Tíminn - 11.10.1953, Side 5

Tíminn - 11.10.1953, Side 5
230. blað. TÍMINN, sunnudaginn 11. október 1953. 5 Summd. 11. okí. Hamilton verð- ur að víkja Eins og skýrt var frá í blað inu í gær, hefir Hamiltonfé- lagið, sem er ameríski verk- takinn á Keflavíkurvelli, ný- lega sagt upp tveimur starfs- mönnum þar. Hafa uppsagn- ir þessar vakið athygli vegna þess, að báðir viðkomandi menn hafa verið trúnaðar- menn Alþýðusambandsins á vellinum og hefir því lent á þeim að halda fram ýmsum kröfum, sem gerðar hafa ver ið af verkamönnum vegna þess, að þeir hafi talið, að fé- lagið færi ekki eftir íslenzk- um kaupsamningum. í tilefni af þessu hefir Al- þýðusambandið snúið sér til utanríkisráðuneytisins og óskað eftir því, að það skerist í þetta mál á þann veg, að hinir brottreknu starfsmenn verði aftur teknir í vinnu hjá félaginu. Mun utanríkisráðu neytið að sjálfsögðu taka til athugunar, hvað það getur gert, en vald hefir það ekki til að gefa félaginu fyrirskipun um að taka mennina aftur í vinnu. Samkvæmt íslenzk- um lögum ráða atvinnurek- endur starfsfólki sínu og geta sagt því upp vinnu, en dóm- stólarnir geta síðan skorið úr hvort um löglegar eða ólög- legar uppsagnir er að ræða. Vel má vera, að þetta mál leysist friðsamlega, og virðist m. a. mega draga það af frá- sögn Morgunblaðsins í gær, en góð sambönd virðast milli þess og Hamiltonfélagsins. En þrátt fyrir það, er megin- málið samt sem áður óleyst, en þaö er það, að íslenzkir aðilar taki að sér allar fram- kvæmdir í sambandi við varn armálin. Sú reynsla, sem feng in er, bendir öll til þess, að- stefna beri hiklaust að því marki. Það má segja, aö sagan af viðskiptum landsmanna við Hamiltonfélagið hafi frá fyrstu tíð verið saga nýrra og( nýrra árekstra, mismunandi stórvægilegra. Sitthvað hefir verið gert af hálfu íslenzkra stjórnarvalda, bæði fyrrv. ut- anrikisráðherra og varnar- málanefndar, til að laga þétta, en ekkert virðist hafa borið árangur. Alltaf hafa komiö til sögunnar ný ágrein ingsefni og nýir árekstrar. Hjá hinum verktökunum á Keflavíkurflugvelli, Samein- uðum verktökum, hefir þetta gengið á allt annan veg. Þar hafa árekstrarnir verið mjög litlir eða engir. Svo mikið er nú búið að reyna til þess að bæta sam- búðina við Hamiltonfélagið, að vonlítið virðist að gera nokkrar nýjar tilraunir í þá átt. Eina lausnin virðist sú, að félagið víki alveg. Af hálfu þeirra, sem starfa vitandi eða óvitandi í þágu hins alþjóölega kommún- isma, hafa árekstrarnir við Hamiltonfélagið verið kær- komiö tilefni til að ófrægja Bandaríkjamenn almennt og ameríska varnarherinn, sem hér dvelur. Amerískum stjórn arvöldum og yfirmönnum varnarliðsins er kennt um, hvernig til hefir tekist hjá Hamiltonfélaginu. Vafalaust eru forráðamenn Hamilton- Fréttabréf frá Ekki er hægt að segja, a'ð stór- tíðindasamt hafi verið á Alþingi þessa viku, enda er það ekki venja, að neitt sögulegt gerist á þingi fyrstu vikurnar, þegar ekki stendur yfir stjórnarmyndun. Öðru máli gegnir, þegar líður að þinglokum og taka veröur ákvarðanir endan- lega um meðferð og afgreiðslu ýmissa mikilsverðra mála. Allmörg frumvörp og þingsálykt- unartillögur hafa verið lagðar fram á þingi þessa viku. Merkast þessara mála er án efa tillaga Pramsóknar flokksins um eflingu veðdeildar Búnaðarbankans. Mest af þeim málum, sem flutt voru í vikunni, eru þáttur í eins konar innbyrðis samkeppni eða yfirboðum stjórnar andstæðinga. Þannig hafa allir stjórnarandstöðuflokkarnir flutt til lögur um hervarnarmálin, Alþý.