Tíminn - 29.12.1954, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.12.1954, Blaðsíða 5
TÍMINN, miðvikudaginn 29. dcseniber 1954. SM, blað. Miðvikud. 29. des. Aðvörun til ríkis- stjórnarinnar í seinasta hefti Pjármála- tíðinda, sem Landsbankinn gefur út, birtist grein eftir ritstjórann, Jóhannes Nor- d.al, þar sem fjallað er um efni, sem alltof lítill gaumur er nú gefinn af valdamönn- um þjóðarinnar. Bersýnilegt er þó, aö illa hlýtur að fara, ef sama sinnuleysið helzt á því sviði og verið hefir um skeið. í grein sinni bendir Jó- hannes Nordal á það, að mik 111 áhugi sé nú fyrir frjáls- ari viöskiptum milli þjóða og hafi líka að undanförnu tek- ist að draga stórlega úr ýms- um hömlum, sem þar hafa verið til fyrirstöðu. Helzta úrræðið hafi verið það, að hver þjóð stuðli sem mest að því að koma á jafnvægi í fjár hagsmálum sínum og tryggja þannig traustan gjaldmiðil, blómlegt atvinnulíf og vax- andi útflutning. Jóhannes bendir á það í grein sinni, að gengislækkun ín hafi stuðlað verulega að því á sínum tíma að skapa slíkt jafnvægi hér á landi. Mikið vanti^ þó á, að því marki hafi verið náð, en helztu leiðirnar til að ná því, séu þær að draga úr þenslu innanlands og lækka verðlag til samræmis við það, sem sé í öðrum löndum. Síðan segir Jóhannes: „Því miðwr hefir þróumn verið mjög í öfuga átt að þessu leyti upp á síðkastið. Gífurleg þensla hefir verið í efnahagskerfinu síðustu tvö árin, sem á rót sína að rekja til varnarliðsfram- kvæmda og mjög mikillar innlendrar fjárfestingar. Eftirspnrn innanlands hefir farið sívaxandi og mjög al- varleg ur vinnnaflsskortnr hefir gert vart við sig í mörg um framleiðslugreinum. Er allt útlit fyrir, að nýrri kauphækkunaröldu verði hruíidið áf stað, áður en langt Iíður, ef ekki er grip- Iðv í taumana. Almenn verð- hækkunaralda mundi hafa hinar hættulegustu afleið- ingar og mundi auka á ný vántrú manna á gjaldmið- ilinum. Er þegar að sjá alvar leg merki þess, að sparzfjár söfnun sé farin að minnka, en I nóvember lækkuðu sþariinnlán í bönkum í fýrsta sinn í tvö ár og þá um fullar, tólf millj. kr. Vegna hinna miklu duldu döllaratekna hefir þensl- an í efnahagskerfinu enn ekki leitt til aukins gjald- eyrishalla, en varla getur liðið á löngu, áður en svo fér, ef ekki tekst að stöðva verðþensluskrúfuna.“ Hér er vissulega vakin at- hýgli á ískyggilegri stað- reynd. í tíð stjórnar Stein- gríms Steinþórssonar náðist ve-irulegur árangur í þá átt að apka iafnvægi í efnahagsmál unj. Þetta va'r' m. a. að þakka því að taumhald var haft á fjárfestingunni og þannig kcjþiið í veg fyrir ofþenslu. í jíð núv. ríkísstjórnar hefir gétt vaxandi andvaraleysis 1 þessum efnum. Þess vegna erý aðstæðurnar nú orðnar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: Óperurnar I Cavaleria Pagliacci og Pusticana Guömundur Jónsscn og Ketill Jensson. Hátíðasýning Þjóðleikhúss- ins að þessu sinni er tvær stuttar ópsrur, sem frumsýnd ar voru á annan í jólum. Þess ar tvær ítölsku óperur: Pagli- acci, öðru nafhi Bajazzo og Cavalleria Rusticana eru talin frægustu óperuverk höfunda sinna, þeirra Leoncavallo og Mascagni.Þær eru tíöum flutt ar saman á söngleikahúsum víða um heim með því að lengd þeirra til samans er hæfileg. Þær eru og allmjög kunnar þeim, sem hlusta á óperuflutning útvarpsins með því að þær hafa oftsinnis ver ið leiknar með .skýringum. Er það því mikill viðburður í leikhúss og tónlistarviðleitni landsmanna, að eiga þess kost að sjá og hlýða á þær fluttar i Þjóðleikhúsinu. Efni þessara söngleikja er sviplíkt því, sem títt er í óperum: Brigð í ástum og æsi leg afbrýðisemi, sem leiðir til manndrápa. Fyrr talin cpera, I Pagliacci, gerist á