Tíminn - 06.10.1953, Blaðsíða 6
6
TÍMINN, þriöjudaginn 6. október 1953.
225. blað.
ÞJÓDLEIKHÚSID
Koss í hauphœti "
Sýning miSvikudag og fimmtu-
dag kl. 20.00.
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13,15—20,00. Alla virka daga.
Símar 80000 og 82345.
Dvertfamh' og
Frumshógti-Jim
Hörkuspennandi og viðburðarík
frumskógamynd úr framhalds-
sögunni um Jungle Jim og dverg
eyna.
Johnny Weissmuller,
Ann Savage.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ
Synduga konan
(Die Sunderin)
Ný, þýzk, afburðamynd, stór- j
brotin að efni, og afburðavel
leikin. Samin og gerð undir!
stjórn snillingsins Willi Forst.
Aöalhlutverk:
HHdigard Knef,
Gustaf Frölich.
Danskir skýringartextar.
Bönnuð börnum yngri en 16 ára
Sýnd kl. 7 og 9.
Endttltius hlátur
Sprenghlægileg grinmynda-
syrpa með allra tíma frægustu
skopleikurum.
Charlie Chaplin,
Harald Lloyd,
Buster Keaton o. fl.
Sýnd kl. 5.
TJARNARBÍÓ
Harðjaxlar
(Crosswind)
Ný, amerísk, mynd í eðlilegum
litum, er sýnir ævintýralegan
eltingaleik og bardaga við villi-
menn í frumskógum Ástralíu og
Nýju Guineu.
Aðalhlutverk:
John Payne
Bhonda Fleming.
Bönnuð börnum yngri en 16 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍO
— HAFNARFIRÐI —
Ég heiti Niki
Bráðskemmtileg og hugnæm, ný
þýzk kvikmynd, með
Paul Hofberger.
Lilta Nika og hundinum Tobba
Sýnd kl. 7 og 9.
Sími 9184.
Þústsaðlr vlt» «8 gæfan
fylglr hrlngimam írá
blGURÞÓR, Hafnarstr. 4.
Uargar gerðlr
fyrlrllggjandl.
Sendum geizn
AUSTURBÆIARBfO
V axmyndtisafniíS
Þrívíddar-kvikmyndin.
(House of Vax)
Sérstaklega spennandi og við- S
burðarík, ný, amerísk kvikmynd J
tekin í eðlilegum litum.
Aðalhlutverk:
Vincent Price,
Frank Lovejoy,
Phyllis Kirk.
Engin þrívíddar-kvikmynö, sem
sýnd hefir verið, hefir hlotið
eins geysilega aðsókn eins og
þessi mynd. Hún hefir t. 1. verið
sýnd í allt sumar á sama kvik-
myndahúsinu í Kaupmanna-
liöfn.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sala heíst kl. 1 e. h.
GAMLA BÍO
Órabelgur
(The Happy Years)
Skemmtileg og fjörug amerlsk
gamanmynd í eðlilegum litum
um ævintýri skólapilts.
Dean Stockwell,
Scotty Beckett,
Darryl Hickman.
Mynd jafnt fyrir unga sem
gamla.
Sj'nd kl. 5, 7 og 9.
TRIPOLI-BÍO
Bivtina Devil
3 - víddarkvikmy ndin
Fyrsta 3-víddarkvikmyndin, sem
tekin var í heiminum. Myndin er
tekin í eðlilegum litum. Þér fáið
ljón í fangið og faðmlög við Bar
böru Britton.
Aðalhlutverk:
Robert Stack,
Barbara Britton,
Nigel Bduce.
Sj-nd kl. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 2 e. h.
Hækkað verð.
HAFNARBÍO
Olnhot}ábarni&
(No Place for Jennifer)
Hrífandi ný brezk stórmynd,
um barn fráskyldra hjóna,
mynd, sem ekki gleymist og
hlýtur að hrífa alla, er börnum
unna.
Aðalhlutverk Ieíkur hin 10
ára gamla
Janettc Scott
ásamt
Leo Genn,
Rosamund John.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Blikksmiðjan
GLÖFAXI
Hraunteig 14. Síml 7236.
Á víðavangl
(Framh. af 5. síðu).
lögin leysa forkólfa Þjóð-
varnarflokksins undan slík
um áhyggjum. Fylgi flokks-
fyrirtækis þeirra mun
þverra að sama skapi og
sprengihlutverk þess í þjón
ustu Sjálfstæöisflokksins
verður augljósara. Þeir
vinstri menn eru áreiðan-
lega vandfundnir, er telja
vinstri stefnu bezt borgið
meö því aö koma Sjálfstæð-
isflokknum í hreinan meiri-
hluta. —
Érlcnt yflrlit
(Framhala af 5. Bíðu)
því, að hún muni leggja til við þing
ið, að það taki samninginn um Ev-
rópuherinn til meðferðar, en þing-
ið hefir enn ekki fjallað um har.n.
