Tíminn - 09.06.1953, Side 1

Tíminn - 09.06.1953, Side 1
; Rltetjórl: Þórwlnn Þérarlnuon Fréttarltstjórl: Jón Eelgaeon Útgefandl: Pramaókn&rflokkuitnn i ~------------------------ Skrlístofur l Edduhúai Préttaslmar: 81302 og 81303 Afgreiðsluslml 2323 Auglýsingasíml 81300 PrentsmiSjan Edda 57. árgangur. Reykjavík, þriðjudaginn 9. júní 1953- 126. blaff. Stefna Framsóknarflokks- ins í öryggismáEunum ÁSyktun flokksþing'sins í votmr Framsóknarflokkin-inn telur sem fyrr að íslending- um beri að kappkosta góða sambúð við allar þjóð'ir, sem þeir eiga skipti við, en nánasta samvinmu hljóti þeir þó að hafa við norrænu þjóðirnar og aðrar vest- rænar þjóð'ir, vegna nábýlis, menr.jfngarteitijsla og líkra stjórnarhátta. Flokksþingið telur óhjákvæmilegt, eins og ástatt er I heiminum, að hervarnir séu hér á landi til öryggis íslendingum og öðrum þjóðum, sem eru á Norður- Atlantshafssvæðinu. Seta erlends heriiðs hefir vissulega í för með sér mikinn vanda fyrir þjóðina, en fiokksþingið bendir á, | að fjandsamlegur áróður og hvatvíslegur, sem frammi er hafður vegna annarlegra hagsmuna, er beinlínis þjóðhættulegur og torveldar meira en nokkuð annað, að skynsemi og gætni verði viðhöfð í meðferð þessara mála. Flokksþingið leggur áherzlu á eftirfarandi atriði: 1. Að vörnunum sé þannig fyrir komið, að þær tryggi þjóðinni sem mest öryggi, en þess þó gætt, að hér verði ekki fjölmennari her, eða meiri framkvæmd- ir, heldur en sú nauðsyn krefur. 2. Að hindruð verði óþörf samskipti landsmanna og varnarliðsins og dvöl þess takmörkuð við þá staði, er það fær til afnota. , 3. Að fullkomnari og traustari skipan verði komið á ! samstarf íslenzkra stjórnarvalda og yfirmanna varnarhðsins með það fyrir augum að koma í veg fyijir misskilning og árekstra og tryggja betur j framkvæmd varnarsamningsins. 4. Að varnarmálin verði rædd meira opinberlega en verið hefir og þjóðinni veittar upplýsingar um þau i eftir því, sem unnt er, til þess að koma í veg fyrir kviksögur og óheiðarlegan áróður. 5. Að framkvæmdum hjá varnarliðinu sé, eftir því sem hægt er, hagað með tilliti til atvinnuvega landsmanna og vinnuaflsins í landinu. 6. Að núgildandi varnarsamningur verði tekinn til endurskoðunar, nú þegar, í því skyni aff bæta úr því, sem áfátt er. Ennfremur leggur flokksþingið rika áherzlu á, að varnarsamningunum verði sagt upp strax og fært þykir af öryggisástæðum. (Sjá grein á 5. síðu í blaðinu) Ætla að tvöfalda fylgi flokksins Fundur verður haldinn í Framsóknarfélagi Kópavogs- hrepps á fimmtudagskvöldið klukkan 8,30 i barnaskóla- húsinu í Kópavogi. Þar verð- ur rætt um kosningarnar og er Þórður Björnsson, fram- bjóðandi Framsóknarflokks- ins í Gullbringu- og Kjósar- sýslu, frummælandi á fund- inum. Allir Framsóknarmenn eru velkomnir á fundinn. Hafa flokksmenn í sýslunni sett sér bað mark, að tvö- falda fylgi flokksins í kjör- dæminu við þessar kosningar. Systkyni slasast við bifreiðaárekstur Um miðjan dag í fyrradag varð bifreiðaslys á mótum Spítalastígs og Bergstaða- strætis. Systkini, er voru í bifreiðinni R-406, hlutu bæði talsverð meiðsli. Bróðirinn, Hörður Ágústs- son, til heimilis að Dverg- hamri við Háaleitisveg, skarst allmikið á hendi, en systir hans Hulda Ágústsdóttir, hlaut höfuðhögg og missti meðvitund- Mun þó minna meidd. Saltsíldarverðið ákveðið Síidarútvegsnefnd hefir á- kveðið að lágxnarksverð á fersksíld til söltunar norðan-! lands, verði hið sama og s. 1. ár, þ. e.: 1) Fyrir uppsaltaða tunnu, 3 lög í hring, af hausskor- inni og slógdreginni sild, kr. 157,68. 