Tíminn - 18.05.1954, Síða 6

Tíminn - 18.05.1954, Síða 6
6 TÍMINN, þriðjudaginn 18. maí 1954. 110. blaff, jflÍjj '^LED(FÉmM| 'sS^ís? ÍSSfeYKJAyfKUyö HTÖDLEIKfltíSID V ILLlO\DI\ Sýning miðvikuaag ki. 30. Piltur og stúlha Sýning fimmtudag. kl. 20. 49. sýning — næst síðasta sinn. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13.15—20.00. Tekið á móti pönt- unum. Sími: 8-2345 tvær línur. Drottnintf hafsins Bráðspennandi, ný, amerísk lit- mynd um baráttu landnema við miskunnarlausa sjóræningja og frumbyggja og dulmögn frum- skógarins undir forystu kvenna á tímum spönsku landnemanna i Ameríku. Bönnuð börnum innan 12 ára. John Hall, Marie Windsor. Sýnd kl. 5 og 9. Einn hoss er ehhi synd Sýnd kl. 7. r~jr~ x? 1 NYiA BIO — 1544 — I nafni laganna (Where The Sidewalk Ends) Mjög spennandi og vel leikin, ný, amerísk leynilögreglumynd. Aðalhlutverk: Dana Andrews, Gene Tierney. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJARNARBÍÓ Simi 6485. Hin fuUhomna hona (The Perfect Woman) Bráðskemmtileg og nýstárleg brezk mynd, er fjallar um vís- indamann, er bjó til á vélrænan hátt konu, er hann áleit að tæki fram öllum venjulegum konum. Aðalhlutverk: Patricia Roe, Stanley Holloway, Nigel Patrick. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Síðasta sinn. BÆJARBÍÓ — HAFNARFIRÐI - Glötuð æska. (Los Olvidados) Mexikönsk verðlaunamynd, eem alls staðar hefir vakið mikið umtal og hlotið metaðsókn. Mynd, sem þér munið seint gleyma. Bönnuð fyrir böra. Danskur skýringartexti. Sýnd kl. 9. Rauði engillinn Sýnd kl. 7. Sími 9184. 1 GOIBILL Gestaþraut í 3 þáttum. eftir: Yðar Einlægur. Leikstjóri: Gunnar R. Hansen. Frumsýning annað kvöld kl. 20.00. Aðgögumiðasala frá kl. 4-7 Sími 3191. AUSTURBÆJARBÍÓ Kóreustríð (Retreat, Heil) Mjög spennandi og viðburðarík, ný, amerísk stríðsmynd, er á að gerast á vígvöllunum í Kóreu. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Roy hemur til hjálpar Hin afar spennandi kúrekamynd í litum með Roy Rogers. Aukamynd: Teiknimynd með Bugs Bunny. Sýnd aðeins í dag kl. 3. Sala hefst kl. 1 e. h. GAMLA BÍÖ — 1475 — Ungur maður í gœfuleit (Young Man With Ideas) Bráðskemmtileg, ný, amerísk kvikmynd. Aðalhlutverkin leika: Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 2 e. h. TRIPOLI-BÍO Siml 1182. Korsíhubrœður (The Corsican Brothers) Óvenju spennandi og viðburða- rík amerísk mynd, gerð eftir hinni heimsfrægu skáldsögu Alexandre Dumas, er komið hef ir út í íslenzkri þýðingu. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum. Sr. Þorv. Jakohsson (Framhald af 4. síðu1 sandinum og hafið út frá sandinum. En eitt er eftir, sem með engu móti má ganga fram hjá, og það er hin inni- lega sambúð prestshjónanna gömlu og barna þeirra og tengdabarna. Hún var fögur þessi sívakandi og hlýja um- hyggja yngra fólksins fyrir eliinni, sem komin var út í kvöldskuggann. Þarna var samstillt og samúðarríkt heimilislíf. Síra Þorvaldur var einn þeirra manna, er ég tel mig hafa komist í mesta þakkar- skuld við, og hann var sá vin ur, sem ég gat treyst að aldr- ei mundi bregðast; hvað sem á dyndi mundi ég eiga tals- mann í honum, og þó meir fyrir góðgirni hans, umburð- arlyndi og tryggð en verð- leika' mína. Skuldin verður aldrei greidd, og ekki vildi ég launa. með því, sem honum mund verst þykja, en það er að ég bæri logið lof á hann þegar hann getur ekki leng- ur látið til sín heyra. Vænti ég þess líka-, að nú láti Guð honum raun minu lofi betri. Enda þótt nú sé um stund vík á milli vina, þykir mér líklegra að enn eigum við eftir