Tíminn - 03.01.1953, Blaðsíða 4

Tíminn - 03.01.1953, Blaðsíða 4
4. TÍMINN, laugardaginn 3. janúar 1953. 1. blað. Áramðtaræða forsætisráðherra (Framhald af 3. sí5u.) ekki að undra, þótt þeim sækist seint, sem eiga allt sitt undir blóðveldi og grimmd þroskalítilla þjóða. Vér íslendingar berum reyndar engan ugg í brjósti um það, að Bretastjórn muni ekki innan tíðar skakka leik- inn og létta af siðlausum þvingunarráðstöfunum, sem nokkrir brezkir togaraeigend ur hafa efnt til, m.a. til þess að nota tækifærið og bægja íslenzkum fiski frá brezkum markaði og losna þannig á þægilegan hátt við skæðan keppinaut. En það ástand, sem nú er, stefnir beinlínis Öilum viðskiptum þjóðanna í hættu. Og það er ekki að undra þótt oss þyki að ó- verðskulduðu anda köldu í vorn garð um sinn frá Bret- landi. Gleymt er það nú, að íslenzkir sjómenn sigldu skip um sínum ótrauðir til Bret- lands öll styrjaldarárin gegn um ógnir myrkurs og vígvéla og guldu við það ærið afhroð. Ætii sá þáttur styrjaldarinn- ar sé nokkru ómerkari en athafnir brezku togaraeig- endanna þá? Nú er aðeins minnt á, að íslendingar hafi fengið hátt verð fyrir vöru sína. Þeir sátu í því efni við sama borð og aðrir, að ákvörð un Breta sjálfra. — Hafa brezkir sjómenn og útgerð- armenn í einu vetfangi gleymt hinu mikla björgun- arstarfi, sem íslendingar víðsvegar við strendur lands- ins hafa innt af hendi, og iagt þá líf sitt við þeirra Mf? Þeir, sem til dæmis hafa séð kvikmyndina af björguninni við Látrabjarg eru nokkru fróðari um, hver afrek eru unnin í slíkum tilfellum. — Þetta er ekki rakið hér vegna þess, að íslendingar ætlist til iauna eða þakklætis fyrir slík störf. Þeir, sem þau hafa unnið, hafa gert það af öðr- um hvötum og brezkir sjófar endur sem aðrir, munu jafn- an eiga slíkum viðtökum að mæta, sömu, fórnfýsi og hjartahlýju, hvar sem þá ber nauðstadda að landi voru. En ekki er nema eðlilegt, að þeim, sem lagt hafa líf sitt í hættu, sárni nokkuð þegar það virðist gleymt og að engu metið. Brezkir togaraeigendur hafa valið sér lágt hlutskipti og vopnaburð við hæfi. En þeir munu ekki fá því ráðið, að íslendingar taki upp sömu vinnubrögð í deilunni. Vér kunnum vel skil á hinni gagnmerku brezku þjóð og látum ekki nokkra vandræða menn hennar spilla vinar- þeli íslendinga í garð Breta. íslendingar eru vanir því eins og aðrar smáþjóðir, að lúta valdi stærri þjóða um sinn. En þetta mál er ekki samn- ingsatriði og frá markaöri stefnu munum vér í engu víkja. Sagan vitnar um það, að hin réttu mál vinnist að iokum, þótt við ofurefli virð- ist að etja. Ranglætið ber í sér sitt eigið banamein, þótt það kunni að bera hátt um skeið. í tæp sjö hundruð ár beið þessi litla þjóð eftir að öðlast á ný stjórnarfarslegt frelsi úr höndum mörgum sinnum stærri þjóða. Enginn skyldi halda, að í þessu langa skammdegi hafi íslendingum nokkru sinni dottið í hug, að þeir ættu um alla framtíð að lúta erlendu valdi. Þannig vinnast mál, sem réttilega eru til búin, þótt mislangan tíma taki. I því sambandi kemur mér í hug, að