Tíminn - 26.06.1954, Side 6

Tíminn - 26.06.1954, Side 6
TÍMINN, iaugardaginn 26. júm 1954. 139. bJaJS1, víltl'b ^LEnCFÉLAG^I ®^pKJAyÍKUg© HðDLEIKHÚSID NITOUCHE 6peretta í þcem þáttum sýning sunnudag kl. 20,00 og þriðjudag kl. 20,00. Næst síðasta sinn. A.ðgöngumiðasalan opin írá kl 13,15 til 20,00. Tekið á móti pöntunum. - Sonur dr. Jekylls Geysilega spennandi, ný, ame- rísk mynd gerð sem framhald af hinni alþekktu sögu Dr. Jekyll Gg Mr. Hyde, sem allir kannast við. Louis Hayward, Jody Lawrence, Alexander Knox. Sýnd kl. 5, 7 og 9, Bönnuð börnum. ■^H»<»»«. ■♦»>■<» ■»«■♦*<»< NYJA BÍÖ — 1M4 — Bortj í heljctr- greipum (Panic in the Street) Aðalhlutverk: Ricbard Widmark Barbara Bel Geddes Paul Douglas Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum Kvenskassið off karlai'nir Grinmyndin sprenghlægilega með lj£ ABBOTT og COSTELLO Og þess utan Kjarnorkumúsin. . Sýnd kl. 3. Sala hefst kl. 1 e. h. TJARNARBÍO Sítnl (485. Ævintýri í svefnvagninum Sprenghlægileg þýzk gaman- mynd. Aðalhlutverk: Olly von Flint Georg Alexander Gustaw Waldau Danskur skýringartexti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. I BÆJARBIÖ — HAFNARFIRÐI - ANNA Btórkostleg ítölsk úrvalsmynd, tem íarið hefur sigurför um all- «n heim. Mynúln hefur ekki verið sýnd áður hér á iandi. Danskur skýringartextl. Bönnuð bömuna- S$Ðd.U. 7 og 8. X SERYUS GOLD X [L/X.T__ —itxaiJ ^ 010 HOLLOW GROUKO 0.10 ^ mni YEUOW BtftPE mm cp' ÚK OG KLUKKDB — Viðgerðir & úrum. - JÓN SIGMUNDSSÖN, Bkartgripaverzlun, JLangavegi 8. „Frœnka Charles“ Gamanliekur í 3 þáttum. Sýning annað kvöld kl. 20. Aðgöngumiðasala frá kl. 4—7. Sími 3191. Næst síðasta sirm. AUSTURBÆJARBÍÖ Lndir dögun (Edge of Darkness) Sérstaklega spennandi og við- burðarík amerisk kvikmyud, er lýsir baráttu Norðmanna gegn hernámi Þjóðverja, gerð eftir skáldsögu eftir Williams Woods. Aðalhlutverk: Erroll Flynn, Ann Sheridan, W'alter Huston. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 4 e. h. GAMLA BIO — 1475 — Maðurinn á kuflinum (Tbe Man With a Cloak) Spennandi og dularfull, ný, ame rísk MGM-kvikmynd, gerð eftir frægri sögu John Dickson Carrs. Joseph Cotten, Barbara Stanwyck, Leslie Caron. Bönnuð börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. M TRIPOLI-BIO Stml 11S2. Ferðin til þín (Resan till dej) Afar skemmtileg, efnisrik og hrif andi, ný, sænsk söngvamynd með ALICE BABS, JUSSI BJÖR LING og SVEN LINDBERG. — Jussi Björling hefir ekki komið fram i kvikmynd síðan íyrir síð. ustu heimsstyrjöld. Hann syngur í þessari mynd: Celeste Aida (Verdi) og Til Havs (Jonathan Reuther). Er mynd þessi var frumsýnd í Stokkhólmi s. 1. vetur, gekk hún í 11 vikur. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala frá kl. 4. HAFNARBIO — Síml 6444 — Kvenskörungar (Outlaw Women) Spennandi og skemmtileg, ný, amerísk mynd í litum um nokkra harðskeytta kvenmenn, er stjórn uðu heilum bæ. Aðalhlutverk: Marie Windsor, Jackie Coogar, Richard Rcber. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Blikksmiðjan GLÖFAXI HRAUNTEIG 14- EÍm IM Þúsundir vita, að gæfan fylgir hringunum frá SIGURÞÓR, Haínarstrætl 4. Margar gerðir fyrirliggjandi. Sendum gegn póstkröfu. Síórt og smátt (Framhaid af 6. sfðu.i hverjar framkvæmdir fyrir varnarliðið og hafa hagnað af því. Hvílíkur þjóðarvoði, ef annað eins kæmi fyrir! Þetta kemur engum á óvart. Menn hafa lengi vitað, að kommúnistum er illa við sam vinnufélög. Það sýnir meðferð þeirra á Kron undanfarið. Viðvíkjandi óráðshjali Þjóð- viljans í gær skal að öðru leyti þetta sagt: Engum nema piltunum við Þjóðviljann detur í hug, að rétt sé að íslenzka ríkið beri kostnað af girðingum um varnarsvæðin. Bandaríkja- menn hafa víst ekki einu sinni farið fram á slíkt. Það afsakar ekki hrakmannlega framkomu kommúnista gagn vart íslenzkum lögreglumönn um fyrr cg síðar, þó að am- erískir lögreglumenn hafi einhverntíma komið illa fram. Og þó að bandaríska lögregl- an færi illa að ráði sínu í fyrra, má alveg eins viður- kenna það, sem henni fer vel úr hendi á þessu ári. Komm- únistar ættu líka að fá við- urkenningu, ef þeir byrjuðu að sýna föðurlandinu holl- ustu! Erlent yfirllt (Framhald af 6. slðu.) viðurkennt, hvað sem Evrópuhern- um líður. Óþolinmæði Vestur-Þjóðverja birtist nú einnig í því, að þeirri stefnu vex þar nú fylgi, að tekið sé upp stjórnmálalegt og viðskipta- legt samband við Sovétríkin. Meðal þeirra, sem nýlega hafa gerzt tals- menn þessa, er Briining, sem var kanzlari Þýzkalands 1930—32, en hann nýtur allmikils álits í Þýzka landi. Adenauer kanzlari hefir hingað til hamlað eindregið gegn þessu, en svo getur farið, að hann verði aö láta undan, ef sami drátt- ur helzt áfram hjá vesturveldun- um og verið heíir hingað til. Ekki sízt þetta viðhorf mun verða þeim Eisenhower og Churchill aukin livatning til þess, að ná á Washing- tonfundi samkomul. um, hvað gera skuli til að tryggja endurvígbúnað Þýzkalands, ef Evrópuherinn strand ar alveg. Margt bendir til, að það, sem komi næst til athugunar, ef Evrópuherinn strandar, sé bein þátttak§ Vestur-Þjóðverja í At- lantshafsbandalaginu. Íslomíiiipabæíiiv (Framhald af 3. siðu.) hendi í Reykjavík nm tíma veturinn 1947. Fyrir það stend ég í óbættri þakkar- skuld. Ef það á fyrir mér að liggja þegar þessu tilverustigi lýk- ur, að hitta einhverja af min um kunningjum, þá vona ég fastlega, að Loftur Einars- son verði einn í þeim hópi. — Ég vil svo kveðja hann með sðmu orðum og ég not- aði, er ég kvaddi hann með- an hann enn var lífs: Vertu blessaður! Þakka þér fyrir allt! Guðmiíndwr Pálsson. Ályktanir ... (Framhaia af 3. siðu.) Pálmi Jósefsson formaður, Arngrímur Kristjánsson vara form., Guðm. í. Guðjónsson ritari, Þórður Kristjánsson gjaldkeri, Arnfinnur Jóns- son, Árni Þóröarson og Frí- mann Jónasson. $ leikMckutn — Getið þér sagt mér eitthvað um heimilishald þeirra. Hafa þau vinnukonu? — Já. — Hvað er hún gömul? — Ég veit það ekki. Þrjátíu og átta. — Þér vitið ekki, hvort hún er í tygi við neina? — Nei. Og ég veit heldur ekki, hvað amma hennar hét. — Savage brosti þolinmóðlega til mín. Andartak hélt ég, að hann ætlaði að halla sér fram yfir borðið og klappa á hné mér. — Ég sé það, herra Bendrix, að þér hafið ekki mikla reynslu af njósnum. Vinnukona getur verið afar mikilvæg. Hún getur sagt okkur svo mikið um siði húsmóður sinnar. Þér mynduð verða undrandi, ef þér vissuð, hvað margt get- ur verið mikilvægt, jafnvel við einföldustu rannsóknir. Hann sannaði þessa kenningu sina þennan morgun. Hann fyllti margar blaðsíður með smárri, ólæsilegri skrift sinni. Einu sinni gerði hann hlé á spurningum sínum. — Mynduð þér leyfa manni frá okkur að koma heim til yðar, ef það reyndist nauðsynlegt? Ég sagði honum, að mér væri alveg sama. Um leið fannst mér eins og ég hefði verið að bjóða heim einhverri pest. — Ef hægt væri að komast hjá því.... — Vitanlega — vitanlega. Ég skil. í raun og veru held ég, að hann hafi skilið mig. Ég hefði