Tíminn - 23.01.1953, Síða 4
4.
TÍMINN, föstudaginn 23. janúar 1953.
18. blað.
JóharLn.Skaptason, sýslumaÓur:
Qrðtð er frjálst
islendingar og framtíð Grænlands
(Lesendur eru beðnír að athuga
það, að grein þessi er skrifuð fyrir
liðugum 12 árum, þegar síðasta
heimsstyrjöld hafði staðið í eitt ár.
En hún er nú birt vegna þess, að
efni hennar íjallar um nútímann
og framtíðina). i
Enginn veit, hver endalok
núverandi styrjöld fær eða
hvenær hún endar. En búast
má við því, að af henni spretti
mikil nýsköpun, hverjir sem
sigurvegarar verða.
Við íslendingar erum svo
fáir og smáir, að okkar at-
kvæði megnar ekki að ráða úr
slitum í þeim hildarleik, sem
nú er háður um heimsyfirráð
in, og við greiðum ekki at-
kvæði. Við verðum að sætta I
okkur við það, að vera her-
numdir af þeim, sem fyrstur j
varð til þeirrar framkvæmd-
ar. Við vonum, að forsjónin
forði landi okkar frá því að,
verða styrjaldarvettvangur
og að það verði ekki að styrj-
öldinni lokinni gert að hjá-
lendu stórveldis og byggt að
nýju erlendum mönnum.
íslenzka þjóðin hefir aidrei
farið með ófriði á hendur öðr
um þjóðum, og hún ætlar aldr
ei að gera það. Gildi hennar
hefir byggzt á andlegu vaidi,
sem eigi studdist við vopna-
vald, en beitti orku sinni til
að skapa merkilega menningu
og breiða hana með friði út
um áður óbyggð lönd.
Ég ætla ekki að ræða hér
um það, í hverju menning vor
sé fólgin eða bera hana sam-
an við menningu annarra
þjóða. Ég tel það staðreynd,
að íslendingum hafi tekizt að
skapa hér á landi merkiiega 1
menningu. Og um hana verða !
þeir einir að standa vörð. Þeir :
verða að verja hana og efla ;
hana orku andans í landi frið
ar og frelsis.
Porn-íslendingar voru stór
huga. Þeim nægði eigi að I
b.vggja ísland og Grænland.'
Þeir efndu líka til landnáms ’
í Vínlandi.
Við dáum atorku þeirra og
stórhug og óskum af heilhug,!
að starf þeirra hefði borið tii- J
ætlaðan árangur í Græniandi
og Vínlandi sem á íslandi eða 1
jafnvel meiri.
í þessari friðsömu menning J
arsókn biðu íslendingar tvo
höfuðósigra. Þeim tókst ekki
að festa byggð í Viníandi, og
grænlenzka nýlendan losnaði
úr tengslum við móðurlandið
og eyddist eftir nokkrar ald-
ir. Heimalandið sjálft var
hætt komið.
Höfuðósigurinn fólst í því,
að eigi tókst að nema Vín-
land. Ef það hefði tekizl,
hefði grænlenzka byggðin
aldrei eyðzt, og ísland sjálft
hefði komizt hjá grimmum
örlögum liðinna alda.
Vínland hefði orðið fjöl-
mennasta landið og þess
megnugt að halda uppi sam-
göngum til bræðralandann2,
Grænlands og íslands. Milli
landanna hefði skapazt heii-
brigður menningarmetnaður
og þau hefðu orðið hvert öðru
til styrktar. íslenzk menning
hefði dafnað í þrem löndum,
Og íslenzki þjóðstofninn hefði
nú skipt milljónum manna.
Við viðurkennum, að það
hefði verið æskilegt, að ís-
lenzk menning hefði nú þró-
azt víðar en á íslandi.
Vísir að íslenzkri menningu
er sem stendur til í Vínlandi.
íslendingar hafa reynzt þar
liðtækir í bezta lagi í sam-
keppninni við aðrar þjóðir.
Hefir það vakið heilbrigðan
þjóðarmetnað.
