Tíminn - 21.10.1954, Síða 6

Tíminn - 21.10.1954, Síða 6
6 TÍMINN, fimmtudaginn 21. október 1954. V 237. blað, 1» BTÖDLEIKHÖSID Nitouche Óperetta í þrem þáttum. Sýning í kvöíd kl. 20.00 Síðasta sinn. eftir HalHór Kiljan Laxness. Silfurtúnglið Sýning föstudag kl. 20.00 Tópax Sýning laugardag kl. 20.00 98. sýning. Pantanir sækist daginn fyrir sýningardag, annars seldar öðr- om. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13.15—20.00. Tekið á móti pönt- unum. Súni: 8-2345, tvær Jnur. Fædd í gær (Born Yesterday) Afburðasnjöll og bráðskemmti- leg ný amerísk gamanmynd eft- ir samnefndu leikriti. — Mynd þessi, sem hvarvetna hefir verið talin snjallasta gamanmynd ars ins hefir alls staðar verið sýnd við fádæma aðsókn, enda fékk Judy Hollday Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í þessari mynd. Auk hennar leika aðeins úrvals leikarar í myndinni, svo sem: William Holden g Broderick Crawford. Sýnd kl. 5, 7 og 9. NYJA B10 — lMt -- Sýningar á Friunskógur og Ishaf byrja aftur á morgun vegna á- skorana frá skólastjórum g fl. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJARNARBIÓ BIwl tm. Hondint Heimsfræg amerísk stórmynd um frægasta töframann erald- arinnar. — Ævisaga Houdinis hefir komið út á íslenzku. Aðalhlutverk: Janet Leigh, Tony Curtis. Sýnd kl. 5, 7 og 9. »♦♦♦♦♦ BÆJARBIO — HAFNARFIRÐI - Æskuár Carnso Stórbrotin og hrífandi ítölsk söngvamynd. Erman Randi Gína LoIIa Birgitta fegurðardrottning Ítalíu. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. íleikfelag: [reykjayíkur^ Frœnka Charles gamanleikurinn góðkunni með Árna Tryggvasyni í hlutverki „frænkunnar". Sýning annaö kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í dag -d. 4—7 og á morgun eftir kl. 2. — Sími 3191. AUSTURBÆJARBIO Hin framliðna (The Late Edwin Black) Mjög spennandi og vel leikin ný kvikmynd. Aðalhlutverk: David Farrar, Geraldine Fitzgerald, Roland Culver. Bönnuð börnum. Sýnd kl. 7 og 9. 1 skugga arnarins Hin afar spennandi og viðburða ríka kvikmynd. Aðalhlutverk: Richard Greene, Greta Gynt. Bönnuð börnum. Sýnd kl. 5. Sala hefst kl. 2 e. h. GAMLA BIO — 1479 — Faníasia Meistaraverk Walt Disneys með Fíladelfíuhljómsveitinni undir stjórn Leopolds Stokowski. — Sýnd kl. 9 vegna fjölda áskor- ana. Dagdraumar Walíer Miíty með Danny Kaye. Sýnd kl. 5. SÖNGSKEMMTUN kl. 7,15. TRIPOLI-BÍÓ fslml 1198. Suðrœnar nastur (Siidlichc Náchte) Bráðskemmtileg, ný, þýzk músík mynd tekin að mestu leyti á Ítalíu. Öll músíkin í myndinni • er eftir einn frægasta dægurlaga höfund Þjóðverja, Gerhard Winkler, sem hefir meðal annars samið lögin: „Mamma mín“ og „Ljóð fiskimannanna frá Capri", er vinsælust hafa orðið hér á landi. | Tvö aðallögin í myndinni eru: „Ljóð fískimannanna frá Capri“ og tangóinn „Suðrænar ætur“. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HAFNARBIO — Eími 8444 — 1 gletSIsölum Parísar (La Tournée des Grands Ducs) Bráðskemmtileg og fjörug frönsk gamanmynd, er gerist að mestu í frægustu næturskemmtistöð- um Parísarborgar, þar sem feg- urstu dansmeyjar borgarinnar skemmta. Raymond Bussiers, Denise Grey, og skopleikarinn Christian Duvaleix. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ■SS* F j árlagafr uuivar ptð (Framhald af 5. síðul. 