Tíminn - 12.11.1954, Page 4

Tíminn - 12.11.1954, Page 4
TÍMINN, föstudaginn 12. nóvember 1954. 1 ' 256. blað. Oflugt starf Þingey- ingafélagsins í Rvík Félag Þingeyinga í Reykja- vík hélt aðalfund sinn þriðju daginn 9. nóv. s. 1. í Breiðfirð ingabúð uppi. Fráfarandi for maður félagsins, Barði Frið- riksson héraðsdómslögm. gaf skýrslu um störfin á liðnu ári. Starfandi eru innan félagsins margar nefndir, er hafa með framkvæmdum hin ýmsu störf. Verið er að vinna að undirbúningi að því að reisa minnisvarða yfir Skúla land- fógeta að fæðingarstað hans í Keldunesi. Þá er og í athug un um kvikmyndun héraðsins og er nefnd starfandi í því máli, en nokkuð hefir verið gert af einstökum mönnum af smáþáttum, ósamstæðum. Unnið hefir verið að örnefna söfnun. Á s. 1. sumri var fyrir forgöngu örnefnanefndar safnað örnefnum i þrem hreppum eða á um 70 býlum, Fór í vélakassa vestur fyrir. tjald Tuttugu og sex ára gam- all Ungverji, Imre Komo- roczky að nafni, lá tólf sól- arhringa í kassa, sem full- ur var af landbúnaðarvél- um. Á þann hátt tókst hon um að flýja yfir járntjaldið. Á tólfta degi sá hann gegn um gat á kassanum, auglýs ingaspjald með áletrwninni: Hamborg. Þá vissi hann. að honum var borgið. Imre lét svo ummælt, að þessir dagar hans í kassan- um væru þeir alverstu dag- ar, sem hann hefði lifað. Hann hafði meðferðis tvö kg. af brawði og þrjá lítra af vatni. Þessa tólf daga borðaði hann aðeins helm- inginn af brauðinw, en vatn ið gekk til þurrðar eftir fimm sólarhringa. Á leið sinni, sem hann fór með vörulest frá Ung- verjalandi um Tékkósló- vakíw og Austur-Þýzkaland, Iéttist hann um sex kg. — Kulci og óttinn við það, að hann myndi finnast, hafa sett mót sitt á flóttamann- jnn. — Tvisvar áður hafði hann gert tilrawn til þess að flýja ættland sitt, en mis tekizt í bæði skiptin. gerði það Skúli Skúlason. For maður örnefnanefndar Krist ján Friðriksson forstj. styrkti starfið með 4 þús. kr. fram- lagi. landnámsnefnd hefir unnið að skógrækt í Heiðmörk og voru gróðursettar þar s. 1. vor 3500 plöntur af félags- mönnum. Er vaxandi áhugi fyrir skógræktinni og rætt um að byggja skála í landi félagsins þar efra. Formaður landnámsnefndar er Kristján Jakobsson póstmaður, en í nefndinni eru 19 manns, einn úr hverju hreppsfélagi. — Út er að koma á vegum sögu- nefndar félagsins Byggða- og sveitalýsing Suður-Þingeyjar sýslu eftir Jón Sigurðsson í Yztafelli, stór bók og fróðleg með mörgum myndum. Þá er og verið að rita byggðalýsing ar úr Norður-Þingeyjarsýslu og hefir Gísli Guðmundsson alþingismaður tekið að sér for göngu þess verks. Stjórn félagsins til næsta árs skipa: formaður Tómas Tryggvason jarðfræðingur, rit ari Indriði Indriðason rith., gjaldkeri Valdimar Helgason leikari, meðstjórnendur: Jón ína Guðmundsdóttir kaupk. og Andrés Kristjánsson blaða maður. Félagsmenn eru rúm- lega 300 að tölu. Dvalarlieimilimi berst vegleg gjöf Á fundi í fulltrúaráði sjó- mannadagsins s. 1. sunnudag mætti Sigurjón Ólafsson, myndhöggvari, og afhenti svohljóðandi gjafabréf: „Ég undirritaður gef hér með Dvalarheimili aldraðra sjómanna grústeinsmynd, er nefnist Sjómaður. Myndin er gefin til minningar um föð- ur minn Ólaf Árnason frá Eyrarbakka. Jafnframt er Jóni Bergsveinssyni erind- reka falið að sjá um uppsetn ingu myndarinnar. Það er ski-lyrði fyrir gjöf þessari, að ég ráði sjálfur hvar myndin verði staðsett og má ekki flytja hana úr stað án sam- ráðs við mig.