enn eru varöveitt í útlöndum íslenzku handritin fornu, sem segja má, að hafi verið undirstaðan að and- legri tilveru þessarar þjóðar, og eru að okkar mati þjóðleg ir helgidómar, sem hvergi eiga heima nema á íslandi. Því heyrist stundum fleygt, að norræn samvinna sé skvaldur eitt og skálaræður, er renni óðar í sandinn, ef al varleg mál beri á góma, og sjáist þetta meðal annars gleggst í handritamálinu. Ég trúi fastlega á gildi og mátt norrænnar samvinnu og er þess einnig fullviss, að hand- ritamálið muni leysast yel að lokum, enda eigum vér að skoðanabræðrum marga á- gætismenn meðal Dana, sem skilja vel kröfur okkar og ósk ir varðandi handritin og hafa tekið drengilega í strenginn með okkur íslend- ingum. Handritin eru sam- eiginlegur arfur þjóðar okk- ar. Þjóðardýrgripur, sem aldrei verður gleymt, að eru í erlendum höndum. En í þessu máli, eins og í landhelg isdeilunni, munum vér sigra þegar stundir líða. Hitt er lak ara, ef mál þetta dregst svo á langinn, að það verður búið að ýfa á ný þá harma frá liðnum tíma, sem óþarft er að rifja upp og vér trúum að fullur vilji sé á að bæta fyrir og bezt er fyrir báða aðila að falli sem fyrst í gleymsku. En þess er gott að minnast.bæði í sambandi við landhelgis- deiluna og handritamálið, að þjóðin öll stendur sameinuð um þau — og mun gera það þar til yfir lýkur. Ég hefi gerzt langorður um þessi tvö mál, ekki einungis af því, hve miklu þau varða oss, heldur einnig vegna þess, að lausn þeirra mun færa okkur heim sanninn um, hvers smáþjóðir mega vænta um úrslit mála sinna í skipt- um við sterkari aðila, sem viðurkenna sama siðalögmál og vér. __u__ Ég veit ekki hvort því er al- mennt veitt' athygli, hve sér- kennilegt fyrirbrigði hið is- lenzka þjóðfélag er. Það á vart sinn líka, þótt leijaö sé um heim allan. Hér er minnsta — þ.e. fólkfæsta — þjóð á hnetti vorum, 150 þús. manns í tiltölulega mjög stóru landi, erfiðu til búskap- ar hvort sem er við sjó eða í sveit. Vér höfum hlotið al- gjört fullveldi og leitumst við að lifa sjálfstæðu menning- arlífi. Vér höfum gerzt þátt- takendur í þjóðarsamstarfi á fjöhnörgum sviðum — og að sjálfsögðu tekið á okkar herð ar margvíslegar skuldbind- ingar í því sambandi. Hið fá- menna þjóðfélag vort er reist á sömu meginreglum og sjón armiðum og ríki er telja millj. ibúa, já, tugi milljóna, jafn- vel hundruð milljóna. Sú skoð un á nokkur ítök meðal ís- lenzku þjóðarinnar, að vér höfum gengið of langt í þessu efni. Vér hefðum átt að ein- angra okkur meir, standa ut- an við ýmis konar þjóðasam- tök, vera áfram einbúinn f Atlantshafi, langt frá öðrum þjóðum. Þeir, sem þannig hugsa, gá ekki að því, hve stórkostlegar breytingar hafa jOrðið á þjóðarsamstarfi síð- ustu áratugina. Heimurinn er {orðinn svo lítill vegna tækni- þróunar nútímans. Engin full valda þjóð getur einangrað sig á þann hátt og allra sízt vér íslendingar, með þeirri legu, sem ísland hefir á hnett inum. Vér verðum því að taka þátt í alþjóðasamstarfi, hvort sem er á sviði fjárhagsmála, atvinnumála eða