Tíminn - 18.11.1953, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.11.1953, Blaðsíða 3
262. blaff. TÍMINN, miðvikudaginn 18. nóvember 1953. 3 ísíendirLgajpættir Sjötugur: Guðlaugur Einarsson Mér þykir hlýða að minn- ast þessa gamla Holtamanns, því að slíkan telur hann sig, þótt lengi hafi nú dvalið í Hafnarfirði. Guðlaugur fæddist 25. sept. 1883. Foreldrar hans slitu samvistum er hann var ó- málga barn og ólst hann upp á Arnkötlustöðum, fram á þroskaaldur og við ástríki fósturforeldra og fóstursyst- kina. Ber hann enn í hjarta sínu hlýju til þessa góða fólks og mun bera til ævi- loka. Hefir hann tjáð mér, aö álfaslóðir sínar eða hugð- arlönd séu umhverfis Arn- kötlustaði. Er og þaðan -skammt til Meiri-Tungu (er fyrr hét Moldartunga) en þar átti hann snemma holl- vini, þá bræður Þorstein og Bjarna. Eigi veit ég gerla, hvað varð um Einar íoður hans, mun hann hafa verið hógværðarmaður, en fremur auðnulaus, ef miðað er við veraldarframa. Móðir Guð- laugs giftist síðar Þorleifi Gu.ðmundssyni, og átti með honum son, Sigurþór að nafni, hagleiksmann mikinn og völund við fínasta smíði. Guðlaugur varð brátt væn- legur maður, snoturmenni á- sýndum, eigi mikill vexti, en vel að sér gerr. Hann ól í brjósti sér menntaþrá og mun hafa lært í Flensborg. Gerðist hann litlu síðar kenn ári í Holtum við ágætan orð- stír. Mun hafá kennt í 3 vet- ur. Er mér kunnugt um hlýju þel til hans í brjóstum fimm- tugra manna, er nutu fræðslu hans. En nú hvarf Guölaug- ur að því ráði, sem flestir ungir menn grípa til. Hann festi sér konu, Kristínu Krist jánsdóttur frá Marteins- tungu, fríðleiks konu og vel gefna og með hagar hendur við hannyrðir og sauma. — Hófu þau búskap í Litlu- Tungu í Holtum árið 1916. Bjuggu þar litlu en snotru búi um fimm ára skeið. — Heiðraði hann Landmanna- afrétt með því að reka þang- að nokkur lömb á þessum ár- um. Eigi veit ég, hví Guð- laugur breytti nú ráði sínu og hvarf til Hafnarfjarðar og hefir dvalizt þar alla tíð síð- an, ef ég veit 'rétt. Því miður hefir vanhafilsa þjajð konu hans árum saman og hefir sú vanheilsa komið sárt við Guð láug, svo viðkvæman mann. Mörg síðustu árin hefir Guð- laugur handleikið helzt haka og skóflu og unnið venjulega verkamanna- vinnu. Hvers vegna hann varpaði frá sér penna og griffli kennarans og síðar orfi og ljá bóndans, veit ég ekki gerla, en eitt veit ég, að eigi skorti hann vit til and- legra starfa né hyggindi til búsýslu. En látum hann um það. Vera má, að hann hafi eigi fundið þarna rétta hillu eða þá að atvik eöa glettni örlaganna hafi ýtt honum fram í flæðarmálið — „mig fýsti á liðnum degi um flæð- armál að sveima, en fann þó reyndar á mér að betra væri heima", kvað Sandskáldiö um séra Sóta! Mig grunar, að Guðlaugur hafi oft fundið, að betra liefði veriö sjálfstæði bónd- ans, en eyrarvinna í Hafn- arfirði. En þó mun hann eigi viöurkenna, að hillan hans sé röng eða á nokkurn hátt ósamboöin honum, því að rót allrar ráðabreytni er í mann inum sjálfum. Hygg ég, að eigi sé heiglum hent að koma Guðlaugi í rökþrot, því að hann er stórgáfaöur maður, (ef ég má treysta mínu eig- in viti og dómgreind). Það er skammt síðan, að ég kynntist þessum Holtamanni, var það yfir molduni Þórunnar sál. í Meiri-Tungu. Vorum við sessunautar í erfidrykkjunni og tjáði hann mér, að hann hefði ritað nokkur orð um fermingarprest