Tíminn - 06.10.1953, Blaðsíða 5

Tíminn - 06.10.1953, Blaðsíða 5
225. blað. Æ. TIMINN, þriðjudaginn 6. október 1953. 6. oht. ••3ST' ERLENT YFIRLIT: Að trúa á trunt trunt og tröllin í fjöllunum Þjóðviljinn og dátar hans viröast vera í vafa um, hvern ig það sé að trúa á tröll. En um þetta er m. a. nokkurn fróðleik að finna á bls. 193 í Þjóðsögum Jóns Árnasonar (I. bindi). Þar segir frá því, að skessa sat á jökulgnýpu og heillaði til sin mann á grasafjalJi. Um mann þenn- an segir siðan: „Ári siðar varð fólk úr sveit hans á grasa- fjalli á sama stað. Kom hann þá til þess og var fálátur og ábúðarmikiil, svo varla fékkst orð af honum. Fólkið spurði hann, á hvern hann tryði, og sagðist hann þá trúa á Guð. Á öðru ári kom hann aftur til sama grasa- fólks. Var hann þá svo trölls legur, að því stóð ótti af hon- um. Þá var hann spurður, á hvern hann tryði, en hann svaraði því engu — —. — Á þriðja ári kom hann enn til íólksins. Var hann þá orðinn hið mesta tröll og illilegur mjög. Einhver áræddi þó að spyrja hann, á hvern hann tryöi, en hann sagðist trúa á „trunt, trunt og tröllin í fjöl!unum“ og hvarf síðan. Eftir þetta sást hann aldrei. Ekki getur þjóðsagan þess, að pilturinn, sem heillaður | var til að taka tröllatrú, væri neitt öðru vísi en fólk flest áður en ósköpin komu yfir hann. Sama er að segja um flesta þá, er þessa trú hafa tekiö nú á tímum. Því miður hafa sumir, þeirra æskumanna, er sendir, hafa verið til að draga and- lega björg í bú þjóðarinnar, verið orðnir eitthvað undar- legir þegar þeir komu heim af „grasafjallinu.“ Einn þeirra er ungi maðurinn á Skólavörðustíg 19, sem hefir valið sér nafn hundsins með hundrað augum. íslenzka þj óðin þekkir þennan sið og kann að gjalda varhuga við honum, núoi'ðið. Hún veit að þeir menn „trúa á trunt trunt og tröllin í fjöllunum,“ sem vikna af ó- líkindalátum, ef vopni er mið að á kaldan klett í óbyggð, en glotta að neyð. kúgaðra þjóða og hrópa hósíanna fyr ir þeim, sem á undanförnum árum hafa stofnað heims- friðnum í voða. Hún veit, að þeir menn trúa á „trunt, trunt,“ sem vilja innleiða á íslandi stjórn arhætti einræðisríkjanna, þar sem veggir heimilanna eru eyru leynilögreglunnar, þar sem smásveinar eru æfð- ir í meðferð byssustingja og fallhlífa, og þjóöhátíðardag- urinn er haldinn hátíðlegur með skrautsýningum ægileg- ustu vígvéla. Hún veit, að þeir menn trúa á „trunt, trunt,“ sem taka list Jónasar Hallgríms- sonar og Stephans G. Step- hanssonar í þjónustu myrkra afla um miðjan dag. Frakkðand á krossgðium Tckst Frökkum aS bjarga lýdræðimi og afstýra g'lundroða og' cinræði? Sem betur fer þynnist nú óðum lið þeirra, sem á „trunt“ trúa. í dag kemur franska þingið sam an til fundar eftir sumarleyfið. Því er yfirléiCt spáð, að þetta nýja þing geti orðið mjög sögulegt, og ef til vill skeri það úr um það, hvort al- gert stjófhléysi skapist í Frakklandi og afleiðíng þess verði síðan ein- ræðisstjórn til hægri eða vinstri eða hvort Frökkum tekst að við- halda starfhæfu lýðræðisskipulagi Atburðuiii þeim, sem koma til með að gerast í Frakklandi næstu vikur og mánuði, verður veitt mikil athygli, því að þeir verða ekki aö- eins örlágaríkir fyrir stjórnmál Frakklands, heldur geta haft megin þýðingu fyrir gang heimsmálanna. Það virðjst 't. d. velta á Frökkum, hvort nókkuð veröur úr stofnun Evrópuhergins Fyrir kosningarnar í Vestur-Þýzkalandi gerðu Frakkar sér nokkra Von um, að Evrópuher- inn myndi stranda á Þjóðverjum og Frakkar myndu þannig losna úr þeim vanda, að ráða örlögum þeirr- ar hugmyndar. Kosningasigur Ad- enauers gerði þessar óskir Frakka að engu,’.. og nú verða þeir að hrökkva eoá stökkva í þessum efn- um. Afstaðan til Evrópuhersins verður þannig eftt þeirra mála, sem kem ur til méð að setja höfuðsvip á stjórnmálábaráttuna í Frakklandi næstu mónuðina. Það er og án efa það mál, sem mun ráða meiru um afstöðu :kommúnista en nokkuð annað, en.'