Tíminn - 26.03.1953, Qupperneq 7
!1. blað.
TÍMINN, fimmtudaginn 26. marz 1953.
T.
Frá hafi
til h.e ’iða
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
M.s. Hvassafell kom við í Azor-
eyjum 21. þ. m. á leið til Rio de
Janeiro. M.s. Arnarfell fór frá
Keflavík 18. þ.m. áleiðis til New
York. M.s. Jökulfell lestar freðfisk
á Eyjafjarðarhöfnum.
Messur
Kvöldbænir í Hallgrímskirkju
á hverju kvöldi klukkan átta
nema messudaga. Lesin píslarsag-
an, sungið úr passíusálmunum. All-
ir velkomnir, sr. Jakob Jónsson.
Úr ýmsum áttum
Orður.
Hinn 18. marz s. 1. sæmdi for-
seti íslands, að tillögu orðunefnd-
ar, þessa menn riddarakrossi
f álkaorðunnar:
Einar Gíslason, málarameistara,
Reykjavfk. Gísla G. Ásgeirsson,
fyrrv. bónda og hreppstjóra frá
Áiftamýri. Hannes Jónsson, bónda
og fyrrv. landpóst á Núpstað. Jón
Þ. Björnsson, fyrrv. skólastjóra,
Sauðárkróki.
Menningar og friðarsamtök
fslenzkra kvenna halda fund í
Verzlurytrmarmaheimili Reykja-
víkur annað kvöld (föstudag) kl.
8,30.
Tómstundakvöld kvenna
verður í Aðalstræti 12 kl. 8,30 í
kvöld. Skemmtiatriði. — Allar
konur velkomnar.
Franskar kvikmyndir.
Franski sendikennarinn, M.'
Schydlowski, sýnir og kynnir 2
kvikmyndir föstudaginn 27. marz
1953, kl. 6,15 í I. kennslustofu há- |
skólans. — I. Ccmmandant Char- j
cot. Mynd um franskan heim- [
skautaleiðangurinn tii Adeiiu
(nálægt suðurpólnum). — II.
Dakar. Mynd um hina merku
borg 1 Afríku. — Öllum heimill
aðgangur.
Leiðrétting.
í afmælisgrein um Jón Björns-
son, sem birtist í blaðinu í gær,
hefir misritast nafn fyrri konu
Björns L. Jónssonarí hreppstjóra, ’
en það á að vera Steinvör Sigur-
jónsdóttir. Ennfremur hefir mis-
ritast nafn konu Jóns, en það er
Sigríði TÍjámannsdóttur. Misrit-
ast hefir einnig naín sonar þeirra
hjóna, Jóns og Sigríðar. Hann
heitir Steinbjörn Jónsson.
Til að fyrirbyggja
misskilning vegna greinar í blað
inu í gær um írska knattspyrnu-
liðið Waterford, sem kemur hing-
að í sumar, skal þess getið, að liö-
ið kemur hingað á vegum KR og
Vals, og að för Vals til írlands í
sumar, er ekki í neinu sambandi
við heimsókn Waterford.
Skíðavikan
(Framh. af 1. siðu).
bergjum, — Dvalarkostnaður
í skálanúm er kr. 40,00 á dag,
fæði innifalið.
Efnt verður til keppni í
léttu svigi og bruni, þar sem
allir geta verið með nema
þeir, sem eru alltof áberandi
góðir svigmenn, en þeir verða
notaðir sem starfsmenn.
Upplýsingar.
Þeir, sem óska nánari upp-
lýsinga um eitt eða annað
viðkomandi skíðavikunni
geta hringt í síma 82 385 og
fengið að tala við Þorleif
Guðmundsson skrifstofustj.,
sem um árabil hefir haft all-
an vég Qg vanda af fram-
kvæmd skíðavikunnar.
i Blanda komplet kr. 750.00, i
I Skírnir frá 1905 kr. 650.00, j
| Úrval kr. 300.00, Tímarit j
11 Máls og Menningar kr.:
1 1750,00, Helgafell kr. j
1 135.00, Lýsing íslands kr. j
1300.00, Almanak Þjóðvinaj
= félagsins frá 1920 kr, j
1 100.00, Alsaka kr.50.00. j
| Sent hvert á land sem er j
e burðagj aldsfrítt gegn fyr-j
| irframgreiðslu.