sinn, sr. ó- feig Vigfússon, föður minn. Ég hafði nýlesið eftir hann snjöllustu dánarminningu er ég hefi séð, og snilld hans vakti forvitni mína. Þannig hófust kynni okkar, góðu héilli. Það er ein spurning, senr vaknar í huga mér, er ég hugsa um þennan sjötuga mann og greinilega átti í öndveröu mörg og verðmæt pund: átti fátækt hans að slenlinja í honuin sjálf- um, (Magnús sálarháski smíð aði þetta nýyröi) sök á því, að íslenzka kirkjan var svik- in um andríkan prest og ráð- vandan þjón? Þarna var hill- an hans og þarna hefði hann sómt sér bezt, eins og bók á hillu í skrautbandi, í . beztu stofu borgaranna! En engu verður um þokað og GuÖlaug ur kennir engurn neitt, helzt þó sjálfum sér, því að hann er auðmj úkur, trúhneigöur maöur. Nokkurn þjóðlegan fróðleik hefir hann skráð, en annars er hann orðinn svo vanur að grafa með skóflu og haka aö hann hefir óvilj- andi kannske grafið 1 eða 2 pund af mörgum í jörðu nið- ur. En hann er ekki einn um það. — Ég óska honum að end- ingu kvöldfriöar og blessun- ar og þakka honum af heil- um hug óverðskuldaðan vin- arhug. Tel ég vináttu hans mér til handa meðal góðra gjafa, er stjarnastjórnin hef ir veitt mér. „Dularlög sem- ur stjarnastjórnin“ kveður Einar Benediktsson og þau dularlög eru líklega bak við örlög hins gáfaða manns GuÖIaugs Einarssonar eins og annarra manna. En bezt er að hætta sér ekki lengra inn í þokuna. Guölaugur! Guð blessi þig og konu þína og gefi ykkur frið. R. Ó. Brúin á Kerl- Vegna greina bæði í Tímanum og Morgunblaðinu þykir rétt að birta hér ræðu Páls Zophoníassonar við 7. umr. um brúarlögin í efri deild, en þar bendir hann á að meö því að Alþingi samþykkti í fyrra að brúa Kerlingardalsá, hefði það raunverulegá einnig samþykkt að ! brúa Múlakvísl á svonefndri syðri 'leið. I j Herra forseti! j Það er ekki á neinn hátt ,til þess að leggja stein í götu þessa frumvarps, sem hér er á ferðinni, sem ég kveð mér hljóös, heldur til að benda á . það, aö á siðasta þingi var í raun og veru þetta ákveðið. iÞá var byrjað að brúa Kerl- ^ ingadalsá, sem er á þessari syðri leið, enda þótt brúin ,væri ekki þá og sé ekki enn komin í brúarlög. En hún var , önnu.r af þeim tveim ám. sem verður að brúa, svo að syöri , leiðin verð'i fær. Með þessu fékk sá þingmaður V.-Skaft- fellinga, er þá sat á Alþingi, því slegið föstu, að syöri leiðin austur yfir Mýrdalssand yrði farin, en ekki hin um Höfða- brekkuheiði. Af þessu leiðir að Múlakvísl verður brúuð, hvað 'sem samþykkt þessa frum- jvarps líður, því ella væri lítið vit í að hafa byggt brúna á j Kerlingadalsá. Það er því jnokkurn veginn sama, hvort jfrumvarpið verður samþykkt ! eða ekki. Það er þegar búið að lákveða af Alþingi með fjár- j veitingu til Kerlingadalsárbrú arinnar og nú bygginu henn- ar, að fara syðri leiðina og ég vænti þess, að það verði eng- inn þingmaður til þess að leggja stein í götu þess. Ef hv. þm. sýslunnar þykir eitthvað léttara fyrir sig að fá fjárveit ingu til brúar á Múlakvísl með því að fá hana fyrst tekna í brúarlög, heldur en að fá sam þykkta fjárveitingu til brúar á Múlakvísl, þó að hún sé ekld á brúarlögum, eins og fyrir- rennara hans Jóni Gíslasyni tókst með Kerlingadalsána í fyrra, þá sé ég ekkert á móti því að gera það. En ég tel mál ið þegar afgert í fyrra á Al- þiiigi. þegar ákveðið var að brúa Kerlingadalsá, því að af- leiðing af því hlaut að verða sú, að Múlakvísl yrði brúuð síöar, enda margoft á það bent þá af Jóni Gíslasyni. Enska knattspyrnan Úrslit s. I. laugardág: 1. deild. Arsenal-Bolton 4-3 Aston Villa-Middlesbro 5-3 Blackpool-Tottenham 1-0 Cardiff-Manch. Utd. 1-6 Chelsea-Burnley 2-1 Huddersfield-Sheff. Wed. 2-0 Manch. City-Newcastle 0-0 Portsmouth-Preston 1-3 Sheff. Utd.