Tíminn - 30.08.1953, Page 5

Tíminn - 30.08.1953, Page 5
195. blað. TÍMINN, suitinudagiim 30. ágúst 1953. Sunnud. SO. mjúsí. Deilan ran karfa- verðið ERLENT YFIRLIT: Stefna Churchills Hanu vill itoía fráfall Stalins sem tæki- fa*ri til að foæta sambúð stórveldanna I samningum þeim, sem gerðir yoru milli íslands og Sovétríkjanna í sumar, var gert ráð fyrir því, að þau keyptu héðan verulegt magn af frystum karfa. Verð ið var talið hagstætt og þótti þetta ákvæði samninganna ekki sízt mikilsvert, þar sem með því átti að vera tryggt, að togararnir gætu stundað karfaveiðar, sem annars var mjög vafasamt, að þeir gætu gert. Ef allt væri með felldu, ættu þessar karfaveiðar tog aránna nú yfirleitt að vera hafnar. Samt er það svo, að aðeins tveir togarar eru komn ir á karfaveiðar, þótt marg- ir þeirra liggi bundnir í höfn og hafi gert það í lengri tíma. Ástæðan er sú, að aðeins eitt-af þeim frystihúsum, sem getur tekið á fhóti karfa, ( hefir náð samkomulagi við togaraeigendur um karfa-1 verðið. Það er frystihús Kaup félags Fáskrúðsfirðinga,1 sem hefir gert samninga viö, tvo austfirzka togara, og eru þeir nú báðir komnir á karfa veiðar. Aðrir togarar hafa enn ekki hafið veiðar vegna þess, að samkomulag hefir ekki náðst um karfaverðið milli fulltrúa togaraeigenda ' annars vegar og fulltrúa ’ Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna hins vegar. Það er öllum augljóst, hví- líkt tjón hlýzt af því, ef þessi deila verður til þess, að það dregst enn um skeið, aö karfaveiðarnar verða ekki al mennt hafnar. Togararnir I halda þá áfram að vera bundnir í höfn í stað þess að afla mikilla verðmæta. Hæg iega getur svo farið, að ekki takist að fullnægja rúss- neska samningnum að þessu leyti, en það gæti ekki aðeins valdið tjóni nú, heldur líka síðar meir. i Nú um helgina mun verða unnið að því að koma á sam komulagi milli togaraeig- enda og sölumiðstöðvarinn-; ar og veröur að vænta þess,' að þeir tákist. Fari hins veg-' ar svo, að síngirrii einstakra aðila, standi enn í vegi þess, I að samkomulag náist, getur sjávarútvegsmálaráðherra t ekki lengur látið deiluna af- skiptalausa. Það er ekki hægt fyrir ríkisvaldið að horfa að- gerðalaust á það, að mikil verðmæti séu látin fara for- \ görðum vegna sérhyggju gróðamanna, sem bersýni- [ lega taka meira tillit til annars en þjóðarhags. Ef sjávarútvegsmálaráð-1 herra neyðist þannig til að taka þetta mál í sínar hend ur, hefir hann áreiðanlega ' gott fordæmi um lausn þess, þar sem eru samning- ar Kaupfélags Fáskrúðsfirð inga og austfirzku togar- anna tveggja. Önnur frysti hús ættu að geta boðið sömu kjör og frystihúsið á Fáskrúðsfirði. Aðrir togarar ættu að geta látið sér nægja sama verð og aust- j firzku togararnir sætta sig við. Heppilegasta leiðin, sem sj ávafútvegsmálaráðherra Prá því er nú skýrt í fréttum, að Sir Winston Churchill, forsætis ráðherra Bretlands, hafi aftur tekið við stjórnarstörfum eftir veikindi sin í sumar. En að því er ýmis er- lend blöð herma, er ekki almennt gert ráð fyrir því, að hann geti hér eftir gegnt leiðtogastarfi sínu, a. m. k. ekki um langa hríð enn. Ýmsar sögur hafa gengið um veik indi Churchills. Pyrst var því hald ið fram sums staðar, að veikindin væru eingöngu pólitísk, aðrir sögðu, að hann hefði lamazt stórlega af slagtilfelli. Staðreynd er, segir blaðamaður- inn Alsop I grein, ei' hann ritar í London 11. þ. m. og birt er í New York Herald Tribune, að í síðustu viku