ðu- flokksmenn og kommúnistar hafa flutt sitt frv. hvorir um aukið or- lofsfé og líka sitt frv. hvorir um aukinn hvíldartíma á togurunum. Nefndarkosningar. Kosningar á nefndum í þingdeild ,um og sameinuðu þingi fóru fram á mánudaginn. Eftir að „Þjóðvarn armenn" höfðu neitað að hafa sam vinnu við Alþýðuflokkinn, nema kommúnistar væru með, lá það ljóst fyrir, að kommúnistar voru eini stjórnarandstööuflokkurinn, er gátu fengið mann í nefndir í deildum, ef ekki næðist samkomu- lag milli stjórnarflokkanna og Al- þýðuflokksins. Pramsóknarmenn töldu það betur farið, að lýðræðis- sinnaöir stjórnarandstæðingar ættu fulltrúa í þingnefndum en áhang- endur hinnar rússnesku einræðis- stefnu. Þeir höfðu því forgöngu um, að Alþýðuflokknum yrði boðið samstarf um nefndarkosningar og féllst hann á það. Umfram það var vitanlega ekkert frekar sarnið við Alþýðuflokkinn, svo að hann hefir eftir sem áður jafnfrjálsar hendur sem stjórnarandstöðuflokk ur. Niðurstaöan af bandalagi stjórn arflokkanna og Alþýðuflokksins varð sú, að kommúnistar fengu ekki kjörinn fulltrúa í neina nefnd í deildum. Virðist þetta hafa orðið þeim og „Þjóðvarnarmönnum“ mik il vonbrigði. Þótt „Þjóðvarnar- menn“ hafi reynt að láta eins og þeir vildu ekki gera upp á milli kommúnista og Alþýðuflokks- manna í þessu máli, er bersýnilegt, að þeir hafa heldur kosið fram- gang þeirra fyrrnefndu. Afleiðingin af hjásetu þeirra hefði nefnilega orðið sú, aö kommúnistar hefðu fengið nefndarfulltrúana, ef ekki hefði náöst samkomulag milli Alþýðuflokksins og stjórnarflokk- anna. Reiði „Þjóðvarnar- manna" út af þessu sam- komulagi, stafar af því, að það varð þess valdandi, að þessi óbeina aðstoð þcirra við kommúnista bar ekki tilætlaðan árangur. Tvennt má því læra um afstöðu „Þjóðvarnarmanna“ af þessu máli: Þeir vilja ekki samstarf við aðra flokka, nema kommúnistar séu líka með, og sé um það að velja að Steingrímur Steinþórsson. veita aðstoð Alþýðuflokknum eða kommúnistum, kjósa þeir heldur að hjálpa þeim sxðarnefndu. Svo virðist, aö ekki aðeins komm únistum og „Þjóðvarnarmönnum" hafi gramizt það, að kommúnistar urðu af nefndarfulltrúunum. Stjórn ír.álaritstjóri Mbl. virðist af svip- uðu sauðahúsi. Hann hefir notað bandalag stjórnarflokkanna og A1 þýðuflokksins við þessar kosningar til árása á Alþýðuflokkinn. Virðist hér enn lifa í gömlum glæðum frá „nýsköpunartímanum" og sam- starfstíma íhaldsins og kommún- ista á ísafii'öi. Sjúkrahússtyrkurinn. Eitt þeirra mála, sem tekið var til fyrstu umræðu i vikunni, var frumvarp um breytingar á lögum um sjúkrahús. í frumvarpinu er gert ráð fyrir stórauknum rekstrar styi'k til þeii'ra sjúkrahúsa, sem rekin eru af sveitar- og bæjarfélög um. Miðar frv. þannig að því að stórbæta aðstöðu þeirra sjúkra- húsa, er starfa utan Reykjavíkur. Mbl. skýrði svo frá umræðunni um frv., aö helzt mátti halda, að hér væi'i um mál að ræða, er hinn nýi heilbrigðismálaráðherra, Ing- ólfur Jónsson, hefði undii'búið og látið flytja. Sama kemur fram í íslendingi, blaði Sjálfstæðismanna á Akureyri. Ingólfur tók það þó skýrt fram í framsöguræöunni, sem hann hélt, aö frumvai'pið væri undirbúið og lagt fram af fyrir- rennara sínum í sæti heilbrigðis- málaráðherra, Steingrími Steinþórs syni. Annar Sjáifstæðisflokksþing- maður, Jónas Rafnar, þakkaði Stein grími Steinþói'ssyni sérstaklega fyr ir afskipti hans og leiðsögu í þessu máli. Samt reyna Mbl. og íslending ur að láta líta þannig út, eins og Steingrímur Steinþórsson hafi hvergi nálægt þessu máli komið og Ingólfur Jónsson hafi einn um það fjallað. Er þetta gott dæmi um málefnahnupl það, sem íhaldsblöð in temja sér. Óhætt er að fullyrða, að fi'am- kvæmdir í sjúkrahúsmálum hafi aldrei vei'ið jafnmiklar hér á