Tíminn - 02.07.1954, Page 4
Hákon B jarnason:
Gjöf til Landgræðslusjóðs
Frú- Ólöf D. Árnadóttir í
Birkihlíð við Bústaðaveg, sem
fékk verðlaun Morgunblaðs-
ins fyrir bezta svarið við
spurningunni um það, á
hvern hátt almenningur
gæti gefið lýðveldinu bezta
afmælisgjöf, hefir nú sent|
mér verðlaunin, kr. 500,00 og
beðið mig að afhenda Land-
græðslusjóði fjárhæðina í af
mælisgjöf. Ég vil hér með
þakka frúnni fyrir gjöfina
og hina ágætu hugmynd
hennar í verðlaunaritgerð-
ínni.
Ég þarf varla að taka fram,!
að ég er alveg á sama má!i
og frú Ólöf um, hvernig ís-
lcndingar geti bezt minnzt
lýðveldisstofnunar sinnar
bæði nú og síðar, og ég mun
nú héðan af reyna að halda
hugmynd hennar á loft.
Hákon Guðmundsson,
hæstaréttarritari, átti tal við
mig í gær um Landgræðslu-
sjóð, verkefni hans og fjár-
þörf. í því sambandi gat
hann um ágæta hugmynd tli
eflingar sjóðnum, og leyfi ég
mér að setja hana hér fram.
Honum finnst sem fleirum,
að óviðkunnanlegt sé, að
haía 17. júní sem merkja-
söludag eða fjársöfnunar.
Hins vegar ættu allir að hafa
litið í sinn eigin barm í síð-
asta lagi 16. júní og spurt
siálfa sig: „Hvað hefi ég unn
íð fósturjörðinni til framtíð-
arnytja fyrir þjóðhátíðardag
inn?“ Þeir, sem gróðursett
hefðu hæfilega mörg tré
væru auðvitað úr allri skuld,
cn hinir, sem enn hefðu ekk
ert gert eða lagt af mörkum
það árið, ættu auðvitað að
greiða skuld sína í Lánd-
græðslusjóð fyrir miðnætti
rnilli 16. og 17. júní.
Hugmyndin er prýðileg, því
að ein af okkar fyrstu skyld- 1
um gagnvart ættjörðinni og
lýðveldi þjóðarinnar er auð-
vitað að gera landið byggi-
legra, og til þess skortir okk-
ur mest af öllu skóga, skjói-
belti og hvers konar trjágróð
ur. —
— o —
Nú er það ekki á færi fárra
að leysa það verk af hendi
að koma nýjum skógum til
að vaxa, heldur verða lands
menn allir að leggjast þar á
eina sveif. Með verki nógu
margra handa og stuðningi
almennings mun slíkt verk
reynast létt, og þar sern
þetta er að auki siðferðiieg
skylda hvers manns, þá ætti
mönnum að vera þetta ljúft.
Nú stendur ríkissjóður und
ir nokkurri skógrækt, en
íramlög hans hrökkva ekki
langt, þótt ýmsum finnist
þau há, og skylt er að geta
þess, að skógræktarmálin
hafa notið vaxandi og auk-
ins* skilnings fjárveitingar-
valdsins á undanförnum ár-
um, og framlög til þeirra far
ið hækkandi. Þá leggja og
skðgræktarfélögin mikið af
mörkum til þessara mála, og
fer blutur þeirra mjög í vöxt.
En frarnlög til skógræktar og
sjálfboðaliðsvinna hrökkva
nú til uppeldis og gróðursetn
ingar á hér um bil einni miilj.
plantna eins og verðlagi er
háttað.
— o —
Stofnun Landgræðslusjóðs
varð á sínum tíma til þess
sð létta mjög undir plöntu-
uppeldinu, og með eflingu
sjóðsins mætti auka ýms
skógræktarstörf til muna. Á
10 ára afmæli lýðveldisins og
10 ára afmæli sjóðsins hefir
hann leitað til manna um
st.yrk, og hafa margir brugo-
izt vel við. Nú leitar hann
eftir afmælisgjöfum fram til
„0. júní, en lætur gefendum
happdrættismiða í staðinn.
Stjórnendur sjóðsins heita á
aila þá, sem skógræktarmál-
um unna, að leggja lið sitt
fram við happdrætti sjóðs-
ins, þannig, að allir miðar
verði seldir hinn 30., daginn,
sem sólmyrkvinn fer um
landið. Drætti verður ekki
frestað undir neinum kring-
umstæðum.
Ef vel gengur að efla sjóð-
inn mun margt vinnast í
sonn í skógræktarmálum
lahdsins, í fyrsta lagi eykst
starfsgeta sjóðsins. í öðtu
lagi mun fóVnfýsi manna við
stækkun sjóðsins sýna fjár-
veitingavaldinu aö hér megi
betur að standa. í þriðja
lagi eru undirtektir almenn-
ings mjög mikil hvöt öllum
þeim, sem að skógræktarmál
um vinna, svo að þeir munu
ganga glaðari til staría. Og
loks getur það flýtt ótrúlega
(franiíiald á 6. siðu.)
Landslcikurinit
(Framhald af 8. síðu).
meðal annars móti íslandi, og var
talinn bezti norski framherjinn yfir
leitt. í vor hefir hann ekki náö
sér eins á strik, en lék þó með A-
liðinu gegn Skotlandi á Hampden
Park sem vinstri útherji. Þá má
geta þess, aö hann hefir fengið' til-
boð frá atvinnuliðum frönskum.
