Tíminn - 23.09.1954, Qupperneq 6
fl
TÍMINN, fimmtudaginn 23. september 1954.
213. blað1.
ílBj, [
BTÖDLEIKHÚSID
NITOiCHE
óperetta í þrem þáttum
Sýning íöstudag kl. 20,00.
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13,15—20,00. Tekið á móti pönt-
unum. Sími: 8-2345, tvær linur.
Venjulegt leikhúsverð.
Aðeins örfáar sýningar
Hœttulegur
andstœðingur
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 7 og 9.
Uppþot
Indíánanna
Spennandi og bráðskemmtileg
amerísk mynd í litum.
George Montgomery.
Sýnd kl. 5.
1
r r' __ >■ T'jr'i
NYJA BIO
— 1M4 —
Með söng í hjarta
(With a song in my heart)
Heimsfræg, amerisk stórmynd í
litum, er sýnir hina örlagariku
sevisögu söngkonunnar Jane
Froman.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
♦♦♦♦
TJARNARBÍÓ
BImI h».
Maðurlnn
í hvítn fötunum
Mynd hinna vandlátu
(The Man in the White Suit)
Stórkostlega skemmtileg ,g bráð
fyndin mynd, enda leikur hinn
óviðjafnlegi
Alec Guinness
aðalhlutverkið. — Mynd t essi
hefir fengið fjölda verðlauna Jg
alls staðar hlotið feikna vin-
sældir.
""■sr
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ
— HAFNARFIRÐI ™
Hcfndarþorsti
Óvenju spennandi og viðburða-
rík mynd í litum.
Koy Cammeron,
Ruth Hushey,
Sýnd kl. 7 og 9.
Sími 9184.
♦♦♦♦♦<
AUSTURBÆJARBÍÓ
Innrásln
(Breakthrough)
Hin afar spennandi ameríska
kvikmynd, byggð á innrásinni í
Frakkland í síðustu heimsstyrj-
öld.
Aðalhlutverk:
..David Brian,
John Agar,
Frank Lovejoy,
Suzanne Dalbert.
Verður aðeins sýnd I dag
kl. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 4.
GAMLA BIO
— 147» —
ÍJlfurinn frá Sila
Stórbrotin og hrífandi, ítölsk
kvikmynd með hinni frægu og
vinsælu
Silvana Mangano
aðalhlutverkinu. Sýnd aftur
vegna áskoranna.
Bönunð börnum.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
itsst
TRIPOLI-BIO
Bíml 1183.
Fegurðardísir
næturiuuar
(Les Belles de Ia Nult)
Ný, frönsk, úrvalsmynd, er hlaut
fyrstu verðlaun á alþjóðakvik-
myndahátíðinni f Feneyjum,
árið 1953. Þetta er myndin, sem
valdið hefir sem mestum deil-
um við kvikmyndSeftirlit Ítalíu,
Bretlands og Bandaríkjanna.
Mynd þessi var valin til opin-
berrar sýningar fyrir Elísabetu
Englandsdrottningu árið 1953.
Leikstjóri: René Clair.
Aðalhlutverk: Gérard Philipe,
Gina Lollobrigida, Martine Car-
ol og Magali VendueiL
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
Kyrrahafsbrautin
Afar spennandi, ný, amerisk
mynd í litum, er f jaiiar úm það,
er Bandaríkjamenn voru að
leggja járnbraut frá Kansas til
Kyrrahafs.
Stcrling Hayden,
Eve Miller,
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð börnum.
►♦♦♦♦♦004» ♦♦♦♦♦♦ I
HAFNARBlÓ
— Biml 8444 —
Gcimfararuir
Ný Abbott og Costello-mynd
(Go to Marz)
Nýjasta og einhver allra
skemmtilegasta gamanmynd
hinna frægu skopleikara. - Þeim
nægir ekki lengur jörðin og leita
til annarra hnatta, en hvað
finna þeir þar? Uppáhalds skop
leikarar yngri sem eldri.
Bud Abbott,
Lou Costello,
Mary Blanchard.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Þúaundlr Tlta, e* g*fa*
fylgir hringunum frá
SIGURÞÓR, Hsfuntnatl »,
Margar gerSir
fyrirllggjandi,
Bendum gegn póstkrðf*.
Huglciðingar ...
(Framhald af 4. síðu).
ur til framtíðarinnar og þess,
er verða ætti.
Ég held því að í sólmyrkv-
anum, sem skeði meðan Vil-
hjálmur Þór hélt sína frum-
ræðu á þessum fundi, en leið
hjá áður en hann lauk máli
sínu, hafi falizt sú opinber-
un, að Vilhjálmi Þór og öðr-
um samvinnufrömuðum, tak
ist að leiða málefni samvinnu
hugsj ónarinnar út úr rökkva
og svala árása og hleypidóma
inn í sólgylltan dag framtíð-
arinnar þar sem víðsýnið(
skín.
