Tíminn - 20.08.1954, Blaðsíða 2
TÍMINN, föstudaginn 20. ágúst 1954.
Shelley Winters sem er þriðja eldfjallið
í baráttunni milli Heklu og Vesúvíusar
185. blaff.
Vegna þess að nú hafa svo v'eður skipazt í lofti, að miklar
likur eru til að við fáum frægt kvikmyndafólk í heimsókn á
Jjessu hausti, er ekki úr vegi að skýra eitthvað frá þeirri
kvikmyndaleikkonu, sem nefnd hefir verið með nafni í þessu
sambandi. í gær skýrði blaðið frá beirri kvikmyndun, sem
stendur til að fari fram á eldhraunum Heklu og einnig að
kvikmyndaleikkonan Shelley Winters væri ein í hópi þeirra,
er myndi heiðra landið með nærveru sinni af þessu tilefni.
Shelley Winters er meö yngstu
leikkonum vestan hafs, er hlotið
hafa frægð síðustu árin. Það er ekki
fyrr en um 1950, sem eitthvað fer
að kveða að henni að ráði, en eftú
því sem henni voru gefin meiri |
tækifæri, eftir því jók hún við sig
sem leikkona. Náði hún skjótlega
mikilli frægð, einkum vegna þess, j
að hún hafði meirj persónu til að
bera en margar hinna yn:ri leik-
kvenna. Er Winters ómyrk í máli
um það, sem henni finnst miður
fara.
Þriðja eldfjallið.
Skaphiti hennar hefir stundum
orðið til þess, að hún hefir tekið
ákvarðanir, sem hún á kannske
bágt með að standa við. Ekki alls
fyrir löngu skildi hún við mann
sinn, og þótti henni það mjög miður.
Kenndi hún staríi sínu um að' svo
illa fór og kvað upp úr með það, að
hún skyldi ekki framar leika í kvik
myndum. Þetta hefir hún ekki stað
ið við, enda fyrnast harmar.
Þótt hingað til hafi aðeins verið
nefnd tvö eldfjöll, þegar kvikmynd
unina hér á landi hefir borið á
góma, má segja, að þriðja eldfjallið
hafi gleymzt, sem sagt Shelley
Winters. Ber hún sjálfsagt sigurorð
af Heklu og hamförum hennar í
myndinni.
Tvöfalt líf.
Blaðið hefir það eftir góðum heim
ildum, að Winters hafi fyrst vakið
á sér verulega athygli fyrir leik sinn
í myndinnf Tvöfalt líf (Double
Life), en í þeirri mynd lék Ronald
Coleman aðalhlutverkið. Mynd þessi
var mjög góð og hefir hún verið
sýnd hér. Fjallar hún um leikara
(Ronald), sem lifir sig svo sterkt
inn í hlutverk þau, sem hann á að
leika, að hann er ekki nema endr
um og eins með sjálfum sér. Þetta
leiðir svo til þess, að hann myrðir
vændiskonu (Winters). Er hann að
æfa sig í nýju hlutverki, þar sem
einmitt slíkur atburður er Játinn
Útvarpíð
Útvarpið í dag.
Fastir liðir eins og venjulega.
20,20 Útvarpssagan: Þættir úr „Of-
urefli" eftir Einar H. Kvaran;
I. (Helgi Hjörvar).
20.50 Tónleikar (plötur).
21.10 Úr ýmsum áttum. — Ævar
Kvaran leikari velur efnið og
flytur.
21.30 Tónleikar (plötur).
21,45 Frá útlöndum (Jón Magnús-
son fréttastjóri).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 „Á ferð og flugi“, frönsk
skemmtisaga — sögulok.
22.25 Dans- og dægurlög (plötur).
23,00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
12.50 Óskalög sjúklinga.
20.30 Minnzt níræðisafmælis Þor-
leifs Jónssonar í Hólum, fyrr-
um alþingismanns. a) Gísli
Sveinsson fyrrum sendiherra !
flytur erindi. b) Einar Ól.
Sveinsson prófessor les úr end |
urminningum Þorleifs.
21.10 Einsöngur: Walter Anton I
Detzer syngur Vínarlög (pl.).
21.25 Leikrit: „Lífið er fagurt" eft
ir Leck Fischer í þýðingu Þor j
steins Ö. Stephensen. Leik-
stjóri: Haraldur Björnsson.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög (plötur).
24,00 Dagskrárlok.
SHELLEY WINTERS
þriðja eldfjallið
gerast. Losnar hann ekki undan
áhrifum leiksins, þótt æfingum
sleppi og í þeim viðjum fremur
hann ódæðisverkið. Winters lék
vændiskonuna með þeirri prýði, að
augu manna opnuðust fyrir því,
hversu miklir möguleikar ' bjuggu
með henni. 1
Þar sem sólin skín.
Þá var það að fyrir dyrum stóð
að kvikmynda Bandaríska harm-
sögu eftir Theodore Dreiser. Var
allt til þess gert, að vanda sem
bezt leikara og alla kvikmyndatöku.
