Tíminn - 11.08.1954, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.08.1954, Blaðsíða 3
TÍMINN, migvikudaginn 11. ágúst 1954. 3 177. blað. Bonnstjórnin hefur áhyggjur af fram- ferði þýzkra skemmtiferða- manna Gamlir stríðsmenn gjarnir á að taka upp forna hætti frá hernámsárunum. Vestur-þýzk stjórnarvöld eru sögð hafa vaxandi á- hyggjur af frámferði þýzkra ferðalanga erlendis. Utanrík ismálanefnd sambandsþings ins ræddi þessi mál sérstak- lega nú fyrir skemmstu, og bseði mnánríkisráðuneyti og utanríkismáiaráðuneyti Bonn stjórnarinnar hafa haft sér- stakar nefndir starfandi til þess að finna leiðir til þess að bæta úr ástandinu og koma í veg fyrir hina ‘stöð- ngu. árekstra milli þýzkra ferðamanna og íbúa landa þeirra, sem þeir gista. Eink- nm munu hafa orðið brögð að slíkum árekstrum í Hol- landi nú að' undanförnu. Danska stórblaðið Beilin- ske Tidende skýrir frá þessu 14. júlí sl., eftir heimildum fréttaritara bla.ðsins í Bonn. Segir þar m. a., að mikill fjöldi Þjóðverja hafi streymt til Hollands um páskana og hvítasunnuna, þar á meðal margir fyrrverandi hermenn, er dvalizt hafi á þessum slóð um á hernámsárunum. Leit- nðu þeir þá gjarnan uppi sína fyrri dvalarstaði, reyndu að fá aðgang að húsum þeim, sem tekin höfðu verið her- skildi handa þeim þá, sungu hina gömin hersöngva sína o. s. frv. — Pregnirnar af liinni miklu gremju, sem þetta hátterni þeirra olli í Hollandi, bárust auðvitað til Bonn. og taldi stjórnin þar þetta mjög alvarlegt mál, ekki sízt þegar kvartanir um svipúð- atvik tóku einnig að berast frá ýmsurn öðrum löndum, þar sem Þjóðverjar höfðu haft hersetu á ófrið- arárunum. Frumkvaeði til úrbóta. Stærsti stjórnmálaflokkur- inn, Samband kristilegra lýð ræðissinna, hefir einkum átt frumkvæði að því, að stjórn- arvöjdin munu skerast í leik inn og reyna að „kenna Þjóð verjum að vera góðir skemmtiferðamenn," eins og blaðið orðar þetta í fregn sinni. Skoraði þingflokkur- inn á stjórnina að leita sem bráðast allra hugsanlegra bragða til þess að bæta úr þessu ástandi. Formælandi flokksins kvað svo að orði í þinginu, er mál þetta var til urnræðu nú á dögunum, að bæði flokkurinn og stjórnin hörmuðu það mjög, að gá- lausleg eða jafnvel dólgsleg frámköma slíkra ferðalanga kynni á skömmum tíma að eyðileggja samúð þá og vel- vilja í garð þýzku þjóðar- innar, sem tekizt hefði með mikilli alúð og á löngum tíniá að skapa eftir stríðið. Betra er heilt en vel gróið, og daglega brjóta þessir menn hið dýra og fíngerða postulín vináttunnar og skiinihgsins, og oft er erfitt, eað j'áfnvel ómögulegt, að bæta þann skaða aftur. Jafnvel á Spáni. Ræðumaður kvað vand- ræði þessi svo alvarlegs eðl- is og víðtæk, að jafnvel í þeim löndum, þar sem Þjóð- verj ar hafa þó annars' átt vinum að fagna, svo sem á Spáni, hefðu ýmis gistihús færzt undan að hýsa þýzka gesti. Einkum kvað hann þátttakendur í hópferðum stundum haga sér dólgslega að þessu leyti, og væru þess mörg dæmi, að þeir tækju að kyrja ósæmilega hernað- arsöngva, þegar sízt skyldi. Margra bragða leitað. Ýmsar tillögur hafa komið fram til leiðréttingar í þessu vandamáli. T. d. hefir verið talað um það, að stjórnin hlutaðist til um að samin verði og gefin út kennslubók í góðum umgengnisháttum og mannasiðum, er ætluð verði þeim Þjóðverjum, sem hugsa til utanferðar. Verði þar ekki sízt rætt um þá hætti þýzkrar skaphafnar, sem íbúar viðkomandi lands eigi erfiðast með að sætta sig við. Aðrar tillögur beinast að