Tíminn - 25.08.1953, Qupperneq 3

Tíminn - 25.08.1953, Qupperneq 3
190. blað. TÍMIXN, þriðjudagixm 25. ágúst 1953. 3 ARNI PETURSSON 2. júní 1899 — 31. julí 1953 : Árni Pétursson læknir er fallinn frá, langt fyrir ár fram, ekki hálfsextugur. — Hann var fæddur í Ólafsvík 2. júní 1899, en foreldrar Jhans voru Pétur verzlunarm. Þórðarson, bónda og alþing- ismanns á Rauðkollstöðum, og Þóra Þórarinsdóttir, alsyst ir Árna Þórarinssonar pró- fast og þeirra systkina. Árni Pétursson fluttist ungur með foreldrum sínum til Reykja- víkur og gekk menntaveginn, við þröng kjör, eins og fleiri slíkir menn fyrr og síðar, varð stúdent 19 ára, kandídat í læknisfræði 25 ára. Eftir það stundaði hann nám í Höfn og víðar í Danmörku, einnig í Berlín, en fór náms- ferðir til Noregs og Ítalíu. — Hann geröist starfandi lækn ir í Reykjavík rúmlega hálf- þrítugur, varð jafnframt trúnaðarlæknir Reykjavíkur- bæjar nokkrum árum síðar og breytti ekki starfi eftir það. Þetta eru hin ytri mörk læknisævi hans og segja fátt eitt um starf læknis. Ég kann ekki að rekja nánar þá hlið i lífi þessa ástsæla manns, heldur minnist ég hans sem vinar míns og ó- venjulega vel gefins manns. Hver ungur maður á sér sína drauma, að kjósa sér lífs starf og sitt kærasta verkefni. En lífið sjálft ræður hlut- skiftinu. Á. P. bjó sig undir það í sérnámi sínu að verða kvenlæknir, læknir móður- innar og hins fyrsta veika, vaknandi lífs. Kímið, sem blundar í óminnisheimi til- verunnar, það var áhugi hans, og þessu hefði hann gefið sig a vald sem vísindamaður, ef fátækur, íslenzkur kandídat ætti margra slíkra kosta völ. Lífiö kvaddi hann til að lækna og græða hverskonar dagleg mein þeirra mörgu, sem öðrum fremur voru líkn- arþurfar, vegna þess að þeir áttu til alls fárra kosta völ; þar áö auki féllu undir hans læknishendur um langt ára- bil þeir sem bágast eiga af þegnum höfuðstaðarins, oln- bogabörn lifsins, sem færð eru til hliðar, til þess að angra miöur þá sem heilli eru heilsu og betur viti born- ir. Ég man það óljóst að hafa lesið einhversstaðar hjá Guö mundi Hannessyni, hinum sanngöfga manni, að verki læknisins sé ekki lokið, þó að hann megni ekki lengur að lækna; þá sé enn að hjúkra og hugga, mýkja sárin og treg ann. Mér hefur oft komið þetta í hug um Árna Péturs- son. Því að mildi hans og læknislíkn var mikil, kær- leikinn við hvern þann sem hreldur var og hrjáður. Hinn minnsti bróðir var jafnan hans nánasti bróðir Árni Pétursson var manna fríðastur og ljúfmenni í við- móti, ágætur maður að gáf- iim og skaplyndi, góður fé- lagsmaður, þar sem hann gaf sig að því, og hafði mik- inn félagstrúnað. Hann var formaður Læknafélags Reykjavíkur, þá er hann lézt. Hann bar mikla lotningu fyr- ir íslenzkri tungu og bók- menntum, orðsnilld, kvæðum Matthíasar og annarra hinna mestu skálda. Hann lagði ríkt við, að ljóð og snilldarorð Rík nauðsyn að vaka yfir heilsu- fari sauðfjárins í landinu Oi'ðscnding til bænda fi*á Guðm. Gíslasyni lækni. væri rétt eftir höfð. Hann var í öllu vandur að virðingú sinni í meðferð máls og formi hugsunar. íslenzkan lék hon um á tungu og frásagan var honum í blóð runnin. Móðir hans var ein þeirra kvenna, sem unun var að heyra tala og mikill lærdómur að. Það var sem hrunið gæti af vör- um hennar fullmeitlaðar setningar af frumbergi nor- rænnar tungu. Árni Pétursson giftist 1925 Katrínu Ólafsdóttur. Þau felldu ung hugi saman og áttu jafnan hið fegursta heimili, þar sem fjölmennt var af góðum vinum. Þrjú eru börn þeirra, nú upp ppm in, og ein fósturdóttir. Árni Pétursson læknir varð skjótlega héðan kvaddur. Hann var vanheill nokkuð hin síðustu misseri. Hann kom heim síðla dags af lækn- isstofu sinni, kvartaði um þreytu, en settist að borði með konu sinni. Þá kenndi hann dauðameinsins, gerði ráðstafanir um sjúkling, sem hann átti að hjálpa næsta morgun, en lítilli stundu síð- ar var hann andaður. Helgi Hjörvar. Ég vil hér með leyfa mér að ! vekja athygli á því, hve mikils ? vert er að vaka stranglega yf- ir heilsufari sauðfjárins í {landinu, og ef eitthvað ber út af, þannig, að kind drepist, sé felld eða láti fóstri, þá sé allt gert, sem unnt er, til að upplýsá orsakir sjúkdómsins með fullri vissu. j Til þess þarf nákvæma líf- færaskoðun og rannsóknir, sem erfitt er að framkvæma nema