Tíminn - 23.12.1953, Blaðsíða 8
S7. árgangur.
Reykjavík,
23. desember 1953.
■292. blað.
Hié á atkvæðahríðinni
i franska þinginu í gær
Verkíöi! ógna nís sansgöegsim í Frakklandi
j
París, 22. des. — Eftir heitar umræður í franska þinginu í
dag úrskurðaði forseti fulltrúadeildarinnar, Herriot, að 11.
umferö forsetakosninganna skyldi fara fram fyrir hádegi
á morgun. Sumir vildu að kosning færi fram strax, aðrir
að ekki yrði kosið fyrr en annaö kvöld. Menn draga mjög í
efa, að nokkur árangur verði af þessari umferð fremur en
hinum tíu. —
Hléið, sem nú heíir orðið á.
kosningunni.i stafar af því,
að flokkarnir eru að reyna
að koma sér saman um for-
setaefni, er víst sé að njóti
fylgis meirihluta þingmanna.
Laniel hefir tilkynnt fram-
boð sitt í 11. umferð. Jafn-
aðarmenn eru taldir vilja
gera Herriot, forseta þings-
ins, sem nú er 82 ára, að for-
seta.
Frakkland logar
f verkföllum.
Starfsmenn við flugvelli í
RússarogNorðmenn
þreyta skauta-
keppni
Moskva, 22. des. Tass frétta
stofan sendi rússnesku blöðun
um fréttatilkynningu í dag,
þar sem skýrt er frá lands-
keppni þeirri í skautahlaupi,
sem fram fer á milli Rússa og
Norðmanna næstu daga. Segir
í tilkynningunni, að Norð-
menn sendi sitt sterkasta lið.
Norsku keppendurnir leggja
af stað flugleiðis til Rússlands
á morgun.
Biður fyrir þakkir
til Hjálpræðis-
hersins
Blaðið hefir verið beðið
að geta þess í sambandi við
frásögn þess í gær af fatl-
aða styrkþeganum, sem und
anfarnar nætur hefir orðið
að bíia með konu og barn í
baðherbergi í Hjálpræðis-
hernum, að húsráðendur í
Hjálpræðishernum hafi frá
upphafi sýnt þessum veg-
leysingja Reykjavíkurbæj-
ar einstaka hjálpseml og
umhyggjusemi. Lct forstöðu
konan hjónin þegar í upp-
hafi fá sæmilegt herbergi,
þótt engin greiðsla kæmi
fvrri, og bjuggu þau þar all
lengi, en þar kom að ekki
var hægt að vera án her-
bergisins, og þegar hjónin
áítu þá engan næturstað
nema götuna, léði hún þeim
skjól i baðlierberginu, eins
og frá var skýrt. Hefir mað
urinn beðið blaðið að flytja
forstöðukonunni innilegar
þakkir sínar fyrir alla
hjálplna, sem varð einasta
björg hjónanna.
í gær rættist svo úr mál-
um þeirra hjóna, að sam-
býlismaður þeirra, sem þau
urðu að flýja frá, hafði
fengið annan samastað um
sinn, og munu þau þvi geta
flutt heim í braggann I dag.
Sí&ustu frétíir:
Seint í gærkvöldi barst
fregn um að Laniel hefði
tekið framboð sitt aftur.
Virðist hann að lokum hafa
látið undan kröfu róttækra,
en þeir eru honum mjög
andvígir. — Óstaðfestar
fregnir herma, að samkomu
lag hafi orðið milli flokk-
anna um að gera René Coty
að forseta. Coty er íhalds-
maöur og á sæti í efri deild
franska þingsins.
Frakklandi hafa verið í verk-
falli i viku. Hafa ílugferðir
allra helztu flugfélaga til
Parísar lagzt niður af þess-
um sökum. í dag lögðu svo
póstþjónar þeir, sem vinna
að aðgreiningu bréfa og
böggla, er koma með járn-
brautum til Parísar niður
vinnu við allar járnbrautar-
stöðvar í París, nema einni.
Póstmenn, er vinna að þess-
um sömu störfum, gerðu einn
ig verkfall í mörgum borg-
um í Norður- og Vestur-
Frakklandi. Mikil hætta er
talin á því, að v*erkfall þetta
muni innan skamms ná til
allra greina póstþjónustunn-
ar og jafnvel til símastarfs-
fólks. Verkfallsmenn krefj-
ast bættra launakjara.
Bændur í vígahug.
Megn óánægja gerir vart
við sig meðal bænda í Frakk-
landi vegna þeirrar stefnu,
sem stjórnin fylgir í verðlags
málum landbúnaðarins. Hef-
ir nú soðið upp úr og fregnir
herma, að víða um Frakk-
land safnist bændur saman
til mótmælafunda. Hafa þeir
, víða sett upp hindranir á
þjóðvegum og hlaðið sér götu
vígi. í Mið-Frakklandi og í
mörgum stórborgum hefir
verið boðið út miklum fjölda
varalögregluliðs, ef til óeirða
skyldi koma.
