Tíminn - 28.12.1954, Page 5

Tíminn - 28.12.1954, Page 5
293. blaff. TÍMINN, þriðjudaginn 28. desember 1954. 6 Njósnamálið í Ástralíu og rannsókn þess Grein þessi er þýdd úr „Ar- bejderbladet“ í Osló og er cftir Francis Noel-Baker. Segir hér frá Vladimir Petrov, sem var sendi- ráð'sritari Rússa í Canberra í Ástralíu, og stjórnaði njósnum fyrir ráð'stjórnina í Ástralíu. Eins og kunnugt er, flýði Petrov á náð ir ástralskra stjórnarvalda eftir að' yfirboðarar hans í Moskvu höfðu kallað hann heim. Þær upp lýsingar, sem hann hcfir gefið lögreglunni, sýna, að flest er líkt með' þessu njósnamáli og öðrum, sem upp hafa komið í öðrum löndum, svo sem Noregi. Liðs- menn í njósnasveitir sínar fékk Pertov með fulltingi kommúnista flokksins í Ástralíu. Rúmir fjórir mánuðir eru liðnir síðan Vladimir Petrov yfirmaður i upplýsingadeild rússneska sendi- ráðsins í Canberra flýði yfirboðara sína og baðst vistar af áströlsku rík isstjórninni sem pólitiskur flótta- mað'ur. Allt frá því að þetta gerð'ist, hefir mál Petrovs verið í rannsókn og stjórnskipuð nefnd, sem í eru úrvals lögfræð'ingar, hefir þessa rannsókn einkum á hendi. Er búizt við, að rannsókninni Ijúki ekki fyrr en á næsta ári, en þó má nú segja, að' höfuðdrættirnir í máli rússneska njósnarans séu þegar kunnir. Athyglisvert mál. Það er einkum þrennt, sem virð ist gera Petrov-málið athyglisvert og freistandi rannsóknarefni, í fyrsta lagi eru það sjálfar persón- urnar, sem fram koma í þessum leik, Petrov og kona hans og einnig þær ástæður, sem verða til þess að þau segja skilið við ættland sitt. Bæði hjónin voru þrautreynd i starfi hjá rússnesku leyniþjóhust- unni M.V.D. í öðru lagi er athyglis vert, hver er þáttur einstakra ástr- alskra kommúnista og kommúnista flokksins þar í landi í heild. Þriðja og mikilvægasta staðreyndin er sú, að Petrov-málið er nákvæmlega eins í öllum að'alatrið'um og önnur njósnamál, sem upp hafa komið annars staðar og eiga rætur að rekja til leyniþjónustu Ráðstjórnar rikjanna. Langur starfsferill. Vladimir Petrov kom til Ástralíu í febrúarmánuði 1951. Hann hafð'i starfað í leyniþjónustunni alls 25 ár, hafð'i hlotið ofurstanafnbót og verið sæmdur ýmsum heið'ursmerkj um, m. a. rauðu stjörnunni. Hajin hafði áður verið erlendis, t. d. í Kína og annað sinn í Svíþjóð. Það er ekki ósennilegt, að hann hafi átt lengstan starfsaldur að baki þeirra foringja, sem í M.V.D. voru, en þeir höfðu allmjög týnt tölunni í hreinsunum síðari ára. Kcnan var einnig í M.V.D. Eudokiya, kona hans, átti einnig langan starfsferil innan leynilög- reglunnar, — óhugnanlegan feril. Tveir af yfirboðurum hennar höfðu verið' teknir af lífi í hinum miklu hreinsunum, er Stalin stóð fyrir á árabilinu 1930—10. Árið 1937 var fyrri maður hennar, sem einnig starfaði í M.V.D., sendur í útlegð' til Solovetskeyjar í Hvítahafi, og bróðir hennar hlaut svipuð öriög nokkrum árum síðar. Ástralskir kommúnistar njósna. Opinber staða Petrovs i Canberra var embætti þriðja sendiráðsritara. En raunverulegt starf hans var að leggja njósnanet um Ástralíu með þátttöku ástralskra kommúnista, smygla inn í landið' ráöstjórnar- njósnurum og fylgjast með gerðum samstarfsmannanna í sendiráðinu og njósna um alla þeirra hagi. Kona hans var hans nánasti samverka- maður. Hvers vegna þau flýðu. En þá kemur spurningin: Hvers vegna völdu þessir drottinhollu þegnar þann kost að flýja á náðir framandi ríkis? Svarið er ofurein- falt. Um nokkurra mánaða skeið hafði Petrov fengið ákúrur fyrir það frá Moskvu, að hann væri slapp ur í starfinu og gerði lítið gagn. Hann og kona hans þekktu vel, hvað slíkur boðskapur