: Ingibjörg Steingríms- dóttir syngur. 212.30 Upplestur: Steingerður Guðmundsdóttir leikkona les kvæði. 21.45 Tón- leikar (plötur). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05 Danslög (plötur). — 01.00 Dagskrárlok. Frú Lára Kr. Helgadóttir Gold- en í íslenzkum búningi. konur voru þar í hinum fagra | þjóðbúningi. j Mér finnst íslenzki búningur i inn svo fallegur, að hann megi j ekki leggjast niður. Þótt konum I finnist óþægilegt að vera í síð- ,um pilsum, sem oftast eru höfð við þjóðbúninginn, er enginn annar vandinn en að stytta þau. Það lýtir búninginn ekkert, ög flestar konur hafa nú klippt af sér flétturnar, og því þá ekki að klippa ofurlítið neðan af pils- unum líka. Þjóðbúningurinn vekur athygli. Ég bjó mér til íslenzkan upp- hlut, þegar ég kom aftur heim til San Diego og þykir hérlendu fólki hann mjög fallegur. Ég hef oft verið beðin að segja frá íslandi í ýmsum félögum, svo sem kvenfélögum, skátafélögum og skólafélögum, og þar hafa verið allt að 200 áheyrendur stundum. Þá klæðist ég ævin- lega upphlutnum og tek með mér ýmsa muni frá Islandi, er ég fékk í fyrrasumar. Fólk er mjög sólgið í að heyra sagt frá íslandi, og undrast sumir, að þar skuli vera grænt gras, marg lit blóm, fuglar og hvítt fólk. Sumir halda, að þetta sé aðeins svolitil ey hulin ís og snjó allt árið um kring. Það er mín heitasta ósk nú, er ég er komin heim aftur að geta farið til íslands aftur, og þá fái ég að sjá fleiri íslénzkar stúlkur og konur í þjóðbúning- um. Með beztu kveðjum til eyj- unnar fögru. Lára Helgadóttir GoIden.“ Skákmcistarinn (Framhald áf 8. síðu.) Baldur Möller, tvær skákir, en líklegt er, að hann tefli einnig einstakar skákir við okkar beztu skákmenn. Prins er mjög glæsilegur maður, tæplega fertugur, og bíður af sér góðan þokka. Hann er blaðamaður að at- vinnu. Aðaláhugamál hans, auk skákarinnar, er tónlist og leikur hann á píanó. Listdómar um Hjör- leif Sigurðsson Umsagnir franskra listdóm- ara um verk Hjörleifs Sigurðs- j sonar, sem sýnir nú i Listvina- salnum: „í myndum Sigurðssonar (Hjörleifs) er það hið skáldlega andrúmsloft, sem kallar fram verkið en í því samlagast skerf ur málarans næmri við- kvæmni.“ Úr L’Aube. „Sem heild vekja verk þess- ara íslendinga mjög góðar von- ir. Hörður leitar einkum eftir ofsafengnu samræmi og áhrif- um litarefnisins, Sigurðsson (Hjörleifur) er mjög fíngerður, Valtýr sýnir, að hann hefir kunnað að færa sér í nyt þau áhrif, sem hann hefir orðið fyr ir hjá frönskum málurum." Úr Paris Presse. „I myndum Sigurðssonar (Hjörlejfs) opnast okkur ein- kennilegur ljósheimur, þar sem tónarnir eru gæddir miklum fínleik. Þeir eru eins og sveip- aðir slæðum en þetta gefur forminu persónulegan blæ. Úr Parisienne Liberé. „Þessi sýning er góður vitnis- j burður um átak fimm ungra Is lendinga, sem dveljast í Frakk landi. Raunar er varla hægt að finna í verkum þeirra nokkuð það, sem gefi til kynna annað andrúmsloft, aðra þjóð — nema ef vera kynni hjá Sigurðssyni * (Hjörleifi) en í myndum hans umlykur einkennileg þoka menn, hluti og þennan glugga, sem opnast út í annan þoku- kenndan heim. Úr Opéra. Jörð til sölu o Jörðin Efri-Hóll í Vestur-Landeyjum, Rangárvalla- u sýslu, er til sölu nú þegar. — Tún og engjar véltækar. 