Tíminn - 30.05.1952, Blaðsíða 3
<■.» \ > •
120.'blað.
TÍMINN, föstudaginn 30. maí 1952.
Úrvalsliðið : Brentford 2—1
r
„Islenzk knattspyrna
er á háu stigi”
segir framkvæmdastjóri Brentförd,
Mr. Gibbons
Enn hafa íslenzkir knattspyrnumenn unnið stóran sigur, þrátt
fyrir allt tal um getuleysi þeirra. Ef til vill finna þó hinir visu
menn einhverja ástæðu fyrir sigri þeirra í þetta skipti, eins og
t.d. vegna hvassviðris.... eða Brentford er lélegt lið. En þetta
eru veigalítil rök. Islenzka liðið sigraði vegna getu leikmanna
þess, Iiðið lék vel saman, þeir voru fljótir á knöttinn og úthaldið
brást ekki.
Framkvæmdastjóri Brentford
Mr. Gibbons, sagði eftir leikinn:
„Við vissum, að íslendingar eiga
góðum knattspyrnumönnum á
að skipa, það var okkur sagt;
í London. En eftir þennan leik i
get ég sjálfur dæmt um og að;
mínu áliti er íslenzk knatt-1
spyrna á háu stigi, og margir í1
þessu liöi eru mjög góðir knatt- j
spyrnumenn. Ef íslendingar j
mýndu léika við skozka eða1
enska áhugamenn myndu þeir í
áreiðanlega ná prýðilégum ár- |
angri.“ Framkv.stj. vildi ekki
nefna neina sérstaka leikmenn,
það sagðist hann aldrei gera.
Hins vegar gat hann þess, að
það væri álit sitt, að Brentford
myndi ná betri árangri í næstu
leikjum, og þá yrðu það þeir,
sem skoruðu mörkin en ekki
íslenzku liðin.
Leikurinn.
Brentford kaus að leika und-
an norðanstrekkingi í fyrra
hálfleik.
Það sást fljótt, að hér var um
góða knattspyrnumenn að ræða
leikni þeirra var mikil og hraði
góður. En úrvalsliðið gaf þeim
ekkert eftir, þeir voru fljótir á j
knöttinn, og framlínan náði ^
strax virkum leik,; enda var
betra að leika á móti vindinum. I
Strax á 7. mín. tókst þeim að j
skora. Bjarni náði knettinum af
Greenwood, hægri bakvörður
hljóp inná miðjuna, og opnað-
ist þá allt þeim megin. Bjarni
notaði tækifærið, gaf knöttinn
til Gunnars Guðmanns, sem
ýtti honum áfram til • Reynis,
fyrir opið markið. Réynir lék
nær markinu cg skoraði óverj-
andi í hægra hornið. Á næstu
mín. náði úrvalið oft prýðileg-
um leik og tókst .að opna vörn
Brentford mikið, sem hefði átt
að gefa mörk, t.d. er Gunnar
Gunnarsson skaut á markið í
staðinn fyrir að gefa til Bjarna
og Reynis, sem voru fríir fyrir
markinu, eða þegar Bjarni
spyrnti rétt framhjá opnu mark
inu, þræidekkaður þó. Á 20 mín.
skoraöi. úrvaiið annað mark.
Gunnar gaf upp miðjuna tii
Bjarná, sem tókst að komast
gegnum vöriiina og skora óverj
andi. Sókn Brentford var ekki
sem virkust í þessum hálfleik,
enda var íslenzka vörnin m.iög
traust, og yfirléitt fljótari á
knöttinn. Rétt undir lokin tókst
þó hægri útherjá að skora með
lausu skoti af stuttú færi. Þar
munaði aðeins broti úr sekúndu,
að Karli tækist að bjarga. í
síðari hálfleik náði Brentford
mun virkari leik, enda Vár betra
að sækja móti vindi. Þeim tókst
þó aldrei virkilega að opna ís-
lenzku vörnina, Karl og Hauk-
ur höfðu þar oftast síðasta orð-
ið, sérstaklega urðu fætur Karis
oft síðasta hindrunin, sem allt
strandaði á.
Samvinnan milli sóknar og
varnar hjá úrvalsliðinu slitnaði
alltof mikið í þessum hálfleik,
enda byggðu framverðirnir ekki
upp sem skildi, þrátt fynr dugn
að. Að vísu náði liðið oft góðum
upphlaupum og Jeffries varði
tvisvar snilldarlega spýrnur fra
Reyni.
Liðin.
Úrvalsliðið féll vel saman, og
framlínan náði oft snilldarleik
í fyrri hálfleik. Erfitt er að gera
upp á milli einstákra leik-
manna línunnar, þeir 'attu all-
ir góðan leik, tækni þeirra mik-
il og auga fyrir samleik gott. Þó
verður það að teljast mikið af-
rek hjá Bjarna að standa sig
jafn vel gegn hinum þekkta
landsliðsmanni, Greenwood, og
hann gerði. Gunnar Guðmanns-
son hef ég aldrei séð leika.bet-
ur og Reynir stóð sig með af-
brigðum vel gegn hinum ágæta
Monk. í vörninni var Karl Guð-
mundsson frábær og lék einn
sinn bezta leik. Haukur var
einnig mjög traustur, fljótur og
ákveðinn. Guðbjörn var dugleg
ur, en réði þó ekki algjörlega við
Goodwin. Lítið reyndi á Magnús
í markinu, en hann greip oft
vel inní. Framvörðunum Stein-
ari og Sæmundi tókst ekki sem
skildi að binda saman vörn og
sókn, ekki nógu nákvæmir í
leik sínum. Aftur á móti var
Steinar duglegasti maður liðs-
ins.
