Tíminn - 04.01.1955, Side 3
1. blað.
TÍMINN, þrið,judaginn 4. janúar 1955.
Áramótaræða forseta íslands
Góðir íslendingar.
Við hjónin óskum yður öll-
um, hverjum fyrir sig og þjóð
inni í heild glleðiiegs nýárs og
þökkum gamla árið. Okkur
liefir verið það til mikillar
ánægju að margir hafa heim
sótt okkur hér á Bessastöðum
á hinu liðna ári af öllum stétt
um þjóðfélagsins.
Þá vil ég sérstaklega þakka
öllum þeim, sem komu, sendu
mér skeyti, kvæði og gjafir
á sextugsafmæli mínu síðast
liðið vor. Það var meiri mann
fjöldi en ég gat búizt við eða
get náð til. Oss er ölíum svo
farið, að fátt gleður meira en
góður hugur og góðar óskir.
Velvild og samúð styrkir og
hressir. Maður er manns gam
an. HafiS þér öll inniiega
þökk..... '
Á síðast liðnu ári h'öfum við
einnig haft -tækifæri til að
ferðast meir og víðar en áður,
og vil ég þá fyrst minnast á
Norðurlandaförina. Hinn
fyrsti forseti íslánds, Sveinn
Björnsson, taldi það skyldu
að opinþer heimsókn væri
gerð af hálfu hins nýstofn-
aða íslenzka lýðveldis til Norð
urlanda, þótt honum, sakir
vanheilsu, auðnaðist ekki að
koma því i framkvæmd. Ég
var sömu skoðunar, og hafi
nokkuð vantað á um fulla
sannfæring um nauðsyn þess
arar farar, þá var það horfið
í ferðalok. Almenningi er
kunnugt um þessa för, og veit
að slíkar ferðir eru alþjóða
venja, og engum er nauðsyn
legra en nýstofnuðu ríki, að
bregða ekki þar af. Vér íslend
ingar höfum skilið við Dani
samkvæmt samningi og fellt
niður hið sameginlega kon-
ungdæmi. Ég tel því vel farið
að það bjargaðist fyrir tíu
ára afmæli lýðveldisins, að
þjóðirnar tókust í hendur,
bróðurlega og af heilum hug.
Sama er að segja um viðtök
urnar í Svíþjóð og Finnlandi;
vér íslendingar getum fagn-
að þeim með stolti ungs
manns, sem er nýorðinn mynd
úgur. Aldrei hefir meira verið
ritað í blöð um hið nýja ís-
land og hið forna, atvinnulíf,
bókmenntir og þjóðmenning,
flest af nákvæmri þekking og
allt af mikilli velvild. Þjóðirn
ar tóku þátt í þessum fagnað
arfundi cg börnin teiknuðu
íslenzka fána í skólunum og
veifuðu þeim, glöð og bros-
andi. Það féll í hlut okkar
hjónanna, að vera fulltrúar
fslands. En vissulega giltu
móttökurnar ekki okkur per-
sónulega. Þær voru ávarp og
kveðja til hinnar íslenzku
þjóðar og árnaðaróskir til
hins unga lýðveldis. Þjóðirn
ar eru einstaklingar hver
gagnvart annarri, og grasið
má ekki gróa í götunni. Ungt
og fámennt lýðveldi á að gera
sér far um, að knýta fastar
vináttuböndin í allar áttir.
Þetta var skylduför, eins og
ég sagði, en þar fyrir sannar
l^ga ekki óljúf. Skylda og á-
hugi falla oft saman, og því
oftar því betur. En ef ég á
um að velja, þá ferðast ég nú
örðið heidur innan lands en
utan. Það ber margt til, sem
oflangt' yrði upp að telja. Með
al annars á ég enn ófarið um
nökkur héruð, þó víðast hafi
ég komið einhvern tíma. Það
er og ákvörðun okkar, að heim
sækja öll lögsagnarumdæmi
á þessu kjörtímabili, sem er
yfir að ráða, þó viðkomustað
ir verði færri en skyldi. í sum
ar sem leið gafst okkur tími
Flutt að Bessastöðum 1. janúar 1955
til að fara um mestallan Norð
lendinga- og Austfirðinga-
fjórðung. Þessar ferðir voru
okkur til óblandinnar ánægju.
Og það er furða hve mikið
vinnst með stuttri viðdvöl og
skjótri yfirferð, þegar hægt
er að byggja á gömlum kynn
um, viða hvar. Náttúran,
byggðin, fólkið, atvinnulífið
og afkoman blasir alstaðar
við og heildarsvipurinn verð
ur furðu skýr í eiidurminning
unni. Ég nota þetta tækifæri
til að flytja þessum héruðum
og íbúum þeirra innilegar
þakkir fyrir ógleymanlega
daga.