1 > Jörðin er vel hýst. — Semja ber við eiganda, Magnús j [ Andrésson, eða Friðrik Friðriksson, Miðkot>, Þykkvabæ. ' > f .W.V.W.V.W.VA^V.'.VAV.W.'.VAW.W.V.V.W, TILKYNNING Þeir félagsmenn Byggingasamvinnufélags Reykja- ;I1 víkur, sem fengið hafa smáíbúða-byggingaleyfi, og óska eftir fyrirgreiðslu félagsins, gefi sig fram á skrif- stofu félagsins, Lindargötu 9, fyrir 15. maí. I; STJÓRNIN. ■.V.V/.V.V.V.V.V.VAV.V.V.VV.V.VW.V.V.V.V.V.WÁ I.S.Í. K.R.R. K.S.Í. t Vormót meistaraflokks 1 í dag kl. 4,30 leika Fram-Víkingur f Sama lága verðið. ^ Allir xit á völl. Mótanefndin. 'AVV.W.V.V.W.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V .* » ■ ■ ■ v.w „í Galleri St. Placide sjáum við verk eftir 5 íslendinga. Tveir þeirra heilla okkur með norrænum stíl sínum og dular fullum blæ verka sinna. Það eru myndhöggvarinn Gerður (Helgadóttir) og málarinn Sig- urðsson (Hjörleifur). Hörður og Sigurðsson (Hjörleifur) eru sér kennilegastir, þar sem þeir færa okkur eitthvað af andrúms- lofti og náttúru ættlands síns. Sigurðsson gefur okkur hug- mynd um íshafsþoku, sem hjúp ar þessi stílíseruðu form og þessa þýöu bláu tóna. Úr Continental Daily Mail. I Framkvæmdastjóra vantar í kauptún úti á landi til að annasb rekstur hrað i; I; frystihúss og þriggja vélbáta. Ij ." Til mála getur einnig komið að fela sama manni C »■ », •C sveitarstjórnarstarf í hreppnum. ■! Þeir, sem vildu sinna þessu, sendi umsóknir til fé- £ í lagsmálaráðuneytisins fyrir mánudagskvöld 12. maí J« S næstkomandi. í» ■« ,« .■ Upplpýsingar ekki gefnar í síma. .■ :• :■ \ Félagsmálaráðuneytið. ;■ V.w.v.w.v.v.v.v.v.w.v.v.v.v.v.v.w.v.v.v.w.v AV.V.V.V.V.V.V.V.V.W, W.W, .W.W.VAW.V ? Sinfóuíuhljómsvcitiii: T ónieikar n. k. þriðjudag 13. þ. m. kl. 8V2 síðdegis í Þjóðleikhúsinu l* £ Stjórnandi OLAV KIELLAND ■I Einleikari Árni Kristjánsson t :: :: Viðfangsefni eftir Mozart, Pál Isólfsson og Edv. Grieg *; W.W.W.V.W.W.V.W.W.V.WnV.V „Valtýr málar abstrakt en í íj Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1,15 i dag i Þjóðleikhúsinu £ mjög fögrum litum, en hann og Sigurðsson (Hjörleifur) eru full trúar íslenzkrar málaralistar. Af verkum þessa síðarnefnda málara vekur mesta athygli konumynd, sem er persónulega gerð í djúpum litum með að- dráttarafli hins íslenzka lands lags, dálítið þokukennd og vitn andi um heimþrá. Hún hefir á- ferð „gouache“-lita og heillar áhorfendur eins og loforð um ferðalag í landi leyndardóma og þjóðsagna. Úr Le Monde. .Myndir Sigurðssonar (Hjör- leifs) eru málaðar í mjög þýð- um litum. Landslagið fyrir ut- an gluggann brýst í gegnum þok una. Sumar af myndum hans, sem mættu vera sterkari í bygg ingú, lýsa áhrifamiklu þung- lyndi. Úr Les Arts. VORUFLUTNINGAR t Reykjavík — Akureyri Eins og undanfarin sumur önnumst við vöruflutn- 1 inga milli Akureyrar og Reykjavíkur. Vörumóttaka ^ daglega. Afgreiðsla í Reykjavík hjá: Frímanni Frí- ♦ mannssyni, Hafnarhúsinu. Pétur & Valdemar h.f. AKUREYRI. Áskriftarsimi Tímans er 2323

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.