.þeir geta ráðið miklu um hver stjpfnmálaþróunin verður í Frakklandi; Óttist þeir, að samning urinn um; Evrópuherinn nái sam- þykki Frákka, munu þeir efalaust gera sittZ'til að skapa sem mest öngþveitiu atvinnulífi og stjórnmál um Frakkai Fellur stjórn Laniels? Það er talið mjög vafasamt, að stjórn Laniels muni halda velli eft ir að þingið kemur saman. Hún var mynduð f'sumar rétt fyrir sumar- leyfi þingsins eftir lengstu stjórnar kreppu í sögu franska lýðveldisins Flestir spáðu henni þá ekki lengri lífdaga ehmeðan sumarleyfi þings ins stæðiryfir. í gamni og alvöru var sagt, að.hún hefði verið mynduð til þess eins, að þingmenn gætu fengið surftarleyfi sitt. Það er ekki líklegt til að lengja líf stjórnáfinnar, að hún heíir ver- ið heldur óheppin, þrátt fyrir PÓð- an viljaí Fyrstu ráðstafanirnar, sem hún ígérði eftir þingfrestunina, orsökuðu ; ftiikla gremju opinberra starfsmanna, þótt þær væru í raun inni smávægilegar og stefndu í fétta áti;.. Opinberir starfsmenn töldu stjominni hins vegar nær að beina gei'ri sínum að öðrum en þeim. Afieiðing þessa varð því ein mesta vefkfallsalda, sem orðið hef- ir í Frakldandi. í fyrstu voru það aðrir en... kommúnistar, sem áttu upptökin.'þótt þeir réðu mestu eft- Ir að verkföllin voru hafin. Eftir að verkföllunum lauk, hef- ir stjórniij gert ýmislegt til að vinna upp álitshnekkir þann, sem verk- föllin höiðu valdið henni. Hún hækkaði íá'ún lægstlaunuðu stétt- anna og gerði ýmsar ráðstafanir til verðlækkunar.. Síðarnefndu ráð stafanirnar hafa þó borið miklu minni árangur en til var ætlazt, því að mUliliðirnir hafa færzt und an að tajía á sig sinn hlut. Lækk- anirnar Háfa því, orðið mun minni en til var ætlast og hafa aðallega bitnaö -á bændum, sem eru stjórninni litið þakklátir fyrir. Tak ist stjórninni ekki að sýna fram á’, að hún gcti þvingað milliliðina til verölækkunar, er næsta líklegt, að það verði. til þess að riða henni að fullu. Ef stjórh Laniels fellur, er tal- ið meira en vafasamt, að þinginu takist að mynda nýja stjórn. Stjórn Laniels stýðst við miðflokkana, að jafnaðarmönnum undanskildum, og nokkrúm hluta Gaullista. Vafa- samt þykir, að þessir aðilar geti myndað nýja stjórn aftur. Ef til vill getur það orðið lausn undir þessum kringumstæðum að efna til nýrra þingkosninga, þótt flest- ir telji, að það muni engu verulegu breyta. Þátttakan í Evrópuhernum. Eftir kosningasigur Adenauers í Þýzkalandi, hafa stjórnir Bret- lands og Bandríkjanna gengið miklu fastar eftir því við Frakka en áður, að þeir samþykktu aðild sína að Evrópuhernum. Einkum er talið, að Bandaríkjastjórn hvetji Frakka til þess að draga þetta ekki Öllu lengur. Bretar eru líka orðnir áhugasamari um það en áður, að Evrópuherinn komist á laggirnar, þar sem þeir telja, að endurvíg- búnaði Þjóðverja verði bezt komið fyrir með þeim hætti. Talið er, að brezka stjórnin hafi nú gefið Frökk um loforö um svo nána samvinnu við Evrópuherinn, að það nálgist beina þátttöku. Frakkar hafa jafn- an lagt á þetta mikla áherzlu, þar sem þeir hafa talið þátttöku Breta aukna tryggingu fyrir því, að Þjóð- verjar næðu ekki yfirráöum