Tíminn - 27.01.1954, Blaðsíða 2

Tíminn - 27.01.1954, Blaðsíða 2
TÍMINN, miffvikudaginn 27. janúar 1954. 21. blaff. ....... Leggja tiS aö bls. 21,22,23 og 24 í Ber- deiltí alfræöiQrðabókarinnar veröi rifnar úr i LAVRENTX BER/A nú er það Beringshaf og 24 í V. bindi verði teknar burt, ásamt með myndinni, sem er i milli bls. 22, 23. í þeirra stað verði látnar meðfylgjandi blaðsiður með nýjum texta. Blaðsíður þær er að ofan getur, má klippa úr bindinu eða skera þær burtu með rak- blaði....“ Njju myndirnar voru m. a. mynd af Beringshafi, en nýi textinn átti að koma í stað eyðu í Ber-deild alfræðiorðabókarinnar, í stað blaðsíðna, sem á var prent- uð ævisaga Bería og mynd af , 1 honum. Þetta er gott dæmi um það ' siðferði, er ríkir innan veggja þeirr- j ' ar stofnunar, er nefnist Útgáfu- Staðreynd er að mannkynssagan er í miirgum atriðum yfirstéttar- saga, þar sem mest ber á fæðingardögum og dánardögum þeirra, er höfðu mannaforráð, eða stóðu framariega á sviði trúar og lista. Þótt sumir þeirra, sem mannkynssagan segir frá, hafi verið svikarar og fjöldamorðingjar, hcfir cnginn rituður sögunnar tekið scr það leyfi, að afnjá nöfn þeirra né verknaði þeirra úr sögunni. Hefir engum verið talin stafa hætta af nöfnum þessara manna. Engin vestræn þjóð hefir viljað hokra að heiðri sínum, með því að nema í burtu alla bletti af þjóð- arsögunni. Eru því alfræðiorðabæk ur engu síður heimild run þá, sem miður gerðu en þá, sem lyftu grett- istökum í þjóðmálum, trú og vís- indum. Mundi það ærið verk fyrir vestrænar þjóðir, að nema burt úr alfræöiorðabókum alla þá menn, sem eitthvað brutu af sér á .ífs- leiðinni. Alfræðiorðabækur. Það hefir verið metnaður vest- rænna þjóða, að alfræðiorðabækur þeirra veittu hlutlausar upplýsing- ar um menn og málefni. Prent- frelsi með þessum þjóðum hefir alið á þessum metnaði, svo við er- um vel mennt um forsögu okkar, illa sem góða. Hins vegar hefir eitt stórveldi tekið upp þann hátt, að smíða alfræðiorðabók sína frá degi til dags. Hefir þetta valdið við- komandi aðilum nokkrum erfið- leikum, þar sem ekkert má vera í bókinni, annað en það, sem ekki stingur í augun á valdstjórn rík- isins. Rifnar síður og aftökur. Ekki höfðu kommúnistar í Rúss- landi fyrr tekið völd, en þeir fóru að endurskoða sögu þjóðarinnar. Var hún að sjálfsögðu endurskoð- uð í því ljósi, sem hinum nýju valdhöfum hentaði bezt. Rússneska alfræðiorðabókin var byggð á þess- ari endurskoðun, og féllu þá úr með öllu ýms nöfn, sem virtust órjúfanlega tengd sögu rússnesku þjóðarinnar. Hins vegar kom þessi endurskoðun að engu gagni, nema innan Rússlands, þar sem vestræn- ar þjóðir virtu endurskoðunina að vettugi og rituðu í alfræðiorða- bækur sínar, það sem þær vissu sannast og réttast. Það er sann- ast mála, að samning á rússnesku alfræðiorðabókinni hefir gengið illa. Síðan samning hennar hófst, hafa svo margir menn, er hossað var hátt á blaðsíðum bókarinnar, orðið að lúta í lægra haldi