Tíminn - 23.12.1953, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.12.1953, Blaðsíða 1
Rítstjórl: SNSrarlim Þórarlruwoa Útgefandi: Pramsóknarílokkuxlnn L r-*-*-*-*~*-*~-—1 Skrlístofur 1 Edduhúsi Fréttasímar: 81302 og 81303 Aígrelðslusíml 2323 Auglýsingasíml 81300 ! PrentsmlSjan Edda 17. árgangur. Reykjavík, miðvikudaginn 23. desember 1953. 292. blað. Friðarhorfur hafa aukízt jafnframt varnarstyrk Atlanzhafsríkjanna Eætt 'við tlr. lirisílu íiuðinimdsson. utan- ríkisráðlserra uaai ráölierriii'iiiidi Evrójiu- ráósius og I^.-;lálnnls!iafs!iamialagsins Dr. Kristinn Guðmundsson, utanríkisráðherra, kom heim úr Parísarför sinni á sunnudaginn, þar sem hann sat tvo ráðherrafundi samtaka, sem ísland er aðili að.. Blaðið átti tal við dr. Kristin í gær um helztu viðfangsefni þéssara funda. — Hvert var erindið til Parísar? — Það var að mæta á tveim fundum fyrir íslands hönd, ráðherrafundi Evrópuráðsins hinum 13. í röðinni og ráð- herrafundi Norður-Atlants- hafsbandalagsins. — Ef vikið er fyrst að Ev- rópuráðinu, hver voru helztu verkefni þess fundar? — Þau voru tvíþætt, ann- ars vegar undirritun nokk- urra samninga og hins vegar almenn fundarstörf. Samning ar þeir, sem undirritaðir voru, eru fimm, þrír þeirra félags- málasamningar, einn um einkaleyfi og einn um gagn- kvæm prófréttindi, þannig, að öll löndin, sem hér eiga hlut að máli, skuldbinda sig til að taka gild menntaskóla- próf hvers hinna landanna til háskólanáms án sérstakra prófa, en svo hefir ekki verið um öll þessi lönd til þessa. Gagnkvæm félagsleg réttindi. Pélagsmálasamningarnir fjölluðu um gagnkvæm félags leg réttindi manna í þessum löndum, svo sem til ellilauna, sjúkrasamlaga o. fl. þannig, að hver einstaklingur hafi sömu félagsleg réttindi í hverju þessara landa, sem hann væri þar borgari. — Hvernig fór um aðild Saar að þessum málum? — Undirritun samning- j anna hafði dregizt vegna ósamkomulags um þetta efni, ! en nú var sú bráðabirgðalausn fundin, að van Zeeland, for- sætisráðherra Belgíu, undirrit aði samningana fyrir hönd Saar. Rætt um stjórnmálasamband. — Hver voru helztu um- ræðuefnin á fundinum? — Þau voru ýmisleg, en meðal þeirra má nefna sér- ’stakt stjórnmálasamband j milli Þýzkalands, Belgíu, Hol- lands, Luxemburg, Frakk- lands og Ítalíu. En það voru aðeins umræður en engar ákvarðanir. Þá var allmikið rætt um flóttamannavandamálið og skipaöur sérstakur fulltrúi til að athuga þau mál og undir- búa tillögur fyrir næsta fund. Þetta er mikið vandamál í mörgum Evrópulöndum, sem eiga við mikla offjölgun að stríða vegna flóttamanna- straumsins. Fundur Atlantshafsráðsins. — Hvenær hófst svo fund- ur ráðherranefndar Norður- Atlantshafsráðsins? — Hann hófst 14. des. og stóð í þrjá daga. — Og umræðuefnið? — Að sjálfsögðu ástandið í alþjóðamálum, og bar þá Komnir af jöklinum, kom- ust aldrei að flakinu í gærkvöldi komu björgunarleiðangrarnir af Mýrdals- jökli til byggða, án þess að komast að flaki flugvélarinnar. Voníííið er nú taiið að menn þeir, sem lifandi hafa komizt frá slysinu séu á lífi ennþá, enda ekkl talið líklegt, að nokk- ur maður haíi sloppið nema þá mikið særður. um bíða Bandaríkjamenn með sjúkrabíla og helikopt- er, sem ætlunin er að fljúga á að slysstaðnum. Ekki var þó fært í honum í gær, vegna þoku og hríða. Dr. Kristinn Guðmundsson, utanríkisráðherra. fyrst og fremst á góma, hver stefna Ráðstjórnarríkj anna væri. Fundurinn áleit, að allar sannanir vantaði fyr ir því, að um nokkra stefnu- breytingu hjá þeim væri að ræðá, að minnsta kosti að því er snerti lokatakmark þeirra. Niðurstaða þess varð þá eðlilega sú, að ekki gæti heldur orðið um neina (Framhald á 2. iðu). Bandarísku veðurskipin halda áfram á Norður-Atlanzhafi Minnizt vetrar- hjálparinnar í dag í dag er Þorláksmessa. Þann dag hefir vetrarhjálpin helg- að sér til lokaátakanna í söfn uninni til bágstaddra í bæn- um, og nú er nauðsyn, að það heppnist vel. Þetta er því síð- asta tækifærið, sem borgur- unum gefst til þess fyrir þessi jól að leggja fram skerf til aö gleðja bágstadda, sjúka og ellihruma og gefa þeim hlut- deild í jólagleðinni. Látið það tækifæri ekki líða hjá. Skrifstofa vetrarhj álparinn ar er í Thorvaldsensstræti 6. Björgunarmenn komust aldrei að flugvélarflakinu, en sáu það úr nokkurri fjar- lægö. Er flugvélin mikið