Hlaut Winters eitt af þremur
stærstu hlutverkunum og lék nú
eins og í Tvöföldu lífi þá konu, sem
verður að bera nokkuð af synd
heimsins. Myndin var sýnd í Tjarn
arbíói fyrir skömmu og vakti þá
mikla athygli, mun ekki vera
gleymd þeim sem sáu. Eftir leik
sinn í þessari mynd var Shelley
Winters komin óumdeilanlega í
fremstu raðir þeirra kvikmyndaleik
kvenna vestan hafs, sem fara með
dramatísk ■ hlutverk. Myndin hét
A place in the sun og gekk hér und
ir nafninu Þar sem sólin skín. Það
verður ekki sagt um Winters, að
sólin skíni sérlega mikið á hana,
en hún hefir brugðizt vel og hetju
lega við erfiðleikunum bæði i einka
lífi og starfi.
líjinn in ^ar&piöí
SJ.B.S.
Iflíaveitan
(Framh. af 1. síðu).
Heitur lækur í Öskjuhlíð.
Björn kvaðst fagna því, ef.
nú væru fyrir dyrum betri nýt
ing heita vatnsins og lögn í
þéttbyggð hverfi, svo sem að
nýta ætti heita lækinn, sem
stundum rynni niður öskju-
hlíðina. Benti hann og á það,
að í þessari ályktun íhaldsins
um „rannsókn og athugun“
fælist skýlaus játning íhalds-
ins um sleifarlagið í þessum
málum undanfarin ár.
Þórður Björnsson, sem tók
síðan sæti á fundinum, ræddi
einnig nokkuð hitaveitumálin
og kvaðst fagna ályktun
ihaldsins, sem þó gerði ekki
ráð fyrir neinum framkvæmd
um þegar í stað. Hann benti á,
að íhaldið hefði viðhaft gaml-
an sið, að fella allar tillögur
andstöðuflokka og taka þær
síðan upp sem sínar tillögur
í einhverri mynd.
Minnti hann á tillögur, er
hann hefði borið fram í hita-
veitumálunum í fyrrahaust.
Öll atriðin nema eitt í tillögu
borgarstjóra væru úr þessum
tillögum, en þó gengið miklu
skemmra og allt gert að at-
hugunum í stað framkvæmda.
Bar Þórður síðan fram eftir
farandi tillögu, sem að sjálf-
sögðu fann enga náð hjá
íhaldinu:
„Bæjarstjórn samþykkir
að hafizt verði nú þegar
handa um að hagnýta þaö
heita vatn hitaveitunnar,
sem nú er ónotað hálft árið.
Leggur bæjarstjórn fyrir
hitaveitustjóra að hraða því
að fullgera áætlanir og teikn
I ingar og ljúka undirbúningi
| að lagningu hitaveitu í ný
1 bæjarhverfi, svo að fram-
kvæmdir geti þegar hafizt.
Heimilar bæjarstjórn bæj
arráði að taka allt að 15
milljón króna lán innan-
lands eða utan til fram-
kvæmda þessara“.
Athugana-áætlunin.
í ályktun íhaldsins á að
„hraða vísindalegri rannsókn
1 og leit að heitu vatni“, gera
„eins fljótt og verða má heild
aráætlun“, gera „tilraunir
með götu- og heimæöaein-
angrun“, fela bæjarráði að
„hefja undirbúning að fjáröfl
un til hitaveituframkvæmda",
og síðast en ekki sízt að
„skora á ríkisstjórn og al-
þingi“. Sem sagt sex liðir en
allir um athugun en enginn
um framkvæmdir.
í verkfræðinganefndina
voru kosnir Valgeir Björns-
son, Árni Snævarr, Gunnar
Böðvarsson, Sigurður Thor-
oddsen og Ólafur Pálsson.
180 litir — 4800 litasamstæður.
SPRED SATIN 100% gúmmimálning
Þetta fullkomna litakort gefur yð-
ur tækifæri til að fá þá liti er þér
óskið. SPRED SATIN, þessi undra-
málning er svo auðveld í notkun að
hver og einn getur málað :úr henni.
Sparið tíma, sparið peninga, málið með Spred Satin.
JjfJjPIDlRÍHK
H
F
Símar 1496 og 1498.
Iðnskólinn í Reykjavík
Innritun i skólann hefst í Vonarstræti 1, mánu-
daginn 23. ágúst, kl. 5—7 síðdegis og lýkur föstudaginn
27. ágúst. Skólagjald er kr. 750,00 og kr. 800,00 og greiö
ist við innritun.
Námskeið til undirbúnings haust-prófum hefjast
miðvikudaginn 1. september. Námsskeiðsgjald er kr.
50,00 fyrir hverja námsgrein.
Haustpróf byrja miðvikudaginn 29. september sam
kvæmt próftöfiu í skólanum í Vonarstræti 1.
SKÓLASTJÓRINN.
Frá Harry Walton & SonsLtd.,
Manchester,
höfum vér sýnishorn fyrirliggjandi af margs konar
bómullar- og rayonefnum.
v
Islensk-erlenda
verzlunarfélagið h.í.
Garðastræti 2—4. Sími 5333
Vinnið ötullega aíi lítbrei&slu T I W t Á S
ÍVAR HLÚJÁRN. Saga eftir Walter Scott. Myndir eftir Peter Jackson