Tíminn - 30.03.1954, Blaðsíða 2
TÍMINN, þriðjudaginn 30. marz 1954,
74. blað.
Leitaði fornþjóðar á Amazonsvæð-
inu, en lét lífið í frumskóginum
Öðru hverju hafa tröllasögur skotið upp kollinum um forn-
býlinga í frumskógum Amazon í Suður-Ameríku. Sá maður,
er einna mestan þátt átti í að skapa þær sögusagnir, var
enskur ofursti, Percy Harrison Favvcett, er lét lífið ásamt
syni sinum með válegum hætti, er hann var að leita þessarar
fcrnþjóðar í frumskóginum árið 1925.
Nú hefir yngri sonur Pawcett, er
var skilinn eftir, þegar lagt var í
leitina að fornþjóðinni í frumskóg-
inum, gefið út bók um föður sinn
og rannsóknir hans á svæðinu í
kringum Amazonfljót. Hefir bók
þessi að geyma bréf þau, er ævin-
týramaðurinn sendi syni sínum, er
hann fór í sinn síðasta leiðangur
um þetta svæði, auk annarra frá-
sagna ofurstans af fyrri ferðum
hans um óbyggð svæði á þessum
slóðum, er hann vann að landa-
mæramælingum fyrir Perú, Brazilíu
og Bólivíu.
teit hafin.
Ekki hafði liðið á löngu frá því
Pawcett og sonur hans hurfu er
farið var að gera út leiðangra til
að leita þeirra feðga. Byggðist það
á þeirri staðföstu trú yngri sonar- ,
ins, að faðir hans eða að minnsta
kosti bróðir hans væri enn á lífi
og í haldi hjá einhverjum villtum
kynflokki á þeim slóðum, þar sem
þeir feðgar hurfu. Sonurinn tók þátt i
í þessum leiðöngrum að ættmenn- j
um sínum, fann hann ýms spor eft,
ir þá, en samt bar leitin engan árang
ur. Er bókin um Fawcett því það j
siðasta, sem sonurinn gerir í þessu
máli. Þar sem ekki er talið hafa
neina þýðingu lengur að reyna að
komast fyrir um hvarf þeirra feðga.
Höfðingi þjóðflokks.
Hefir hið skyndilega hvarf þeirra
na ^aiuimi
i JCá-
MYNDiR
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Erindi: Suðurgöngur íslend-1
inga í fornöld; síðará erindi
(Einar Arnórsson hæstaréttar
dómari).
20,55 Tónleikar (plötur).
21,15 Náttúrlegir hlutir: Spurning-
ar og svör um náttúrufræði
(Ingimar Óskarsson grasafr.).
21.30 Undir ljúfum lögum: Carl
Billich o. fl. leika létt klassísk
lög.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmur (37).
22.20 Úr heimi myndlistarinnar. —
Björn Th. Björnsson ðstfr. sér
um þáttinn.
22,40 Kammertónleikar (plötur).
33.20 Dagskrárlok.
"Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.20 íslenzk málþróun (Halldór
Halldórsson dósent).
20,35 íslenzk tónlist: Lög eftir
Helga Helgason (plötur).
20,50 Vettvangur kvnna. Erindi:
Frá ljósmóðurstarfi (Jóhanna
Friðriksdóttir ljósmóðir).
21,15 Mð kvöldkaffinu. Rúrik Har-
aldsson likari sér um þáttinn.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
32.10 Passíusálmur (38).
32.20 Útvarpssagan.
22,45 Dans- og dægurlög (plötur).
Árnað heilla
Trúlofanir:
Þann 17. marz s. 1. opinberuðu trú-
lofun sina ungfrú Ragnhildur Eiríks
dóttir (Sigurðssonar kennara),
Efstasundi 68, og Hörður Halldórs-
son, stud. med., Snælandi við Ný-
býlaveg.
S. 1. laugardag opinberuðu trúlof
un sína ungfrú Rósanna Hjartar-
dóttir, frá Auðsholtshjáleigu i Ölfusi
og Jón Ágústsson, starfsmaður hjá
Kaupfélagi Árnesinga.
Afmæli.
