Tíminn - 12.03.1954, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, fösíudaginn 12. marz 1954.
59. blað,
Undir aEúdiegum persónuleika Giglis
býr hrfúf skapgerð ítaiska bóndans
r Það er svo undarlegt með suma
menn, að návist þeirra ein kem-
ur mönnum í gott skap. Það er
eins og birti yfir jafnvel hinu
drungalegasta umhverfi. Einn
slíkra manna er Benjamino Gigli.
Engum dylst að sjáifsögðu, að það
stafar birta af. frægðarljóma hans,
en hinn aluðlegi persónuleiki tvö
faldar þau áhrif.
Hvar sem Gigli fer, hvort heldur
hann gepgur á strætum og torgum
eða stígur upp í járnbrautarlest eða
inn á söngsvið, alls staðar hrífast
menn af honum og núa saman hönd
um af ánægju. Þó er samt ekkert
einkennandi við brosið hans. Hann
á það meira að segja til að hleypa
í brúnirnar og vera ygldur á svip.
Hann er tiginmannlegur í allri
framgöngu, en undir yfirbragði
hans býr hin hrjúfa skapgerð ítalska
bóndans, sem er hér skerpt og mót-
uð af skorti og baráttu æskuáranna.
Hann á það móður sinni að þakka.
Gigli ber mikla umhyggju fyrir
fjölskyldu sinni. Þegar hann talar
um móður sína, kyssir hann með
lotningu á hring á hendi sér, gef-
inn af henni. Það var hún, sem
fyrst kenndi honum að syngja, þeg-
ar hann kraup niður að hnjám
hennar og söng þjóðvísuna „Ef ég
væri lítil mús“. Hann syngur þessa
sömu vísu stundum enn þá, þó ekki
opinberlega. Þegar Gigli er á ferða
lagi, ber hann á sér 3 myndir í
samanvöfðu leðurhylki, hann hefir
það við barm sér daga og nætur, í
búningsherbergjum hljómleikahall-
anna og meðan hann syngur. Þessar
myndir eru af móður hans, eigin-
konu og dóttur.
Upphaf frægðarinnar.
Litla þorpskirkjan, þar sem hann
söng sem drengur með fíngerðu
sópranröddinni sinni, var fyrir ut-
an Recanali á strönd Adríahafsins.
Þar á hann nú 60 herbergja kastala,
sem er í líkingu við villu auðkýfing
anna í sjálfri Rómaborg. Öðru
hverju syngur hann þjóðvísur á torg
inu í þorpinu, þar sem fólkið safn-
ast saman og syngur stefin.
10 ára gamall hafði Gigli ofan af
fyrir sér sem uppþvottadrengur í
eldhúsi ítalsks aðalsmanns. Húsbónd
inn var þá vanur að lyfta honum
upp á boi'ð og láta hann syngja fyrir
hóp af aðdáendum, svo sem hesta-
sveinum, þernum, þjónum og undir-
kokkum. Hann fór ekki í mútur fyrr
en 17 ára gamall. Þá fór honum
uitMiuiuikiiniumr
1
MYNDIEIÍ
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
13.15 Erindi bændavikunnar.
13.55 Harmoníkulög (plötur).
20.20 Lestur fornrita: Njáls saga;
XVII. ÓEinar Ól. Sveinsson
prófessor).
20.50 Dagskrá frá Akureyri.
21.30 íslenzkt mál (Bjarni Vilhjálms
son cand. mag.)
21.45 Tónleikar (plötur).
22.10Passíusálmur (23).
22.20 Útvarpssagan: „Salka Valka“
eftir Halldór Kiljan Laxness;
XVII. (Höfundur les).
22.45 Danslög: Straussvalsar (pl.).
23.00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
12.50 Óskalög.sjúklinga.
13.45 Erindi bændavikunnar.
17.30 Útvarpssaga barnanna.
30.30 Tónleikar (plötur).
20.45 Leikrit: „Glataði sonurinn“
eftir Gustav Sandgren. Leik-
stjóri: Þorsteinn Ö. Stephen-
sen.
21.10 Tónleikar (plötur).
21,35 Upplestur: Þorsteinn Ö.
Stephensen les smásögu.
22.10 Passíusálmur (24).
22.20 Danslög (plötur).
24,00 Dagskrárlok.
sem fleirum, að hann hélt að hann
hefði fengið barytónrödd.