júnímánaðar fékk Churchill aðkenningu af slagi. Blóðrennsli til heilans truflaðist. Þetta var tal- ið vægt tilfelli. Lömun var lítil og ekki á starfsemi heilans. Churchill hélt andlegum kröftum óskertum. Eigi að síður litu læknar mjög al- varlegum augum á sjúkdóminn, ekki sízt vegna aldurs sjúklingsins og töldu sennilegast, að hann mundi þurfa að notast við hjólastól til þess að komast um, um næstu framtíð. Churchill kom á óvart. Alsop segir síða í grein sinni: j En læknarnir reiknuðu þarna með ' venjulegum sjúklingi en ekki með Winston Churchill, og hann kom ' þeim á óvart. Hann krafðist þess að fá nákvæmar upplýsingar um, hvað væri að. Eftir að honum var orðið' það ljóst tók hann lækning- una að miklu leyti í sínar hendur o'g stefndi að því að örva blóðrásira. Varð engu tauti við hann komið og töldu læknarnir stefnu hans hálf gerða fásinnu. En hann kom þeim á óvart. Á skömmum tíma sagði hann skilið við hjólastólinn. Hann getur nú gengið óstuddur, þótt með erfiðismunum sé. Bati hans á svo skömmum tíma var talinn ganga næst kraftaverki. En stað- reyndirnar standa þó eftir og þeim verður ekki breytt. i Senn áttræður. > Churchill er kominn fast að átt- ræðu. Maöur á þeim aldri, sem fær aðkenningu af slagi, á sífellt á hættu að það endurtaki sig, sér- j stakiega þó þegar hann þarf að gegna starfi, sem tekur mjög á þrek og taugar. Embætti forsætis- j ráðherra í Bretlandi er gífurlega umfangsmikið og erfitt, og gengur , einna næst starfi forseta í Banda- j rikjunum i því efni. Þess vegna er j það, að þeir, sem næstir standa Churchill, efast um það, að hann megni nokkru sinni — hvað sem líður hugrekki hans, þreki og dugn aði, — að taka til við stjórnar- störfin, þar sem frá var horfið. Ákvörð'un um þetta veörur hann þó sjálfur að taka. Og ekki er talið, að hann hafi látið uppi íyrirætlan ir sínar í þessu efni við neinn sam- sú að ákveða karfaveröiö ætti að fara, væri sennilegaj með bráðabirgöalögum. Ef, annar hvor aðilinn vildi ekki j sætta sig við það, yrði ríkið að sjá til þess, að mótstaðaj hans yrði brotin niður og eru ■ áreiðanlega ýms ráð til þess. j T. d. hefir það átt sér staö i j Bandaríkjunum, þegar viss^ stórfyrirtæki hafa neitað að hlýða svipuðum fyrirmælum, að ríkið hefir annast rekst- ur þeirra um skeið. Til þessa þarf hins vegar væntanlega ekki að koma. Vonandi bera deiluaðilar gæfu til að jafna ágreining sinn nú um helgina. Verði það hins vegar ekki niður- staðan, er óhjákvæmilegt fyr ir sjávarútvegsmálaráðherra að taka á þessum málum með festu og myndarbrag, eins og hér hefir verið bent á. starfsmannanna. Hins vegar er kunnugt, að það er eindreginn vilji hans, að utanríkisráðherrann, Anthony Eden, taki við af honum, er hann ákveður að draga sig í hlé. Eda þótt mjög hafi verið á orði, að Richard Butler, íjármála- ráðherra, mundi taka við af Chur- chill og V msir flokksmenn vilji pað áreiðanlega, er talið vafalitið að Churchill muni að lokum ráöa því, hver verður eftirmaðurinn. í Bretlandi er það þröngur hring ur ráðamanna, sem ákvörðun tekur um þetta, einkum þeir Salisbury lávarður, Eden og Butler, auk Chur chills sjálfs. Hins vegar er þess að gæta, að Eden hefir verið sjúkur um langt skeið og hefir ekki getað gegnt embætti sínu. Talið er, að Eden verði orðinn albata í næsta mánuði eða snemma í október. Ef Churchill yrði að draga sig 1 hlé fyrir þarnr tíma, er ósennilegt, að Eden gæti þá þegar tekið við. Af þessum ástæðum er