að talast við, og þá vil ég ekki aö hann megi saka mig um oflof, því að orðin mundu hvöss.. Ég vil geta horfst í augu við hann fyrir það, að hafa sagt það eitt, er ég vissi sannast og réttast. Ýmislegt er það í þessari grein minni, sem vest firzkir menn, er verið höfðu sóknarbörn síra Þorvalds, all ir mér að grandvarleik kunn ir, hafa látið. mér í té, og kann ég þeim öllum beztu þakkir fyrir. Sn. J. HAFNARBÍO — Sími 6444 — 1\ Borgarljósln (City Lights) Hin skemmtilega og afbragSs velgerða gamanmynd, ein fræg- asta og bezta kvikmynd snill- ingsins Charlie Chaplins. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TRICO hreiBwtr allt, jafnt gólfteppl sem ffnasta silkivefnaS. Heildsölubirgðir hjá CHEMXA H. r. ÚR OG KLUKKUR - Viðgerðir á úrum. — JÓN SIGMUNDSSON, skartgripaverzlun, Laugavegi 8. J JCSERVUS^GOLD X- —iXyol 'l 0.10 HOLLOW GROL’ND 0.10 mrr, YELIOW BLACE mrn Hetjut SKÓGARINS eífir J O. CURWOOD 62. Ávarn Juuranto (Framhald af 5. siðu.l vinnu milli Finnlands og ís lands. Það er ánægjulegt að sýn ingin kemst á nú einmitt rétt eftir hina ágætu Finnlands- heimsókn forsetahjónanna, herra Ásgeirs Ásgeirssonar og frú Dóru Þórhallsdóttur. Konan mín og ég áttum þess kost að fylgjast vel með heim sókninni, og ég get fullvissað yður um að hundruð þúsundir Finna heyrðu þau og sáu hvar sem þau fóru og það var ekki íslandi unnt að senda betri fulltrúa til styrktar gömlum og nýjum böndum vináttu og samhugar milli Finnlands og íslands. Að lokum þetta: íslending ar. Komið og skoðið finnsku iðnsýninguna. Hún er þess virði og yður mun ekki iðra þess. & Stórt og smátt (Framhald af 5. eíðu.) upp hælunum, og þá fyrst og fremst Reykjavíkurbær, þar sem þörfin er mest. Nú hefir allmikið fé safnazt í Gæzluvistarsjóð, en úr fyrir huguðum framkvæmdum Reykjavíkurbæjar í þessum efnum hefir ekkert orðið. Á síðasta Alþingi var svo lög- unum breytt á þá leið, að ríkið taki að sér framkvæmd ir, og voru fjárframlög til þeirra jafnframt aukin með ákvæðum þar að lútandi í hinum nýju áfengislögum. Er þess að vænta, að ríkis- stjórnin reynist fram- kvæmdasamari en stjórnend ur Reykja/vákurbæjar hafa verið. aði, sá Clifton snöggvast framan í hann, og andlit hans var ekki frýnilegt. Munnurinn var opinn og hann reyndi að skyrpa út úr sér moldinni. Svo ultu kempurnar aftur um koll og veltust í faðmlög- um, og Clifton gat ekki lengur greint vin frá fjandmanni. En mesta ógnin í bardaganum voru þó hinar hvítu og löngu tennur Ajax, sem sífellt skein í. Svo skeði eitt af öðru með slíkum hraða, að endir einvígisins væri skammt undan. Það virtist hver síðastur fyrir Gaspard. Ajax nisti andliti hans hvað eftir annað niður í moldina og hélt um hnakka hans með járnkrumlum sínum. Clifton fannst sér renna kalt vatn milli skinns og hörunds. Hann þóttist sjá, að eitt vel úti látið högg með hnefa Ajax mundi ríða baggamun- inn. En enginn heiðarlegur, franskur Kanadamaður leyfir sér að útkljá slíkt einvígi með hnefahöggi. í stað þess tók Ajax að afskræma andlit Gaspards með þvi að núa því fram og aftur í moldinni. Hann lyfti höfði hans við og við og slengdi því síðan niður aftur. Litli munkurinn hoppaði eins og kanína af ákafa, sveiflaði handleggjunum fram og aftur og var búinn aö steingleyma öllum bænum. í stað þeirra reyndi hann að hrópa ýmis heilræöi til Gaspards. Já, Gaspard virtist alveg yfirbugaður, hann gat varla stunið framar. Þegar hér var komið, leit Clif ton í gluggann. Gat það verið, að Angelique gæti setið róleg og horft á þetta? Hann fylltist reiði og fyrirlitningu