Tíminn - 20.08.1954, Qupperneq 1
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Ekriístofur í Edduhúsl
Fréttaslmar:
81302 og 81303
Aígreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda.
3. Érgangnr.
Reykjavík, föstudaginn 20. ágúst 1954.
185. blað.
Ákveðið að senda
sjö menn á Evrópu-
meistaramótið
Frjálsíþróttasamband ís
lands ásamt E.M.-nefndinni
liafa nú endanlega ákveðið
að senda eftirfarandi menn
til keppni á E.M.-mótinu:
Ásmundur Bjarnason K.R.
keppir í 100 og 200 m. hlaupi.
Guðmundur Vilhjálmsson Í.R.
keppir í 100 m. hlaupi. Hall-
grímur Jónsson Á. keppir í
kringlukasti. Skúli Thoraren-
sen Í.R. keppir í kúluvarpi.
ÍTorfi Bryngeirsson K.R. kepp.
ir í stangarstökki. Vilhjálm- ■
,ur Einarsson U.Í.A. keppir í
þrístökki. Þórður B. Sigurös- ’
ison K.R. keppir í sleggjukasti.1
Fararstjóri verður Brynjólf
ur Ingólfsson og þjálfari Bene
dikt Jakobsson.
Flokkurinn leggur af stað
& morgun kl. 1 e. h. flugleiðis
til Hamborgar og þaðan verð
ur svo haldið áfram á sunnu
daginn til Sviss.
Vilhjálmur Einarsson er
gtaddur í Finnlandi og mun
fara beint þaðan til Bern, en
þar hefst keppnin þann 25.
þessa mánaðar.
Barnaverndarfélagi
Akraness berst gjöf
Frá fréttaritara Tímans
á Akranesi.
Nýlega afhentu hjónin Guð
tún Guðmundsdóttir og Dan
íel Pétursson, kaupmaður,
Barnaverndarfélagi Akraness
sparisjóðsbók með tíu þús.
krónum, sem á að verða til
þess að efla starfsemi félags
ins. Frú Guðrún er meðstjórn
&ndi í félaginu. GB.
íslandsmeistararnir frá Akranesi. Fremri röð frá vinstri:
Sveinn Teitsson, Kristinn Gunnlaugsson, Magnús Kristjáns
son, Ólafur Vilhjálmsson, Guðjón Finnbogason. Aftari rcið:
Ilalldór Sigurbjörnsson, Bagbj. Hannesson, Ríkh. .Tónsson,
Þórður Þórðarson, Pétur Georgsson og Kristján Sigurjónsson
íslandsmeistararnir hylltir
við heimkomuna til Akraness
Mikill matiitfjciEdi samankominti á bryggja
Frá fréttaritara Tímans á Akranesi.
íslandsmeistararnir í knattspyrnu koinu heim til Akra-
ness með Eldborginni um miðnætti eftir úrslitaleikinn á
miðvikudagskvöldið. Mikill mannfjöldi tók á móti þeim á
hafnarbakkanum og voru sigurvegararnir ákaft hylltir.
Daníel Ágústínusson, bæj
arstjóri, flutti ræðu, er,
Karlakórinn Svanir, undii
stjórn Geirlaugs Árnasonar,
söng nokkur lög. Á eftir var
knattspyrnumönnunum boð
ið af bæjarstjórninni í veg
lega veizlu að Hótel Akranes.
Bæjarstjórinn flutti þar einn
ig ræðu og Guðmundur Svein
björnsson, formaður íþrótta
bandalags Akraness. Ríkharð
ur Jónsson, fyrirliði Akra
nessliðsins, svaraði og þakk
aði ágætar móttökur.
Ríkti mikil og almenn gleði
í bænum yfir úrslitunum í
:slandsmótinu, en þetta er í
briðja skipti á fjórum árum,
;em Akurnesingar sigra í því.
GB.
Dregst flugvallagerð
Bandaríkjahers á Græn
landi og íslandi saman?
NTB, Washington í gærkveldi. Bandaríski flugherinn
verður ef til vill að breyta eða hætta við áætlanir
sínar um endurbætur og stækkun flugvallanna á íslandi
og Grænlandi eða geyma til næsta árs, var tilkvnnt í
Washington í kvöld. Öldungadeildin hefir skorið niður
fiárveitingar til flughersins, og stjórn flughersins yfir-
vegar þess vegna, hvort fé það, sem nota átti til flug-
valla á Grænlandi og íslandi, geti koinið að meiri
notum annars síaðar.
íhaldið leggur f ram „athugun
ar”-tillögur um hitaveitumál
Kvergi gert ráð fyrir framkvsemcfum.
Finnu ntaima verkfr*eöiitganefml kosin
Á fundi bæjarstjórnar í gærkveldi lagði Sjálfstæðismeiri-
hlutinn fram ályktun í sex liðum um „fyrirætlanir og fram-
kvæmdir“ varðandi hitaveitu Reykjavíkur. Nokkrar umræð-
uv uvðu um þessi mál, og þótt allir fögnuðu því, að íhaldið
hefir nú rumskað í hitaveitumálunum, þótti heldur lítill
framkvæmdabragur á dagskipan Gunnars borgarstjóra.