markaðs hátíð í bæ á Suður-Ítalíu. Leikflokkur kemur til bæjar ins til þess að sýna listir sín- ar. Canio (í leiknum Pagli- acci) foringi leikflokksins: Þc-steinn Hannesson, Nedda eiginkona Canios og leikkona (í leiknum Colombura): Sænska óperusöngkonan : Stina Britta Melander, Tonio Jtrúður (í leiknum Taddeo): ; Guðmundur Jónsson, Beppo leikari (í leiknum Harbkin) i Árni Jcnsson, Silvo, ungur bóndi: Gunnar Kristinsson. Auk þess fara með hlutverk tveggja bænda þeir Jón Kjarf ansscn og Sigurður Björnsson. — Loks kemur fram og syng ur fjöldi manna, markaðsfólk og bændur. Eiginkona leikstjórans er ekki við eina fjöl felld og hef ir að minnsta kosti tvo friðla I í takinu. Auk þess er trúður- j inn, Guðmundur, á höttunum I eftir ástum hennar en verður ekki ágengt. Canio, Þorsteinn, hefir svarið að drepa konu sína, ef hann komist að því, að hún sé sér ótrú og trúður inn hefnir sín með því að ljósta upp um lauslyndi konu hans. Um þetta snýst söngleik urinn og endar með þvi að leikstjórinn ræður konu sinni bana og auk þess elskhuga hennar Silvo, Gunnari Krist- inssyni, bana. Höfuðsöngvarar leiksins eru þau Stina Britta Meland- er, Þorsteinn Hannesson og Guðmundur Jónsson. Stina Britta Melander er æfð óperu söngkona. Hún er sérlega geð þekk á sviðinu, röddin fögur, þjál og vel skóluö og mun söngkonan hafa vakið óskipta hrifningu leikhúsgesta. Þor- steinn Hannesson hefir mikla og fallega rödd og hefir hann hlotið mikla þjálfun sem óperusöngvari, verið fastráð- inn um alllangt skeið við Covent Garden í London. Verður og ekki að leik hans fundið, enda erfitt um að dæma, þar sem ekkert er til samanburðar um meðferð þessa hlutverks. — Guðmund ur Jónsson er voldugur bary- tone-söngvari með geysilega mikið raddsvið, enda hefir hann teygt sig langt upp á tenórsviðið. Má vera að bary- tonblær raddarinnar hafi misst nokkurs í við þá ráða- breytni. En persóna og rödd Guðmundar fer vel saman og áhlýðendur hans verða ávallt öruggir um styrk hans og getu, vissir um það, að hann muni valda jafnvel hinum örðugustu hetjuhlutverkum. Mun óhætt að segja, að þessir þrír söngvarar, sem nú hafa verið taldir, hafi leyst hlut- verk sín prýðilega af hendi. Gunnar Kristinsson, sem lék Silvo elskhuga Neddu, hefir þægilegan raddblæ en litla rödd. Og sem elskhugi var hann í daufasta lagi og mátti eðlilegt teljast, að Nedda þyrfti, eftir því sem hún er gerð í leiknum, að hafa annan í takinu. Enn minna kveður að hlutverki Sigurðar Björnssonar, sem lék 2. bónda. Leiksviðið er harla nýstár- legt, gert að fyrirmynd um- hverfisins í suður-ítölskum smábæ, fornfáleg hús og múr garðar með bogmúruðum hlið um. Og á leiksviðinu er ann- að leiksvið farandleikhússins. þær, sem lýst er i ummælum Jóhannesar Nordals hér að framan. Ef þanuig verður stefnt áfram, er alveg ljóst hvert þjóðarskútuna ber. Stjórn- arhættir nýsköpunarstjórn- arinnar og enifalok þeirra eru örugg vísbending nm það. Þá var ekkert tanm- hald haft á fjárfestingunni og því skapaðist hin stór- felldasta ofþensla. Enda- lokin urðu öngþveiti, sem leiddu af sér meiri höft og skömmtunarfjötra en þjóð- in hafði áður búið við á þossarf öld. Jafnframt Ieiddu svo þessír stjórnar- liættir íil ægilcgustu vcrð- bólgu, er gcrði gengislækk- unina 1950 óumflýjaulega. Sama óheillaþróunin blas- ið nú framundan, ef ekki verður snúið við í tíma. Jóhannes. Nordal segir í áðurnefndri grein sinni, að þótt fjárfesting og fram- kvæmdir séu ein meginund- irstaóa aukinnar hagsældar, verði eigi að síður að fara svo varlega, að þjóðinni verði t-kki steypt út í verðbólgu á ný. Menn megi ekki gleyma þvi, að blómlegir atvinnuveg- ir, traustur gjaldmiðill og haftalaus viðskipti séu ekki síður mikilvæg fyrir afkomu þjóðarinnar. „Ef íslendingar nota nokkurn hluta þess auðs,“ segir Jóhannes enn- fremur, „sem þeim hefir nú borizt í hendur, til þess að draga ur peningaþenslunni cg auka gjaldeyrisforðann, skapa þeir sér hina traust- ustu undirstöðu frekari fram fara, sem völ er á.