Fjöldafundir krefj-
ast dauðadóras
yfir Beria
Moskva, 22. des. Þetta er
fjórði dagurinn í röð, sem
fjöldafundir eru haldnir í
Rússlandi til að krefjast
dauðadóms yfir svikaranum
Beria og fylgifiskum hans.
Fundir þessir snúast æ meir
upp í árásir á það, sem kallað
er hin alþjóðlega heimsveldis-
stefna, en hún, segja ræðu-
mennirnir, ógnar tilveru Ráð-
stjórnarríkjanna og hefir á að
skipa heilum her hermdar-
verkamanna, njósnara og
morðingja og föðurlandssvik-
arinn Beria var einn úr
þeirra hópi.
Togararnir reynd-
ust ekki að land-
' helgisveiðum
í tveim greinum í Alþýðu-
blaðinu 12. maí s. 1. var fjöldi
togara, erlendra og íslenzkra,
sagour að veiöum í landhelgi
á Selvogs- og Eldeyjarbanka
um og eftir mánaðamótin
apríl—maí s. 1.
Af þessu tilefni fyrriskip-
aði ráðuneytið þegar réttar-
rannsókn í málinu. Varð sú
rannsókn allumfarigsmikil
með því að mikill fjöldi tog-
ara hafði verið þarna að veið
um, og voru, auk ritstjóra
Alþýðublaðsins, yfirheyrðir
skipstjórar og loftskeyta-
menn á 33 ísl. togurum, sem
voru að veiðum á Elaeyjar-
og Selvogsbanka og út af Snæ
fellsjökli um og eftir 1. maí
og auk þess aðrir skipsmenn
á sumum þessara togara.'
Við réttarrannsókn þessa
komu ekki fram neinar lik-
ur fyrir þvi að ísl. togarar
hafi almennt brotið landhelg
islöggjöfina á framangreind
um tíma, né heldur sannan-
ir fyrir slikum brotum af
hálfu nokkurs einstaks skips.
(Dómsmálaráðuneytiö, 22.
des. 1953).
Listi Framsóknarmanna
á Akureyri kominn fram
Framsóknarmenn á Akureyri hafa lagt fram framboðs-
lista sinn við bæjarstjórnarkosningarnar í vetur. Var hann.
einróma samþykktur á sameiginlegum fundi Framsóknar-
félaganna á Akureyri á fimmtudagskvöldið, en áður hafði
fulltrúaráð félaganna gengið frá honum og samþykkt hann.
Listinn er þannig skipaöur:
1. Jakob Frímannsson,
f ramkvæmdast j óri.
2. Þorsteinn M. Jónsson,
skólastjóri.
3. Guðmundur Guðlaugsson,
f ramkvæmdastj óri.
4. Haukur Snorrason,
ritstjóri.
5. Stefán Reykjalín,
byggingameistari.
6. Ríkarð Þórólfsson,
verksmiðjustj óri.
7. Gísli Konráðsson,
f ramkvæmdast j óri.
8. Skafti Áskelsson,
Mossadegh áfrýjar
' síniim
Teheran, 22. des. Mossadegh
fyrrverandi forsætisráðherra
Persíu, sem í gær var af her-
rétti dæmdur til þriggja ára
varðhalds, sakaður um föður
landssvik, áfrýjaði í dag dóm
inum til hæstaréttar. Telur
jMossadegh, aö rétturinn hafi
jverið ólöglegur og ekki dóm-
bær um mál hans. Herdóm-
' stóll þessi var leystur upp af
Mossadegh á valdadögum
i hans, en tók til starfa á ný,
er stjórn zahedis tók við völd-
um.
Jóla- og nýjárs-
skeyti landssímans
Eins og undanfarin ár má
afhenda á allar landsíma-
stöðvar jóla- og nýársskeyti
innanlands með ákveðnum
textum, sesm símastöðvarn-
ar gefa upplýsingar um.
Skeyti þessi kosta á skraut-
eyðublöðum 10 krónur, en
innanbæjar þó aðeins 8 krón
ur. Að sjálfsögðu mega send
endur jóla- og nýársskeyta
oröa textann samkvæmt eig
in ósk, gegn venjulegu sím-
skeytagjaldi, ef þeir kjósa
það heldur og skal þá greiða
aukalega lir. 5,00 fyrir heilla-
skeytaeyðublaðið. Athygli
símnotenda skal vakin á nýju
jólaskeytaeyðublaði lands-
símans.
Til þess að tryggja það, að
jólaskeytin verði borin út
fyrir jól, verða þau að af-
hendast í síðasta lagi fyrir
hádegi á þorláksmessu, 23.
desember.