Nútíma íslendingar hafa
því ekki látið sér nægja að
viðhalda og efla íslenzka
menningu á íslandi. Þeir
fylgja enn fordæmi feðranna.
Þeir hafa enn hug á að út-
breiða íslenzka menningu frið
samlega, hvar sem tækifæri
býðst. Við teljum það vel far
ið, jafnvel þótt við vitum, að
héðan af getur ekki myndazt
sjálfstæð íslenzk þjóðmenn-
ing í Vínlandi. j
Samt eru ekki öll sund lok-
uð.
Grænland er enn sem fyrr
mikið og gott land. Það er
enn að kalla ónumið. |
i
Okkur hefði verið styrkur
að því, að þar hefðu nú búið
menn af islenzkum uppruna,
sem talað hefðu íslenzka j
tungu og staðið hefðu ásamt
okkur vqrð um íslenzka menn
ingu.
Að stríðinu loknu verður
Grænland vafalaust opnað,
hverjir sem verða þar vald-
hafar. Þar hlýtur að verða'
margt að starfa. Til þess þarf
aðflutta menn.
Okkur íslendingum getur'
ekki staðið á sama um það,
hverrar þjóðar menn það ^
verða, sem nema landið að
nýju og verða nánustu grann
ar okkar í vestri.
Búast má við því, að menn,
sem aldir eru upp við mildari
veðráttu en Grænland hefir, j
verði tregir til að festa bar j
byggð. En til þess verður ekk j
ert tillit tekið. Ef nýir land- J
nemar fást ekki af frjálsum
vilja, verður fluttur þangað \
einhver landshornalýður, úr,
öllum áttum.
Þótt við íslendingar séum
fáir, erum við þó sennilega
nógu fjölmennir til þess að ^
taka mikinn þátt í endurbygg ,
ingu Grænlands að stríðinu
loknu. Gera má ráð fyrir því, I
að liðsinni okkar yrði vel þeg
ið af þeim, sem ráða Græn-
landi í framtíðinni. Þátttaka
íslendinga í landnámi Kan-
ada og Bandaríkja Norður-
Ameríku hefir kennt öðrum
þjóðum að meta dugnað
þeirra og menningu.
íslendingar eru sennilega
hæfastir allra þjóða til að
nema Grænland að nýju.
Sennilega er enn hægt að end
urnýja íslenzka menningu á
Grænlandi, vinna friðsam-
lega að nýju glataðan menn-
ingarvettvang.
Við eigum að vera á verði
og láta okkur eigi úr greipum
ganga síðasta tækifærið, sem
kann að fást til þess að end-
urreisa íslenzka menningu á
Grænlandi.
Líklegt er, að fiskveiðar,
fiskiðnaður og námagröftur
verði aðalatvinnuvegir á
Grænlandi, en landbúnaður
verði rekinn þeim til styrktar.
Búast má við því, að reist
verði fiskveiðaþorp við beztu
fiskimiðin, og þar verði efnt
til niðursuðu og hraðfrysting
ar á sjávarafurðum. Telja má
víst, að sótzt verði eftir ís-
lendingum til fiskveiðanna og
fiskiðnaðarins.
Það hefir enn komið í Ijós,
að íslendingar væru færir um
að veita forstöðu landbúnaði
á Grænlandi. íslendingar
hafa á síðustu árum verið ráð
gjafar Dana á því sviði. Land
búnaður verður vart rekinn
þar að gagni af öðrum en ís-
lendingum.
Er hugsað er til nýs’ land-
náms á Grænlandi, verður að
hafa það hugfast, að Græn-
land er ekki lengur hið fjar-
læga, einangraða land, sem
það var áður. Tækni nútím-
ans hefir stytt jafn mikið leið
irnar til Grænlands og á
Grænlandi sem allar aðrar
lengdir. Menn geta drukkið
morgunkaffi heima hjá sér í
Reykjavik, í höfuðborg ís-
lands, og miðdagskaffið hjá
kunningjunum að Görðum, í
höfuðborg Grænlands, eða
hvað sem hún kann að heita
í framtíðinni.
