Tíminn - 04.07.1952, Page 15

Tíminn - 04.07.1952, Page 15
/ T í M I N N Aukablað 15 Eftir KarL Kristján.sson. Elzta samvinnufélag landsins sjötíu ára i. Allir dagar í lífi manna og þjóða eru með örlagaþráðum tengdir liðnum dögum. Suma örlagaþræði er hægt að rekja og mæla frá líðandi stundum til vissra daga að baki. Þess vegna halda menn há- tíðir og afmæli. Frá deginum í dag er auð- rakinn örlagaþráður 70 ár aft ur í tímann eða til 20. febrú- ar 1882, :— hamingjuþráður fyrir hagsæld lands og þjóðar. Lítum litla stund til baka yfir þessi 70 ár og þangað, sem þá voru að verki þeir menn, sem vitaö er að gáfu deginum sérstakt gildi fyrir ísland og íslendinga — og þráðurinn er frá kominn. II. 20. febrúar 1882 er Laxár- dalur í Þingeyjarsýslu hlað- inn fönnum. Þar um sveitir hefir verið hríðarhamur sið- ustu daga. Nú er stilitara veður, hríð- arlítið en drungaloft. Bæirnir í dalnum eru liálf- ir eða meira á kafi í snjó — og fer lítið fyrir þeim. Hver mundi ekki helzt kjósa að mega vera heima hjá sér í svona tíðarfari.og byrgja bæ sinn? En hér eru allmargir menn á ferð. Þeir koma úr ýmsum átt- um inn í dalinn og stefna all- ir að einu og sama marki: að bænum Þverá. Mennirnir eru á skíðum, en færið er þungt og þeir göngu móðir og sveittir, enda sumir komnir um langa vegu úr fjarlægum sveitum. Auðséð er sam.t á hreyfing- um mannanna og yfirbragði, að þeir fara fúsir erinda, sem þeir telja mjög brýn. Á hlaðskaflinum að Þverá stíga þeir af skíðum sínum, sópa af sér snjó með hrís- vöndum og hverfa í bæinn. Ilvað er hér á seyði? III. Nokkurt tímabil fyrir árið 1882 höfðu framtakssamir bændur í Þingeyjarþingi mik ið rætt um verzlunarmál. — Reynt að hafa samtök um að ná sem hagfelldustum við- skiptum við kaupmenn bæði á Húsavík og Akureyri. Selt sauði á fæti til útflutnings fyrir gull, er þeir svo notuðu eftir föngum til þess að þrýsta niður vöruverði hjá kaupmönnum. En lítiö hafði áunnizt til kjarabóta. Verzlunin var í aila staöi ó- hagstæð. Fólkið var fátækt, arð- rænt af einvöldum kaupmönn um og selstöðuverzlunum — og í skuldafjötrum hjá þeim. Sama sagan um land allt. En eitt hafði samt áunnizt. Þingeysku bændurnir höfðu komiz.t að þeirri viturlegu niðurstöðu, að eina ráðið til þess að sigra þetta ástand og losna úr ánauöinni, væri að stofna til eigin félagsskapar um verzlunina, — brjóta liels- iö meö því aö hætta að skipta við selstööuverzlunina í Húsa vik, kaupa vörur beint frá út- löndum og selja framleiðslu- vörur sínar milliliðalaust þangað. Ýmiskonar undirbúningur aö þvílíkri félagsmyndun hafði farið fram í héraðinu árið 1831, •— og nú hafði Ja- kob Hálfdánarson, bóndi á Grímsstöðum í Mývatnssveit, boðað til stofnfundar að Þver á í Laxárdal 20. febrúar. Þess vegna var mannaf.erð- in um dalinn. Þetta var á seyöi. IV. í stofunni á Þverá var.fund ur settur. (Útvarpsermdi 20. febr. 1952). framkvæmdastjóri félagsins] og nefndur kaupstj óri. Jakob var aðeins eitt ár í stjórninni, af því að réttara þótti, þegar til kastanna kom, að kaupstjórinn væri utan hennar. í hans stað var á næsta aö- alfundi Benedikt á Auðnum kosinn i stjórnina