á viðeigandi rannsókn- arstofnun. — Það er mikils- j vert, að bændur sendi líffæri til rannsóknar úr öllum kind- um, sem nokkur tök eru á að koma frá sér óskemmdum. i Varúð á fjárskiptasvæðunum. j Á þeim svæðum, þar sem fjárskipti hafa verið fram- kvæmd, er auk þess sérstök nauðsyn að fylgjast nákvæm lega með heilbrigði fjárins. Ef einhver tilfelli kynnu aö koma fram af þurramæði, mæði- veiki eða garnaveiki, sem víða er möguleiki á og jafnvel lík- ur til að geti orðið, þá er á- rangur fjárskiptanna og raun ar framtíð fjárbúskaparins í þessum héruðum fyrst og fremst undir því komin, að hægt sé að staðfesta slík sjúk dómstilfelli sem allra fyrst, en það er ekki hægt nema með því að framkvæma ná- kvæma skoðun á líffærum úr viðkomandi kindum. Líffærin þurfa einnig að nást til rann sóknar í góðu ásigkomulagi og greinilega merkt. (Merkja- Nafn eða nr. kindar og aldur. Nafn á býli, bónda og dag- setningu). Líffærin þarf að senda í frystihús sem allra fyrst eftir slátrun. Þar verða þau síðan geymd og send, sé um langa leið að ræða, ann- að hvort í frystiskipi eöa flug vél til rannsóknarstöövarinn- ar á Keldum. Sjúkdómar geta leynzt. Þurramæði og garnaveiki fara mjög hægt af stað og geta auðveldlega leynzt í fénu svo árum skiptir, meðan sjúkdómurinn er að magnast í fjárhópnum. Ef mistök verða að því að senda líffæri úr fyrstu kind- unum, sem veikjast eða þær týnast á fjalli, geta liðið svo allmörg ár, að sjúkdómurinn fái næði til að búa um sig og j breiðast út í friði, án þess nokkur maöur hafi hugmynd um það. Til þess að forðast, að sjúk dómar þessir geti þannig fal- izt svo árum skipti og breiðzt út með leynd, má eins og fyrr , segir ekki farast fyrir að ná- kvæm skoðun sé framkvæmd á líffærum úr hverri kind, sem drepst eða felld er sjúk. En til þess að forðast með j öllum ráðum að veikin geti leynzt í nýja stofninum, barf auk þess, að senda til rann- sóknar næstu árin lungu (á- samt lungnaeitlum) og bút 'úr mjógörn við langa úr öll- jum fullorðnum kindum, sem jslátrað er eða drepast á fjár- skiptasvæöunum Sé um veikar kindur að ræða, er rétt að senda til rann sóknar öll innyfli úr brjóst- og kviðarholum nema vömb- ina. Rétt er að hreyfa sem minnst við líffærunum, en búa vandlega um þau, koma þeim strax í frystihús og til- kynna í bréfi eða símtali um sendinguna og geta jafnframt INNFLYTJENDUR ATHUGIÐ um helztu sjúkdómseinkenni. Verður þá reynt að greiða fyr ir rannsóknum eftir því sem tök eru á og viðkomandi að- ilum tilkynntar niðurstöður strax og unnt er. Hér hefir verið bent á þýö- ingu líffæraathugana í sam- bandi við þær tilraunir til út rýmingar fjárpestanna, sem þegar ná yfir mikinn hluta landsins og nálgast nú það stig baráttunnar, sem mest muna reyna á þrek og festu, bæði forustumanna og ein- stakra bænda, og hafa úr- slitaþýðingu um frambúðar- árangur fjárskiptanna. Tilgangur skipulags- bundinna athugana. Skipulagsbundnar athugan ir á líffærum sauðfjár um allt landið hafa líka þann til gang að gera mönnum mögu- legt að fylgjast með ýmsum kvillum, sem þjá fjárstofn- inn, svo sem t. d. garnaorm- ar, lungnaormar, lungnabólga af breytilegum uppruna og á mismunandi stigum, lamba- lát, lambadauði, „Hvanneyr- arveiki,“ ígerðir o. fl. o. fl. Þessir sjúkdómar geta magn azt hér og þar fyrst í einstök- um fjárhópum, síðan í ná- grenninu og, eins og reynsl- an hefir sýnt, furðanlega fljótt dreifzt um stór lands- svæði. Það gildir sama um sauð- fjárræktina og aðra búfjár- rækt hér og erlendis, að nauð synlegt mun reynast að fyigj- ast nákvæmlega með öllum kvillum, sem koma fram í ein staklingunum, og gera sér fulla grein fyrir orsökum þeirra. Mun þá oft — og í vax andi mæli — unnt að fyrir- byggja stærri áföll af völdum sauðf j ársj úkdóma. Við viljum hér með vekja athygli á að við getum nú aftur tekiö viö vörum til flutnings frá New York til Keflavikur. í New York skal afhenda vörurnar til: Loftleiðlr li.f. Icelandic Airlines 152—21 Rockaway Boulevard ? Jamaica, New York. | j o Lág fluíningsgjöíd, tímasparnaður og ódýrar unibúðir J [ stuðla að auknum flutninguni LOFTEÆIÐIS Lofíleiðir h.f. Lækjjargötn 2 Síml 81440 r a i UTBREIÐIÐ TIMANN NIÐURSUÐUVOR.UFt /•' Heildsölubirgöir I. BrynjéSfsson & Kvaran

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.