Grænland hefir flest sömu
skilyrði sem ísland til að
geta orðið mikið menningar-
land og ýms að auki.
Ekkert er hægt að vita um
það, hvaða þjóð muni ráða
yfir Grænlandi í framtíðinni.
En fullyrða má, að ekki komi
til greina aðrar þjóðir en þær,
sem vinveittar eru íslending-
um og vilja fúslega hafa sam
starf við þá. Gera má ráð
fyrir því, að stjórn landsins
verði fyrst og fremst sniðin
eftir þörfum íbúanna, og mál
og menning þeirrar þjóðar,
sem flesta leggur til land-
nemana, verði mál og menn-
ing Grænlands á ókomnum
öldum.
Það má búast við því, að á
það verði bent, í þessu sam-
bandi, að ísland sé enn eigi
fullnumið. Þess vegna sé það
heimskulegt og skaðlegt landi
og þjóð að hvetja menn til
þéss að flytja til annars lands.
Því fer fjarri, að ég telji
íslendinga of marga í land-
inu, eða landið fullnumið. En
ég tel landið lögnumið fyrir
islenzka menningu, og ég trúi
því fastlega, að engin þjóð
verði til þess að taka það af
okkur, með því að flytja hing
að fjölda erlendra manna og
kæfa þannig íslenzka menn-
ingu og íslenzkt þjóðerni.
Jafnframt tel ég, að íslend
ingar hafi öðrum þjóðum
meiri sögulegan rétt til að
byggja Grænland að nýju og
að þeir séu hæfastir til þess.
Og ég vona, að þegar Græn-
land verður opnað að nýju,
þá verði ekki lagt kapp á að
fá þangað meiri innflytjenda
straum en svo, að íslendingar
geti orðið í yfirgnæfandi
meirihluta, án þess að blóð-
takan verði heimalandinu
skaðleg.
Ég býst við því, að nýtt land
nám íslendinga á Grænlandi
yrði bæði landnemunum og
heimaþjóðinni til aukins
þroska.
Patreksfirði, í nóv. 1940
Jóhann Skaptason.
ÚR og
( KLUKKUR |
\ Viðgerðir á úrum og klukkum. |
| Sendum gegn póstkröfu.
JÓN SIGMUNDSSON, f
I skartgripaverzlun. Laugavegi 8. i
Rcfur bóndi kveður sér hljóðs í
dag og íer með stök'ur sínar aö
venju:
Heill og sæll Starkaður! Árs og
friðar óska ég ykkur öllum í bað-
stofunni með eftirfarandi stöku:
Gefist öllum björg í bú,
bið ég rsetist óskin sú.
Heilla þjóðin njóti xrú
1953.
Og auðvitað margfalt lengur.
Svo Uem ég hér með nokkrar
stökur með viðeigandi skjringum.
Nii stuttu fyrir jólin sat ég hjá
kuningjafólki rnínu og spiluðum
við vist, en ég tek örsjaldan á
spilum og var því óheppinn í spila-
mennskunni. Bað ég því annan
mann að leysa mig af hólmi, sem
hann gerði, og var hann fljótur að
græða. Þá varð eftirfarandi staka
til:
Gróðarm til sín garpur dró,
góð svo yrðu skilin.
Skörð í mínar skuldir hjó
skæður er hann við spilin.
Eins og kunnugt er, fann Berg-
ur Arinbjarnarson löggæzlumaður
s.l. haust svorxefnda „snjógæs" á
Akranesi og var þess getið í Tím-
anum. í tilefni af því varð eftir-
farandi staka til:
Bergur sannar að hann er
enginn glópur skýja.
Götva upp hann gjörði hér
gæsategund nýja.
Um kunningja minn, sem fór
s. 1. vor til Noregs í skógræktarför,
kvað ég svo í gamni:
Vill á flestu vita skil,
— venjast tíðar — lenzku.
Nú er hann farinn Noregs til
að nema „skógarmennsku“.