það almennt álit stjórmálamanna í London, að Churchill sé nú að halda sæti sínu volgu fyrir Eden og muni þrauka þangað tii hann er tilbúinn að taka viö. Friðarmálin ofarlega í huga Churchills. En hér er þó um meira að tefla. Það er vitað, að Churchill á þá ósk heitasta nú að gegna stóru hlut verki i friðarmálunum áður en hann iætur af stjórnarstörfum. Gæti því svo farið, að hann freist aðist til þess að sitja lengur í emb- ætti forsætisráðherra en ella, enda þótt gera megi ráð fyrir að Eden gegndi þá daglegum stjórnarstörf um fyrir hann. Men minnast nú hinnar frægu ræðu, er hann hélt 11. maí s. 1., þar sem hann hvatti til fjórveldafundar. Að sjálfsögðu var Churchill þá líka að hugsa um innanlandsmálin, um aukakosning ar, sem fyrir dyrum stóðu, og hon- um var vlssulega ekki x'unnin reið- in til jafnaðarmanna, sem höfðu brigzlað honum um stríðsæsingar í kosningunum síðustu. En aðalat- riðið var þó að sjálfsögðu upphafið yfir persónulegar tilfinningar eða innanlandserjur. Churchill er þeirr Í.A. O a.v O a- -i-i JL i ar skoðunar, að kaliaskiptx hafi orðið í mannkynssögunni við frá- fail Stalins og þess vegna sé óskyn samlegt að taka ekki hæfilegt tillit til breyttra aðstæöa. Með viðræð um stórveldanna vildi hann fá úr því skorið, hvað brevtingin þýddi í raun og veru. Hann telur og, að vestrænu þjóðirnar muni ekki halda áfram að verja jafnstói-um fúlgum tii vígbúnaðar, nema sýnt sé svart á hv.'tu, að samningar i milli stór- veidanna séu óhugsandi. Og at- burðir síðustu vikna benda eindreg ið til þess, að gamli maðurinn hafi verið framsýnn að þessu leyti. Skoðun Churchills fær byr. Churchill verður æfur, ef það er gefið í skyn, að hann beiti sér fyrir undansláttarstefnu gagnvart Rúss- um. En enda þótt tillögúm hans hafi verið tekið kuldalega í Wash- ington í maí s. 1„ er ljóst, að þær eiga rnikið fylgi i Bretlandi og á I meginlandi Evrópu. Þetta er ein ástæðan fyrir því, að álit Churchills 1 er nú — þrátt fyrir veikindi og há- 1 an aidur — eins mikið 03 nokkru 1 sinni fyrr. Flokksmenn hans, sem ‘ fyrir ári töldu hann fyrir aldurs ' sakir bagga á flokknum, horfa nú með kvíða til þess, er hann dreg- \ ur sig í hlé. Einn af leiðtogum ' íhaldsmanna lét svo ummælt fyrir I skömmu, að Churchill væri eini ! „stóri maðurinn", sem eftir væri j í Bretlandi, og mörgum finnst hann stærsta persónan, sem nú er uppi. | Þess vegna er það, að þegar sá timi kemur, að Churchill dregur sig i hlé fyrir fullt og allt, verður 1 það saknaðardagur, ekki aðeins fyr ir Breta heldur fyrir frjálshuga menn um víða veröld. . 1« Jón Krabbe, fyrrv. | sendifulltrúi farinn 1 Jón H. Krabbe fyrrverandi sendifulltrúi íslands í Kaup- mannahöfn, sem hér hefir ver ið i boði ríkisstjórnarinnar, hélt heimleiðis í gær flugleið- is. Hann kom hingað 8. ágúst og hefir að mestu dvalizt í Reykjavík, en þó ferðazt nokk uð, svo sem upp að Hvítár- vatni, á Þingvöll, inn í Hval- fjörð og um nágrenni bæjar- ins. Jón Krabbe er nú nær átt- ræður að aldri, fæddur í Kaup mannahöfn 5. jan. 1974. Hann varð lögfræðingur 1896 og skömmu síðar gerðist hann starfsmaður í íslenzku stjórn arskrifstofunni í Kaupmanna höfn og síðar skrifstofustjóri þar. Því starfi gegndi hann til 1920. 