Á mánudaginn átti Jón Eyjólfsson
starfsmaður hjá Þjóðleikhúsinu
fjörutíu og fimm ára afmæli. Jón
hefir lengst af starfað við leikhús,
fyrst í Iðnó og við Þjóðleikhúsið frá
Etofnun þess.
Fawcett ofursti
dauðinn í stað fornþjóðar
feðga þarna 1 ókönnaðum frunÆkóg
um Brazilíu orðið aðallífgjafi þeirra
mörgu sögusagna, sem síðan hafa
gengið af ofurstanum. Stundum
hafa blöð birt þær fregnir, að
Fawcett væri kominn fram eða þá
að leiðangursmenn hefðu séð hann
í för um frumskóginn. Lengi vel
gekk sú saga, að hann hefði verið
kjörinn til höfðingja hjá þjóðflokki,
sem enginn hvítur maður hefði
nokkru sinni séð, og væri þar um
að ræða þá fornþjóð, sem hann
hefði í upphafi stefnt för sinni ti).
Allar þessar sögusagnir voru jafnóð-
um bornar til baka eða stóðust ekki
frekari eftirgrennslanir.
Leitaði hann kvennaríkis?
Ofurstinn hafði eins og fleiri
heyrt sögur um kvennaríki, sem
átti að vera á Amazonsvæðinu. Kon
ur þessar áttu að vera mjög herská-
ar og leita sér karlmanna með ráns
ferðum til annarra þjóðflokka. Þeg
ar ránsfengurinn hafði unnið sitc
verk, var honum hrundið fyrir ætt-
ernisstapa, en sá ávöxtur ráosfengs
ins og kvennanna, sem karlkyns var,
fór sömu leið og faðernið. Fawcett
leitaði þessa kvennaríkis, jafnframt
því hann stundaði landamæramæl-
ingarnar, en sú leit bar ekki árang-
ur, að því að sagt er. En_ ofurstinn
heyrði ennfremur söguna af fornaid
arþjóðinni, sem bjó við menningj,
er var mikið eldri en inkamenning-
in og var komin frá menningu
hins sokkna Atlantis.
Leitaði stuðnings í London.
• Trúlegt er, að Fawcett hafi haft
nokkrar sönnur fyrir orðróminum
um fornþjóðina, því að tæDlega
hefði maður með fullu viti lagt ann-
að eins á sig og hann við að grafast
til fullnustu fyrir sannleiksgildi orð
rómsins. Þegar hann lauk mæling-
unum fyrir ríkin þrjú, hafði han'i
ekki nægilegt fé með höndum fil að
geta kostað leitarleiðangur og leit-
aði því fjárstyrks í.London, en var
synjað. Hefði þá margur lagt árar
í bát, einkum þegar þess er gætt, að
för um frumskóginn er lífshættuleg.
Sneri hann sér þá til New Yortv og
þar fékk hann nokkurn stuðning,
Heiint ur liclju
Nýja bíó sýnir nú bandaríska
mynd, er neínist Heimt úr helju.
Aðalhlutverk leika Claudette Col- j
bert og Patric Knowies. Mynd þessi
fjallar um Evrópubúa á einni af
Kyrrahafseyjunum, er Japanir réðu
þar á stríösárunum. Er myndin
byggð á bók kvenhöfundar, er settur
var í kvenfangabúöir af Japönum,
ennfremur lýst aðdraganda og lok-
um. Mynd þessi er sæmileg og af-
bragösgóðir kaflar í henni, enda
telft fram prýðisgóðum leikurum og
svo er efniviðurinn ákjósanlegur.
Annars er fangabúðarsaga síðustu
styrjaldar sú sama alls staðar og
því vilja þessar fangabúðannyndir
verða líkar. Vegna hinna góðu kafla
myndarinnar, er eins og vanti að-
eins herzlumuninn, svo að myndin
1 sé öll hin ágætasta, en má vera, að
! tilefnið hafi ekki verið meira, og er
þá ekki við annaö að sakast en at-
burðarásina sjálfa, eins og hún gerð
ist í veruleikanum, þar sem þetta
er mynd, byggð á sönnum heimild-
um.