landi og eftir 1947, en á þeim árum, sem síðan eru liðin, hafa þeir Eysteinn Jónsson og Steingrímur Steinþórs- son verið heilbrigðismálaráöherrar. Var nýlega hér í blaöinu birt nokk urt yfirlit um þær miklu fram- kvæmdir, sem átt hefðu sér stað á þessu sviði á umræddu tímabili. Lán til frumbýlinga. Merkasta þingmálið, sem lagt var fram í vikunni, var tvímæla- iaust frv. fjögurra þingmanna Framsóknarflokksins um eflingu veðdeildar Búnaðarbankans. Megin efni þess er þetta: Pé opinberra sjóða og stofnana, t. d. Brunabótafélags íslands og Tryggingastofnunar ríkisins, skal að vissu rnarki varið til að kaupa bankavaxtabréf veðdeildarinnar. Landsbanki íslands kaupi verð- bréf af deildinni fyrir a. m. k. 10 millj. króna á næstu 10 árum. Ríkissjóður leggi deildinni til nýtt óafturkræft framlag, sem nemi 4 millj. kr. árið 1954, en síðan 2 millj. kr. árlega næstu 10 árin. Þessu framlagi ríkisins skal haldið sér og skal því eingöngu varið til frum býlalána þ. e. að veita efnalitlum mönnum, sem eru að byrja bú- 6kap, lán til að koma upp bústoíni og kaupa • verkfæri og vélar til búrekstrar. Það þarf ekki að fara um það mörgum orðum, hve nauðsynlegt sé að efla veðdeild Búnaðarbankans. Þó skiptir það sennilega mestu í þessu sambandi, að deildin geti veitt svokölluð frumbýlalán. Margt ungra manna verður að yfirgefa sveitirnar vegna þess, hve það er miklu dýrara að stofna heimili þar en í kaupstöðunum. Prumbýlalánin væru stórt spor í þá átt að stöðva þá öfugþróun. félagsins miklir andkommún istar, en vinnubrögð þeirra hérlendis hafa verið með þeim hætti, að kommúnistar hafa haft þar góða banda- menn. Það, sem rakið hefir verið hér á undan, eru þó engan veginn einu rökin fyrir því, að Hamiltonfélagið eigi að víkja. Þær framkvæmdir, sem félagið hefir með hönd- um, geta íslenzkir verktakar vel annast. Þess vegna er það eðlilegt íslénzkt metnaðar- mál, að íslenzlcir aðilar taki að sér þessar framkvæmdir. Eins og áður hefir veriö skýrt frá hér í blaðinu, er þaö nú til athugunar hjá hin um nýja utanríkisráðherra og samstarfsmönnum hans, hvaða endurbætur og skipu- lagsbreytingar þurfi að gera í sambandi við framkvæmd varnarmálanna. Margt hefir farið á annan veg að undan- förnu en æskilegt hefir ver- ið og þarf að læra af þeim mistökum, er þar hafa átt sér stað. Það, sem ekki sízt má læra af þeirri reynslu, er einmitt það, að þaö getur ver ið óheppilegt og skaðlegt að láta erlenda verktaka, sem eru ókunnir íslenzkum þjóð- hátturn og hafa ekki neinna hagsmuna að gæta hér, að sjá um framkvæmdir í sam- bandi við varnarmálin. Þess vegna hlýtur það að verða ein skipulagsbreytingin, sem koma verður á, að eingöngu íslenzkir aðilar annist þess- ar framkvæmdir. Meö því væri áreiðanlega stórt spor stigið til að koma í veg fyr- ir svipaða árekstra og átt hafa sér stað undanfarið og eru jafnt íslenzkum málstað og bandarískum til tjóns og leiðinda. Afengislagafrumvarpið. Meðal þeirra mála, sem tekið var til umræðu í efri deild í vikunni, var áfengislagafrumvarpið. Það er hið sama og dómsmálaráðherra flutti á þingi í fyrra, en þá var vísað frá til frekari athugunar og umsagnar. Ekki sést á greinargerö inni, hvort þessax-a umsagna hefir verið leitað. Sú breyting hefir þó verið gerð á frumvarpinu, að heim ildin til ölbruggunar hefir alveg verið felld niður. Að sumu leyti er þetta frv. vafa- laust til bóta, þótt það þai'fnist endurskoðunar við. Vafasamasta ákvæði þess er 20. greinin. Þar er lögreglustjórum veitt heimild til að veita leyfi til vínveitinga um- fram það, sem beint er heimilaö í lögunum, þ. e. að fyrsta flokks mat söluhús hafi