getað sagt honum, að návist þessa manns myndi verða eins og ryk yfir húsgögn mín og falla eins og sót yfir bækur mín- ar, og ég held, að hann hefði ekki oröið neitt hissa eöa fallið það verr. Ég get ekki skrifað nema á tandurhreinan pappír. Ef klessa eða tesopi lendir á örkina, er hún ónot- hæf. Og nú fannst mér eins og ég myndi alltaf þurfa að læsa pappír minn niður, ef ég mætti eiga von á óvæntum gesti. Ég sagði: — Það væri betra, ef hann gæti gert mér að- vart áður.... — Að sjálfsögðu, en það er ekki alltaf hægt. Heimilis- fang yðar, herra Bendrix, og símanúmer yðar? — Það er ekki einkasími. Húsmóðir mín hefir millisam- band. — Allir menn mínir eru afar háttvísir. Vilduð þér fá skýrslu vikulega, eða kjósið þér fremur að fá bara niður- stöður rannsóknarinnar. — Vikulega. Þessu getur aldrei orðið lokið. Sennilega fæst aldrei nein niðurstaða. — Hafið þér oft verið hjá lækni yðár og ekkert að? — Sú staðreynd, herra Bendrix, að menn sækjast eftir þjónustu okkar, er öruggastur vitnisburður um, að venju- lega getum við gefið einhverjar upplýsingar. Ég geri ráð fyrir, að ég hafi verið heppinn að lenda á Savage. Hann haföi orð fyrir að vera ekki iafn viðurstyggi- leg persóna og menn af hans tagi eru yfirleitt. Engu aö síður fannst mér aðstoð hans fyrirlitleg, því að þegar hú ferð að hugsa um það, þá er það engin virðingarstaða að njósna um sakleysingja. Og eru ekki elskendur nærri ahtaf-. sakleysingjar. Engan glæp hafa þeir framið, og þeir eru þess fullvissir að hafa ekki aðhafzt neitt rangt. Það kemur engum við, nema mér sjálfum. Þannig hugsa þeir. Ástin er afsökun alls. Þaö er trú þeirra. Því trúði ég i þá tíð, ,er ég elskaði. Þegar við tókum að ræða um þóknunina, var Savage furðu lega sanngjarn: — Þrjár gýneur á dag og aukakostnaður, sem vitanlega verður að greiða. Hann útskýrði þennan aukakostnað. — Það er kaffi, sagði hann. Og stundum verða menn mínir að bjóða glas. Ég reyndi að spauga, að ég myndi ekki samþykkja viský, en Savage virtist ekki taka eftir gamni mínu. — Ég man eftir máli, sagði hann, þar sem mánaðar rann- sókn kostaði ekki nema einn tvöfaldan viskýsjúss á réttu augnabliki. Það er ódýrasta viský, sem skjólstæðingur minn hefir nokkurn tínia borgað. Hann sagði mér, að sumir skjólstæðinga sinna vildu fá skýrslu daglega, en ég sagði honum, að mér nægði alveg að fá hana vikulega. Allt hafði þetta gengið ákaflega fljótt. Þegar ég kom aftur út á Vigostrætið, hafði hann nærri sannfært mig, að svona viðtal hlyti fyrr eða síðar að falla í hlut hvers einasta manns. ÞRIÐJI KAFII. — Og ef þér getið sagt mér eitthvað fleira, getur það orðið mikilvægt, man ég að Savage hafði sagt. Það hlýtur að vera jafn mikilvægt fyrir leynilögreglumann eins og rithöfund að viða að sér efni, áður en hann tekur að vinna úr því. Hversu erfið sem sú vinna kann að reynast, leiðir hún til lausnar á viðfangseíninu. Þungi hins daglega lífs hvílir á okkur eins og mara. Þegar ég tek nú að rita sögu mína, er vandamálið enn hið sama, og þó erfiðara. Nú hef ég svo mikið af staðreynd- um, að ég þarf ekki að leita þeirra. Hvernig á ég að greina mannlega skapgerð frá hinum djúpa grunni? — Dagblöðin, máltíðirnar, umferðin, sem vall í áttina til Battersea, mávarnir, sem komu upp frá Thames eftir æti, og hásumarsólin 1939, sem ljómaði í garðinum, þar sem börnin sigldu bátum sínum. Þaö var eitt þetta bjarta, svívirðilega fyrirstríðssumar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.