Næst varð Gigli afgreiðslumaður
í lyfjabúð, og voru góðar horfur á,
að hann yrði stjórnandi fyrirtækis-
ins, eða jafnvel eigandi þess síðar
meir. Hann söng á meðan hann af-
greiddi lyfin,- en brátt hundleiddist
honum starfið og innan tveggja ára
var dvöl hans þar lokið. Með aleig-
una festa við belti sér skunöaði
hann sem leið lá til Rómar og höf
nám í söngskóla.
Kennari hans, Enrico Rosati,
hlýddi á hátóna hans og sagði, að
hann væri tenór, en ekki barytónn.
Þetta var árið 1909. 5 árum síðar
vann Gigli mikla söngkeppni í
Parma, en 1919 tróð hann inn í and
dyri Sealaóperunnar í Mílanó, haf
andi þá smám saman gengið upp
þrep hinna ýmsu sveitaleikhúsa. Við
Scalaóperuna söng hann tenórhlut
verk eftir tónsprota Toscaninis. Þar
„skapaði“ hann því næst aðaltenór
hlutverkið í La Roneline eftir Pucc-
ini.
Syngur hvar sem er.
Það má svo að orði kveða, að
Gigli sé einn dunandi tónn. Hann
syngur við öll hugsanleg og óhugsan
leg tækiíæri, svo sem í göngum
járnbrautarlestanna, á stöðvarpöll-
um og við inngöngudyr hljómleika-
hallanna, myndatökumönnum til
hins mesta ávinnings.
Ástmöíur Gigljs.
Það væri nógu fróðlegt að vita,
hverjir eru aðalljúflingar Giglis í
heimi tónanna. Svo mikið er víst,
' að hann er akaflega hrifinn af
I Verdi. Hann segir, að tónar hans
! komi frá hjartanu og fari til hjart-
' ans. Fyrir honum hefir músík, sem
' kemur frá höfðinu, ekkert líf og
enga sál, því aö músíkin er mál
hjartans. Eitt sinn, er hann hóf
upp raust sína og söng úr II Trova-
toré á minniháttar veitingahúsi,
brosti jafnvel víxlakaupmaður yfir
hornspangargleraugun sín og kona
nokkur, vafin 1 hreysikattarskinn,
hætti við að borða söltuðu möndlu
kökuna, sem hún hafði borið upp áð
munninum, og féll í leiðslu. Hann
segir ennfremur, að náttúran end-
urspeglist í tónum Verdis. Þeir eru
svo léttir og ljúfir og þreyta ekki
söngvarann, en fljóta frá hjarta til
hjarta.
Fremstur í 30 ár.
Gigli heíir verið fremstur í flokki
tenórsöngvara nú um 30 ára skeið.
Enginn er tilbeðinn eins, hvorki
heima á Ítalíu eða erlendis. Þegar
hann syngur í Albert Hall í Lundún
um, þykir það mesti tónlistarviðburð
ur þar. Manngrúinn, sem nýtui'
söngs hans þar, samanstendur af
eintómum dyggum aðdáendum.
Hann kemst ekki hjá því að syngja
hina vinsælu aríu La donna e mo-
bill úr Rigoletto, og eykur á áhrifa
magnið með skringilegum hreyfing
um og brettum. Almennur ánægju
kliður fer um salinn.
Nú hafa árin tekið að vinna bug
á rödd Giglis. Hann er ekki eins
sterkur og hann var og tónsviðið hef
Allt uui livn
Nýja bíó sýnir nú eina af þeim
bandarísku snakkmyndum, sem
framleiddar eru með miklum ágæt
um, hvað tekjuhliöina snertir. Tveir
leikarai', Bette Davies og George
Sanders eru látnir koma fram með
mátulega löngu millibili til að
haida þeim áhorfendum í húsinu,
er kunna að meta góðan leik, svo
að ekki sé meira sagt, en nógu
sjaldan til að sá hópurinn, sem kýs
sér heimskulegt málæði, lélega leik-
ara, sem hægt er aö gera hitt og
þetta með í andanum, fari ekki út.
I rauninni eru öll hlutverk myndar
innar aukahlutverk, nema þau, sem
eru í höndum Davies og Sanders.