Óvíst þykir, að séð verði endan-
lega hver afstaða þingsins veröur
fyrr en undir áramótin.
Verður Juin hershöfðingi
leiðtogi hægri manna?
Erlendir blaðamenn, sem fj'lgj-
ast með frönskum stjórnmálum,
tala nú meira og meira um það,
að svipuð ringulreið og upplausn
og verið hefir um skeið í stjórn-
málum og atvinnumálum Frakka
geti vart haft, nema ein endalok,
Miðflokkarnir hljóti að missa tök-
in og annað hvort hægri menn eða
kommúnistar taki völdin að af-
staðinni einhvers konar byltingu.
Fyrir miðflokkana sé nú því ann-
að hvort að duga eða drepast. Eink
um er það harmað af þeim, er vilja
tryggja lýðræðislega stjórnarhætti
í Frakklandi, að jafnaðarmenn
skuli nær alveg skerast úr leik af
ótta við kommúnista, þar sem án
þátttöku þeirra sé nær ógerlegt að
mynda starfhæfa stjórn miðflokk-
anna.
í seinni tíð hefir mjög borið á
góma nafn Juins hershöfðingja
sem væntanlegs leiðtoga hægri
manna, ef svo kæmi vegna upp-
lausnar o_g glundroða í stjórnmál-
um Frakka, að annað hvort yrði að
velja um einræði til hægri eða
einræði kommúnista. Juin hers-
höföingi er nú mjög valdamikill
innan hersins og nýtur mikils
trausts hægri manna. Stjarna de
Gaulle hefir farið mjög lækkandi
í seinni tíð og þykir hann því síð-
ur koma til greina en áður sem
leiðtogi hægri manna undir slík-
um kringumstæðum.
Gifta Frakka verður von-
andi svo mikil, að ekki komi til
þess, að þeir þurfi að velja um
slíka hægri stjórn eða stjórn komtn
únista.
Vetrarstarf
(Framhaia af 3. síðu).
og sundknattleik kennir Þor-
steinn Hjálmarsson. í hand-
knattleik karla eru 4 flokkar,
Meistaraflokkur — 1., 2. og 3.
flokkur einnig meistara. —
og 2. flokkur kvenna. Jón Er-
lendsson kennir karlflokkun
um. Þjóðdansa og vikivaka
kennir, eins og að undan-
förnu, Ástbjörg Gunnarsdótt
ir. Undanfarna vetur hafa
þeir 4 flokkar, sem hún kenn
ir, verið fullskipaðir og færri
komist að en viljað hafa. —
Kennslugjald fyrir fulloröna
eru kr. 100,00 fyrir 7 mán-
aða tíma og er æft tvisvar í
viku, en æfingagjald fyrir
yngri flokka, í öllum íþrótta-
flokkum, er kr. 50,00 yfir sama
tíma.
Félagið mun eins og und-
anfarna vetur halda nám-
skeið í ýmsum íþróttagrein-
um og verða þau auglýst síð-
ar. Allar upplýsingar um vetr
argtarfsemina er að fá hjá
kennurum félagsins og á skrif
stofunni í íþróttahúsinu,
Lindargötu 7, sími 3356, op-
in á hverju kvöldi kl. 8—10
e. h. og fer þar fram innrit-
un félagsmanna.
MARGARET WIDDEMER:
UNDIR GRÆNUM PÁLMUM
Eyja skeifinganna
m.
„Mér þætti vænt úm að fá orð yðar fyrir því að flýja ekki.“
„Mynduð þér láta yður nægja það?“
Hann endurtók í sama tón: „Mér þætti vænt um, aö fá
orð yðar fyrir þessu.“
„Ég heiti því.“
Þaö varð andartaks þögn. Svo skipaði hann ræðurum sín-
um að róa til baka út í skipið. Er báturinn var farinn, sagði
hann við Laní: „Ég hefi frétt um ástvinamissi yðar. Ég
vona að þér vitið, að ég hefi mikla samúð með yður í sorg
'yðar.“
j Hann og faðir hennar höfðu hatað hvorn annan. Já,
dauðinn slétti oft yfir margs konar misfellur. Og eins og
hann hefði heyrt hugsanir hennar, bætti hann við: „Ég
! heimsótti fólk yðar, munið. Er ég fór, skildum við betur
hvorn annan, faðir yðar og ég.“ Svo varð rödd hans harðari:
„Ég kom við á eynni siðar. Villimenn muna skammt, en þeir
sem eftir eru. munu minnast komu minnar nokkurn tíma“.
„Mér þykir vænt um að þú hefndir vina þinna,“ sagði Laní.
Svo talaði hann strengilega til hennar á ný. „Ég vona svo
að þér muhið, að þér megið ekki hreyfa yður héðan og að
þér megið ekki reyna að koma orðum til Vinchesters.“
„Já.