Ályktanir 10. flokksþings.
(Framhald af 4. síðu).
7. Skipasmíðar.
Þingið telur, að viðhald og endurnýjun skipaflotans eigi
að framkvæma innanlands að svo miklu leyti, sem tækni-
aðstaða leyfir. Leggur þingið áherzlu á, að sérráðstafanir.
verði fremur að gera heldur en að láta slíka vinnu flytjast
úr landi, ef hægt er að framkvæma hana hér á þjóðhagslega
hagkvæman hátt.
8. Spuna- og vefnaðariðnaður.
Þingið telur mikilsvert, að komið sé á fót nýjum greinum
spuna- og vefnaðariðnaðar í landinu, þar sem hagnýtt yrði
séraðstaða landsins til slíkrar framleiðslu.
9. Nýr verksmiðjuiðnaður
Flokksþingið fagnar því, að áburðarverksmiðja er nú í
byggingu og verður lokið á þessu ári og að hafnar eru fram-
kvæmdir við sementsverksmiðjuna. Telur flokksþingið rétt
að áfram Sé haldið á þeirri braut að koma upp stórum verk-
smiöjum, m. a. með útflutning iðnaaðarvöru fyrir augum.
10. Fjöldaframleiðsla íbúðarhúsa.
Þingið telur, að lækka megi byggingarkostnað með fjölda-
framleiðslu hentugra íbúðarhúsa líkt og farið er að tíðkast
víða erlendis. Leggur þingið áherzlu á, að greitt sé fyrir fé-
lögum og einstaklingum, er hefja vildu slíka framleiðslu.
11. Heimilisiðnaður.
Flokksþingið telur mikilsvert að auka þjóðlegan heimilis-
iðnað í landinu, m. a. í því skyni að framleiddar verði vand-
aðar og verðmætar heimilisiðnaðarvörur til sölu innanlands
og utan og sérstaklega athugaðir möguleikar til að vinna
markað erlendis fyrir slíkar vörur.
iLIT
Með 5% DDT
ARFAOLIA:
FLIT 35 WEED
KILLER
[ÍSSOj
OLIUFÉLAGIÐH.F.
REYKJAVIK
j Bókaverzl. Frakkasííg
sími 3664
16 I
iiiiiiiiiiiiiiiiiiimuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
| Tómstundakvöld |
I kvenria verður í Aðalstr. =
112 kl. 8,30. — Skemmtiat- |
| riði. Allár konur velkomn- |
| ar. '<
iíiiiiiiiiiiiiiimiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
uiiiiiiiiiiilmhfiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiii
| Kail'pum — Seljum\
Rifflar
| Haglabyssur j
| Stærsta og fjölbreyttasta |
i úrval landsins. Önnumst |
I viðgerðir.
| GOÐABORG |
Freyjugötu 1.
wiiiiiiiiiiiiniiiiifrfiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiniiiia
SJONLEIKUR
eftir Pál Árdal verður sýndur að Mihni-Borg, Grímsnesi
laugardagskvöldið 28. marz, kl. 22. Dans á eftir. Góð
hljómsveit. —
U. M. F. HVÖT.
VERKFRÆÐINGUR
O
Ákveðið hefir verið að ráða verkfræðing til starfa | [
við mælingadeild skrifstofu bæjarverkfræðings. —
Laun samkvæmt samþykkt um laún fastra starfs-
manna Reykjavíkurkaupstaðar. Umsóknum sé skilað
í skrifstofu bæjarverkfræðings, Ingólfsstræti 5, fyrir J |
o
o
o
Kosningaávarji. . .
(Framhald af 5. síðu).
og á þann hátt beri að tryggja þjóðina gegn atvinnuleysi á
komandi tímum. Hann telur að þetta hafi mistekist hörmu-
lega á „nýsköpunarárunum“ eftir lok síðarí heimsstyrjaldar-
innar og varar eindregið við því að láta það mistakast í ann-
að sinn, þegar lokið er þeim framkvæmdum, sem nú eiga
sér stað á vegum erlendra aðila hér á landi.