10 millj. kr. til Loftleiða og 14 millj. til Flugfélags ís- lflnds, enda nær sú heimild til lántöku vegna kaupa á fllígvél til innanlandsflugs. Það hefir komið skýrt í ljós að íslenzk flugfélög geta með góðum árangri annast loft- flutninga fyrir aðrar þjóðir, og fa:rt þjóðinni á þann hátt drjúgar gjaldeyristekjur. Því er það sjálfsagt og nauð synlegt, að allt kapp sé lagt á, að svo megi verða með því að skapa íslenzkum flugmál um bætt skilyrði. Að því v;ll Framsóknar- flokkurinn vinna framvegis á sama hátt og hingað til. Píslargrátur . . . (Framhald af 4. síðu). Hér hefir aðeins verið í fáL um dráttum leidd athygli að hinni snilldarlegu þýðingu dr. Pilchers af Píslargráti Jóns biskups Arasonar; það er ekki heiglum hent, að snara, svo vel sé, ljóðum Jóns biskupsl á annarlega tungu; þó er síð ur en svo, að slík þrekraun hafi orðið dr. Pilcher ofur- efli, heldur hefir hann auð- sjáanlega sleitilaust haldið alla leið upp á öröugasta hjallann. Fyrsta liéraðssýnlng lirúta í landinu. (Framhald af 3. Blðu.) hreppasýninganna. Benti hann á hvar bezta stofna váeri að.finna. Kom þá í Ijós, að ýmsir beztu hrútarnir voru keyptir — fyrir atbeina Bún- í aðarsamb. — frá Múla og' Laugabóii í Nauteyrarhreppi, i ísafjarðarsýslu, svo og afkom endur þeirra. Taldi hann góð ar framfarir í sauðfjárrækt- inni eins og fjöldi veturgam alla hrúta bentu til. Að lokum hópuðust menn saman í veitingasal staðarins og hlýddu á ýtarlega ræðu er búnaðarmálastj. Páll Zóphón íasson flutti. Þakkaði hann Búnaðarsamb. fyrir forgöngu sína með þessa fyrstu héraðs- sýningu landsins. Þá afhenti Gunnar Jónatansson, form. sambandsins, verðlaunagrip- inn núverandi handhafa hans, Erlendi Halidórssyni. Gat hann þess, að á næstu árum yrði um hann keppt en aldrei þó til eignar. Vegamótum, 4.10. 1954, Kristján Breiðdal. K Bústaðasókn fær fermingarkyrtla í að gjöf í gær voru mér afhentir 20 fermingarkirtlar að gjöf til Bústaðasóknar frá Kven- félagi Bústaðasóknar. Um leið og ég þakka félaginu þessa höfðinglegu gjöf vil ég ennfremur nota tækifærið og bakka þær gjafir, sem sókn- inni hafa borizt frá félaginu, svo og þann áhuga, sem þetta unga og „enn fámenna fé- lag“ hefir ávallt haft á kirkju- og mannúðarmálum innan Bústaðasóknar. Hinir, nýju kirtlar verða notaðir í fyrsta sinn við' fermingu í Fossvogskirkju n. k. sunnu- dag 24 þ. m. Reykjavík, 19. okt. 1954. f. h. Bústaöasóknar, Axel L. Sveins. Sfáiaheiff SkáLdsaga eftir Itja Eh.renbu.rg Blaðamennirnir fóru ekki varhluta af svipu Sokolowskis: Hvaða vit var í því að lýsa verksmiðjunni eins og einhverri Paradís. Nú byggjust menn við því að sjá framkvæmdastjór- ann svífa á englavængjum á hverri stundu. Það voru slík íneiny.rði, sem ollu því, að menn óttuðust Sokolowski fremur en elskuðu. Á seinni tímum virtist þó hafa færst nokkur ró yfir hann, og lengra leið á milli gosanna. ívan létti við þessa tilhugsun. Sokolowski er farinn að eldast og verður mildari í skapi. Það kom oft fyrir um þessar mundir, þegar Sokolowski las dagblöðin, að hann kinkaði kolli og tautaði: —• Alveg rétt, vel skrifað. Dag nokkurn kvartaði Jegerow við hann yfir því, að engu tauti yrði komið við framkvæmdastjórann. — Þetta snertir tvo afbragðsgóða vélsmiði. Ég er búinn að segja hon- um, að 'hann eigi að skrifa ráðuneytinu og mælast til, að þeir verði settir á full laun. Hann veit vel, að við getum ekki verið án manna, sem eru vel færir i þeirri iðn, því að annars getum við ekki framleitt með öryggi þær sjálfvirku vélar, sem okkur er ætlað. En hann svarar þessu eins og hann væri fæddur í gær og segir, að slíkt mundi honum ekki koma til hugar, því að hann hafi þvert á móti skipun um það frá ráðuneytinu að spara. Útgjöldin eigi að lækka en ekki auk- ast með launahækkunum. Og hvað á maður svo að gera meö sbkan þverhaus? Sokolowski brosti í laumi: — Ætli ívan verði ekki fluttur héðan bráðlega? Jegerow lagði við eyrun og spurði ákafur: — Hefurðu heyrt nokkuð um það? Sokolowski hristi höfuðið: — Nei, en ég held það. Ég er nýbúinn að lesa síðustu skýrslu stjórnarinnar, og ég hefi hugleitt hana mjög vandlega. Líttu á, hún vill auðsjáanlega að fólk geti lifað. Jegerow