Tíminn - 07.11.1954, Side 3
252. blað.
TÍMINN, sunnudaginn 7. nóvember 1954.
V.:
3S==~
/ slendingaþættir
Sextugur: Runóifur Bjarnason
Sextugur er í dag Runólfur
Bjarnason frá Hólabrekku í
Garði. Runólfur fæddist að
Kolbeinsstöðum í Miðnes-
hreppi 7. nóvember 1894. For
eldrar hans voru Bjarni Run
ólfsson og Sólveig Jónsdóttir,
er bjuggu í Vallholti og ólst
Runólfur þar upp. Frá Vall-
holti fluttist hann með móður
sinni að Hólabrekku og átti
þar heima í 20 ár eða til árs
ins 1947, er hann fékk vist í
Arnarholti á Kj alarnesi og hef
ir hann dvalið þar síðan. Um
skeið var Runólfur póstur í
sveit sinni. Hann fékkst einn
ig í mörg ár við blaðasölu og
seldi ýms blöð. Einkum hefir
Sjómannablaðið Víkingur átt
tryggan útsölumann þar sem
hann var, því að allir keyptu
af Runólfi.
Runólfur heldur mikilli
tryggð við fæðingarsveit sina
«og kemur þangað í heimsókn
hvenær sem færi gefst. Geng
ur hann þá á milli heimilanna
«og heilsar upp á kunningjana,
því að þá á hann marga. Hann
hefir þá gjarnan eitthvað í
pokahorninu, blöð eða annan
varning, og verður margur til
að kaupa af honum. Runólfur
<er kirkjurækinn og sækir
•einnig samkomur og mann-
fagnaði, þegar hann fær því
viðkomið. Hann er í eðli sínu
glaölyndur og spaugsamur,
þótt fáorður sé, og hnyttinn
i tilsvörum. Hann er einnig
stálminnugur og eftirtektar-
samur. Nokkuð er hann farinn
að gefa sig hin síðari árin, en
þá er hann var á léttasta
skeiði var hann talinn hinn
mesti burðamaður, og enn er
liann furðu ötull og þrautseig
ur við að leggja land undir
fót.
í dag senda vinir og kunn-
ingjar Runólfs honum í anda
hugheilar hamingj uóskir' upp
að Araarholti, þar sem hann
dvelst nú í góðu yfirlæti.
Einn úr hópi kunningja.
Bifreiðastríðið
AUTO RACE
75
25
-
CHEVROLET 24.9%
XJ* HJS
OtOSWOBltE 7.3%
rORD
24.8%
PLYMOUT H
7.5%
• eíd’íii!Im','"" ÓIDSMOBIL.S ,
0 ....Ám■'.»J&S
J F.M AMJJASONOJFMAMJJ^
19.5 J 1954
G.M.
SW
7H*ÚrCt>.
30.624
>CAattya/et.
CotfliiSX
ALL CTHEhS
MARKET
í MESTA bifreiðalandi heims, Bandaríkjunum,
hefir úm nokkurt skeið geysa'ð svo hörð samkeppni á
bifreiðamarkaðinum, að kallað hefir verið „bifreiða-
strið“. Taflan hér að ofan, sem birt var í fréttatíma-
ritinu Time, gefur glögga hugmynd um það, hvernig
þetta „stríð' hefir gengið og hver dómur bifreiða-
kaupenda hefir orðiö. Sérstaklega er athyglisverð
keppnin milli CHEVROLET og FORD, en þar hefir
gengið á ýmsu síðan í september í fyrra. Á fyrstu átta
mánuðum þessa árs hefir CHEVROLET þó betur, náði
24,9% af öllum markaðinum, en FORD 24,8% —
Spennandi keppni hefir einnig verið milli Buick og
Plymouth og þar hefir Buick vegnað miklu betur og
er nú í þriðja sæti, þótt hann sé í hærra verðflokki
en hinar þrjár tegundirnar. Súlan til hægri sýnir,
að samtals hafa GENERAL MOTORS verksmiðjurnar
selt-49,9% allra bifreiða, sem seldar voru í landinu.