Uaus og Pétur í
kvennalil j óm-
sveitinni
Austurbæjarbíó sýnir nú þýzka
gamanmynd, ein með þeim fyrstu
nýju, þýzku myndum, sem hingaö
koma eftir stríðið og er það nokkru
seinna en búast hefði mátt við, þar
sem Þjóðverjar taka góðar myndir.
j Þessi er að vísu í léttara lagi, en
' vel er hægt að hlægja að henni,
eins og Grænu lyftunni og Frænku
Charleys og þvílíkum grínstykkjum.
Skal ekki frekar farið út í að ræða
um myndina. Hún er fyrst og fremst
hlátursefni og hláturinn lengir lífið
' og langlífi er talið til farsældar og
unaður gamalmennahæia, svo að
þetta er harla gott.
Kvcnliolli
skipstjórinn
Hafnarbíó sýnir nú gamanmynd
með Alec Guinnes í aðalhlutverki.
Nefnist myndin kvenhoili skipstjór-
inn og geta ýmsir, er hafa séð til
þessa brezka leikara, gert sér í hug-
arlund, hvernig hann sé, hafandi
tvær eiginkonur á snærum sínum,
sína í hvorri höfn. Hefst myndin á
því, að verið er að skjóta hann, en
líkur á því, að hann er ekki skotinn,
heldur fyrirliði aftökusveitarinnar,
þar sem Alec hafði mútað sveitinni,
greiðir hann mútuféð og hverfur á
brott. í millitíðinni ei' hjónabands-
saga skipstjórans sögð áf eftir-
manni hans á stjórnpalli. Er sú
saga bráðfyndin á köflum. Konur
eru bréytilegar beggja vegna Mið-
jarðarhafs. Dóttir Múhameðs hryssu
leg í fyrstu og hefir í skvettingum
við mann sinn á veitingastöðum,
en sú brezka, er bíður hans á milli
ferða í Gibraltar, er ekkert nema
heimilisumhyggjan. Til að fara
fljótt yfir sögu, þá skilja þær við
hann báðar, sú brezka þá búin að
glata heimilisumhyggju sinni og hef
ir í skvettingum út á við, en hin
orðin svo húsmóðurleg, að vandræði
eru að.
I. G. Þ.
en varð þó að spila mikið upp á
eigin spýtur. Síðan hélt hann inn
í skóginn, ásamt syni sínum. Síð-
asta bréfið, sem hann sendi heim,
var dagsett 29. maí 1925 og sent frá
yztu mörkum menningarinnar. Þar
stóð: „Ekki séð fyrir, hvort við kom
umst i gegn og til baka, eða hvort
við rotnum inni í skóginum. En
eitt er víst: Lausnin er framundan".
Augtfotö í TímœHm
Sumar-
eru komin
Hreiðar
Jónsson
klæðskeri
Laiigaveg 11
Sími 6928
Laus staöa
Eldfæraeftirlit bæjarins vantar eftirlitsmann með
eldfærum, einkum olíukynditækjum. Eftirlitsmaður-
inn þarf að hafa vélstjóramenntun með rafmagns-
prófi. Laun samkvæmt IX. flokki launasamþykktar
bæjarins. —
Umsóknarfrestur er til 20. apríl.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
Reykjavík, 29. marz 1954,
Slökkviliðssíjórmn í Reykjavík.
tSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSSSSSSSSSSSSSI
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur
samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför eigin-
konu minnar og móður
GUÐRÍÐAR JÓNASDÓTTUR.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur Guðlaugsson, Jónas Ragnar Guðmundsson
Hallgeirsey.
Innilegustu þakkir til allra nær og fjær fyrir samúð
og margvíslega?t vináttuvott við fráfall og jarðarför
móður okkai
SOFFÍU SKÚLADÓTTUR,
Kiðjabergi.
Með kærri kveðju.
Guðrú?i Gu?mlaugsdóttir,
Steindór Gu?znlaugsson,
Halldór Gunnlaugsson,
Skúli Gunnlaugsson,
Jón Gunnlaugsson,
Ingi Gunnlaugsson.
Þökkum innilega auðsý?ida samúð og vináttu vegna
fráfalls móður okkar og tengdamóður
ARNFRÉÐAR SIGURGEIRSDÓTTUR,
Skútustöðum.
Jón Þorláksson,
Málfríður Þorláksdóttir, Sigurður Stefánsson,
Kristín Þorláksdóttir, Sigurður Halldórsson.
Vinnið ötidlega að útbreiðsiu THHANS