horfði undrandi á hann og sagði: — Góði maður, hvað kemur þetta ívan við? Sokolowski svaraði: — Jú, þetta snertir hann, það er ekki um að villast. Svo þagði hann. Á einum veggnum í herbergi Sokolowskis hangir mynd af ungri, fallegri stúlku. Valdimar var mjög forvitinn um þessa mynd en þorði ekki að spyrja hver þessi stúlka væri. AÖeins Klara, konan sem þvoði herbergi Sokolowskis fékk að vita ■ þetta leyndarmál: — Þetta er mynd af dóttur minni,’sagði Sokolovyski. — Já, dóttur minni. Ég hefi ekki séð hana í tutt- ugu og tvö ár. Árið 1928 hafði Sokolowski kvænzt lítilli, fallegri og ljós- hærðri konu, sem hét Maja. Þá starfaði hann við verksmiöju í Moskvu. Það var erfiður tími, og hann var önnum kafinn, og hann vissi ekki fyrri til en kona hans var ojrðin tildursöm og leiðigjörn. Dag nokkurn spurði hann undrandi: — Hvað ertu að segja? Leiðist þér? Jæja, starfaðu þá eitthvað, hafðu eitthvað fyrir stafni. Maja svaraði engu, fór aðeins að gráta. Þau eignuðust dóttur, og Sokoiowski var farinn að vona, að hjónaband þeirra kæmist á réttan kjöl aftur. En Maja linnti ekki látum. Á hverju kvöldi þreytti hún hann með nöldri sínu. Vinir hans væru allir leiðindaskjóður, þeir væru vélar en ekki menn, og hann sjálfur væri eins og hörð tví- ' baka, tilfinningalaus og vanabundinn. Hún sagöi að það líf, sem væri þess virði að því væri lifaö, hefði hún aðeins séð í araerískum kvikmyndum, sem sýndar höfðu verið af ein- hverju tilefni hjá VOKSi Hún sagði, að hún yrði að láta móð- ur sína annast barnið meðan hún sjálf færi til Kákasus, því að lælcnarnir segðu að heilsa hennar krefðist hvíldar og dval- a.r á góðu hvildarheimili. Þegar hún kom heim frá hvíldardvölinni í Kislowodsk.. sagði hún manni sínum, að hún væri alls ekki orðin hraust enn, þótt hún hefði stundað heilsuböð eins og henni var ráð- lagt, og þar að auki ætti hún í hræðilegri innri baráttu. Hún vrði að fá skilnað þegar í stað, því að annars mundi hún deyja eða lenda á geðveikrahæli. Hún kvaðst einnig hafa kynnzt mjög geðþekkum manni, útlendingi, sem kominn væri til Ráöstjórnrríkjanna til þess að kaupa loðskinn. Þótt hann væri í verzlunarerindum, væri hann raunar lögfræðing ur og hámentaður maður. Kommúnisti væri hann að vísu ekki cn afar velviljaður þeim. Hann væri taelgískur ríkisborg- ari og ætti heima í Brussel. í stuttu máli sagt, þetta væri komið á nokkurn rekspöl, og eftir viku ætlaði hún að leggja af stað til Belgíu. Auðvitað ætlaði hún að fara með Möshu litlu með sér, svo að barnið gæti fengið sómasamlegt uppeldi, og þar að auki væri tilvonandi maður hennar mikill barna.- vnur. Þegar öll kurl kæmu til grafar væri þetta víst bezt. Sokclowski hreyfði engum andmælum. Han bar aðeins fram eina ósk: Skrifaðu mér einstaka sinnum — það er að segja, segðu mér hvernig Möshu líður. Kona hans kyssti hann hrærð, og skildi eftir rautt far á skeggjuðum vanga hans. Þegar hún var farin, fann Sokolowski ekki til neins sakn- aðar, og honum varð ljóst, að hann hafði aldrei elskað iiana. En hann gat ekki gleymt Möshu litlu. Fyrst í stað Sendi Májá honum reglulega póstkort meö myndum af gotneskúm kirkj' um og nokkrum orðum að Möshu liði vel. í síðasta-sinn fékk hann kort frá Maju rétt áður en stríðið brauzt út, og þar sagði hún, að Masha dáði mjög stjúpföður sinn, og. að hún héti nú Mary af því að það hljómað'i betur én María og nú væri hún alveg búin að gleyma því að tala rússnesku. í skól- anum væri hún meðál hinna efstu. Sokolowski endurtók nokkrum sinnum með sjálfum sér: Mary, Mary. Það hljómaði eins cg bænaróp. Það fór hrollur um hann. Langalengi frétti Sokolowski nú ekkert af dóttur sinni,-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.