gat haft að þýða. Síðan kom skipun um það, að þau skyldu hverfa heim til Rússlands En það var líka enn önnur ástæða, sem gat skotið þeim skelk í bringu. Petrov hfði verið skipaður yfirmað ur Ástralíunjósnanna á meðan Lavrenti Beria var hæstráðandi í leyniþjónustunni. Eftir að Beria var af tekinn, gat enginn með slíka fortíð vænzt þess að eiga grið- land. Starfsmaður einn í sendiráð- inu hafði sagt Petrov frá þvi, að sendiherrann sjálfur, Nicolai Gener alov hefði sent leynilegar uppljs- ingar til rússnesku stjórnarinnar um að hann hefði grun um, að meðal starfsmanna sendiráðsins væri klíka, sem hliðholl væri Beria. „Mig langar ekki til þess að snúa til Ráðstjórnarríkjanna aftur“ sagði hann við áströlsku lögregluna. „Ég veit, að' ég verð'i drepinn, ef ég fer þangað". Hann ákvað að flýja, þegar þrjár vikur voru þar til að hann átti að fara heim til Rússlands. Vildi bjarga lífi sínu. Ástæðan til þess að Petrov flýði var einfaldlega sú, að hann var að bjarga sínu eigin lifi. Sama er að segja um konu hans. Hún hafði í fyrstu ákveð'ið að hverfa heim til Ráðstjórnarríkjanna eftir að 1 Þriðjud. 28. des. Hæstiréttur stað- festir gagnrýni Tímans Fyrir skömmu síðan felldi Hæstiréttur úrskurð, sem er einstæður í íslenzkri réttar- eögu. Samkvæmt þessum úr- skurði var hinn útvaldi setu dómari í máli valdStjórnar- innar gegn Helga Benedikts- syni, Gurinár A. Pálsson, dæmdur óhæfur til að ann- ast þann málarekstur lengur vegna stórfélldra mistaka í því starfi á undanförnum ár um. Dómur þessi er vissulega mikið áfall fyrir viðkomandi setudómara, en þó raunar enn meira áfall fyrir dóms- málaráðherra þann, sem hafði falið honum þetta starf, varið starfsaðferðir hans í málgögnum flokks síns og í hvívetna látið á sér skilja, að hann væri hinn á- nægðasti með þennan undir- mann sinn. Svo náið var sam band þeirra, að með fullum rétti mátti • telja Gunnar nokkurs konar einkadómara ráðherrans. Ef slíkur úrskurður hefði verið kve'ðinn upp yfir jafn nánum samyerkamanni dóms málaráðherrans brezka, benda állar líkur til þess, að ráðherrann hefði beðist lausnar. Með umræddum úrskurði hæstaréttar er jafnframt genginn dómur um þá gagn- rýni, er Tíminn hefir haldið uppi gegn dómsmálastjórn Sjálfstæðismanna fyrir með ferð hennar á umræddu máli og nokkrum öðrum skyldum málum. Sú gagn- rýni leiddi til þess á sínum tíma að flokksþing Fram- sóknarmanna vítti dóms- málastjórnina. Þær ávítur hafa vissulega verið stað- festar með dómi Hæsta- réttar. Af hálfu andstæðinganna hefir verið reynt að halda því fram, að umrædd gagn- rýni Tímans væri sprottin af því, að Helgi Benediktsson væri Framsóknarmaður. Slíkt er hreinn tilbúningur. Tím- inn hefir aldrei lagt neinn dóm á sekt eða sakleysi Helga Benediktssonar í þessu sambandi né mótmælt því að dómstólarnir fjölluðu um mál hans með eðlilegum hættiv Hinu h'éfir Tíminn mótníælt, að. fjallað væri um mál hans með öörum aðferð um en anna'rra sakborninga, enda ;íá bersýnilega ekki önn ur ástæða til þess en sú, að Helgi var um skeið áhrifa- mikilj andstæðingur þess flokks, sem fór með dóms- málastjórnina. Það var slík misbeiting dómsvaldsins, er Tíminn gagnrýndi. Þá gagn- rýni hefir hæstiréttur full- komlega staðfest. Hin eindregna og ákveðna gagnrýni Tímans varð áreiö- anlega til þess, að dómsmála stjórn Sjálfstæðisflokksins fór sér gætilegar á eftir og þorði síður að beita svip- uðum aðferðum. Gagnrýni Tímahs hefir því vafalaust haft mjög siðbætandi áhrif á réttarfarið á þessum tíma og afstýrt afglöpum, er ella hefðu átt sér stað. Vafasamt er þó hvort slík gagnrýni hefði borið þann árangur, ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði einn haft völdin. vissulega er framkoma einkadómar- ans vísbending um það, sem i vændum væri, ef slík óhamingja ætti eftir að gerast. Allt er mál þetta glögg sönn un þess, hve mikilvægu hlut- verki heilbrigð og djörf gagn rýni blaöanna hefir að gegna. Slík gagnrýni getur í fyrstu sæt't nokkurri óánægju, en það breytist, þegar hið rétta kemur endanlega í Ijós eins og nú hefir átt sér stað í áður nefndu máli. Þeir blaðamenn í Bandaríkjunum, sem fyrstir urðu til þess að gagnrýna að- ferðir MacCarthys, urðu upp haflega fyrir nokkru aðkasti, en nú er það viðhorf vissulega breytt. Tíminn hefir sannarlega ástæðu til að fagna því, að úrskurður Hæstaréttar hefir staðfest umrædda gagnrýni hans. Hitt er þó enn mikils verðara, að gagnrýni hans hef ir tvímælalaust borið þann árangur, að dómsmálastjórn- in hefir farið gætilegar eftir en áður og því framið minni mistök en ella. Vafalaust hafa og ávítur seinasta flokksþings Framsóknarmanna stutt að því sama. Þetta breytir þó ekki þeirri staðreynd, að 'traust og öruggt veröur rétt- arfarið ekki fyrr en ákæru- valdið er komið úr höndum þess flokks, sem hefir beitt því eins og raun ber vitni um í máli Helga Benediktssonar. * maður hennar flúði, en þar átti hún œttin.ja, — en maöur hennar ekki. — En þegar eftirmaður Pet- rovs i embætti, Kouvalenkov, kvað upp úr með það, að hún gæti búizt við a.ð mega velja á milli aftöku eða ævi’angs fangelsis, valdi hún einnig þann kostinn að forða sér. Eftir allsögulega viðureign úti á Darwin-flugvelli tókst að bjarga henni úr greipum vopnaðra varð- manna, sem fylgdu henni og áttu að gæta hennar á heimleiðinni. Síðar sagði hún: „Ef ég hefði mátt vita það fyrir víst, að vel hefði verið með fólk mitt farið heima i Rússlandi, hefði ég ekki skoðað hug minn um að fara þangað aftur af frjálsum vilja, hvað svo sem manni minum ieið“. Petrov á ekki samúð að fagna. Það er því harla lítii hetjusaga á bak við flótta þeirra. Petrov hef ir heldur ekki unnið samúð þeirra, sem rannsakað hafa mál hans. Einn þeirra hefir lýst honum svo, að hann sé „venjulegur stritkarl, sem dottið hafi ofan á þær mann- virðingar, sem ósjálfrátt berist upp í hendur manna í skrifstofuveldi.. ..hæggerður bóndasonur frá Sí- beríu, sem reyndi að snúa sig út úr ógöngunum með vífillengjum". Njósnanet í Ástralíu. En hvað svo sem um Petrov má segja, þá er það víst, að rikisstjórn Ástralíu lítur alvarlegum augum á þetta mál. Það hefir sannazt, að í landinu er þéttriðið njósnanet, sem stjórnað er frá rússneska sendi ráðinu. Margir aðstoðarmanna Rúss anna eru „Ástralíumenn", sem ný lega hafa flutzt til landsins frá Ráðstjórnarríkjunum eða öðrum ríkjum austan járntjalds. Þá, sem áttu ættingja í Rússlandi, var oft auðvelt að fá til aðstoðar, sagði Petrov. Aðra mátti ginna með lof- orðum um verðlaun, þótt síðar yrði. En flestir voru aðstoðarmenn hans félagar í ástralska kommún istaflokknum, sem nú telur 12 þús. félaga. Auk þess eru svo nokkur hundruð leynilegra áhangenda og meðreiðarsveina, sem flokkurinn notar til þess að pota í stöður í verkalýðsfélögum, grafa jarðveg- inn undan stjórnmálaflokkum og stýra „vináttufélagsskap" og „friö arnefndum" og öðrum grímuklædd um baráttusamtökum. Ástralski kommúnistaflokkurinn er tiltölu- lega lítilvægur i landsmálum, en eins og reyndin er um sams konar flokka í öðrum löndum, er hann dyggilega á verði um að láta í té njósnara handa Ráðstjórnarríkjun um. Að því er nánast er upplýst, hafði Petrov mest haft saman við kommúnista að sælda um njósnirn- ar, og kommúnismans vegna hafa þeir stundað