og átti hann þar sæti í 40 ár sam- fleytt. V. ■ Fyrsta greinin í lögum Kaup félags Þingeyinga ’var svo- hljóðandi: „Aðaltilgangur félagsins er ■< * V-SV -■ v t Húsavílc. Sú stofa þótti gott hús á mælikvarða þeirra tíma og hún stendur líka enn, rúm- lega 100 ára gömul, og geym- ir, virðuleg en þögul, minn- ingar þessa dags. Þarna voru samankomnir 15 menn úr 5 hreppum meö umboðum frá fleiri eða færri sveitungum sínum, en þá voru ekki fleiri en 5 hreppar á svæðinu milli Kinnarfjalla að vestan’og Jökulsár á Fjöll- um að austan, þó nú séu þar orðin 9 sveitarfélög, vegna hreppaskiptinga, sem farið hafa fram síðan. Auk þessara 15 fulltrúa voru nokkrir áhugamenn mættir á fundinum, án at- kvæðisréttar. Á þessum fundi var svo elzta kaupfélagið á íslandi stofnað, — Kaupfélag Þing- eyinga í Húsavík. Félaginu voru sett lög og kosin félagsstjórn. Þegar þetta gerð'ist'var kaup félag ekki aðeins nýsköpun í féla.gsmálastarfsemi hértend- is, heldur hefir verið fullyrt að orðið kaupfélag hafi lika verið' nýyrði fyrir islenzka tungu. Sá, sem auðgaði máliö með’ því orð'i er talið að hafi veriö Benedikt Jónssqn bóndi á Auðnum í Laxárdal. Fyrstu stjórn kaupfélags- ins skipuð'u: Jón Sigurðsson á Gautlönd- um, sem var formaður henn- ar. — Séra Benedikt Kristjánsson, Múla — Jakob Hálfdánarson á Grímsstööum. Jakob var einnig ráðinn sá, að ná svo góð’um kaup- um á útlendum varningi sem auðið er og að gera útvegun hans sem auðveldasta hverj um félagsmanni. Ennfremur aö' fá til vegar komið meiri vöruvöridun og að afnema sem mest alla skuldaverzl- un.“ Sést glöggt af grein þessari, að mpnnirnir, sem þreyttu gönguna í Laxárdal 1382 höfö’u þá þegar gert sér Ijóst hvaða að'alefni þurfti í ör- lagaþráðfnn, sem þeir þá hófu að spinna, til þess að hann yrði sá hamingjuþráður, sem þeir vildu að hann yrði og trúð'u fastlega á að' hann mundi veröa. Greinin leggur áherziu á: Fækkun milliliða.' Vöndun eigin söluvöru. Afnám skuldaverzlunar. Strax var líka gætt þeirrar reglu, sem verið hefir grund- vallarregla samvinnumanna alla stund síðan, að allir fé- lagsmenn hafi jafnan atkvæð isrétt, hvort sem þeir eru rík- ir eða fátækir. Hvaðan ætli upphafsmönn- unum hafi komið þroski til þessa? Þeir höföu menntazt með sjálfsnámi af iniklum bók- lestri. s g Þó sagð'i mér Benedikt Jóns son, sem var þeirra víðlesn- astur, aö þeir hefðu ekki þá ve’rið búnir aö heyra getiö um samvinnufélag vefaranna i Rochdale, er stöfnað hafð'i ver ið 38 árum áður og tali'ð' er fyrsta kaupfélag í heimi. Það, sem gerðist þarna var, að þeir réðu rétt viöskipta- gátuna, eins og vefararnir. Þeir höfðu ræðst mikið við og blandað geði um áhyggju- efni sín og áhugamál. Mikið' er til af sendibréfum, sem vottar þetta, frá þessum árum. Þá var mikil sendibréfa öld í héraðinu, enda samgöng ur erfiðar til samfunda. Dag- leið þá sú leið', sem nú er far- in á 2—3 klst. Mörg bréfanna eru langar ritgexðir, af þvi að mönnun- um ]á svo margt og mikið á hjarta. Þeir kenndu „karlmann- lega til í stormum sinna tíða,“ og vildu bæta úr böli, trúðu á lifið', voru bjartsýnir á þroska möguleika mánria, var. fjarri skapi að finnast: „Það 'lítið og lágt, sem lifað er fyrir og barizt er móti.