Aðrir í liðinu eru þessir: Markmaö
ur: Willy Aronsen, Drammen, en
hann hefir veriö í fremstu röð s. 1.
ár, og hefir leikiö i B-liðinu. Anton
Lökkeberg, Sarpsborg, er hægri bak
vörður. Hefir leikið' í B-liðinu, og
stendur nærri því að komast í A-
liðið. Margir knattspyrnusérfræðing
ar í Noregi telja hann þó bezta
norska bakvörðinn. Knut Brogárd,
Örn, er vinstri bakvörður. Ungur,
óreyndur leikmaður. Hægri fram-
vörður er Odd Pettersen, Sarpsborg.
Miðframvörð'ur er Edgar Falch, Vik
ing, en það lið er nú norskur mcist
ari. Falch átti mestan þátt í þeim
sigri, ásamt Hakon Kindervág, sem
hér leikur vinstri innherja. Báðir
hafa leikið' í B-liðinu, og eru vax-
andi leikmenn. Vinstri framvörður
er Even Hansen, Odd, og er hann
af mörgum talinn bezti framvörður
í Noregi. John Olsen, Moss, er hægri
kantmað'ur. Hefir leikið í úrvals-
lið'um, m. a. nýlega gegn Osló, og
| var þá talinn einn lélegasti maöuv-
j inn á vellinum. Hægri innherji er
Ragnar Larsen, Odd, en hann leik
, ur venjulega framvörð í lið'i sínu.
j Á vinsti'a kanti er Willy Buer, Lyn,
; reyndur leikmaður, talinn sérlega
hættulegur við markið. Buer var
talinn einn bezti mað'urinn í Osló-
liðinu í áðurnefndum úrvalsleik.
Reyndir leikmenn.
Eins og af þessari upptalningu
sést, að þótt flestir leikmennirnir
séu ungir, hafa þó flestir þeirra
mikla reynslu til að bera. Ekki þarf
að efa, að baráttuvilji þeirra verður
mikill, því að meðal áhorfenda
verða menn, sem velja norska lands
liðið, cg er þvi mikilvægt fyrir þessá
menn að standa sig vel, því að flest
ir þeirra fá nú sitt stærsta'tæki-
færi. Sjö þessara leikmanna ieika í
liðum í Hovedseríen, sem er bezta
deild Norðmanna. Hinir fjórir eru
frá liðum i Landsdelsseríen,. sem
telja mætti 2. deild. Varamenn
verða Arve Egner, Strömmen, Arne
Winther, Skeid, Bjárhe Hánsen,
Válerengen, Leif Petersen, Fredrik
stad, Knud Sandengen, Vestforsen,
og Erik Engsmyhr, Greaker. Eru
sumir hverjir þessara leikmanna
öllu þekktari en þeir, sem Jeika í
iandsliðinu.
Þrír leikir.
Liðið mun leika hér þrjá leiki. Sá
fyrsti verður hinn opinberi lands-
leikur á sunnudagskvöldið. Annar
leikurinn verður við íslandsmeistar
ana frá Akranesi n. k. miðvikudag
og síðasti leikurinn verður við úr-
valslið úr Reykjavíkurfélögunum á
föstudaginn. íslenzká landsliðið hef
ir verið skipað og hefir það verið
birt er í blaðinu. Fyrirliði þess
verður Karl Guðmundsson, Frám,
en hann leikur nú sinn tiúnda
landsleik, þ. e. hefir leikið alla lands
leiki íslands. S4 leikmaður, sem
leikið hefir næstflesta Ieiki, er
Ríkarður Jónsson með 9 leiki. Aðr
ir hafa leikið mun færri, og tveir
leikmenn Halldór Sigurbjörnsson,
Akranesi, og Magnús jónsson,
Fram, leika nú sinn fyrsta landsleik.
! Dómari í lándsleiknum verður
Guðjón Einarsson, sém dæmir nú
sinn annan landsleik. Margar
óánægjuraddir hafa heyrzt vegna
þess að Guðjón á að dæma, ekki
vegna þess, að nokkur efist um
hæfileika hans sem dómara, he!d-
ur vegna þess, að ef erlendur dómari
dæmdi, skapast viss og skmmtilegri
stemmning. Einnig gæti svo farið,
að íslenzka liöið sigraði með nokkr
um yfirburðum, sem ekki 'er ósenni
legt, ef framherjarnir ná sér á
strik, og gæti þá svo farið, að Norð-
menn kenni dómaranum að ein-
hverju leyti um úrslitin. hsím.
Kaupmenn og kaupfélög m m aiit
Þar sem sumarleyfi í verksmiðju okkar nálgast, og mjög takmarkað magn
af okkar vinsælu og margeftirspurðu sportblússum mun verða fyrir hendi,
fyrir þann tíma, viljum við ráðleggja kaupmönnum og kaupfélögum um
land allt, að gera pantanir sínar strax í dag, því á morgun getur það verið
of seint.
ÞETTA ER SPORTBLÚSSAN, sem ALLIR taka með sér í sumarfríið, því
hún er framleidd úr fyrsta flokks efni, sem er algerlega vatnshelt, krumpast
ekki og hrindir vel frá sér öllum óhreinindum. Kragi, stroff og strengur, sem
allt er prjónað úr nýjustu efnum, höfum við fengið beint frá Ameríku.
Nýtt og fallegt og hentugt snið
VERKSMIÐJAN FRAM H.F.
Laugaveg 116 Sími 5477
Dreifingu annast: HARALDUR ÁRNASON, HEILDVERZLUN H.F., REYKJAVÍK