fyrir hendi böðulsins og með ævarandi skömm yfir líkamsleyfum sínum, að orðið hefir aö rífa blöð úr bók- :inni, samkvæmt eindregnum til- mælum útgefanda, og setja eitthvað nýtt með sama stafaheiti í stað- :inn. Bcría. Gott dæmi um það, hvernig rúss- .neska alfræðiorðabókin er unnc in, eru viðbrögð þau, sem útgef- endur hennar tóku, þegar Bería varð að láta í minnipokann í bar- áttu þeirri, sem átt hefir sér stað og á sér stað innan múra Kreml um þann heiður að vera leiðtogi þjóðarinnar. Á einni nóttu var einn af forustumönnum þjóðarinn- ar gerður að ærulausum föður- landssvikara. Eins og gefur að skilja beið Bería ekkert annað en aftakan. Þegar Bería hafði verið tekinn af lífi, kom upp úr kafinu, að hann hafði enn fulla frægð í rússnesku alfræðiorðabchinni, e)n ekki leið á löngu þar til aftaka hans var einnig tilkynnt þar. Beringshaf. Aftaka Bería í alfræðiorðabók- inni v'ar tilkynnt eigendum henn- ar hátíðlega í bréfi frá útgefand- anum, sem er útgáfustofnun ríkis- ins. í bréfinu var eftirfarandi leið- beining: „Útgáfustoínun vísinda- rita mælir með því að bls. 21, 22, 23 Útvarpib stofnun vísindarita. P.S. Skyldu kollegar vorir við Þjóðviljann hafa orðið við þessum tilmælum Útgáfustofnunar vísinda- | rita í Rússlandi. Sé svo ekki, þá er þeim tilmælum hér með komið á framfæri fyrir föður Malenkov. „Stóra átakið” sem Mogginn auglýs- ir eftir Aldrei hefir ílialdiff í Reykjavík verið eins hrætt um að missa meirihlutann: og viff bæjarstjórnarkosn-, ingarnar núna. Órækasta, sönnunin fyrir því er neyff- i aróp það, sem búiff var orff um á forsíðu Morgunblaffs- ins á sunnudaginn; „NÚ DUGAR EKKERT ÁTAK NEMA STÓRT ÁTAK.“ Já, það er öllum kjósend- um i Reykjavík ljóst, að nú dugar Sjálfstæðisflokknum ekkert nema stórt átak og þaff stærra átak en hann getur af hendi leyst. Þess vegna hrópar hann neyðar óp til Reykvíkinga.. Er það meiningin, góðir Reykvíkingar, aff bjarga í- haldinu meff „stóra átak- inu“ á sunnudaginn kemur? Nei, á sunnudaginn kem ur ætla Reykvíkingar að fella íhaldiö með stóru á- taki, sem sannarlega getur veizt létt. &itylijAiÍt Twanm Útvai-pið í (lag: Fastir liðii’ eins og venjulega. 18.55 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). 10.15 Tónleikar: Óperulög (plötur). 20.15 Stjórnmálaumræður: Um bæj- armál Reykjavíkur. Síðara kvöld. Ræðutími hvers flokks 45 mínútur í þremur umferð- um: 20, 15 og 10 mín. Dagski'árlok laust eftir mið- nætti. Útvarpið á morgun: Fastir liðir eins og venjulega. 19.15 Tónleikar: Danslög (plötur). 19.35 Lesin dagskrá næ&tu viku. 20.30 Erindi: Xðnaðarmálastoínun íslands og hlutverk hennar; síðara erindi (Bragi Ólafsson framkvæmdastjóri). 20.55 íslenzk tónlist: Lög eftir Þór- arin Jónsson (plötur). 21.15 íslenzkt mál (Bjarni Vilhjálms son cand. mag.). 21.30 Tónleikar (plötur). 21.45 Náttúrlegir hlutir: Spurning- ar og svör um náttúrufræði (Trausti Einarsson prófessor). 22.10 Sinfónískir tónleikar (plötur). 