Ford 30;8% og Chrysler verksmiðjurnar 13,5%, en allar
aðrar verksmiðjur til samans 5,8%. — Þessar tölur
sýna, hvílíks trausts G M - bifreiöar, sérstaklega þó
CHEVROþET og BUICK, njóta í Bandaríkjunum. —
SÁMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA hefir um-
boð fyrir' bæði CHEVROLET og BUICK hér á landi.
Tvö orðasöfn
Ekki alls fyrir löngu sendi
Leifturútgáían frá sér tvo
orðasöín. Eru það Nýyrði II,
sem dr. Halldór Halldórsson
hefir tekið saman, og íslenzk
la’knisfræðiheiti (Nomina
clinica Islandica) eftir Guð-
mund Hannesson, er Sigur-
jón Jónsson hefir annazt um
útgáfu á.
Þetta er annað neftið, sem
út kemur af Nýyrðum. Er það
í tveimur hlutum. Er fyrri
hlutinn yfir nýyrði úr sjó-
mennskumáli, skip, skips-
hluta og tæki, skipsvélar,
skipasmíð, sjövinnu, björgun
arstörf, köfun, togveiðar o.
fl. Síðari hlutinn er'yfir ný-
yrði úr landbúnaði, búvélar,
jarðabætur, ræktun, fóður-
fræði. mjólkurfræði, hænsna
rækt o. fl.
Dr. Halldór getur þess í eft
irmála, að nýyrðasöfnunin
hafi þegar verið skipulögð, er
hann tók að safna nýyrðum
úr þessum tveimur atvinnu-
greinum. Því skipulagi kveðst
hann ekki hafa breytt nema
í tveimur atriðum, því fyrra,
að hann getur þess hverju
sinni á hvaða mál hin ís-
lenzku orð eru þýdd, og hinu
að í skránni yfir hin erlendu
tækniorð hefir hann merkt
erlendu orðin með dálkaheit
um (a og b) jafnframt blað-
síðutali.
Báðar þessar breytingar
eru til bóta. Vafalaust eru ný
yrðabækur þessar hentugar
og nauðsynlegar handbækur
fyrir þá, er um þau mál fjalla,
sem taka til þeirra atvinnu-
greina, er þennan orðaforða
geyma, en útgáfunni mun
vera skorinn nokkuð þröng-
-ur stakkur til þess að þarna
geti verið um orðabækur að
ræða í venjulegum skilningi.
Sízt mun það þó vera sök dr.
Halldórs eða orðabókarnefnd
ar, erí fjárveitingar til vís-
indastarfa í þágu íslenzkra
fræða hafa frá fyrstu tíö ver
ið naumar og svo þröngar
upp á siðkastið að fækka hef
ir orðið starfsliði hinnar vis
indalegu orðabókar. Er
hörmulegt til slíks að vita.
Hitt orðasafnið, íslenzk
læknisfræðiheiti, er nú kem
ur fyrir almenningssjónir, er
eftir Guðmund Hannesson
prófessor. Hefir orðasafn
þetta lengi legið í handriti,
sem var af erfingjum Guð-
mundar gefið Háskólabóka-
safninu. í formála segir, að
ekki hafi verið með safni
bessu stofnað til fullkominn
ar orðabókar af höfundarins
hálfu, heldur safns þeirra
crða, er hann hafi talið
mestu máli skipta að til
væru tiltækar islenzkar þýð
ingar á.
Bæði þessi orðasöfn, Nýyrð
in og Læknisfræðiheitin, eru
talandi vottur um frjómagn
og þanþol tungu okkar, og
með útgáfu beggja þeirra
unnið hið þarfasta verk.
HIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIMIIKIIIIIIIIIIIIIinillllUllllllllll
AV44AVA ¥♦***♦ ♦ A V * ♦ A V
» >
* d^ridaeháttur *
Firmakeppni Bridgesambands Is-
lands, sem staðið hefir yfir nú
undanfarið, lauk s. 1. mánudags-
kvöld. Sigurvegari í keppninni varð
Sælgætisgeröin Crystal, fyrir hana
spilaði Ásbjörn Jónsson. Annar í
keppninni varð sigurvegarinn frá í
fyrra,, sælgætisgerðin Opal, spilari
Kristján Kristjánsson, og þriðji í
röðinni varð S.Í.F., spilari Ebba
Jónsdóttir. Verðlaunagripir eru far
andbikar, ásamt eignabikurum tii
firmans, sem sigraði, pg spilarans.