“ Undir þessi ummæli vill Tíminn fullkomlega taka og skora á ríkisstjórnina að haga stefnu sinni í samræmi við það. Svo mjög sem óperan I Pagliacci hefir verið rómuð fyrir fegurð tónverka, þá tek ur Cavalleria Rusticana henni langt fram, enda mun hún ávallt verða talin ein fágað- asta perlan meðal söngleika frá fyrsta tón til hins síðasta. Hinar fögru aríur verða lengi minnisstæðar og þá ekki síð ur hið fræga Intermezzo, lof- söngur upprisuhátíðarinnar og aðrir kórsöngvar. — Efni síðarnefndrar óperu er áþekkt hinu fyrra: Afbrýði í ástum og æsilegar ástríður, unz vopn in eru að lokum látin skipta sköpum. Leikurinn fer fram á páskamorgun í litlu þorpi á Sikiley. Ung stúlka, Santuzza (framborið Santúdsa) leikin af Guðrúnu Á. Símonar tekst á um unnustann Turiddu: Ketill Jensson við gifta konu Lolu: Þuríður Pálsdóttir. En Lola hafði fyrrum verið unn- usta Turiddu. — Eiginmaður Gunnar Kristinsson og Stina Britta Melander. Lolu Alfio: Guðmunaur Jóns- son fyllist bræði, er hann verð ur ástabrigða konu sinnar áskynja og fellir Turiddu í einvígi. — Móðir Turiddu Lucia kemur og mikið við sögu og er hún leikin af Guð- rúnu Þorsteinsdóttur. — Leik urinn fer fram á opnu torgi með kirkju á vinstri hönd en fornfálegar steinbyggingar á hægri hönd. — Sorgaratburð irnir vefast í hátíðahaldið, þar sem kórinn fyllir sviðið hvað eftir annað og myndar samfellda leikheild nema með an beðið er eftir að páska- messu ljúki, og er þá í hléinu leikið hið stórfagra Inter- mezzo. Guðrún og Ketill leika þarna meginhlutverkin og hafa bæði vaxið síðan er þau léku saman síðast í Leður- blökunni i Þjóðleikhúsinu í hitteðfyrra. Sérstaklega virð ist hin einkarfagra rödd Ket- ils hafa þjálfast og raddbeit- ing hans vera traustari og fágaðri en verið hefir. Sam- leikur þeirra Guðrúnar og Ketils er með miklum tilþrif um svo ung sem þau eru í þessari grein listarinnar og Ltt þjálfuð á leiksviði óper- unnar. — Hlutverk þeirra Guðmundar, Guðrúnar Þor- steinsdóttur og Þuríðar eru minni og vel af hendi leyst. Það er ánægjuleg nýlunda, að Cavalleria Rusticana er sungin á íslenzku og Frey- síeinn Gun?iarsson snúið textanum. Má telja efalaust að vándvirkni og smekkvísi Freysteins hefir þar ekki brugðist. Hitt má telja mið- ur farið, að Fikhúsgestir eiga þess ekki kost að fá textann rnilli handa í prentuðu máli. Er það y.^irsjón af leikhús- inu að gefa textan ekki út og seija vægu verði. — Fram buröur söngvara er að jafn- aði ekki svo skýr, að hans verði notið til hlítar, enda verður skýr textaframburð- ur í söng alltaf á kostnað tónflutningsins. Virtist að þessu sinni einkum á bresta um skýran framburð Guð- rúnar Á. Símonar. Simon Edwardse?? nafn- kunnur sænskur óperusöngv- ari, hefir sett báðar óperurn- ar á svið en hljómsveitar- stjórinn Victor Urbancic æft hljómsveit og kóra og báðir unnið afrek. Sérstaklega vekja kórarnir óskipta á- nægju leikhúsgesta. Er eft- irtektarvert hversu við ís- lendingar eigum mikinn kost fagurra söngradda í ungri viðleitni okkar að skapa ó- pcru í Þjóðleikhúsinu. Að öllu samanlögðu hefir þessi viðleitni að þessu sinni orðið til sæmaar Þjóðleik- húsinu og óllum, sem hlut eiga að máli. Þjóðleikhúsið var troö- fullt við frumsýningu og var söngvnrum og leikurum fagn að ákaflega og margkallaðir (Framhala á 6. síðu.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.