“ Höggmyndin er sem stend ur á sýningu í Noregi, þar sem farið hefir verið miklum hrósyrðum um hana. Var myndhöggvsrinn hylltur fyr ir gjöfina. Fréttabréf úr Dýrafirði Síðastliðið sumar var góð viðrasamt og gjöfult hér um slóðir. Þurrkar voru að vísu linir, framan af sumrinu, en lítið rigndi og var svo kom- ið í október að vatnsból þraut á nokkrum bæjum, er sjaldan kemur fyrir. Gras- vöxtur var góður og nýting góð, enda mikiö um votheys- gerð og súgþurrkun á nokkr um bæjum. Uppskera garðávaxta var í góðu meðallagi, en þó voru rófur smáar í sand- og mold arjarðvegi, vegna þurrka. Garðrækt er þó minna stunduð en fyrir stríð, vegna fólkseklu. Allir garöávextir héðan eru nú seldir. Fé var í vænna lagi. Slátrað var á Þingeyri 2054 dilkum er reyndust 15,5 kg. að meðaltali, og er það 1/10 kg. meira en í fyrra. Jarðýtur hafa unnið til þessa, því að jörð hefir ekki frosið til baga og snjór ekki verið til tafar að heitiö geti. Skurðgrafa lauk verki í sl. viku og hafði þá graíið á 17 jörðum í Mýrahreppi frá 24. júní í sumar og er nú lokið greftri í sveitinni. Grafnir voru í sumar 89,267 tenings metrar. Sl. þrjú sumur hefir skurðgrafa unnið í Mýra- hreppi og grafið á öllum byggðum jörðum í sveitinni nema einni og þrem eyðibýl um, sem nýtt eru frá næstu jörðum. Grafn'ir hafa verið 154.915,9 m3 og kostar gröft- urinn kr. 573.885,72. Mest allt mýrlendi í sveit inni hefir nú verið ræst, og munu tún hér stækka mjög næstu árin, en útfærsla túna hefir verið lítil undanfafið, vegna þess að búið var að rækta þaö land, sem tiltæki legt var. Hyggja bændur nú að fjölga sauðfé, en um mjólk- ursölu er ekki að ræða. Helzti agnúi á því er landþrengsli til sumarbeitar. Tvö íbúðarhús hafa veriö byggð í sumar og peningshús á nokkrum bæjum. Eitt ný- býli er í uppsiglingu. Lítið hefir verið hér um sjósókn í sumar og haust, og lítið veiðst, þó að á sjó hafi verið farið og kenna menn um ofvaiði á miðunum úti fyrir. Hins vegar hefir verið mikið um vega- og brúar- vinnu og margir Dýrfirðing- ar unnið við það. Byggðar voru tvær brýr í Dýrafirði og ein í Arnarfirði á Hrafnseyrará. Vegasam- band komst á í sumar inn fyrir Dýrafjörð og er að því mikil samgöngubót. Vantar þar nú aðeins brú á Botnsá, sem væntanlega verður byggð næsta sumar. Lítið hefir verið um fisk til vinnslu í hraðfrystihúsinu á Þingeyri í haust, þó lagði tog ari nýlega upp 60 tor.n af f?ski og Pétur Halldórsson er að landa 150 tonnum af fiski í nótt og eru menn úr sveit- unum einnig í vinnu við það. JD. | Blómamark- aðurinn [ við Skátaheimillð 1 alls konar afskorln blóm og margt fleira. Síml 6295 Bóndasonur ræðir hér um geitfé á íslandi og danska fyrirmynd: * Geitféð að deyja út á íslandi, segir Tíminn. Nei, eftir ellefu hundr uð ára sögu má þetta ekki verða svo. Ekki er húsdýralif okkar svo fjölbreytt. En hitt er sennilega æski legt, að breyting verði á geitfjár- ræktinni. Ég minnist þess frá Dan- 