því að fela skólum og menn- ingarfélögum uppeldisstarf það, sem hér þarf aö vinna. Enn aðrir tillögumenn ganga svo langt að leggja til, að svipta beri ferðamenn þá, er sannanlega hafa brotið af sér að þessu leyti, utanfarar- leyfi, svo mánuðum eða jafn’ vel árum skiptir, eftir mála-! vöxtum í hverj u einstöku til- ! felli. „Menningar“-áhrif nazist- j anna verða ekki afmáð á ! svipstundu. Allur heimurinn veit, að þýzka þjóðin er hinum ágæt ustu hæfileikum búin á marga lund. Listamenn henn ar, rithöfundar og vísinda- menn hennar, hafa löngum verið í fremstu röð, og eng- inn efast um dugnað þjóð- arinnar, kjark hennar og snilli, ekki sízt á sviði tækn- innar. Þá er það og vitað, að Þjóðverjar geta verið hinir mestu mannúðarmenn og á- gætir viðskiptis, enda höfum vér íslendingar oft kynnzt þeirri hlið á þeim á liðnum tímum. En þrátt fyrir allt þetta getur það naumast kom ið mönnum óvænt, þótt á- hrif þau, sem nazistastjórn í fullan áratug og uppeldi Hitl ersæskunnar m. a. hafa haft á þessa mikilhæfu og ágætu þjóð, verði ekki afmáð og að engu gerð á stuttu árabili, heldur er hitt stórum lík- 'legra, að lengi enn muni imega finna miður viðfelldinn ikeim úr því keri. „Fólkið draup höfði“ Nýlega las ég í einu af Reykjavíkurblöðunum þessa setningu: „Fólkið draup höfði í sorg.“ Þessa grein skrifaði landkunnur háskóla borgari. Hér ruglast greinarhöfund ur auðsjáanlega á tveim sögn um í málinu. Önnur sögnin er drjúpa= leka. Kennimyndir hennar eru þannig: drjúpa, draup, drupum, dropið. Hin sögnin er drúpa. Merk ingin er sú að hneigja höfuð af sorg eða söknuði. Kenni- myndir sagnarinnar að drúpa eru þannig: drúpa, drúpti, drúpt. „Fólkið draup höfði,“ þýð- ir því nánast, að fólkið hafi látið höfuðið LEKA af sér af einskærri sorg! jNei, fólkið drúpti höfði, héfir drúpt höfði. Dropinn drýpur, hann draup, þeir drupu, þeir hafa dropið. Hann drúpir höfði í sorg. Hann drúpti, þau drúptu, þaujhafa drúpt höfði. (Fr amsóknarblaðið). Nýr iðnlálasjóður í Finnlandi Settur hefir verið á stofn sjóður í Finnlandi, sem hefir það hlutverk að lána til lít- (illa iðnaðarfyrirtækja, sem jvilja gjörnýta framleiðslu- I möguleika sína eða þurfa á auknu rekstrarfé að halda af /öðrum ástæðum. Stjórn sjóðs ins skipa menn, sem standa framarlega í atvinnulífi landsins. Fé það, sem sjóðnum hefir verið lagt til, nemur 400 mllj. marka, en aukins rekstrar- fjár má sjóðurinn afla sér með innlendum og erlendum lántökum. Lítil iðnaðarfyrir- tæki, sem virðast hafa mögu leika til þess að færa út kvi- arnar, fá lán til langs tíma. Einnig á að aðstoða ný fyr- irtæki, sem virðast hafa góða framtíðarmöguleika, til þess að komast af stað. Annað höfuðhlutverk sjóðs ins á að vera að aðstoða smá fyrirtæki í viðleitni þeirra til aukins útflutnings m. a. með því að koma á fót sölumið- stöð á þeim vettvangi. (ísl. iðnaður). BAHCO lykla-sarastæður J3AHCO 31 BAHCO Minor Nr 1731 (nitn) Nr 1733 (tum) bifrelða-lyklar eins og öll BAHCO-verkfæri, eru gerðir úr bezta stáli sem þekkist og af óskeikulli nákvæmni. Þeir endast betur en aörir lyklar. Það er reynslan á íslandi, sem annars staðar. df.fýief- . heimsfrægu verkfæri eru búin til af A/B B. A. HJORTH & Co., STOCKHOLM Umboðsmenn á íslandi: Þórður Sveinsson & Co. h.f. Reykjavík. BAHCO Sextett Nr 1771 (mtn) Nr 1773 (tutn) BAHCO UV BAHCO Nr 1721 (intn) Nr 1723 (tum) BAHC.O Nr 1711 (mm; Nr 1713 (tum) BAIICO PK BAHCO PS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.