Reynt er að gera mikið fyrir Anne
Baxter, en hún er með þeim ósköp-
um fædd, að geta ekki leikið og gott
ef hún er ekki af norrænum ætt-
um. Davies sem Margo sýnir af-
burðaleik og lifir hún sig inn í per
sónu þessarar sjálfumglöðu konu, er
á allan heiminn, af því að hún leik-
ur á Broadway og telur sér þar að
auki til tekna, að hafa vonda skap-
bresti. Sanders er alltaf sami há-
menntaði brezki hlunkurinn og. tal-
ar eins og kunnur íslenzkur rithöf-
undur, er lætur sauma föt sín í
London. Hann er einn af þeim fáu
kvikmyndaleikurum, sem ánægju-
legt er að sjá og heyra, jafnvel í
lélegum hlutverkum. Ónefndur mað
ur íer með hlutverk leikritaskálds og
furða ,aö bandarískir leikritahöfund
ar skyldu ekki birta mótmæli í stíl
við mexíkanska kvenfélagiö hér á ár
unum, er mótmælti kvenlýsingu hjá
James M. Cain. Ónefndur maður fer
og með hlutverk leikstjóra, er giftist
Margo, eftir að hún hefir storkað
honum og boðið honum á klámfeng
inn hátt í rúm til sín. Maður þessi
er sambland af John Huston og
Kristjáni frá Djúpalæk í töktum og
útliti, en hefii' heila hvorugs. Mynd
þessi er sjáanleg, þótt ekki væri
fyrir annað en það, að samskipti
leikstjórans og Margo sýna, að
bandaríska konan hefir meii’i nátt-
úrukraft og auðugari geðsveiflur en
maðurinn og hafa höfundar eins
og Kinsey, Hemingway og Stein-
beck sýnt fram á þetta í fræðiritum
og bókum og látið karlhetjur sínar
bíða lægri hlut og þykja sannir
höfundar fyrir. Hins vegar hefir sú
von brugðizt, að kona McCarthys
kæmi honum í pilsvasann og er það
slæmt. I. G. Þ.
Flimsk vlSskipti
(Framhald af 1. siðu.)
hér er um að ræða, numið
10 millj. kr. að verðmæti.
Slík þríhyrningsviðskipti
sem hér um ræðir, geta verið
einkar hentug þjóðum eins
og okkur, sem hafa fáhreytta
útflutningsframleiðslu, en
þurfa hiss vegar að . kaupa
margar vörutegundir frá öðr
um löndum. Þau hafa og
færzt allmikið í vöxt á seinni
árum jafnhliða því sem utan
rík’isverzlun þjóða færist æ
meira á vöruskiptagrundvöll.
55S533SS53555555555ÍS55335555555ÍSÍ355555S55Í5SÍ5SÍÍ5S55ÍS5354555Í5ÍÍ55*
ir minnkað, þrátt fyrir það er söng
ur hans enn kyngimagnaður og nægi
legt viðfangsefni lærisveinum lians
| að komast til jafns við.
Oí hraður akstur
er orsök
flestra umferðaslysa
iN SAMVB NN'innRTf'íEGniS’íBAúB
EF ÞÉR VILJIÐ FÁ
FEGURRI
og
MYKRI
húð
þá notið
SAVON
de PARlS
St M ÉJJk . WKM -Handsápa
333533535333533335355353333333333533533333535553555335335333535355533555;
3333335333333333333:3333333333333333333333333333333333333333333331*3353431
Húsfreyjur
Haldið elli og þreytu í hæfilegri fjarlægð. —
Látið „Veralon", þvottalöginn góða, létta yður
störfin.
Jeppakerrur
Þeir, sem hafa hug á að fá hjá okkur jeppa-
kerrur fyrir vorið, þurfa að leggja inn pant-
anir sínar sem allra fyrst.
SINDRI H.F.
Hverfisgötu 42. Sími 82422.
35533Í333333333333333333333S33333353333333333333333343Í33Í3S4333S335333*
Trésmiðafélatg Reyhjavíkur
heldur
aðaifund
í Tjarnarkaffi sunnudaginn 14. marz n. k. kl. 2«e.h.
Dagskrá; Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
5353S533S3S33333S53333333333333S3Í3333S33S33S3333Í5SSSSÍÍ5S3ÍS3S3SSÍ3
Ræsitækin fyrir hraðgengar dieselvélar eru nú aft
ur fyrii'liggjandi.
Einnig hleðslur í ræsitækin.
í köldu veðri eru Sinclair Ræsitækin ómetanleg
hjálp við ræ'singu erfiöra dieselvéla á sjó og landi.
OLÍUSALAN H.F.
Hafnarstræti 10—12 — Reykjavík
333333553533333353533353533335333333533355335533533333533533555433333333
333333333333333333333333333333333333333333353333333335333533333333353333
Stulka
vön afgreiðslustörfum í matvöruverzltm óskast.
Nánari upplýsingar gefur skrifstofa KRON, Skóla-
vörðustíg 12.