menning- armála. i Hitt er víst, að útlendingar, er hingað koma til þess að kynnast landi og þjóð, — og þó einkum fulltrúar stórveld anna — munu mjög undrast það, að einar 150 þúsundir í stóru og harðbýlu landi, skuli geta starfað hér sem full- válda ríki, með þeim skuld- bindingum, er því fylgja. Bú- ast má við að margir útlend- ingar telji vonlítið um fram- tíð slíks þjóðfélags. Fyrir okk ur veltur ekki á mestu hvað útlendingar halda um þetta. Allt veltur á því hvað við ^sjálfir viljum, því að: Reistu í verki viljans merki — vilji er allt sem þarf. — ! eins og Einar skáld Bene- diktsson segir. Manngildi hvers einstaklings er sá efni- jviður, sem hvert þjóðfélag er i reist á. Að valinn maður sé i hverju rúmi, hvers konar ,störf, sem unnin eru. Að hver maður geri skyldu sína — það |eru máttarstólpar hvers þjóð ,félags. Fyrir jafn örsmáa iþjóð og þá íslenzku er enn nauðsynlegra að hvert rúm sé vel skipað, enginn van- ræki störf sín. Fyrir vort þjóð félag er hver einstaklingur enn meira virði en hjá milljóna&jóðum. Þjóðfélag vort má ekki við því að glata nokkrum af hinum fámenna hóp sona sinna og dætra. Já, ég vil bæta því við, að hið fá- menna íslenzka ríki fær því aðeins rækt skyldur sínar — að dætur þess og synir vinni meira og vinni betur en ann- arra þjóða borgarar. Eitt af góðskáldum vorum lætur svo um mælt í erfiljóö- um um einn af beztu sonum þjóðarinnar: — að ætíð eigi hún menn að missa meiri og betri en aðrar þjóðir.“ Látum oss biðja þess og vona það, að vér eigum allt- af og alls staðar, í hverju rúmi, úrvalsmönnum á að skipa, til hvaða starfs sem er. Þá er engu að kvíða. Þá mun þessari fámennu þjóð takast að inna það hlutverk af hönd um, sem Guð vors lands hefir ætlað henni að gera frá önd- verðu. Það er að varðveita, þroska og efla tungu vora og hina sérstæðu íslenzku menn ingu. Þótt um þessi áramót blasi við erfiðleikar í ýmsum átt- um, heima og erlendis, eins og jafnan áður, þá hefir út- litið oft verið verra og engin ástæða til annars en horfa vondjörfum augum fram á við. Ég vona að hið komandi ár færi öllum þjóðum heims hagsæld og hamingju. Að ár- ið verði þjóð vorri gott og gjöfult og að þjóðin beri gæfu til að hagnýta sér gæði þess sem allra bezt til vaxandi þroska og manndóms. Gleðilegt ár! Jóhannes DavíSsson í Hjarðardal hefir sent mér eftirfarandi bréf: Starkaður minn! f öðru bindi sjálfsævisöju sinnar, ,,Sjö voru sólir á lofti“, segir Guðm. ská'd Hagalín nokkuð frá dýrfirzkri konu, Bjarn- eyju Þorleifsdóttur, sem síðast bjó í Ytri-Húsum. En Bjarney er þar skakkt feðruð, sögð Friðriksdóttir. Leiðréttist þetta hér með. Bjarney Þorleifsdóttir var merki- leg dugnaðarkona, sem vel og hlý- lega er þarna minnzt, en ég hygg að hún hafi sýnt og sannað í verki, bæði sem hjú og sjálfsráðandi, svo merkileg dæmi um ódrepandi dugn að og þrautseigju íslenzka kynstofns ins, að mig langar að bæta við íá- einum frásögnum um afrek hennar. Vor eitt, er hún var vinnukona á Fjallaskaga, var hún send með á alla leið norður á ísafjörð. Þetta mun hafa