“ Mér er þa'ð minnisstætt hve margir meriri frá þessum ár- um, — þótt þeir væru ekki úr hópi forustumanna — voru hafnir yfir fánýtishyggjuna, sem yngri rnenn sótti heirn. Þeir urðu aldrei menn kvöld skugganna. Þeir voru menn morgunsól- ar alla tið til dauðadags. Þannig verða þeir menn, er vígjast hagsbóta- og mann- bóta-hugsjónum, sem þeir fá að sjá rætast a'ð miklls veröu leyti. VI. Á stofnfundi Kaupfélags Þingeyinga voru lagðar fram pantanir í vörur — 40—50 teg- undir — upp á 22 þús. kr. sam tals. Er það furðu há upphæð, þegar miðað er við gildi pen- inga þá. Ber það vott um hina ákveðnu þátttöku strax. Jakob Hálfdánarson kaup- stjóri félagsins og Benedikt Jónsson, sem var kunnáttu- ma'ður í málurn og viða'ð hafði að sér verðskrám og vörulist- um erlendis frá, gerö’u pant- anir til útlanda. Jakob dvaldist lengst af í Húsavík næsta sumar og und irbjó. móttöku varanna. Haföi hann þá ekki annan húsakost til umráð'a — fyrir félagið en skemrnu nokkra, sem hann keypti á 50 krónur. Höfðu enskir laxveiöimenn átt hana áður. Var hún ekki fokheld, en Jakob réö bót á því méð því að tjalda haria innan. Skemmunni fylgdi f. kaupbæti þaklaus' moldar- gryfja, sem laxveiðimennirn- ir höfðu geyrnt ís í. Strengd:, Jakob segl yfir hana til af- dreps þungavöru. Þetta var fyrsti húsakostur Kaupfélags Þingeyinga. Sumar þetta, 1882, var eitl. hið versta, sem sagnir fara aí — hið svonefnda misliaga- sumar. Hafís lagðizt að Norður- landi í aprílmánuði þetta ár og lá fram í september. Átti kaupfélagið von á vör- urn með ýmsurn ferðum, senv, mishepþnuðust allar vegna “íss ins, þar til í s.eptember. Sauð’askip tók á Akureyrv sauði félágsmanna um rétta- leytið’. Var það þó lán a£>‘ sauðasalan á fæti tókst, því með andvirði þeirra uröu vör urnar greiddar. Jón Gauti Pétursson á Gaui löndum, sem ritaði sögu Kaui> félags Þingeyinga, er út vaf gefin 1942 á sextíu ára afmælr. félagsins, lýsir því hvernig margt lagðizt á eitt til mót- gangs í héraðinu þetta fyrsta ár félagsins. Hann segir: „Vorharðindi og ill skepivut höld, nálega bjargarskortur víða, því aflaföng voru litíil vegna íss og óveðra, grasbrest ur, málnytuleysi og hin megft asta ótíð allan sláttartímann, svo að alsnjóa varð í byggð- um í hverri viku, að sögn. Þá. er enn ótalið að ein hin skæð asta landfarsótt geisaði þá, um héraðið, nefnilega misl- ixrgar, er víða ollu mikluir>>, manndauða, en alls staðaT,1 stórfelldu verkatjóni til við-- bótar því, er af ótíð stafaði, Var heyfengur víöa eigi nema, helmingur að vöxtum við' vana, en allt ýmist hrakið eða, sölnað, það, er af heyi náðistV Ekki er tími til þess hér aS rekja hina hörðu og margv þættu baráttusögu félagsint i fyrstu árin. Frumbýlingsháttur, harö- æri og fátækt voru ekki að- eins til fyrirstöðu, heldur einrt ig dugmikill, greiridur og kappsfullur forstjóri selstöðu verzlunarinnar í Húsavik, ,sem Þessi achyglisverða mynd var tekin um 1896 cg er af þein;. Benedikt d Auðnum (t. v.), Jakob Hdlfddnars. og Pétri Jónss,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.