'merkurárum mínum, hve það var ! notasælt smábændum þeim, sem þar í landi nefnast husmænd, og ekki gátu haft kú, að hafa geit (eða máske tvær), sem tjóðruð var á litlum grasbletti við húsið. Þessir menn bjuggu ekki svo stórt, að þeir hefðu kú, en geitin var ótrúlega dropasæl skepna og börnin höfðu líka skemmtun af henni. Ég hefi löngum saknað þess að sjá ekki þennan sama sið hér, og ég hygg, að hann ætti að takast upp. Víða i þorpum og kaupstöðum mundi það verða ódýrt að afla heytugg- unnar til vetrarins. Hérna í Reykja vik vita menn ekki hvað þeir eiga að gera við heyið af blettum sín- um og því er ekið á sorphaugana. Það finnst okkur, sem uppalin er- um í sveit, sorgleg sjón. Ég vildi að fólk íhugaði þessa dönsku fyrir mynd. Bóndasonur. Þá er grein frá Sn. um Kross- veitingu, sem gleðja mun'marga: ‘ * Sir Stanley Uniein, EL. • j).,: hinn nafntogaði forustumaður brezkra forleggjara, hefir forseti íslands nýlega sæmt riddarakrossi Pálka- orðunnar. Mun þetta gleðja hina mörgu vini hans hér, og mundi hafa gert þó að fyrr hefði verið, því að manna maklegastur er sir Stanley þessarar viðurkenningar, Hann kom hingað til lauds'sumai'ið 1934 og dvaldi hér sex vikur, nokk uð þess tima sem gestur rjkisstjórn arinnar. Síðan hefir naumast ann- ar maðuk verið íhlutunarsamari um okkar mál í London og fáir verið okkur þarfari. Á stríðsárun- um mátti segja að hann væri nokk urs konar óviðurkenndur .konsúll okkar, og þá kom víst enginn ís- lendingur svo til London að hann heimsækti ekki sir Stanley Unwin. Og ekki er hann líklegur til að gleyma okkur fremur nú, er honum hefir verið sýnd þessi viðurkenning. Siíka menn er gott að eiga að, og margra manna maki hefir hann löngum verið talinn. Ekki verður fleira rætt í bað- B A N N við rjúpnadrápl í landi Hafnarfjarðarkaupstaðar Hér með tilkynnist að allt rjúpnadráp er bannað í landi Hafnarfjarðarkaupstaðar og verðar sektum, ef út af er brugðið. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 10. nóv. 1954. Stefán Gunnlauusson. WAWWAVA'.W.’.W.WAVVA’/.VAV.VVWAVliW.^ '$ Bezt að auglýsa í TÍMANUM iwwvwvuvwwwftwviwwwvwvvwvyvwwwwrtwi stofunni í dag. Starkaður. issssssssssssssgsar./issssssssssssssssssssssgssýsssssscssssscsscwswssg Þrifið fólk lætur þvo sængur- og koddaver vikulega. Þetta þykir sjálfsagt, en hafið þér athugag hvort í sængurfatnaði yðar sé hreint fiður og dúnn? Sennilega ekki. Innan í hinum hreinu sængurverum getur falizt aragrúi sýkla, ásamt ýmis konar öðrum óþrifnaði. — Látið okkur þvi hreinsa fiðrið og dúninn í sængurfötum yðar — nú er rétti tíminn til þess. Seljum einnig tilbúnar dúnsængur: Æðardúnn og gæsadúnn. Fljót og góð afgreiðsla Sendum gegn póstkröfu um allt land. Fiðurlireinsun Hverfisg. 52 Alúðarfyllstu þakkir til allra þeirra mörgu, sem auð- sýndu cklcur samúð og vinarhug við andlát og jarðar- för föður okkar og tengdaföður, GUÐBJARTS GUÐBJARTSSONAR, vélstjóra. Börn og tengdabörn. Utför JÓNATANS JÓSAFATSSONAR frá Skeggjastöðum í Miðfirði fer fram mánudaginn 15. nóv. og hefst með húskveðju kl. 10 árd. Jarðað verður á Melstað. Sæunn Guðmundsdóttir, börn og tengdabörn.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.