Tíminn - 18.05.1954, Blaðsíða 5

Tíminn - 18.05.1954, Blaðsíða 5
110. blað. TÍMINN, þrigjudaginn 18. raaí 1&54. 5 HÞriðjud. 18. mm STORT OG SMATT: Islendingar Eiafa mikinn álíuga . kynnum af Finnum sér til íróöieiks og gagns Héraðsk»™ar' Sjálfstæðismenn og sjávarútvegurinn Mbl. hefir nú hrokki'ð upp með andfælum út af því, að á það var minnt í Tíman- um nýlega, að tveir af for- ustumönnum Framsóknar- ílokksins, þeir Hermann Jón asson og Skúli Guðmunds- son, hafi orðið fyrstir til þess á Alþingi 1947 að flytja til— lögu til þingsályktunar um að segja upp landhelgissamn ingnum við Breta, en sú stefna hafi þá skömmu áður verið mörkuð á flokksþingi Framsóknarflokksins. j Hver og einn getur lesið um það í Þingtíðindum, að! þessi frásögn Tímans er rétt. j Hver og einn getur lika lesið, t um það í Þingtíðindum, að t Sjálfstæðisménn voru ekki fyrr en tveimur árum síðar« fáanlegir til að segja upp samningunum. Það var í fullu samræmi við fyrri stefnu þeirra í þessum mál- um að vilja svæfa þetta mál j og draga það á langinn. Framkoma þeirra í sam-1 bandi við „ömmu“-málið er •enn í fersku minni og má Tif ja hana upp, ef Mbl. ósk ar eftir því. | Mbl. mun því ganga það erfiðlega að eigna Sjálfstæðis llokknum forustuna á þessu sviði sjávarútvegsmálanna eins og svo mörgum öðrum. j Umrædd viðkvæmni Mbl. • varðandi þetta mál mun m. a.1 sprottin af þvi, 'aö Sjálfstæðis llokkurinn hefir lagt á það megináherzlu, að koma' þeirri trú inn hjá öllum, sem hafa lífsframfæri sitt af sjávarafla, að Sjálfstæðis- j menn einir bæru hag sjáv-' arútvegsins fyrir brjósti.1 Flokkur þessi virðist hafa' litið á málefni sjávarút-j vegsins sem eins konar heim anfylgju, sem hann einn ráði yfir og aðrir ættu hvergi nærri aö koma. Þannig hefir hann lagt ofurkapp á að sjá svo um. að Sjálfstæðismenn væru ráðandi í hvers konar samtökum útvegsmanna, enda hefir af hálfu ýmsra stjórna i slíkum samtökum verið haldið uppi eins konar tilbeiðslu á flokknum og for- ustumönnum hans. Þaö er t. d. ekki óalgengt, að skýrslur eða önnur opinber plögg frá slíkum stjórnum sé aðeins birt í Mbl. rétt eins og það væri fagtímarit um útvegs- mál! Svo á það að ganga guð lasti næst, ef menn utan Sjálfstæíiisflokksins beita sér fyrir hagsmunamálum sjáv- arútvegsins og þar að auki fjarstæða að láta sér detta í hug áð þeir hafi nokkru sinni gert það. Þvi er hins vegar ekki að neita, að! heimaríki Sjálfstæð ismanná; á sviði sjávárút- vegsins, er í margra augum að verða! fremur broslegt um þessar rpundir. Ýmsir útvegs menn erþ þegar búnir að fá nóg af Sjálfstæðisstjórnun- um í hagsmunasamtökum útgerðarinnar, og nægir að minna á Da-wson-hneykslið í því sarnþandi, að ógleymdri hinni sjálfboðnu ráðs- mennskú' þeirrá f afurðamál um útvegsins ýfirleitt. Að visu var:;það lengi svo, aö ýmsir sjálfstæðismenn ráku Ávörp flutt á Finnlandskvöldi útvarpsins siðastl. iaugardag i Útvarpið hafði sérstakt Finnlandskvöld á laugardaginn vegna finnsku iðnsýningarinnar. Við það tækifæri fluttu ræður Vilhjálmur Þór forstjóri, Penna Tervo ráðherra og Juuranto ræðismaður íslands í Helsingfors. Bæði Tervo og Juuranto töluðu á íslenzku. Ávörp þessi fara hér á eftir: Ávarp VilhjáBms Þór Góðir