v'|:nveitingaleyfi. Lengra á áreiðanlega ekki að ganga. Reynslan af því, hvernig undan- þáguheimild lögreglustjóra hefir Verið misnotuð, sýnir glöggt, að 20. greinin er með öllu óhæf, ef ekki er meiningin að gefa vínveitingarn ar alveg frjálsar. Ástandið í áfengismálunum er þannig, að æskilegt væri, að þingiö gæti nú sett nýja áfengislöggjöf. Að vísu er ekki þar með sagt, að það yrði allra meina bót, en með því væri þó gerð tilraun til endurbóta. Embættl handa Gunnari Thoroddsen. Eitt fyrsta frumvarpið, sem hinn (Framh. á 6. síðu.) Churchill ræðir griðasamning Margate, 9. okt. — Churc- hill mun flytja ræðu í dag á þingi brezka íhaldsflokksins og er búizt við, að hann ræði kalda stríðið í ræðu sinni og tillögur til samkomulags milli Rússa og vesturveld- anna. Muni hann leggja til, að Bretar hafi á nýjan leik frumkvæði að því að koma á fjórveldafundi. Einnig er bú izt við, að hann byggi á til- lögu þeirri, sem hann flutti á s. 1. vori um griðarsamn. ing milli vesturveldanna og Rússa. Frá sambandsráðs- fundi U.M.F.Í. Sambandsráð Ungmenna- félags íslands þ. e. stjórn þess og formenn héraðssamband- anna, héldu fund í Reykjavík 3. og 4. október s. 1. Meðal samþykkta fundarins voru þessar: íþróttamál. a) Ungmennasamb. Eyja- fjarðar falið að athuga mögu leika á því að landsmót U.M. F.í. 1955 verði haldið á Akur- eyri og það taki að sér undir- búning þess. b) Gerðar voru tillögur um íþróttagreinar á landsmótinu og verða þær birtar í næsta hefti Skinfaxa. c) Samþykkt áskorun til allra ungmennafélaga að skipa innan sinna vébanda æfingastjóra vegna íþrótta- iðkana og að héraðssambönd in útvegi sér héraðsíþrótta- kennara, annað hvort til stöð ugrar kennslu eða þá til leið- beiningar fyrir æfingastjóra. d) Skorað á Alþingi það, sem nú situr, að hækka fram lag sitt til íþróttasjóðs í kr. iy4 millj. e) Samþykkt að hvetja ung mennafélög landsins til að taka virkan þátt í starfsemi íslenzkra getrauna og veita þeim brautargengi, svo að þær geti sem fyrst veitt íþróttalífi þjóðarinnar fjár- hagslegan stuðning. Bendir fundurinn á þá leið, aö hvert ungmennafélag kjósi sérstaka nefnd eða umboðsmann, sem hafi forustu í þessum málum á viðkomandi félagssvæðum. Starfsíþróttir. J a) Fundurinn taldi nauð- synlegt að leiðbeinandi í ' starfsíþróttum starfi hjá U M. F.í. og ferðist milli einstakra , félaga. J b) Að unnið verði að því að fleiri greinar verði teknar fyr ir og sérstaklega þær, sem vel jhenta sjávarþorpum. j c) Að reynt verði að tengja I verkefni 4 H-félaganna við starfskeppnina. J d) Stjórn U.M.F.Í. falið að lathuga, hvort tök séu á því | að þiggj a boð Svíans Eric Sjödin um að koma til íslands Jnæsta sumar og ferðast um landið og kynna starfsemi Jordbrukara — ungdomens förbund og starfsemi 4 H-fé- laganna í Svíþjóð. e) Héraössamböndin hvött til að koma upp starfskeppni á mótum sínum eða sjálf- stætt. f) Fundurim\ þakkaði land búnaðarráðuneytinu, Stéttar- sambandi bænda og Búnaðar félagi íslands þá velvild, skiln ig og hjálp, sem þessir aðilar hafa sýnt umfÍ við það að koma starfsíþróttum á hér á landi. i V Norrænt æskulýðsmót. Fundurinn fagnar þeirri á- kvörðun að norrænt æskulýðs mót verði haldið hér á landi næsta sumar og samþykkir að kjósa 5 manna nefnd, er vinni að undirbúningi þess í sam- ráði við stjórn UMFÍ. Jafn- framt hvetur fundurinn ís- lenzka ungmennafélaga til að fjölmenna á mótið. Menntamál. a) Fundurinn þakkar Sig- urði Greipssyni ágætt starf í þágu íþrótta- og félagsmálá með skólahaldi í Haukadal og heitir á Umf. að styðja þann (Fi'amh. á B. síðu.)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.