í molum og varla nokkur hluti hennar heillegur að sjá, nema stéliö. í gær var enn illt veður á jöklinum. Dagurinn hófst með stórhriS og eldingum, en þegar ekki var úrkoma, var oftast þoka, sem gerði leitar- mönnum erfitt fyrir. Haldið til byggða. Árni Stefánsson komst til leiöangursmanna, sem biðu í snjóbilunum og færði þeim benzín og annan útbúnað. Mátti ekki tæpara standa að hann kæmi, því bilarnir voru þá alveg að verða benzín- lausir. Búizt var við öllum leiðangursmönnum, sem eft- ir voru á jöklinum til byggða um kl. 10 í gærkvöldi. Koptinn bíður. Aö Skógum undir Eyjafjöll Tilraunir haMa áfravn Samkvæmt tilkynningu frá varnarliðinu í gærkvöldi verð ur tilraunum til að komast að flakinu á Mýrdalsjökli hald- ið áfram. Þyrilvængjan bíður 1 lags í Skógum, og hefir feng- iö þangað nauðsynlegar birgð ir með Douglas-flugvél. í Skógum eru einnig tveir hjúkrunarliðar og læknir til taks. „Skreið” Jóhann Hafstein í próf- kosningunni? Sjálfstæðisflokkurinn birti um helgina lista sinn. : við tilvonandi bæjarstjórn- arkosningar í Reykjavík. í ( sunnudagsblaði Morgun- I blaðsins var mjög gumað af því, að Sjálfstæðisflokk- I urinn væri eini flokkurinn sem hefði prófkosningu og færi eftir henni við skipun listans. í sambandi við það vakti það nokkra athygli, að Jóhann Hafstein er í 8. sæti á listanum — síðasta sætinu, sem flokkurinn á nú í bæjarstjórn, en hefir raun ar enga von um að hljóta í vetur. Er ekki hægt að draga af því aðra ályktun en Jó- hann hafi aðeins „skriðið“ í prófkosningunni eða verið lægstur þeirra, sem til greina koma í bæjarstjórn af flokksins hálfu. Það eru athyglisverðar upplýsingar út af fyrir sig. Tíu efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins eru (Framhald á 2. íðu). I Eru viðskiptin við Daw- son úr sögunni í bili? Læíar hafa það eftir sér í hrczku hlaði, að lianu kaupi ckki mciri fisk af Islending'uiBt Ný yfirlýsing liaudarísku stjórnarmnar I Washington, 22. des. — Bandaríska stjórnin hefir brevtt fyrri ákvörðun sinni um að draga sig út lir alþjóðlegri sam- j vinnu um veðurathuganir á Norður-Atlantsliafi. Lýsti stjórn : in yfir í dag, að hún mundi halda áfram samstarfinu viö þau fjórtán ríki, sem þessa þjónustu hafa annazt og eiga veðurathuganaskip á þessum hafslóðum. Brezka blaðið Fishing News heldur því fram, að Dawson sé nú búinn að slíta allri samvinnu við íslenzka togara- eigendur og séu engar horfur á því, að hann fái meiri fisk frá íslendingum. Þetta var tilkynnt skrif- stofu alþjóðlegu veðurþjón- ustunnar í Montreal, en jafn framt tekið fram,, að út- gjöld Bandaríkjanna af þessu verði að lækka. Eiga 14 skip. Bandaríkjamenn hafa lagt til 14 skip af þeim 25, sem annast veðurathuganir á þessutn slóðum, og það hefir kostað sem svarar 200 millj. ísl. króna á ári. Mikilsvert fyrir ísland. Það er talið mjög mikils- vert fyrir veðurþjónustuna á íslandi, að þessi bandarísku veðurathuganaskip hætti ekki störfum, því að án þeirra yrði mjög erfitt að fylgjast með ferðum lægða á þessum slóðum. Hver síðastur að ná í jólatré Land- græðslnsjóðs í portið við Laugaveg 7 eiga margir erindi þessa dagana. Þeir eru að sækja sér jólatré, sem Land- græðslusjóður hefir þar til sölu og á fleiri útsölustöð- um í bænum. Þetta eru mjög falleg jólatré, mörg mjög glæsileg, enda vel valiin af þeim, sem hingað sendu þau, Heiðafélaginu danska. CFranaúbald & 2. síðu). Hefir blaðið þetta eftir Daw son sjálfum eða viðtali við hann í brezku sunnudags- blaði. Hins vegar segist Dawson þar ætla að halda áfram fisk- verzlun. Jafnframt hefir orð rómur.gengið um það í Bret- landi, að Dawson ætli að kaupa Ross Group og hefir Vincent framkvæmdastjóri þess fyrirtækis neitað því, að fyrirtækið hafi verið selt kaupsýslumanni í Lundúnum. Heldur Vincent því fram, að Dawson eigi ekki peninga til að kaupa fyrirtækið, þótt hann feginn vildi. í sama blaði lýsir formaður brezkra togaraeigenda yfir því, að hann búist við meiri möguleikum til samkomulags við íslendinga, þegar Dawson er hættur að kaupa fiskinn. Segir Baker formaður, að hann hafi alltaf vitað, að það yrði til óheilla að Dawson færi að skipta sér af þessum. málum. Allir hefðu mátt vita, að hann gæti ekki brotið á bak aftur þá erfiðleika, sem á vegi hans yrðu. Á

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.