hlustendur. Finnland og ísland teljast til Norðurlanda. Þau eru út- verðir þeirra — Finnland í | austri — ísland í vestri. Mikil fjarlægð skilur lönd- in. Um flest eru þau ólík. Finnland er áfast megin- landinu, flatt, að mestu þakið skógi, þúsund vatna land,1 blítt og fagurt á mildum sum j ardegi. ísland, eyjan í úthafínu,' stórbrotið með eldfjallafans og jökulhjálm, skóglaust,1 hrjóstrugt en tignarlegt og fagurt. j Þjóðirnar, sem byggja þessi lönd, eru þá einnig að mörgu ólíkar. Svipir fólksins eru aðr ir austur þar en hér heima. — Þjóðirnar tala tungumál, sem eru með öllu óskild — og því miður óskiljanleg hvor öðrum. Saga Finna er urn margt óskild sögu íslendinga. Lega landanna skapar harla ólík viðfangsefni. [ En þrátt fyrir allt þetta, sem er ólíkt með Finnum og íslendingum, er.margt annað, sem tengir þjóðirnár saman. Bönd hinnar norrænu frænd- semi eru sterk, og líkir skaps munir hafa jafnan greitt fyr- ir skilningi, vináttu og sam- búð Finna og íslendinga. Báð ar þjóðirnar eru bókhneigðar og listrænar og eiga sér merk- ar bókmenntir frá fyrri tím- um. Hinir tiltölulega einhæfu atvinnuvegir hafa orðið til þess að skapa ný og traust tengsl milli þessara tveggja þjóða. Skógurinn er Finnum það, sem hafið er okkur ís- lendingum. Þetta er grund- völlurinn undir því, að mikil viðskipti hafa tekizt með þjóð unum, báðum til hagsbóta. Örlög Finna hafa á margan hátt verið örðug. Þeir hafa nauðugir dregizt inn í styrj- aldir við stórveldi, orðið aö fórna mörgum vöskum sonum sínum á vígvöllum, láta af hendi l/lo hluta af landi sínu og greiða ógrynni fjár í stríðs bætur. En aldrei hefir þróttur, kjarkur og stcrhugur finnsku þjóðarinnar komið betur fram en i þessu andstreymi. Allur heimurinn dáðist að hetju- vörn þeirra. Allir hafa dáðst að viðreisnarstarfi þeirra eftir stríðið. Nálega hvert manns- barn úr þeim héruðum, sem þeir urðu að láta af hendi, valdi frekar að yfirgefa heim ili sín og flytjast til annarra landshluta, í algerri óvissu um framtíð sína, heldur en að hætta að vera Finnar. Og með dugnaði og framsýni hef- ir öllu þessu fólki verið skapað nýtt líf og ný störf. Allt þetta vekur aðdáun okk ar íslendinga og gefur okkur sterka löngun til að kynnast þessari þróttmiklu þjóð betur, bæði til fróðleiks og til gagns. Hraðvaxandi viðskipti ís- lendinga og Finna hin síðari ár hafa stuðlað að margs kon ar auknum kynnum milli þjóð anna, bæði á viðskiptasviðinu og utan þess. Nú hafa Finnar rétt okkur bróðurhönd með þvi að gera myndarlegt átak til að auka enn þessi viðskipti og menningarkynni beggja þjóða. Þeir hafa komið upp binni myndarlegustu iðnsýn- ingu i Reykjavík, sem opnuð var í dag, og sent hingað tigna fulltrúa á sviði stjórnmála, viðskipta og lista. Okkur íslendingum er kær- komið að bjóða svo góða gesti velkomna til lands okkar. Það er okkur kærkomið að sjá og skoða hina myndarlegu iðn- sýningu, sjá kvikmyndir bær, sem daglega verða sýndar hér, og kynnast þannig fram- leiðslu og lífi Finna, kærkom ið að heyra hinar hlýju kveðj ur þeirra og hlýða á fagra tcn list þeirra. En það væri okkur kær- komnast, ef við gætum laun aö þeim vináttu með auknum kynnum við finnsku þjóðina og auknum viöskiptum Við hana. Vér Islendingar, sem lagt höfum því lið, að Finnska iðn sýningin í Reykjavík kæmist upp, höfum gert það til að sýna, að íslendingar meta þau vaxandi viðskipti, sem tekizt hafa milli íslands og Finnlands fyrirfarandi ár. Þessi viðskipti hafa verið og eru hagkvæm, og það er von ’ vor að Finnska Iðnsýninginj og heimsókn þeirra góðti. íir.nsku gesta, sem hingaö eru ( kcmnir, megi verða til auk-| inna viðskipta, vináttu og me .