verið um eldaskildaga- leytið (11. maí) og ærin óborin og varð hún að leiða ána við hlið sér alla leiðina, sem að sjálfsögu var farin samdægurs í ei.num áfanga. Vegalengd þessi er um 57 km. Þar af fyrsti áfanginn, Skagahlíðar, ca. 15 km., grýtt og mjög vond leið. Þeir, sem leitt hafa kindur, vita, hve það er oft mikil þrekraun, og á þessum árstíma er oft vont yfir- ferðar. Mestri furðu sætir það, að svona erfiði skyldi vera tilkostað til þess að koma einni á alla þessa leið. Ekki man ég nú, hvernig stóð á því að ærin var send þessa löngu leið. Bjarney sagði mér frá þessu og veit ég, að það er rétt hermt. Bjarney snialaði sjálf ám sínum 1 eins og sagt er frá í bókinni. Þær voru yfirleitt fjallsæknar og óþæg- ar og þurfti langt áð fara til að ná í þær um sauðburðinn. Sagði Bjarney mér, að oft hefði hún farið út að Gerðhömrum, fram Gerð- hamradal og yfir í Núpsdal og þar heim, því að á állri þessari leið var kinda von. Geta menn séð á kort- inu, hve þetta er langt, en ekki hve ógreiðfært er. Vorið 1929 vorum við þrír bræður að setja upp hrossakynbótagirðingu út á Núpi. Síðla dags á sauðburði gekk í norðaustan krapahríð, var stormurinn svo mikill, að við gát- um varla hangið á hestunum á inn eftir leið um kvöldið. Þá var Bjarney að huga að ám sinum og bar lamb nýfætt framan úr Núps- dalsbotni heim um kvöldið, og kom því lifandi heim. Mundi mörgum karlmanninum hafa óað við að (leggja út í slíkt veður. Það mun vera um tveggja tíma gangur það- an sem ærin bar og heim. Eitt sinn ( mætti maður Bjarneyju á leið með 1 lambá framan af Núpsdal. Var ærin , tvílembd. Bar Bjarney tvílembitxg- a.na í svuntu sinni, er hún hafðl bundið upp og gekk prjónattdi, en ! ærin elti. Þarna var ékki Slegið slöku við. Þetta var ekki cihsöæmi (að konur prjónuðu gangandi, én ekki hefi ég heyrt um aðrar, sem ekki létu sér nægja að bera tvö lömb, heldur prjónuðu líka. I Fleira gæti ég sagt af Bjarneýju Þorleifsdóttur, en læt þéttá naegja“. Hér lýkur bréfi Jóhannesar. • Starkaður. Enn hefir ekki verið vitjað eftirtalinna vinninga í B-flokki Happdrættisláns ríkissjóðs, sem út voru dregnir þann 15. janúar 1950: 75.000 krónur: 4561 5.000 krónur: 141671 2.000 krónur: 28455, 64780, 111423, 149617 1.000 krónur: 9082 21976 40253 61068 69082 74297 119477 130556 131074 500 krónur: 4278 5453 21059 25636 32597 36158 47061 48486 50616 51684 52303 53671 53829 53857 63731 64946 70634 88607 92970 94727 94919 98291 111169 112782 116298 141999 148038 250 krónur: 7319 9303 10396 10400 11651 14786 15231 16597 17661 18227 21123 25895 32242 35368 36242 39441 40892 43793 43952 44945 51297 53653 53970 54996 56804 60375 62764 59468 71452 71623 72625 75122 77257 77268 78375 90667 96347 98347 99822 101503 101935 105971 106968 107019 107862 110868 117534 119490 119590 125389 130288 130905 131284 131303 133546 134926 137650 142111. Sé vinninga þessara ekki vitjað fyrir 15. janúar 1953 verða þeir eign ríkissjóðs. Fjármálaráðuneytið, 17. des.1952

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.