Einhverju sinni í haust hlýddi
ég á búnaðarþátt í útvarpinu.
Ræddu þar saman Gísli Kristjáns-
son ritstjóri og Jón H. Þorbergs-
son bóndi á Laxamýri. Komst Gísli
svo að orði í byrjun við Jón:
„Sýndu mér þin sjónarmið". Þá
kvað ég í orðastað Gísla:
„Margt ég ræða vill þig við
vel um tænda hagi.
Sýndu mér þín sjónarmið
svo er það í lagi.“
Um Magnús- bónda á Meláleiti
í Melasveit kvað ég eftirfarandi
stöku:
A Melaleiti Magnús býr
merkisbóndi siyngur.
Gætinn, , stilltur, glaður, skýr,
góður íslendingur. .......
Til Guömundar bónda á Melum
í sömu sveit kvað ég:
Flestum hann af bændum ber,
bú sitt hugsar vel úm.
Gildur bóndi og garpur ér,
Guðmundur á Melum.
Máske finnst einhverjum þessi
kveðskapur minna á Símon Daía-
skáld.. Á Akranesi er hús, sem
heitir Lykkja. Býr.þar kumiingja-
fólk mitt og kem. ég þar oft og
kveð því:
Oftast þegar út ég ‘fer;
— ef ég slíku nenni. —
Lykkja á mínurn leiðunr er
lendi ég oít í henni.
Um góðvin einn kvað ég svo í
gamni:
Hress og glaður, seggur sá,
sínu að vill búa.
Verst er hvað sá vinur á
vont með það að ljúga.
Það er sagt að „öl sé innri mað-
ur“. í tilefni af því eru þessar
stökur kveðnar:
Eins og sérhver oft það fann,
— eyrum við því lagði.
„Ölið sýnir innri mann“
eins og Grettir sagði.
Gumi hver þess gæta má
— gildir svo um flesta.
Vini þann sem vínið á
varla muni bresta.
Um það fæstir eru hér
efatrúar gjarnir:
Þegar vínið þrotið er
þá eru vinir farnir.
Lýkur svo kveðskap- Refs bónda
í dag.
Starkaður.
W't'i.V.V.V.VliV.V.V.V/.WAVV.VAVVVV.V.VAWM'
ÍAUGLÝSINGÍ
I í: v.; JyM
:■ frá félagsmálaráðuneytinu i
í; Þar sem komið hafa í ljós margvíslegir erfiðleikar _Jj
á innheimtu útsvara, skatta, barnsmeðlaga og annara J«
í gjalda, sem samkvæmt lögum er heimilt að halda eft £
ir af launum manna, er fengið hafa störf á Keflavik-
«J urflugvelli, hefir um það samizt milli félagsnjálaráðu Ij
Ij neytisins og þeirra erlendra aðila, sem þar hafa ís- J«
J« lenzkt fólk í þjónustu sinni, að allar kröfúr á héndúr
jl þessu fólki, skuli sendar félagsmálaráðuneytinu, og J
;I það síöan hlutazt til um innheimtu þeirra, veita fénu jj
«J viðtöku fyrir hönd innheimtumanna ríkissjóðs og Ij
Ij sveitarsjóða og standa þeim skil á því. Jj
Jj Samkvæmt framansögðu geta þe|ir innheimtú- J«
jJ menn, sem óska aðstoðar um þessi efni, sent ráðuneyt jJ
jJ inu kröfur um ógreidd útsvör, skatta og meðlög, á jj
jj hendur starfsfólki, er vinnur hjá hinum érlendú aðíl- íj
Ij um á Keflavíkurflugvelli, og mun þá ráðuneytiö ann- £
Ij ast innheimtu þessara gjalda samkvæmt því sem lög
J« standa til.
Félagsmálaráðuneytið, 21. janúar 1953
/VV^VVVV.V.VVJWAWAVVWA5ðAVAVJVWAWVJWrf
Vimtid wtulleyu uð títbrei&slu T í M A ]\T S