Hólmgeir Þorsteinsson.
p.~- ■ .. ~ ' ■ ...
Frcttabréf
(Framhald af 3. Bíðu.)
ar góða og búsældarlega hér-
að:
„Fagur er dalur og fyllist
skógi
og frjálsir menn þegar
aldir renna.“
* S
= E
i
1 Sultutíminn er kominn. |
| Tryggið yður góðan ár-1
| angur af fyrirhöfn yðar. i
| Varðveitið vetrarforðann í
i fyrir skemmdum. Það ger- i
| ð þér með því að nota 1
| Betamon, óbrigðult rot" I
i varnarefni.
| Bensonat, bensoesúrt I
| natrón.
| Pectinal sultuhleypir. \
I Vanilletöflur. Vínsýra. 1
| Flöskulakk í plötum.
| Allt frá
Húsmæður!
1 Chemia h.f. (
| Fæst í öllum matvöru-1
| verzlunum.
<ttuiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>uiiiiiiiiii»iiminnmiiiU6
i Alla beztu söngvara og 1
| hljómsveitir landsins er i
| að finna á TÓNIKA \
| hljómplötunum.
I í FAÐMI DALSINS í
f í DRAUMI MEÐ ÞÉR
i sungið af Ragnari Bjarna- |
\ syni með K.K.-sextettinum \
I INDÆL ER ÆSKUTÍÐ
| ÍSLENZKT ÁSTARLJÓÐ \
i sungið af Ólafi Briem og |
I Ödtju Örnólfs meö tríói |
| Ólafs Gauks. I
í SEZTU IIÉRNA .... I
| ÓSKALANDIÐ
| sungið af Ólafi Briem og |
| með tríói Ólafs Gauks. 1
I ANNA
[ ANNA í HLÍÐ
i sungið af Ragnari Bjarna- |
| syni með hljómsveit Ólafs §
| Gauks. |
I BJARTAR VONIR VAKNA I
| HADDERÍA, HADDERA |
| sungið af Öskwbuskwm 1
1 með tríói Ólafs Gauks.
INÓTT I
\ ALL OF ME
i sungið af Ingibjörgu Þor-
| bergs og Ragnari Bjarna-
| syni með K.K.-sextéttinum
I SVERÐDANSINN
1 CIRKUS RENZ GALLOP
i leikið af undrabarninu
| GITTE.
I Músikbúðin j
Hafnarstræti 8
1
3.
:■
Stáiafteifr
Skáldsaga eftir llja Ehrenburg
og hann komst að raun um, að hún unni honum einnig.
Hún sagði: „Þú hefir skriðið í harða skel, en hjarta þitt er
öðruvísi, það fann ég strax.“
Og Dimitri gekk með herdeild sinni og dreymdi dag-
drauma. Stríðinu er bráðum lokið, og hamingjan bíður mín.
Dauði Natösu kom eins og reiðarslag. Hún varð fyrir jarð-
sprengju á götum Leipzig hinn tíunda maí, þegar allir
voru hættir að hugsa um dauðann. Hann leyndi sorg sinni,
jafnvel nánustu kunningjar hans vissu lítið um sálarkvalir
hans. Löngu síðar, er móðir hans spurði, hvers vegna hann
kvæntist ekki, maður kominn um þrítugt, opnaði hann
hjarta sitt. — Mamma, sagði hann, lífshamingja mín dó
í stríðinu. Ég leiði ekki hugann lengur að slíku.
Þegai einmanakennd og sorgir sóttu að, þekkti hann aö-
eins eitt læknisráð, starf sitt. Eftir stríðið hafði hann orðið
vélaverkfræðingur. Prófsmíði hans vakti mikla athygli, og
hann átti kost á að veröa kennari við verkfræðiháskólann,
en á síðustu stundu hafði einhver áhrifaríkur maður skot-
ið meðmælum til æðfi staða með öðrum umsækjanda. Sá
fékk kennarastarfið, en Dimitri var sendur til verksmiöju-
bæjarins á bökkum Volgu. Hér var það, sem starfsfélagar
hans kölluðu hann lukkunnar pamfíl vegna þess, að störf-
in léku í hendi hans. ívan Wasiljason, sem jafnan tók ung-
um rrönnum með nokkurri tortryggni, veitti Dimitri þeg-
ar athygli og fékk hann kosinn í bæjarsovétið, og hann var
oft hvattur til að taka þar til máls. Verkamennirnir hlýddu
með athygli á hann, því að þeir virtu auðsjáanlega heið-
arleik hans og hógværð, sem ekki virtist spillast við skjótt
gengi.