-.ningartengsla til hags og j tll hamingju íyrir báðar þjpö- j Með þessari ósk og í þeirri vcn fögnum vér þeim fulltrú- um Finnlands, sem fiytja kveðjur hér i kvcld, en þeir eru, verzlunarrnálaráðherra Finnlands, herra Fenna Ter- vo, og hinn ágæti ræðismað- ur íelands. í Helsinki, Eiríkur Juuranto. Ávarp Tervo Við í Finnlandi höfum lit- ið á ísland fyrst og fremst sem söguland, en nútima- tækni með auknum möguleik um til ferðalaga hefir fært þessi lcnd nær hvcru öðru og gert það kleift að ferðast á milli beirra á nokkrum klukku stundum. Ég hef einu sinni áður ver- ið á íslandi, og ég vil lýsa yfir ánægju minni að hafa fengið tækifæri til að koma hingað aftur. Viðskiptin milli Finnlands og íslands hafa tuttugfaldazt á árunum eftir síðustu heims styrjöld, og Finnland er nú í fremstu röð þeirra landa, er skipta við ísiand. Það er ósk okkar og von, aö þessi iðnsýning geri okkur það mögulegt ekki aðeins að halda þessari aðstöðu, held- ur ennfremur að auka við- skiptin við ísland cg tengja ísland og Finnland enn nán- ari vináttuböndum. Ávarp Jyuranto Það er mér og lconu minni mikil gleöl aö vera komin J hingað til Reykjavíkur enn j einu sinni, því miður er dvöl in svo stutt að engin tök eru j ti) þess að hitta alla okkar; mörgu vini — en ég nota þetta tækifæri til að senda þeim öllum beztu kveðjur ckkar. Finnska iðnsýningin í Rvík var opnuð í dag. Það er von mín og ósk að þessi sýning megi verö'a hornsteinn að á íramhaldandi og vaxandi sam íFrarrjhald á 6. siðu.) sjálfir útgerð með dugnaði, en lítið fer fyrir slíkri for- ustu Sjálfstæðismanna nú orðið. Mikið af togaraútgerð inni er nú þjóðnýtt á veg- um hinna stærri bæjarfélaga og útgerðarmenn bátaflotans .fyigja ýmsum flokkum að málum. Það er og líka mála sannast, að ýmsar aðgerðir Sjálfstæðisflokksins í þjóð- 'málum hafa gert útgerðinni jerfitt fyrir, og þá sérstaklega verðbólgustefna flokksins á sínum tíma í félagi við kom- [múnista. Má segja, að öll út- gerð hafi síðan barizt í bökk !um hér á landi. Ýmsir mátt 'arstólpar flokksins, sem áð- !ur ráku útgerð, hafa nú að miklu leyti beint fjármagni ^sínu í aðrar áttir og þá fyrst og fremst að kaupsýslu. Og satt að segja er víst alveg ó- hætt að fullyrða það, að ráðamenn innan flokksins, hafi nú engan sérstakan á- huga á útgerö, þótt þeim sé hins vegar hið mesta keppi- kefli að ráða yfir sjávarafl- anum, þegar hann er kominn á land, þ. e. vinnslu hans og sölu. En sú starfsemi má fremur teljast kaupsýsla en útgerð eins og nú er háttað málum. Eru og áhugamál máttarstólpa flokksins nú yfirleitt fremur á sviði kaup sýslu en framleiðslu. Ef litið er á þá menn, sem nú skipa ráðherrastóla fyrir hönd flokksins kemur í ljós, að aðeins einn þeirra, Ólafur Thors, hafi haft til aö bera