Flokksþingið heitir á Framsóknarmenn og aðra stuðnings-
menn flokksins um land allt að standa einhuga saman um
stefnu flokksins í kosningunum og í átökum þeim, er flokks-
ins bíða eftir kosningarnar. Jafnframt skorar það á trúnað-
armenn flokksins, að gæta á komandi tímum fyrst og fremst
þeirrar skyldu að vinna að alþjóðarheíll með því að beita
allri orku sinni til að koma stefnu flokksins í framkvæmd og
miða starfsaðferðir sínar við það, að þetta megi takast eftir
því sem unnt er á hverjum tíma. Þegar nauðsyn ber til að
taka upp samstarf við einn eða fleiri andstæða flokka, telur
flokksþingíð, að gera beri flokksmönnum og allri þjóðinni
opinberlega grein fyrir málavöxtum, svo að enginn þurfi að
vera í vafa um, á hverju slíkt samstarf byggist.
Jafnframt lýsir flokksþingið yfir þeirri skoðun sinni, að
það telur affarasælast að stjórn ríkisins geti verið þannig
skipuð, að hún njóti trausts og stuðnings hinna fjölmennu
vinnustétta þjóðarinnar, en sé óháð sjónarmiðum sér-
hagsmunamanna. Með þeim hætti verður bezt tryggt, að
á milli stjórnarstefnunnar og starfs hins vinnandi fólks sé
samræmi það, sem er undirstaða þess, að stjórnarstefnan
beri þann árangur, sem til er ætlast.
j Flokksþingið tekur það fram, að það telur kommúnista
útiloka sig frá samstarfi í ríkisstjórn með fjandskap sínum
við lýðræði og mannfrelsi og þjónkun við erlent vald.
Við kosningarnar 1949 veitti þjóðin Framsóknarflokknum
mikið brautargengi. Kosningasigur flokksins bar þess glöggt
I vitni að f jöldí kjósenda vildi votta flokknum traust sitt fyrir
einarða andstöðu gegn óhófs- og tækifærisstefnu stríðsár-
' anna og hins svonfenda „nýsköpunartíma," jafnskjótt sem
! gögnin voru lögð á borðið. Þegar er flokkurinn hafði aðstöðu
til eftir kosningarnar, framkvæmdi hann þær ráðstafanir,
er hann sjálfur hafði sagt fyrír á verðbólgutímanum, að
óhjákvæmilegar yrðu, ef verðbólgustefnan sigraði á þeim
tíma. Sú afhjúpun sjálfsblekkingarinnar, sem í þessum ráð-
stöfunum fólst, hlaut að koma hart við marga, en flokkurinn
, treysti því þá sem fyrr, að viðurkenning staðreynda væri
þjóðinni hollustu. Enn sem fyrr telur hann sér skylt að segja
þjóðinni sannleikann um málefni hennar og hvetja hana til
að taka nauðsyn framtíðarinnar fram yfir stundarhag. Hann
veit, að slík afstaða er skilyrði þess, að hugsjónir rætist.
Með þá vissu i huga gengur hann öruggur til kosninga í trú
á málstað sinn og þroska þeirrar þjóðar, sem oft áður hefir
falið honum forystu í málum sínum.
ampep
Raflagnir — Viðgerðir
RaflagnaefnL
Raftækjavinnustofa
Þingholtsstræti 21.
Síml 81 556.
wniimiiiininwmiMMmniiiisnniuuua
I Vatnsþéttir I
| handlampar |
Imjög góðir og ódýrir frá I
fkr. 40,50.
I Ennfremur handlamp- f
I ar með rofa. •
| Véla og raftækjaverzlunin |
Tryggvagötu 23
? 5
ililliliiiilliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiua
Blikksmiðjan
GLÓFAXI
Hraunteig 14. Siml 7Ui
1
niiiiiiiiiiiiiiiiiiimMiiimiiiiiimmmiiiiiMuuin
I Bergur Jónsson |
Hæstaréttarlögmaður............|
1 Skrifstofa Laugavegl 65. =
Símar: 5833 og 1322.
Íiiiiiiiiiii»»iiniiiHMi»’""l»iiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiuitmiii
hádegi 9. apríl næstkomandi.
Bæjarverkfræðingur.
UTBREIÐIÐ TÍMANN
aitmmmnnitmmmnmmmnnnnmntimmmtntwmnnnmmmwaaj