Þetta heyrir allt saman fortíðinni til, hugsaði Dimitri og
hristi sig í kuldanum. En nú — hvað hefir eiginlega komð
fyrir hann? Hvernig stehdur á þvi, að hann er búinn að
missa sjálfstjórnina svona? Hvers vegna reikar hann hér
aftur og fram um göturnar í hríð og frosti og hugsar um
Lenu’ Nei, hann hugsar ekki einu sinni, hann firinur það
aðeins, að hann getur ekki án hennar verið eðá rekið hana
•úr huga sér. Hún er orðin hluti af honum sjálfum. Hann
er sem bergnuminn. En hvað þetta er heimskulegt allt sam
an og barnalegt, hugsar hann. Og þar aö aulti er þetta hrein
byiting frá fyrra lífi hans.
Stormurinn jókst, hríðin varð dimmri. Dimitri namvallt
í einu staðar og tók að hlæja. Það var ekki nokkur mann-
eskja í nálægð, en hann stóð kyrr, horfði inn í sortann og
skellihló, hann var sem sé allt í einu farinn að hugsa um
ræðu sína á fundinum. Og þarna stend ég í ræðustólnum
op’ lýsi hátíðlega yfir, að slíkt og þvílíkt geti alls ekki gerzt
í lífinu sjálfu. Einskær ímyndun, kæru tilheyrendur. Höf-
undurinn hefir aðeins fundiö upp á því að láta þennan Sub-
zov verða ástfanginri' í annars manns konu, en það stríðir
— eins og allir vita — gegn náttúrulögmálinu og á sér ekki
stað í raunveruleika sovétlífsins. Að hugsa sér annað eins,
að ég —einmitt ég — skuli rísa á fætur og tilkynna í heyr-
anda hljóði, að Subzov og tilfinningar. hans geti ekki átt
sér stað, að fólk af slíkri manngerð sé aö minnsta kosti
ekki að finna meðal okkar. Minnztu þess nú, Dimitri Serg-
ejsson, að þú ert þá ekki heldur til, þú getur ekki verið til,
þú getur ekki verið til fremur en Subzov, þið eruð báðir upp
spuni, ekki einkennandi, og tilfinningar okkar hæfa að-
eins í brúðuleikhúsi.
Væri það furða, þótt Lena spyrði nú: — Hvers konar
maður er Dimitri? Er hann aðeins aumur lygari? Aðra var
kannske hægt að blekkja, en ekki hana, því að hún hefir
vafalaust getið sér þess til fyrir löngu, hvernig mér er
innanbrjósts. Konur eru næmar á slíkt. Þannig var Nat-
asa einnig. Ég hafði ætíð reynt að leyna hana því, að ég
elskaði hana, en hún vissi það samt. Auðvitað getur Lena
ekki haft aðrar tilfinningar i minn garð en hatur og fyrir-
litningu eftir þessa heimskulegu ræðu.
Jæja, það skiptir arinars engu máli. Lena er kona ívans,
og vegir okkar verða áð skiljast. Maður getur ekki láti‘5
þvílíka heimsku hlaupa með sig í gönur. En hvers vegna var
ég að segja þetta: — Slíkt og þvílíkt á sér ekki stað í líf-
inu. Ég veit það ekki, en það var ekki meðvitúð lygi. Til-
finningar manns eru einkamál, en bók er það ekki né það,
sem í henni stendur. Það var auðvitað hægt að skrifa um
það, hvers vegna skógrækt Subzovs mistókst, því að það
hefir hagræna þýðingu fyrir lesendurna, en ást hans til
annarrar konu er annars eðlis. Nei, ræða mín var hárrétt.
Það er eitthvað annað, sem að er. Ég verð að hafa betra vald
yfir sjálfum mér. Slíkri heimsku veröur að vera lokið í eitt
skiptl fyrir öll.
Undir næsta ljósastaur sá hann stúlku og ungan mann
í faðmlögum. Já, alveg eins og ég og Natasa. En slíkt skeð-
ur aðeins á æskudögunum. Þegar hann kom nær, rak stúlk
an upp lágt óp, og ungu hjúin hröðuðu sér brott.
Nú var gatan alveg mannlaus. Nýju húsin, sem þoldu
vart að sýna yfirbragð sitt í dagsljósinu, litu nú út ains
og leiksviðsbúnaður.
í húsunum býr fólk. Það rífst, sefur, syrgir og brosir. Hver
og einn á sínar sorgir og gleði. En það er allt saman auka-
atriði. Aðaiatriðið er starfið. Dimitri vissi, að starfð eitt
var þess megnugt að bjarga honum. Um það hugsaði hann,
er hann fálmaði sig upp stigann heima hjá sér. Hann