sérstakan kunnugleika á út- geröarmálum, og má þó segja að langt sé síðan sá maður hefir starfaö að sjáv- arútgerð. Hinir tveir, Bjarni Benediktsson og Ingólfur Jónsson, hafa engan kunn- Jugleika eða áhuga á útgerð jöðrum fremur, þótt þeir að ;sjálfsögðu kunni almenn skil Já þeim málum, eins og aðr- ir, sem við stjórnmál fást. Aö öllu athuguðu, virðist nú fullkomlega kominn timi til þess fyrir Sjálfstæðismenn og málgögn þeirra, að hætta ,að gera sig broslega með því |að þykjast hafa einkarétt ;til að fást við sjávarútvegs- .mál og ræða þau opinber- lega — eða halda því fram, að þeir séu öðrum fremur v-nir og forsjármenn útgerð |arinnar. Slíkir tilburðir eru úreltir og engum að gagni. í frumvarpi til nýrra læknaskipunarlaga, sem heil brigðis- og félagsmálaneínd efri deildar flutti, að tilhlut an landlæknis, er aö minnsta kosti eitt merkilegt nýmæli. Er það lagt til í 6. gr., að heimilt verði „að' greiða úr ríkissjóði % launa karla allt að sex hjúkrun- arkonum til starfa í læknis héruðum, þar sem eru fjöl- menn afskekkt þorp eða byggðir, sem eiga langa eða erfiöa leið til læknis að sækja, enda sitji þá hjúkr- unarkonur þessar í þeim þorpum eða byggöum“. Er ætlazt til, að hlutaöeigandi sveitarstjórn ráði hjúkrun- arkonurnar með samþykki heilbrigðisstj órnarinnar. Ekki er ólíklegt, að á þenn- an hátt sé heppilegast aö leysa mál þeirra byggðar- laga, sem nú eru illa sett, en of fámenn til að geta verið sérstök læknishéruð. Er þess að vænta, að heil- brigðisnefndin, sem Alþingi kaus eftir tillögu Hermanns Jónassonar, gefi þessu gaum. Nýju brúalögin Á síðasta Alþingi voru sett ný brúalög. Þar eru að ' sjálfsögðu niður felldar brýr, sem byggðar hafa verið sið an brúalög voru síðast sett (1932) og breytingar gerðar á þeim (1943 og 1947). Jafn framt eru þarna teknar upp nýjar brýr, sem ekki hafa áður verið í lögum. Alls eru;_ nú í lögum 118 brýr, sem eft ir er að byggja, þar af 46 á Vesturlandi, 16 á Norður- landi, 25 á Austurlandi og 31 á Suðurlandi. Eru Skafta fellssýslur báðar þá taldar til Suðurlands. Auk þess er gert ráð fyrir að 24 brýr verði endurbyggðar, þar af 7 á Vesturlandi, 7 á Norður- landi, 5 á Austurlandi og 5 á Suðurlandi. Mest þessara brúa er að likindum brúin á Ölfusárós hjá Óseyrarnesi, sem tekin var upp í lögin samkv. tillögu Jörundar Brynjólfssonar „enda leiði rannsókn í ljós, að brúar- stæði sé öruggt og brúar- smíðin sé mikill þáttur í að tryggja afkomu íbúanna £ sjávarþorpunum austan fjalls“. Því miður mun bygg ing þeirra 142 brúa, sem þannig hafa verið lögfestar, taka nokkuð langan tíma og verður vart h.já því komizt að auka tekjuþ brúasjóðs frá því, sem þær nú eru. En tillögur þess efnis náðu ekki fram að ganga á síðasta þingi. Hæli fyrir drykkju- sjúka menn Þegar ' Eysteinn Jónsson var heilbrigðismálaráðherra, beitti hann sér fyrir því ár- ið 1949, að sett voru lög um byggingu og rekstur hæla fyrir drykkjusjúka menn. Méð þeim lögum var ákveð- ið, að tiltekin upphæð ár- lega af tekjum Áfengisverzl unarinnar skyldi um nokkur ár lögð í svonefndan Gæzlu- vistarsjóð. Var þá gert ráð fyrir að bæjarfélög kæmu (FramÞalú 6 6. EÍSuð

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.