1918 varð hann trún aðarmaður íslenzku ríkis- stjórnarinnar í utanríkisráöu neyti Dana, og síðar stað- göngumaður sendiherra ís- lands í Kaupmannahöfn. Jón Krabbe hefir notið óvenjulegra vinsælda og trausts í starfi og þjónusta hans fyrir ísland verið mikils verð, t. d. á stríðsárunum, er ekkert samband var á milli landanna. Hann hefir og löng um verið ráðunautur ríkis- stjórnarinnar í skiptum við Dani og reynzt ráðhollur : maður og sanngjarn. I Hjálpsemi hans og dreng- : lund við íslendinga er við ibrugðið, og þeir eru margir [ ungir, íslenzkir námsmenn og | ferðamenn, einkum fyrr á ár t um, sem hann hefir veitt mik ilsverða aðstoð, lánaði þeim 1 jafnvel fé úr eigin vasa þegar [á lá. | Það var ánægjulegt að hann ' skyldi nú að starfslokum geta þegið boð ríkisstjórnar- innar og dvalið nokkra sumar daga hér á landi. Þáttur kirkjurLnar > M1111111111111 'iiK'miiiiniiiiiii (ii iiiiiiiiiiiiin iii Sönn trú sameinar Hvernig er það með þá, sem alltaf eru að gera kröf- ur um vissar trúarskoðanir og sérstaka helgisiði? Hafa þeir aldrei tekið eftir, að sönn trú sameinar. Trú, sem ber ávöxt í afkomu kærleikans er hátt hafin yfir smámunasemi og hégómaskap sem spyr fyrst og fremst: Ertu frjálslyndur, ertu rétttrúaður, ertu orto- dox eða ertu spiritisti, ertu kaþólskur, lúterskur eða kal- viniskur? Til er amerískt frímerki, sem á táknrænan hátt sýnir hve sönn guðstrú sameinar til afreka. Myndin á merk- inu sýnir framstafn sökkv- andi skips. Og upp úr sjólöðr- inu, sem rýkur yfir skips- flakið gægjast ungleg andiit fjögurra manna. En uppi yfir höfðum þeirra standa orðin: „Hinir ódauðlegu herprest- ar“. j Þetta skip var herflutninga ! skip, sem í síðari heimsstyrj- öld rakst á tundurdufl við strendur Grænlands. Hundr- uð manna voru með skipinu og þar á meðal prestárnir fjórir. i Einn þeirra var kaþólskur, skreyttur heiðursmerkjum fyrir hetjuskap og fórnfýsi í eldi styrjaldarinnar. I Annar var gyðingaprestur, rabbíni, íþróttamaður og lækn ir allt í senn, dáður af æsku lýð og sjúklingum vegna vask . leika og læknisaðgerða. i Sá þriðji var frjálshyggju- maður, yngsti sonur ekkju með níu börn, og þekkti því vel vanda fátæktar og um- komuleysis. Hann unni mjög sönglist og fegurð, var alltaf í sólskinsskapi, brosti og söng vonum og kjarki jafnvel inn í hug deyjandi fólks. Hinn fjórði var áttundi presturinn i beinan karllegg presta í ætt sinni, sanntrúað ur mótmælandi, sem hataöi stríð, en var með til að vinna gegn ógnum þess og eymd. Sem sagt, þeir voru sinn af hverju sviði trúmála og lífsskoðana, en gengu til móts viö dauðann við hönd drott- ins hjálpandi, líknandi og hug hreystandi, meðan skipið var að sökkva og fólkið var að komast í bátana og björgunar beltin. Þeir lásu yfir því bænir, sungu söngva saman við und irleik æðandi aldnanna. Þess ar bænir voru kannske ekki eins að orðalagi og söngvarn- ir sinn á hverju máli, en þó í sterkri einingu, stefnt að sama marki líkt og dásam- leg samhljóman sem leitar beint til hjartans og himins í senn. Meðan ísköld haglskýja- þoka hjúpaði hafið, ieiddu þeir og studdu hina særðu, hjálpuðu hinum skelfdu í björgunarflekana, spenntu íjafnvel sínum eigin björg- j unarbeltum um þá, sem þráðu i lífið. Þeir spurðu ekki við hvaða altari þeir hefðu krop- i ið, né hvaða játningar þeir hefðu játað, né hvaðan þeir komu. Þeir blessuðu þá og signdu í nafni Guðs hins ei- lífa, algóða föður. í trausti ■ til hans ómuðu bænarorð á I heþresku, latínu og ensku. , Þeir sönnuðu ættarmót sitt , við hina voldugu uppsprettu I íkætrleikans, jsem ekki spyr jum ætt, þjóðerni, tungumál 1 (Pramh. 6 6. tíSu). .

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.