FrarafærsMulltrú-
ar bera í bætifláka
Blaðinu barst í gær eftir-
farandi athugasemd frá skrif
stofu framfærslufulltrúa í
Reykjavík vegna frásagnar
Tímans af styrkþeganum,
sem bjó í baðherbergi á Hern
um:
1. Umrædd fjölskylda flutti
til bæjarins s. 1. vor og
fékk inni í Hjálpræðis-
hernum.
2. Nokkrum dögum síðar leit
aði hún til framfærslu-
nefndar bæjarins, sem
samþykkti að láta þau fá
húsnæði í skála inn við
Elliðaár.
|3. Vegna beiðni húsbóndans,
sem ekki byggðist á óá-
nægju vegna skálans
sjálfs, var honum fenginn
annar skáli engu síðri
nokkru síðar.
4. Vegna nágrannakrita
flutti fjölskyldan nýlega í
Hjálpræðisherinn aftur, en
nú er nábýlinu lokið í bili,
og er fjölskyldan flutt aft-
ur í fyrra húsnæði.
5. Framfærslufulltrúarnir
höföu þá ekki tök á hinu
þriðja húsnæði fyrir fjöl-
skylduna, en henni var
boðið að dveljast að Arn-
arholti með barnið, þang-
að til úr rættist.
Athugasemd blaðsins:
I Blaöiö telur sjálfsagt að
birta þessa athugasemd fram
færslufulltrúanna, en bendir
'jafnframt á, að hún hnekkir
í engu frásögn þess, en sann-
' ar hana hins vegar í megin-
; atriðum.
! Um 4. lið, athugasemdar-
innar, þar sem talað er um
I „nágrannakrit“ er rétt að
| geta þess, að lögreglan og
læknar hafa. lýst sambýlis-
mann styrkþegans ósambýl-
ishæfan. Hafði hann verið
fjarlægður í gær. Fjölskyld-
an er ekki flutt heim í bragg
ann, en mun aö líkindum
fara heim í dag.
Um 5. liðinn er rétt að taka
fram, að boðið var að flytja
fjöiskylduna að Arnarholti í
fyrradag, þegar barnið var
orðið veikt, og geta allir
dæmt um þá ráðstöfun.
skipasmiður.
9. Jón H. Oddsson,
húsgagnasmíðameistari.
10. Haraldur Þorvaldsson,
verkamaður.
11. Helga Jónsdóttir, frú.
12. Bjarni Jóhannesson,
skipstjóri.
13. Filippía Kristjánsdóttir,
frú.
14. Aðalsteinn Tryggvason,
verkstjóri.
15- Lárus Haraldsson,
pípulagningamaður.
16. Ásgrímur Stefánsson,
verksmiðjustjóri.
17. Ingólfur Kristinsson,
afgreiðslumaður.
3 8. Hjörtur Gíslason,
verkst j óri.
19. Haraldur M. Sigurðsson,
íþróttakennari.
20. Halldór Jónsson,
trésmíðameistari.
21. Ármann Dalmannsson,
f ramkvæmdast j óri.
22. Siguiður O. Björnsson.
prentsmiðj ustj óri.
Dulles telur styrj-
aldarhættuna minni
Washington, 22. des. Dulles,
utanríkisráðherra, hélt ræðu
í félagi blaðamanna hér í borg
í dag. Hann endurtók og út-
skýrði nokkru nánar ummæli
þau, er hann viðhafði í París
varðandi stofnun Evrópuhers
hns og endurvopnun Þýzka-
lands. Dulles sagði m. a., að
'þjóðir Ráðstjórnarríkjanna
og leppríkja þeirra væru nú
svo þrautpíndajr, að mjög
hættulegt mundi fyrir forustu
menn þeirra að leggja út í al
gera styrjöld. Þetta og léleg
lífskjör almennings í Austur-
Evrópu yfirleitt væri önnur
höfuð ástæðan til þess, að
minni hætta væri nú á árás á
Vestur-Evrópu ^n áður. Hin
ástæðan væri hernaðarmátt-
ur Atlantshafsbandalagsins.
Viðræðum við fang-
ana að ljúka
Panmunjom, 22. des'. — Á
morgun lýkur viðræðufund-
um þeim, sem haldnir hafa
verið í Kóreu með stríðs-
föngum, sem ekki vildu
hverfa heim. Um 20 þúsund
kínverskra og norður-kóre-
anskra hermanna í haldj hjá
S. Þ. hafa neitað að mæta til
viðræðna. Yfirmaður vopna-
hlésnefndarinnar hefir neit-
að að verða við tilmælum
kommúnista, um að fundum
þessum verði haldið áfram.
Innan eins mánaðar verða
allir stríðsfangar, sem ekki
vilja hverfa heim látnir laus
ir. 126 menn af liði S. Þ. í
haldi hjá kommúnistum
neita að hverfa heitn, þar
eru 22 Bandaríkj amenn og 1
Breti.