Hjá Brentford bar mest á
hinum dýra Bowie, sem er frá-
bær ieikmaður, tekniskur og
fljótur. Goodwin á hægra kanti
er leikinn, o£ eins nafni hans,
sem kom inná í síðari hálfleík
fyrir Coote, vinstri innherja.
Vörn liðsins var oft opin, en
einstaklingarnir sterkir. Jeffri-
es varði snilldarlega í síðari hálf
leik.
Dómari var Þorlákur Þórðar-
son og dæmdi hann frá okkar
sjónarmiði mjög vel. Aftur á
móti fannst Bretunum hann
ekki nógu strangur, leyfði um
of ólöglegar hrindingar, en nýj
ar reglur hafa fyrir nokkru síð
an tekiö gíldi í Englandi, sem
dómarar okkar hafa enn ekki
tileinkað sér.
„Ef þessi leikur hefði farið
fram í Englandi, hefðum við
fengið tvær til þrjár vítaspyrn-
ur“, sagði Ledgerton, vinstri út
herji Brentford.
H.S.
Auglýsið í Timannm
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiit
ÖRYGGl I
1 Allar stærðir frá 10—200 í
| amper. Ennfremur stuttuj
j öryggin, sem alltaf h efirj
i vantað á undanförnum ár-j
i um.
1 VÉLA- OG
RAFTÆK JAVERZLUNIN ]
I Tryggvagötu 23. - Sími 81279=
aiiiiiiiiiiiiniimiiiiirrvfiiMiirmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin
i
ÚR VIÐ ALLRA
HÆFI
Vatnsþétt, höggfrí úr
stáli, einnig úr gulli og ,,
pletti í mjög miklu úr- < i
vali.
Sendum gegn póstkröfu
ÚRA- OG SKARTGRIPAVERZLUN
Magnúsar Ásmuiulssonar & Co.
Ingólfsstræti 3
LV.V
•V.V
Aðvörun
.v.v.v
I
Hér meö er stranglega bannað að aka eftir malbikuð
um þóðvegum með keðjur á hjólum bifreiða eða annara
ökutækja, skriðbelta, eða líkum búnaði á vagnhjól-
um. Enn fremur hverskonar dráttur á járni eða öðru
því sem valdið getur skemmdum á vegunum.
Brot gegn banni þessu varðar sektum.
VEGAGERÐ RÍKISSJÓÐS
ii
!
PAV.V.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V^nV.V.V.V.V.V.VAW
1 HVÍTASUNNU-
BAKSTURINN:
Hveiti 3 tegundir
Succat
Kókósmjöl
. Skrautsykur
Flórsykur
Púðursykur
Vanillestengur
Palmín
Dropar, allar teg.
Hjartasalt
-Lyftiduft
Kardemommur
Jarðarberjasulta
Hindberjasulta
Bara hringja svo kemur það
NYTT GRÆNMETI
ÐAGLEGA:
Úrvals Agúrkur 5,25
Tómatar
Salad
Gulrætur
stk.
Molasykur 4,90 kg.
Strásykur 4,20 kg.
Kandís, dökkur
Púðursykur
Flórsykur
SURSAÐ GRÆNMETI:
GÚRKUR
PERULAUKUR
PICKLES
í sinnepssósu
CAPUS
KJÖTKRAFTUR
APPELSÍNUSAFI
JARÐARBERJA og
HINDBERJASAFT
NIÐURSOÐNIR ÁVEXTIR:
Perur 1/1 og 1/2
Ferskjur
Ananas
Jarðarber
Plómur
Kirsiber í glösum
Blandaðir ávext>r
★
Grænar baunir
Gulrætur
Blandað grænmeti
Spánskar
appelsínur
ný uppskera
safamiklar og góðar
Hið óviðjafnlega
NESCAFÉ
komið aftur.
Hvítur
SÚPU ASPARGUS
12,40 stór dós.
Stór verðlækkun á öllum tegimdum af
þurrkuðum ávöxtum
Sveskjur, stórar. Sveskjur millistærð. Þurrkuð epli. Cali
fornískar rúsínur. Þurrkaðar perur. Þurrkaðar ferskjur.
fl/ll fíl/cilclii
Aðalstæti 10 Laugaveg 43 Hringbraut 49 Freyjugötu 1
jHáteigsveg 2 Langholtsveg 49 Laugaveg 82 Vesturgötu 29
lx
:$
8
1 ’T
*♦
•:
■ ♦
i:
ii
H
H
::
K.S.S.
FRAM—VÍKINGIJR
K.R.R.
Stærsti knattspyrnuviðburður ársins
^ í kvöld kl. 8,30 leikur hið licimsþekkta brezka atviunulið
Brentford
GEGÁ
Fram — Víkingur
Dómari: lug'i Eyviuds
Komið otf sjáið bezta knattspyrnulið, seni hinqað hefir komið.
Ltekkað verð!
Hvor sigrar???
Móttökunefndin.