á þessari stúlku, er hann sá fölt andlit hennar innan við gluggann. Svo skeðu óvæntir atburðir. í örvæntingartilraun tókst Gaspard að slöngva fótunum utan um háls Ajax, og hann þjarmaði svo fast að andstæðing sínum, að munkurinn rak upp siguróp. Ajax varð að sleppa hálstökum sínum á Gaspard til þess að losna- úr þessari kyrkigreip. Gaspard gat því snúið höfð- inu og dregið að sér loft. Honum óx afl við það, og hálstak hans með fótunum varð enn harðara. Ajax rak upp öskur, sem endaði í hálfkæföu korri. Nú hlaut að líða að lokum. Ajax virtist stara upp í himinhvolfið eins og hann væri að leita að ákveðinni stjörnu þar. Augun urðu útstæðari og tennurnar komu lengra fram. Það var engu likar en sál hans hefði þegar hafið himnaför sína. Svo skeði hinn þriðji óvænti atburður. Ajax hafði fálmað sem í blindni umhverfis sig. Clifton áleit, að hann væri að missa meðvitundina. Þá sá hann hendur Ajax læsast um úlnlið Gaspards og síðan færðist ber fótleggurinn nær og nær hinum ógnandi tönnum Ajax. Clifton hélt niðri í sér andanum. Mundi Ajax hafa krafta til að neyta tannanna? Já, það var ekki um að villast. Hann ýtti buxnaskálm Gaspards hægt ofar á fótlegginn og nísti tönnum sínum á kaf í holdið. Clifton hafði aldrei heyrt annað eins villidýrsöskur og það, sem Gaspard rak upp. Hann losaði fótatakið, og augnaráö Ajax varð brátt eðlilegra og hann fékk þrótt til að leggja enn meiri krafta í bit sitt. Litli munkurinn snökti af ör- væntingu. Ajax hafði nú yfirhöndina aftur og mundi hafa hana, ef hann gæti haldið tannatakinu, því aö hann hafði undið svo mjög upp á fót Gaspards, að hann mundi ekki geta losað sig. Clifton leit enn einu sinni til gluggans, og sá, að Angelique sat enn hreyfingarlaus, þótt hún heyrði óp Gaspards. Þessi óp sýndu, að Gaspard hafði gersamlega gleymt Angelique. En Ajax hafði ekki gleymt henni. Á þess- ari sigurstundu gat hann ekki stillt sig um að snúa höfðinu svolítið, svo að hann sæi Angelique innan við gluggann. Hann sneri sér afar hægt. Að lokum hafði hann hnikað sér svo til án þess að sleppa tanntakinu, að hann sá glugg- ann, en til þess hafði hann orðið að snúa vinstri fæti Gapards dálítið, og þau mistök riðu baggamuninn. Gaspard tókt að losa sig með hörðum hnykk, og hann lét ekki á sér standa að nota tækifærið. Hann sparkaði út frá sér með lausa fætinum af öllu afli og hitti mitt brjóst Ajax af svo miklum krafti, að hann kastaðist á bakið til jarðar. Þar lá hann með útrétta handleggi sem dauður væri, en kjánalegt bros lék enn um varir hans. Munkurinn þaut þegar til og laut yfir Ajax, svo spratt hann upp og hljóp að vagni Ajax, stökk upp í hann og ók brott sem óður væri. Skyldi Ajax vera dauður? Clifton hraðaði sér til hans og athugaði hann. Svo kom Gaspard haltrandi að, og þegar hann hafði litið á hinn sigraða andstæðing sinn, sneri hann sér með sigurbros á vör að glugganum. En svo rak hann upp skaðræðisöskur og þaut að bakdyrunum. Clifton elti hann. Skyldi Gaspard hafa truflazt eitthvað á geðsmunum í þessum ógurlegu átökum? Þegar þeir komu að stofudyrunum, þar sem Angelique sat við gluggann, var Clifton aðeins eitt skref að baki honum. Og þeim gafst á að líta. Stúlkan sat á stólnum bundin föst við hann og var stólnum snúið þannig, að hún hlaut að horfa út um glugg- ann. En þetta var ekki Angelique. Stúlkan leit skelfdum augum á komumenn. Hún var náföl og með grátekka. Hún var feit og silaleg. Drottinn minn dýri, hugsaði Clifton, var þetta hin fagra Angelique.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.