yfir Evl'ópuhernum í sínar hendur. Þá hafa Bandaríkin lofað að taka á sig meginhluta kostnaðarins við styrjöldina í Indo-Kína, en marg- ir Frakkar hafa talið, að þeim væri örðugra en ella að taka á sig skuld- bindingar vegna Evrópuhersins meðan þeir hefðu mikið herlið í Indo-Kina og stórfelld útgjöld vegna dvalar þess þar. Þá hefir Adenauer boðið upp á ráðstefnu um Saar-málið, en Frakkar telja sig ekki geta gengið í Evrópuher- inn fyrr en það mál sé leyst. Eftir sigur Adenauejrs virðist stuðningur ýmsra Frakka við Ev- rópuherinn heldur hafa aukizt. T. d. hefir Mollet, foringi jafnaðar- manna, látið svo ummælt, að hann væri bezta formið fyrir endurvíg- búnað Þjóðverja, og fyrst vígbúnað ur Þjóðverja yrði hvort sem er ekki Stöðvaður, væri Frökkum heppileg- ast að koma hugmyndinni um Ev- rópuherinn í framkvæmd. Á þingi radikalaflokksins í haust kom líka fram minni andstaða gegn Evrópuhernum en í fyrra, þótt hún væri eigi að siður veru- LANIEL leg Blíðmæli Malenkoffs. I Þrátt fyrir þetta er vafasamt, að ' franska þingið samþykki aðildina | að Evrópuhernum. Andstaðan gegn endurvígbúnaði Þjóðverj er sterk j í Frakklandi vegna fornra sam- j skipta þessara þjóða. Gaullistar hafa og enn sem fyrr áréttað and- stöðu sína gegn Evrópuhernum, en ! lýsa sig þó geta fallizt á endur- ! vígbúnað Þjóöverja í öðru formi. j Kommúnistar munu og að sjálf- j sögðu beita öllum ráðum til þess að j hindra þátttöku Frakka í Evrópu- hernum. Bersýnilegt er, að Sovétstjórnin telur Frakkland nú þann aðila, sem líklegastur sé til þess að hindra stofnun Evrópuhersins. Af hálfu Sovétstjórnarinnar hafa Frökkum ' veriö ' sýnd ýmis vináttumerki í seinni tíð. í hinni miklu ræðu sinni á þingi Sovétríkjanna í ágúst sið- astliðnum, ræddi Malenkoff mikið um forna vináttu milli Rússa og Frakka og taldi það mikla nauðsyn, ! að þau tengsli yrðu endurnýjuð. | Sögusagnir ganga um það, að Rúss ar bjóði Frökkum nú ýms fríðindi ; bak við tjöldin, m.a.. samkomulag ' um Indo-Kína, ef Frakkar liafni aðild að Evrópuhernum. Það sést líka á framkomu j franskra kommúnista, að Sovét- stjórnin vill fara gætilega í sak- ' irnar við Frakka, eins og sakir ! standa. Franskir kommúnistar j hafa sjaldan haft eins góða leiki á | borðinu og í verkföllunum í sumar, en aldrei þessu vant létu þeir þá að mestu ónotaða. Þeim myndi og á ' reiðanlega auðið nú að stofna til 1 mikilla verkfalla, því að óánægja verkamanna er mikil. Samt halda þeir að sér höndum að mestu leyti. Fullvíst þykir, að það sé gert eftir fyrirskipunum frá Moskvu, því að valdamenn þar vilji hafa opnar ailar leiöir, sem gætu orðið til að stöðva framgang Evrópuhersins. Fari hins vegar svo, að Sovét- stjórnin telji sig ekki geta hindrað aðild Frakka að Evrópuhernum með eðlilegum hætti, mun áreið- anlega ekki standá á henni að láta franska kommúnista hefjast handa um að skapa allan þann glundroða, sem þeir megna. Stjórn Laniels hefir nú lýst yfir (Framh. á 6. síðu.) Nefndakosningar á Alþingi í gær fóru fram nefnda- kosningar á Alþingi. Stjórn- arflokkarnir og Alþýðuflokk- urinn höföu bandalag við kosningarnar og fengu kommúnistar þvi engan mann kosinn í nefndir í deildunum. Alþýðuflokkur- inn gekk til bandalags við st j órnarflokkanna ef tir að Þj óðvarnarf lokkurinn haf ði neitað samstarfi við hann. Úrslit kosninganna urðu þessi: SAMEINAÐ ÞING Fjárveitinganegnd: Hannibal Valdimarsson, Ilelgi Jónasson, Halldór Ás- grímsson, Karl Kristjánsson, Pétur Ottesen. Jónas Rafn- ar, Jón Kjartansson. Utanríkismálanefnd: Gylfi Þ. Gíslason, Her- mann Jónasson, Jörundur Brynjólfsson, Finnbogi R. Valdimarsson, Jóhann Þ*. Jósefsson, Ólafur Thors, Bj arni Benediktsson. Allsher jarnefnd: Emil Jónsson, Bernharð Stefánsson, Eiríkur Þorsteins son, Karl Guðjónsson, Jó- hann Þ. Jósefsson, Jón Sig- urðsson, sigurður Ágústsson. Þingfararkaupsnef nd: Jón Pálmason, Andrés Ey- jólfsson, Jónas Rafnar, Eirík ur Þorsteinsson, Guðmund- ur í. Guðmundsson, NEÐRI DEILD Fjárhagsnefnd: Jón Pálmason, Skúli Guð- mundsson, Gylfi Þ. Gíslason, Jóhann Hafstein, Páll Þor- steinsson. Samgöngumálanefnd: Siguröur Bjarnason, As- geir Bjarnason, Magnús Jóns son, Eirikur Þorsteinsson, Emil Jónsson. Landbúnaðarnef nd: Ásgeir Bjarnason, jón Sig- urðsson, Gísli Guðmundsson, Jón Pálmason, Hannibal Valdimarsson. S járvarútvegsnefnd: Pétur Ottesen, Gisli Guð- mundsson, Sigurður Ágúst- (Framhald á 7., slðu). Á víðavangi Frjáls þjóð játar sprengihlutverkið. f forustugrein Frjálsrar þjóðar á föstudaginn var, er það raunverulega játað, að tilgangur Þjóðvarnarflokks- ins sé að vera sprengiflokk- ur, sem hjálpi Sjálfstæðis- flokknum til að ná meiri- hluta. Rökstuðningur er sá, að hrein flokksstjórn Sjálf- stæðisflokksins væri betri en samstjórn núv. stjórnar- flokka. Frjálsri þjóð farást orð á þessa leið eftir að hafa rætt um, hvernig færi, ef Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan þingmeiri- hluta: „Enginn þarf að láta sér detta í hug, að flokksstjórn Sjálfstæðismanna þyrði að gera neitt meira eða verra en gert hefir veriö á undan- förnum árum, ef Sjálfstæð- isflokkurinn einn ætti að bera ábyrgðina. Það er meira að segja vafamál, að ríkisstjórn, studd af Sjálf- stæðisflokknum einum, hefði þorað að gera allt það, sem samstjórn Fram- sóknar og Sjálfstæðisflokks ins hefir gert á liðnum ár- um.“ Öllu greinilegar verður það ekki sagt, að forustu- menn Þjóðvarnarflokksins telji það til bóta, að meiri- hlutastjórn íhaldsins kæm- ist til valda. Það er líka í fullu samræmi við það sprengihlutverk, sem þeir leika. Það er hins vegar ó- líklegt, að slíkt sé álit þeirra óbreyttra kjósenda, er af misskilningi veittu þessu fyrirtæki fylgi sitt í seinustu kosningum. Þeir hafa áreiðanlega fæstir gert það í þeirri trú, að með því ætti að hjálpa Sjálf- stæðisflokknum til þess að ná meirihluta. En nú hefir Frjáls þjóð afhjúpað þennan tilgang Þjóðvarnarflokksins. Eftir það þurfa menn ekki að vera í neinum vafa. Þegar nazistar komust til valda. Það hefir annars komið fyrir áður, að menn, sem töldu sig vinstri menn, hafi leikið ekki ósvipað hlutverk og forkólfar Þjóðvarnar- flokksins reyna að leika nú. Nazistar komust til valda í Þýzkalandi á sinni tíð vegna þess, að kommúnistar gerðu allt, sem þeir gátu til að skaða jafnaðarmenn og milliflokkana. Þeir töldu það betra fyrir sig að fá stjórn nazista en að jafnað armenn eða milliflokkarnir gætu haft áhrif á stjórn landsins. Þeim tókst líka að koma Hitler upp í valdastól inn með þessu klofnings- starfi sínu. Afleiðingin af því varð hins vegar talsvert önnur en þýzkir kommún- istar og húsbændur þeirra I Kreml höfðu gert ráð fyrir. Þótt Sjálfstæðisflokknum sé ekki nema að takmörk- uðu Ieyti líkt við þýzka naz- istaflokkinn, er samt næsta sennilegt, að Þjóðvarnar- menn fengju litlu meiri á- nægju eða þökk fyrir það að hafa hjálpað honum til valda en þýzku kommúnist- arnir fengu fyrir aðstoðina við nazista á sinni tíð. Sem betur fer munu for-< (Framh. á 6. eíðu.) /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.