-Charlton 1-1 Sunderland-Liverpool 3-2 Wolves-West Bromw. 1-0 2. deild. Blackburn-Nottm. Porest 2-0 Brentford-Plymouth 1-0 Bristol Rovers-Swansea 0-1 Bury-Leeds Utd. 4-4 Derby-Luton Town 1-2 Doncaster-Birmingham 3-1 Everton-Fulham 2-2 Hull City-Stoke City 1-2 Lincoln-Rotherham 4-3 Notts County-Leicester 1-1 Oldham-West Ham 3-1 z s ] Rafmagnsvörur | | Krónuklemmur úr nylon og plasti I i Mótortengi | Straujárnsfalir meö og án rofa i Snúrurofar | Loft og veggfalir P Lampafalir 1 og einangrunarbönd I stærðir. 71 i 5 E | Véla og raftækjaverzlunin f 1 Tryggvag. 23 — Sími 81279 j iiuiiiiiiiiiiiiiiiiiuiimnuiiimiiiiimiiiiiiuiiiiiiMiuitui Leikur efstu liðanna í 1. deild vakti mesta athygli á laugardaginn. Var hann afar tvísýnn, og var West Brom- wich óheppið að bíða lægri hlut. Er nú aðeins eins stigs munur á þvi og Úlfunum, og Huddersfield, sem komst upp úr 2. deild í vor, er í þriðja sæti, með þremur stigum minna. Þessi þrjú lið skera sig mjög úr. En snúum okkur aftur að leikmim. — Mullen hjá Úlfunum skoraði strax í byrjun leiksins, og þrátt fyr ir mörg opin tækifæri hjá báðum liðum, varð það þó eina markið í leiknum. Hraöi var mikill og gengu upphlaup in á víxl. West Bromwich átti m. a. tvö stangarskot, en það var eins og knötturinn vildi ekki í markið. Undir lokin varð leikurinn nokkuð cinhæfur. West Bromwich sótti fast, en Úlfarnir fóru allir í ’.'örn og tókst að halda markinu hreinu. Þau úrslit, sem mest komu á óvart á laugardaginn var hinn mikli sigur Manch. Utd. yfir Cardiff. Virðist nú eitt- hvað vera - að rofa til hjá Manchester, sem verið hefir ;jafnas<-a liðið í Englandi eft- J ir styrjöldina. En eftir að liö- ið vann deildakeppnina fyrir tveimur árum, rná segja, aö það hafi verið í öldudal. — Arsenal er nú á góðri leið með aö verða eitt bezta liðið í deildinni, og hefir ekki tap- að leik í mánuð. Preston vann Portsmputh að venju. Tom Finnéy leikur nú með Preston aftur cítir meiðsli og hann átti aöalþáttinn í sigrinum á laugardaginn. Lék hann hvað eftir annað í gegnum vörn Fortsmouth, skoraöi eitt mark sjálfur eftir sóló-unp- hlaup, var brugðið í annað skipti, og var dæmd vita- spyrna, sem skorað var úr, og í þriðja skiptið lagði hann knöttínn fyrir Morrison, sem þurfti lítið annað, en renna homun í markið. í 2. deild er keppnin orðin sérstaklega skemmtileg. Don caster er nú aftur komið i fyrsta sætið, hefir ívið bctra markahlutfall en Leicester. Doncaster hafði mikla yfir- burö'i gegn Birmingham og aðeins frábær leikur mark- rr.anns Birmingham, Merr- ich, bjargaði liðinu frá mun meira tapi. I.uton vann Der- by, þrátt fyrir að liðið missti mann snemma í síðari hálf- leik. Mitchell skoraöi bæði mörkin. Staðan er nú þannig: 1. deild. Landskeppnin í bridge HarSar Þárðarsonar sigraði Á mánu.dagskvöldið lauk landskeppni í bridge meö sigri sveitar Harðar Þórðar- sonar, Reykjavík, er hlaut 12 stig. Keppnin var yfirleitt mjög tvísýn og voru úrslit óviss fram til loka keppninn- ar. Eftir