23.05 Dagskrárlok. Hvar eru. skipin Sambandsskip. Hvassafell kom til Reykjavíkur í gær frá Reyðarfirði. Arnarfell fer frá Santos í dag til Rio de Janeiro. Jökulfell fór frá Hamborg 25. þ.m. til Reykjavíkur. Dísarfell á að koma til Amsterdam í dag frá Reyðarfirði. Bláfell fór frá Gdynia 23. þ. m. til Hornafjarðar. Eimskip. Brúarfoss fór frá Vestmananeyj- um 22.1. til Newcastle, Hull, Grims by, London, Antwerpen og Rott- erdam. Dettifoss fer frá Vest- mannaeyjum í dag 26.1. austur um land til Reykjavíkur. Goðafoss íór frá Hull 24.1. til Reykjavíkur. Gull- foss fer frá Leith í dag 26.1. til Reykjavíkur. Lagarfoss fer frá New York 26.—27.1. til Reykjavíkur. Reykjafoss fer frá Rotterdam í dag 26.1. til Hamborgar. Selfoss fór frá Húsavík 25.1. til Austfjarða og út- landa. Tröllafoss kom til New York 23.1. frá Norfolk. Tungufoss fer frá Reykjavík um hádegi í dag 26.1. til Akraness. Straumey fór frá Hull 22.1. til Reykjavíkur. 8/öð og iímarit Skinfaxi. Þriðja hefti Skinfaxa 1953 er komið út. Efni: Ályktun sambands- ráðsfundar í menningar- og þjóð- ernismálum. Starfsíþróttir og ung- mennafélögin. Guðmundur Hjalta son — Aldarminning. Norænt æskulýðsmót í Finnlandi (Ingólf- ur Guðmundsson), Frá afhjúpun minnisvarða Stephans G., ræða flutt á Arnarstapa, eftir Guðjón Ingimundarson. Fimmtíu ára af- mæli dönsku ungmennafélaganna. fþróttakeppni á landsmótinu 1955. Sön'gvar skógræktarmanna, Ingólf- ur Davíðsson, o. fl. Auglýsing ura hreppsnefndarkosningar í Kópavogshreppi Með tilliti til kæru frambjóðenda Sjálfstæðisflokks ins varðandi merkingu framboðslista og endanlegs úrskurðar oddvita sýslunefndar Kjósarsýslu í þessu efni auglýsist hér með, að hreppsnefndarkosningar þær, sem fram áttu að fara í Kópavogshreppi 31. jan., fara fram 14. febrúaúr n. k. Utankjörstaðaatkvæða- greiðsla hefst á ný 24. janúar n.k., en þau atkvæði, sem greidd hafa verið fyrir þanna tíma, eru ógild. Merking framboðslista verður sem hér segir: Listi Alþýðuflokksins verður A-listi. Listi Framsóknarflokksins verður B-Iisti. Listi Sjálfstæðisflokksins verffur D-listi. Listi óháðra kjósenda, stuðningsmanna fráfarandi hreppsnefndarmeirihluta, verffur G-listi. 22. jan. 1954 Yfirkjörstjórn Kópavogslirepps ÁSGEIR BL. MAGNÚSSON (sign.) JÓN GAUTI (sign.) KRISTJÁN JÓNSSON (sign.) :í i Barnarúm Barnakojur Klæðaskápar Sængurfataskápar og fjölmargt annað fyrirliggjandi. Komið og athugið hús gögnin hjá okkur, áður en þér kaupið annars staðar. 1 Húsgagnaverzlun Gnðninndar Giiðimuulssouar, Laugavegi 166- Aðalfundur Breiðfirðingafélagsms verður í Breiðfirðingabúð miðvikudaginn 3. febrúar kl. 20,30. Trásmíöavélar til sölu Tilboð óskast í stórar, nýtízku, amerískar trésmíða- vélar. — Vélarnar eru til sýnis í Trésmiðjunni Rauðará, Skúlagötu 55. i > i > < > < i • > < > < > > i <». i > Maðurinn minn, ÓSKAR LÁRUSSON, kaupmaöur, andaðist í Kaupmannahöfn 25. janúar. Anna Sigurjónsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.