njósnirnar. Minnir á önnur njósnamál. Petrov-málið er í flestu líkt sögu Igors Gouzenkos, sem starfaði við rússneska sendiráðið í Kanada, en saga hans var hin fyrsta þeirrar tegundar til þess að hleypa æsingu i fólk, er Gouzenko flýði sendiráðið í september árið 1945. Öil eru njósna málin, sem upp komu eftir styrjöld ina, hver öðrum lík. Hvort heldur litið er til Ameríku eða Grikklands, Japans eða Noregs — í stuttu máli sagt, hvar í heimi -sem leitað er, — þá er alltaf sömu söguna að segja. Og það er ef til vill ekki að -undra. í augum yfirboðaranna í Moskvu eru njósnir í „auðvalds- löndunum" greinilega venjuhelguð verk. Og enda þótt mikið sé hreins að til á hærri stöðum þar í landi, virðist erfitt fyrir þá, sem við taka, að hreinsun lokinni, að koma meö (Framhald á 6. síðu). Ísleiidingaþætílr (Framhald af 3. síðu). ins og ekki ofmetnast af vel- gengni þess. Guðbranda heldur sér enn vel andlega og líkamlega. Hún er enn fríð kona og höfðingleg sýnum. Hún ber þess ljós vitni að hennar lífs yndi hefir ekki fallið langt frá ættstofni hennar. Nú er ævihaust hennar komið, kyrr látt og milt, eftir langan, sól ríkan og annasaman vinnu- dag lífsins. Hún situr í skjóli sona sinna, dóttur og tengda dætra, sem bera hana á hönd umum sér. Á Hjarðarfelli vill hún una ævi sinnar daga. Þangað kom hún ung að ár- um. Þar hefir hún elskað, misst og notið þeirra gæði, sem lífið hefir að bjóða. Þessi fagra, góða jörð er orð- in hluti af henni sjálfri. Þar hefir hún alið öll börn sín og alið upp. Hér hefir hún greitt götu samborgara sinna. Hér hefir hún lifað með manni sínum langt og farsælt hjóna band. Hér hefir hún líka kvatt hann hinstu kveðju. Já, minningarnar eru margar, sem hún hlýtur að eiga um Hjarðarfell eftir nær hálfrar aldar veru þar. Fellið. Hlíðin. Hjallarnir. Dalurinn og fossarnir, — allt þelta er eins og þegar hún kom ung kona að Hjarðar- felli. En mannshöndin hefir bætt jörðina. Hendur manns hennar, sona, tengdasonar og fóstursona hafa fegrað og bætt þessa góðu, fögru jörð. Nú eru þar þrjú býli með veglegar byggingar og mikla ræktun. Og nú er búið að beizla fossinn upp við Hjall- e.na, nú framleiðir hann orku til raflýsingar á öllum býjijn „ um, hitun þeirra og til mats- eldar. (Fyrsta rafstöð vatns- knúin í hreppnum). Þannig mætti lengi telja upp. Þær minningar, þá menningu og framfarir, sem tengdar eru við heimili Guðbröndu á Hjarðarfelli, hana sjálfa, mann hennar og börn. Hún getur litið meff ánægju yfir farinn veg. Líf hennar og starf hefir fært hamingju og blessun fyrir samborgara hennar og ástvini. Hún hefir til mikils lifaö. Sjötugasti afmælisdagur hennar var ánægjulegur. Hún var glöð og reyf eins og ávallt. Hélt uppi samræðum við gesti sína og hvatti til að fólkið skemmti sér. Þar hitt- ust frændur og vinir. Börn hennar öll og mörg barna- börn heimsóttu hana. Þau færðu henni veglegar gjafir — líka margir frændur og vinir hennar, en heillaskeyti bárust henni í tugatali hvað anæva að. Víst úr flestum fjórðungum landsins. Félags konur hennar úr kvenfélag- inu „Lilja“ í Miklaholtshr. færðu henni veglega ljósa- krónu innbrennda að gjöf og fluttu henni kvæði það, sem hér fylgir, ort af Ragn- heiöi Kristjánsdóttur í Straumf j arðartungu. Ræður voru henni fluttar og henni þakkað starf sitt allt. Veitingar voru höfðingleg ar, eins og ávallt, allir voru glaðir og skemmtu sér langt fram á nótt við söng, sam- ræður og dans. Að endingu þakka ég Guð- bröndu og heimili hennar fyr ir allt og allt og óska henni gleðilegra í hönd farandi jóla og ófarinna æviára. J.K,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.