Þetta var ein stærsta bridge-
keppni, sem haldin hefir verið hér
á landi, og voru þátttakendur 144
firmu, en fyrir þau spiluðu spila-
menn úr öllum þrem bridgefélög-
um bæjarins.
í lok keppninnar flutti forseti
Bridgesambandsins, Zophónías Pét
ursson ávarp. Þakkaði hann sérstak
lega firmum þeim, sem þátt tóku
í keppninni, einnig öllu spilafólki,
mótstjórn og undii-þúningsnefnd vel
unnið starf.
Hér með fylgir sérstök skrá yfir
lokaútkomuna:
1. Crystal
2. Opal
3. S. í. F.
4. S. í. S.
163.5 Stig
163 —
162 —
154,5 —
5. Iðunnar Opótek 154 —
6. Northern Trading Co. 154 —
7. Vísir, dagbl. 153 —
8. Samvinnutryggingar 152 —
9. Bókaútg. Guðjóns Ó. 152 —
10. Búnaðarb. íslands 151.5 —
11. Útvégsb. íslands h.f. 151 —
12. Kol & Salt 150;5 —
13. Morgunblaðið 150 —
14. Ása-klúbburinn 149,5 —
15. E. Kristjánsson & Co. 149 ■—
16. Liverpool :—........ 148 —
17. Heildverzl. Berg 147 —
18. Einar B. Guðmundsson
& GuÖl. Þorl. 147 —
19. Prentsm. Edda h.f. 147 —
20. Innkaupasamb. rafv. 147 —
21. Tíminn, dagbl. 146,5 —
'22. Kiddabúð 146,5 —
23. Har. Árnason h.f. 146,5 —
24. Nói, Hreinn, Sirius 145,5 —
25. Kornelíus Jónsson 145 —
26. Ó. V. Jóh. & Co. 145 —
27. Olíuverzl. íslands h.f. 144,5 —
28. Síld & fiskur 144,5 —
29. Kristj. Siggeirss. h.f. 144,5 —
30. altic Trading Co. 144 —
31. Alm. Tryggingar h.f. 143,5 —
32. Ejill Jacobsen verzl. 143,5 —
33. Haraídarbúð h.f. 143,5 —
34. Timburverzl. Ái-na J. 143,5 —
35. K. G. G. & Co., h.f. 142 —
36. Silli & Valdi 141,5 —
37. K. Ásm.ss. gullsm. 141,5 —
38. Byggingafél. Brú h.f. 141,5 —
39. R. Þóröarson & Co. 141 —
40. G. Bernhöft & Co. 140,5 —
41. Leðurverzl J. Brynj. 140,5 —
42. Miðstöðin h.f. 140,5 —
43. ísl.-erl. verzlunarfél. 140 —
44. Herrabúðin 140 —
45: Vinnufatag. ísl. h.f. 140 —
= HEÐINN =
Rafmagns-
móforar
á stignar saumavélar,
fyrir jafnstraum og rið-
straum 220 v,
Verð: 270,00.
MMMMIMMMHMnHMHMMMniHMMMMIHMIIMMHHMIIHMI
1 VOLTI | | aflagnir
i i afvélaverkstæði
11 % afvéla- og
I a z ® aftækjaviðgerðir
i Noröurstíg 3 A. Sími G453
| BSómamark-
aðurlnn
| við Skátalieimilið s
| alls konar afskorin blóm í
og margt fleira.