Hún sneri sér frá honum og Vaimai fylgdi henni í áttina
að húsi trúboðanna. Vaimai sagði lágt:
„Þú ert fegurri nú en þú hefir nokkru sinni verið áður.
Stundum kemur þetta fyrir, þegar konur eiga barn. Ég sá
að hann varaðist að virða fyrir sér líkama þinn. Vertu mjög
kvenleg við hann, engu síður en við þessa illþefjandi kaup-
mangara, sem voru að koma hingað í heimsókn til Chest-
•ers, og sem þú hataðir. Þú getur sigrað hann, hvenær sem
þér sýnist.“
„Ég myndi ekki reyna það, þótt ég gæti það.“
Þær gengu saman inn í húsið og voru þöglar.
Er hún kom inn í herbergi sitt, heyrði hún hjalið í þeim
innlendu annars staðar í húsinu. Svo fór einhver að skipa
fyrir. Skyndilega sá hún hvar Mark gekk yfir verönd húss-
iins. Hún vissi, að ef hann byggi ekki um borð í skipinu, þá
yrði hann að búa í herberginu við hliðina á hennar. Hún
sat grafkyrr. Hún varð að fá að jafna sig, áður en hún gat
sinnt barninu.
Miles litli horfði á móður sína, stórum bláum augum —
augum Marks. Hún tók barnið í fangið og fór að raula við
það enska vögguvísu. Þegar hún hafði lokið vísunni, heyrði
hún að Mark gekk óþolinmóöur um gólf í hinu herberginu.
Svo heyrði hún, að hann gekk út úr herberginu og skellti á
eftir sér huröinni. Við það að hann skellti hurðinni, opn-
aðist hurðin, sem var á milli herbergja þeirra. Hún hrökk
við, þar sem hún hélt að dyrnar hefðu verið læstar. Hún
lyfti barninu aö brjóstum sér. Og allt í einu fannst henni
að Mark stæöi í dyrunum, brosandi, og væri að koma inn í
herbergið til þeirra.
En þessi draumsýn hvarf henni eins skyndilega og hún
kom. Mark var hættur aö elska hana, og honum var orðið
alveg sama um hana, honum féll ekki einu sinni illa við
hana, afskiptaleysið var svo algjört. Og hefði hann látið
sig eitthvaö varða um hana, hefði það aðeins gert illt verra.
Hann var hér aðeins, af því hún var, eins og hann hafði
sagt, beita í gildrunni, sem hann hafði lagt fyrir Chester.
Ef Mark stæði nú í dyrunum, og hún gengi í áttina til hans
með útrétta arma, þá mundi hann ekki koma til móts við
'hana. Jæja, þetta hlaut að enda á einhvern veg, fyrr eða
síðar. Hún gat aðeins haldið sig við það.
j Er þrír dagar voru liðnir, kom Litsí til hennar, þar sem
hún sat undir pálmatrjánum með barnið. Gamla konan
'sagði hægt:
j „Foreldrar þínir voru trúboðar, Laní. Ert þú eins og þau,
að þú hvorki hatir óvini þína né viljir drepa þá?“
j „Ég á enga óvini hér,“ sagði Laní undrandi. „Því spyrðu?“
j „Nú, vitanlega er stjórnarfulltrúinn óvinur þinn. Og
menn hans eru hræddir, því matsveinn þeirra er veikur af
því að hafa étið eitraðan fisk. Hann heldur að það sé bana-
tilræði.“
„Þetta er vitleysa. Hann hlýtur að vita, að til eru fiskar,
sem verða eitraöir með eðlilegum hætti á þessum tíma árs.“
„Ég hefi sagt honum það. Stj órnarfulltrúinn hefir einnig
sagt honum það. En þú veizt hvernig heiðingjar eru. Þeir
trúa engu. Og því,“ sagði Litsí þýðlega, „ef þú og stjórnar-
fulltrúinn borðuðuð saman hér úti á veröndinni, svo hann
þurfi ekki að fara um borð í varðbátinn til þess, þá er það
mikið öruggara. Þess utan er matsveinninn sá eini, fyrir
utan Vaimai og mig, sem kann aö elda mat við hæfi stjórn-
arfulltrúans. Þetta myndi vera mjög vel gert af þér, þvi
engin myndi voga sér að setja eitur í mat þinn.“
j Eftir nokkra umhugsun játaði Laní þessum tilmælum
trúboðans.
j Og dagarnir liðu. Þau borðuðu saman, en sátu þögul á
meðan boröhaldið stóð yfir. En eftir því sem lengra leið
'komust þau ekki hjá því að ræða lítillega hvort við annað.
En ekki kom Chester. Það mun hafa verið um hálfum mán-
uði síðar, að Mark stöðvaði hana einn morgunn, þegar hún
1 var ’á leiðinni með barniö niöur að ströndinni, eins og
jvenjulega.