fyrstu umferöirnar, en þær voru aíls sjö, leit helzt út fyrir. að sveit Sigurðar Kristjánssonar, Siglufirði, myndi bera sigur úr býtum, en Sigurður vann Hörð í þriðju umferð. í fimmtu um- ferð breyttist staðan aftur þar sem Sigurður tapaði fyrir sveit Karls Friðrikssonar, Ak- ureyri, en við það komst Hörð ur ásamt sveit Gunngeirs Pét urssonar, Reykjavík, í efsta sætið. í sjöttu umferð mætt- ust svo efstu sveitirnar og sigraði Hörður þá Gunngeir. Lokastaðan í keppninni varð þannig: Sveit Harðar Þórðarsonar varð íslandsmeistari, en í sveitinni auk Harðar eru Ein- ar Þorfinnsson, Gunnar Guð- mundsson, Kristinn Bergþórs son og Lárus Karlsson. 2. Sveit Sigurðar Kristjánsson ar, Siglufirði, 11 stig. 3, Sveit Gunngeirs Péturssonar, Rvík, 9 stig. 4. Sveit Einars Guðjohn sen. Rvík, 8 stig. 5. Sveit Karls Friðrikssonar, Akureyri, 8 stig. 6. Sveit Ásbjarnar Jónssonar, Rvík, 6 stig. 7. Sveit Esther Pétursdóttur, Rvík, 3 stig. 8. Sveit Ólafs Guðmundssonar, Hafnarfirði, 0 stig. í einstökum umferðum fóru leikar þannig: 1. umferð: Ás- björn vann Esther (55-34), Karl vann Ólaf (58-49), Plörð- ur vann Einar (64-37), Gunn- geir og Sigurður gerðu jafn- tefli (52-49). 2. umferð: Karl vann Est- her (43-23), Gunngeir vánn Ásbjörn (39-24), Sigurður vann Einar (48-29), Hörður vann Ólaf (69-29). 3. umferð: Ásbjörn vann Einar (48-41), Gunngeir vann Karl (42-31). Ester vann Ólaf West Bromw. 18 13 2 3 47-22 28 Wolves 18 11 5 2 44-25 27 Huddersfield 18 11 3 4 35-19 25 Burnley 18 11 0 7 39-32 22 Bolton 17 Ö 5 4 35-26 21 Blackpool 17 9 3 5 34-26 21 Charlton 18 10 1 7 41-35 21 Cardiff 18 7 5 6 21-28 19 Maneh. Utd. 18 5 8 5 27-25 18 Arsenal 18 7 4 7 37-35 18 Sheff. Wed. 19 8 2 9 33-41 18 Preston 18 8 1 9 44-28 17 Tottenham 18 8 1 9 28-29 17 Aston Villa 17 8 1 8 29-30 17 Newcastle 18 5 5 8 33-37 15 Liverpool 18 4 5 9 34-44 13 Sheff. Utd. 17 5 3 9 25-36 13 Chelsea 18 5 3 10 30-43 13 Manch. City 18 4 5 9 21-36 13 Sunderland 17 5 2 10 37-46 12 Portsmouth 18 4 4 10 36-49 12 Middleshro 18 4 4 10 28-45 12 2 deiid. Doncaster 18 12 1 5 33-20 25 Leicester 18 9 7 2 39-24 25 Everton 18 9 6 3 37-27 24 Nottm. Forest 18 10 3 5 41-26 23 Biringham 18 8 5 5 40-24 21 Rotherham 19 10 1 8 35-34 21 Lincoln City 8 8 4 6 31-23 20 Blackhurn 17 7 6 4 31-26 20 West Ham 18 8 3 7 35-28 19 Leeds Utd. 18 6 7 5 42-37 19 Stoke City 19 5 9 5 31-30 19 jLuton Town 18 6 7 5 30-29 19 1 Bristol Rov. 18 5 7 ’ 6 •36-30 17 , Swansea 18 7 3 8 25-32 17 J Derby County 17 6 4 7 31-34 16 j Fulham 18 5 5 8 37-41 15 i Brentford 18 5 5 8 17-34 15 ÍHull City 18 6 1 11 20-28 13 Plvmouth 18 2 9 7 23-32 13 Oidham 18 4 4 10 18-33 12 Notts County 18 4 4 18 21-42 12 Bury 18 2 7 9 22-42 12 (57-40), Sigurður vann Hörð (53-31). 4. umferð: Gunngeir vann Ólaf (73-40), Einar vann Karl (69-31), Sigurður vann Ásbj. (51-33), Höröur vann Esther (44-18). 5. umferð: Karl vann Sig- urð (30-24), Einar vann Ólaf (62-42), Gunngeir vann Ester (43-27), Hörður vann Ásbjörn (36-22). 6. umferö: Einar vann Est- her (29-19), Sigurður vann Ólaf (42-33), Karl vann Ásbj. (62-34), Hörður vann Gunn- geir (47-32). 7. umferð: Sigurður vann Esther (75-32), Ásbjörn vann Ólaf (50-37), Hörður vann Karl (57-41), Einar vann Gunngeir. í næsta bridgeþætii Tímans næst komandi laugardag munu verða sýnd spil frá keppninni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.