i Sími 6295 f
"MlHUllltlVtMIIIIHIHHItlWMHIIIIUIIIIHIIIIIIIlllllUllll
46. Islenzk endurtr. 140
47. Feldur h.f. 140 -
48. Samtr. ásl. botnv. 139,5 -
49. Kexverksm. Frón 139.5 -
50. Þóroddur E. J. 139.5 -
51. Agnar Norðfj. & Co. 139 —
52. Halli Þórarins, verzl. 138,5 -
53. Smjörlíkisg. Smári 138,5 -
54. Afgr. smjörlíkisg. 138,5 -
55. Timburv. Völundur 138
56. J. Þorl. & Norðm. 138 -
57. Víkingsprent h.f. 138
58. Sparisj. Rvíkur o. n. 138
59. Hótel Borg 138 -
60. Húsg.verzl. Austurb. 138
61. Blikksm. Grettir 137,5 -
62. L. Arnórss., heildv. 137,5 -
63. Grænmetisv. rikisins 137
64. Alþýðublaðið 137 -
65. Egill Skallagr. h.f. 137 -
66. Hressingarskálinn 137
67. Edvin Árnason 137
68. H. Ólafss. & Berh. 136.5 -
69. N. Caeh Reg. Co. 136.5 -
70. Edda h.f. heildverzl. 136
71. Ámundi Sig., málmst. 136
72. Kexverksm. Esja h.f. 136
73. Shell h.f. 135 -
74. Rúllu- Qg hleragerðin 135
75. Sigf. Sighvatsson 134,5 -
76. Akur h.f. 134,5 -
77. S. Árnason & Co. 134,5 -
78. Verzlunaríél. Festi 134,5 -
79. Eimskipaíél. íslands 134,5 -
80. Ásbj. Ólafss. lieildv. 134
81. Sauitas h.f. 134
82. Málarinn 133,5 -
83. Eínagerð Laugarness 133
84. Vátryggingafél. h.f. 133,5 -
85. Alliance h. f. 132,5 -
86. Bernh. Petersen 132,5 -
87. Ásg. G. Gunnlaugss. 132
88. Sjálfstæðishúsið 131,5 -
89. Olíufélagið h.f. 131,5 -
90. O. Johnson & Kaaber 131 . ■
91. Ðókab. Braga Brynj-.-130,5 ■
92. Landssmiðjan 130,5 -
93. Efnalaugin Glæsir 130,5 ■
94. Hamar h.f. 130,5 -
95. Álafoss 130,5 ■
96. Ól. Gíslason & Co. 130 ■
97. Verzlunin Vísir 130
98. Eimskipafél. Rvíkur 130
99. Helgafell, bókaútg. 130
100. G. Helgas. & Melsted 129,5 -
101. Pétur Snæland h.f. 129
102. Trygging h.f. 129 ■
103. Johan Rönning h.f. 128,5 ■
104. Fálkinn h.f., verzlun 128,5 ■
105. A. Andréss. klæðav. 128,5 ■
106. Tjarnarbíó h.f. 128
107. Bifreiðast. Rvikur 128
108. Nathan & Olsen h.f. 127,5 ■
109. Kjöbtúðin Borg 127,5 •
110. Freyja, sælgætisgerð 127
111. Egill Vilhjálmss. h.f. 126
112. Harpa h.f., máln. 126
113. Sveinn Egilsson hf. 126
114. G. J. Fossberg vélev. 125,5 ■
115. Jóhann Ólafss. & Co. 125
116. Verzlunin Varmá 124,5 ■
117. Þjóðviljinn 124,5
118. H. Magnússon & Co. 124
119. Alþýðubrauðg. h.f. 123,5
120. Áburðarverksm. 123,5
121. S. Stefánss. & Co. 123
122. Slippurinn 123
123. Smjörlíkisg. Ljómi 122,5
1?4. Verzl. Bj. Kristjánss. 122,5
125. Belgjagerðin 122
126. Lárus G. Lúðvígsson 121,5 L
127. Fiskhöllin 121,5
128. Bílaiðjan 121,5
129. Ásgarður h.f. 121,5
130. ísafoldarprentsm. h.f. 121,5
131. Stálsmiðjan h.f. 120,5
132. Árni Pálsson verzlun 119,5
133. Stálumbúðir 119
134. Sölum. hraðfrystih. 119
135. Björninn, smurbr.st. 118
136. Héðinn h.f. 118
137. Ræsir h.f. 117,5
138. Edinborg 117
139. Kr. Þorvaldss. & Co. 116,5
140. Loftleiðir h.f. 115,5
141. H. Ben. & Co. 115,5
142. Sjóvátryggingaf. ísl. 114.
143. Svanur h.f. 113
144. Leðurverzlun M. V. 109,5