Sunnlendingar kjósa ti!
Bónaðarþings n.k. sunnudag
i Tvefr listar eru í kjöri að þessu siniii
Á sunnudaginn fara fram kosningar til búnaðarþings í
hreppabúnaðarfélögunum á Suðurlandi á fulltrúum Bún-
aðarsambands Suðurlands, en þeir eiga fimm fulltrúa á
búnaðarþingi. Að þessu sinni hafa komið fram tveir listar
<og eru tíu menn á hvorum.
Björn Guðmundsson, skrif-
stofustjóri, sem sat fyrri hluta
fundarins af hálfu Framsókn
arflokksins, kvaðst fagna
þeim svefnrofum, sem íhaldið
virtist hafa tekið, en benti á,
að ekki væri nú greiður vegur
fra’rn undan i hitaveitumál-
um, og kenndi þar skammsýni
og ringulreið, er ríkt hefði í
bygginga- og skipulagsmálum
bæjarins. Byggðin heföi sem
kunnugt er verið þanin út um
holt og móa, og væri nú svo
dreifð, að bærinn ætti meira
en fullt í fangi með götur,
ræsi og aðrar lagnir, og dýrt
mundi verða að leggja hita-
veitu í öll úthverfin, og lík-
lega liði ár og dagur áður en
allir íbúar úthverfanna nytu
þeirra þæginda, sem hitaveit-
an býður.
(Framhald á 2. sfðu.)
Hitinn 22 stig í
skugga á Héraði
Frá fréttaritara Tímans
á Reyðarfirði.
í gær kom ég að Egilsstöð
um á Völlum. Var þar þá
sólskin og blíða eins og bezt
getur orðið. Hitinn var 22
stig í skugganum og þó svo
lítil gola. Bændur unnu
hvarvetna að heyskap og
má nú segja að hann sé leik
ur. Slá þeir niður og láta
síðan liggja unz þurrt er og
er þá rakað saman og hirt.
Hefir geysimikið af heyi
verið hirt undanfarna þurrk
daga. MS.
A-listinn er skipaður þess-
íum mönunm:
Bjarni Bjarnason, Laugar-
vatni.
Sigurbjartur Guðjónsson,
i Þykkvabæ.
Jón Gíslason, Norðurhjá-
leigu.
Sigurgrímur Jónsson, Holti.
Eggert Ólafsson, Þorvalds-
, eyri.
Sigursveinn Sveinsson,
I Fossi.
Þórarinn Sigurjónsson,
Laugum.
Sigurður Tómasson, Barkar
stöðum.
Trausti Eyjólfsscn.
Ágúst Þorvaldsson.
B-listinn er skipaður þess-
um mönnum:
Guðm. Erlendsson, Núpi.
Sigmundur Sigurðsson,
Langholti.
Séra Gísli Brynjólfsson,
Kirk j ubæj arklaustri.
Sigurjón Sigurðsson, Raft-
holti.
Einar Gestsson.
Kjartan Marteinsson.
Páll Björgvinsson.
Jón Þorsteinsson.
Eyjólfur Þorsteinsson.
Jón Pálsscn, dýralæknir.
Sigurjón Jónsson, formaður
Knattspyrnusambands ís-
Iands, afhendir Ríkharði
Jónssyni, fyrirliða Akranes,
íslandsbikarinn. Er það í
þriðja skipti, sem Ríkharður
veitir honum inóttöku fyrir
hönd Akurnesinga.
Hafin bygging sex
íhaldið rausnaðist til að
samþykkja að hefja bygg-
ingu sex fjölíbúðahúsa með'
5<0—80 íbúðum nú í haust. Á
að bvggja fyrir þær fjórar
milljónir, sem hækkun út-
svaranna nam, en enginn
eyrir er fenginn með sparn-
aði við reksíur bæjarins.
LögreglujDjónum og tollvörðum
sagtuppfæði í matskálum
Sameinaðra verktaka í gær
Er imi Iiefmlarraðstöfnn cins maims
g'egn lögregluþjóni að ræðft?
Fyrir nokkru var lögreglu
þjónum á Keflavíkurflug
velli og tollvörðum á sama
stað boðið, að þeir gætu
fengið keypt fæði í matskál
um Sameinaðra verktaka á
Iveflavíkurflugvelli. Þáðu
lögregluþjónar og tollverðir
þetta boð með þökkum og
i hefir það verið svo að und
anförnu, að þeir hafa borð
I að þarna í matskálunum.
Sagt upp.
Nú hafa lögregluþjónar
og tollverðir fengið uppsagn
arbréf, þar sem þeim er
sagt að þeir hafi ekki leng
ur heimild til að borða í
matskálum Sameinaðra
verktaka. Vita fyrrnefndir
aöilar ekki hverju þessi
uppsögn sætir og þykir hún
ótrúleg,, þar sem engar þær
breytingar hafa orðið á
starfsmannahaldi, sem geta
gefið til kynna, að það sé
einhverjum erfiðleikum
bundið að halda áfram að
selja þeim fæðið.
Hótun.
Hins vegar hefir heyrzt,
(Framhald á 7. siðu.)