2) Fyrir uppmælda sild, kr.1 116,64 pr. tunnu. í verðinu er innifalið 8% framleiðslugjald í hlutatrygg ingarsjóð. Verðlagsráð sjávarútvegs-' ins hefir iýst sig samþykkt, ver'ðákvörðun Sildarútvegs-1 nefndar. * Komu Vestur-Islend ingauna seinkar uin einn eða tvo daga Komu Vestur-íslending- anna, sem fara hópför til ís- lands, seinkar óhjákvæmi- lega um einn eða tvo daga. Þeir áttu að koma hingað í dag, en sökum hess, að flug- vélin Hekla lenti í monsún- vindum í flugferð sinni aust- ur í Asíu og tafðist af þeirra völdum, var hún ekki vænt- anleg til Reykjavíkur frá Norðurlöndum fyrr en í morg un, og var há gert ráð fyrir, að hún héldi vestur um haf til þess að sækja Vestur-ís- lendingana klukkan átta að morgni. Þeir geta því í fyrsta lagi komið hingað siðdegis á morg. un, en vera má, að koma þeirra dragist fram á fimmtu dngsmorgun. Þora þeir að gera samanburð? Sjálfstæðismenn reyna nú að halda því fi^m, að Rannveig Þorsteinsdóttir hafi staðið ilía viff kosninga- l«forð sín. Hér í blaðinu hefir það verið rakið, hvernig kosningaloforð Rannveigar hafa verið efnd. Svarta markaðinum, vöruskortinum og baktjaldaverzluninni, sem hún sagði stríð á hendur, hefir vissulega verið út- rýmt. Framlög til íbúðarbygginga í kaupstöðum hafa verið stóraukin. Mörgum málum öðrum, sem hún lof- aði að beita sér fyrir, hefir verið komið fram eða vel áleiðis. Rannveig getur því vissulega borið höfuðið hátt. En hvernig er það með kvenfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins, Kristínu Sigurðardóttur. Hvernig hefir hún staðið við loforð sín? Hverju hefir hún komið fram? Þora Sjálfstæðismenn að gera samanburð á verkum og þingstörfum hennar og Rannveigar Þor- steinsdóttur? Gróðursetningu á Heið mörk sé lokið 17. júní Róðraræfingar og keppni í Naut- hólsvík Róðraræfingar fara nú bráð um að hefjast í Nauthólsvík- inni suður i Fossvogi og er ráðgert að efna til þriggja róðramóta á næstunni, að því er Stefán Jónsson róðrar kennari Ármanns, tjáði Tím- anum í gær. Fyrsta mótið verður 4. júlí og er það inn- anfélagsmót Róðrarfélags Reykjavíkur. Um næstu helgi þar á eftir, verður Reykjavik urmót í róðri og viku síðar íslandsmeistaramót í róðri. í haust verður hið svokallaða septembermót. Glímufélagið Ármann efn- ir til námskeiða í róðri fyrir unglinga og fullorðna. Æf- ingar verða frá bátaskýli fé- lagsins við Skerjafjörð. Kenn ari verður Stefán Jónsson. í nágrannalöndum okkar er (Framhald á 2. síÆu). Starfið á Hciðmörk hefir gengið mjög að óskum í vor, og nú er ákveðið, að gróffursetningu þar skuli lokið fyrir 17. júní. Áætlunin var að gróðursetja 130 þúsund plöntur, og var um helgina búið að gróðursetja um helming þeirrar tölu. Það er vel kleift að ljúka hinni fyrirhuguðu gróður- setningu á hálfri annarri viku, sem er til stefnu fram að 17. júní, ef félögin, sem gróðursetninguna annast, skipta sér vel niður á dag- ana og safna nægu liði. Þess er þvi æskt, að þau vindi bráð an bug að því að ljúka gróð- ^ ursetningunni. Horfur á æskilegu veðri. Tíðin hefir í vor verið mjög hentug til gróðursetningar- | starfa, enda þótt votviðri i hafi ekki verið mikil, og má I því vænta, að gróðursetn- I ingin hafi yfirleitt tekizt vel. :Enn eru horfur á mjög hag- I stæðu veðri, og ætti það að jhvetja menn til þess að fjöl- menna á Mörkina, einmitt núna. En þótt tíðin sé hag- stæð og hóflegur raki í jörð- inni er ástæða til þess að minna fólk á að vanda þarf gróðursetningu nú sem endra nær. Gagnfræðaskóla Húsavíkur slitið Gagnfræðaskóla Húsavík- ur var slitið sunnudaginn 31. maí s. 1. Skólastjóri flutti skólaslitaræðu og gerði grein fyrir störfum skólans á liðn- um vetri. Skólinn starfaði* í (Framhald á 2. síHn). Akurnesingar sigruðu Fyrsti leikur íslandsmeist- aramótsins í knattspyrnu fór fram á íþróttavellinum i Reykjavik í gærkvöldi milli Akurnesinga og Fram. Lauk leiknum með sigri hinna fyrr nefndu, sem settu 4 mörk gegn einu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.