Náttúra vors lands er býsna
sérstæð, barnið og unglingur
inn lítur á hana sem sjálf-
sagöan hlut eins og móður og
föður, mat og drykk. En hún
síjast inn í sálina, og hugur
inn kemur til að bera „síns
heimalands mót“. En sá sem
fer um önnur héruð og lönd
eða eldist, honum opnast sýn
þegar hann kemur aftur á
fornar slóðir. Ég hefi komið í
þau lönd, þar sem mér finnst
allt áþekkt, þó farið sé um
langar leiðir. Og hvaða er-
indi er það þá, að flytja sig
úr stað? Máske hraðinn og
hreyfingin, sem alltaf er nokk
uð — og svo auðvitað að hitta
nýtt fólk. En hér á íslandi
skiptir um svip á skammri
leið og formin og litirnir taka
á sig allar myndir og blæ-
brigði. Loftið er svo tært og
svalt — einkum eftir stórrign
ingu. Og alltaf er gott að anda
því að sér. Loftið er ein sú
guðsgáfa, sem allir eiga jafnt
og ekkert kostar, og því stund
um lítils metið. En það hefi
ég fundið við að koma frá
heitu landi og röku um þrjú
þúsund mílna veg á sautján
tímum, að slagveðursrigning
á íslenzkum flugvelli, var
hreinasti lífgjafi og guðsbless
un. Þetta loftslag er heilnæmt
fyrir alla menningu, hugsaði
ég. Og þó veit maður það ekki
fyrr en maður hefir reynt
annað. Og svo er þetta loft
svo blátært fyrir augað, og
sólin og skýin, Ijósið og skugg
arnir gefa hinu stórbrotna
landslagi ótrúlega tilbreyt-
ing. Skáldin og málararnir
hafa fangað sumt, og verk
þeirra veita oss mikla nautn
í skammdegi innan fjögra
veggja. Þeir auka oss skilning
en gera þó ekki betur en skap
arinn. Vér eigum ekki að bera
listaverk saman við .ljósmynd
ina, sem missir margs, heldur
við náttúruna, og þá verður
flestra hlutur smár. Margra
heiður vex að vísu af því, en
sumra verður . skömm að
meiri. Ég segi ekki meir um
náttúru íslands að þessu
sinni og vísa til skálda og
listamanna, en gott þótti mér
í sumar að sjá aftur Herðu-
breið frá Möðrudal, inn yfir
öræfi og suður á Vatnajökul,
og Hallormsstaðaskóg inn á
Snæfell yfir blómlega sveit.
Þessa naut ég með rentu frá
unglingsárunum. Ég er þakk
látur fyrir það, að ég komst
þá langt og víða um landið í
atvinnuleit, en í þá daga var
það bara velstætt fólk hér í
Reykjavík, sem á sumrum
fór austur fyrir heiðar og
þótti gott fyrir almenning, að
fá einn útreiðartúr upp í Mos
fellssveit eða gangandi í berja
mó upp í Öskjuhlíð. En guði
Ásgeir Ásgeirsson
forseti íslands
sé lof, hve margt hefir breytzt.
Fyrir flestum var þá Hallorms
staöaskógur, Ásbyrgi, Gullfoss
og Geysir bara til i kvæðum,
að ég nú ekki nefni hinar
breiðu byggðir og afdali, en
nú þjóta bílar eftir öllum veg
um, sem teygja sig svo víða,
að það er næsta ótrúlegt hvað
þingmenn og þeirra starf er
stundum vanmetið. Aldrei
hafa fleiri íslendingar séð
meira af landi sínu en nú.
Bændur og bóndakonur fara
á milli héraða, að ég nefni
ekki sumarferðir kaupstaða-
fólksins. Þetta er gott og hlýt
ur að tengja okkur fastar
saman. Ég er bara hræddur
um að bíllinn fari of hatt yfir.
Bíllinn er farartækið, og út-
sýnið gott, en svo tilbreytilegt,
að athyglin og umhugsunin
þolir ekki heilan dag á hend
ingsferð. Það má sakna hests
ins, gæðinganna og gamalla
daga, og margt er rétt um
það. En ég fyrir mitt leyti
sé ekki eftir gömlu Bleik og
hnakkpútunni. Það var ekki
heldur í þá daga öllum veitt
það bezta. En nú held ég að
það þurfi frekar að hægja á
sér, nota ekki öll hestöflin,
heldur meir áfangana. Nátt
úra íslands og allar hennar
minningar heimta að vér setj
umst niður á hverjum sól-
skinsblett. En sólskinsblettirn
ir er öll náttúrufegurðin, býl
in, fólkið og fortíðin, sem rifj
ast upp.
En landið er ekki tómir
gamlir sögustaðir. Sagan ger
ist enn í sveitum, þorpum og
kaupstöðum. Vér sem nú lif
um erum ættjöröin. Gætum
þess í öllum okkar deilum, að
ættjörðin setur þeim tak-
mörk. Forfeður vorir, hinir
elztu, kunnu grein á drengi
legri baráttu og berserks-
gangi, og þær hinar fornu
reglur myndu hrökkva oss
langt í öllu voru orðaskaki, ef
vér héldum þær í heiðri. Á
bakvið var einhver óljós til-
finning um það, að takmörk
eru fyrir því, hve langt má
ganga án þess að þjóðfélag-
inu sé stefnt í hættu. Og þó
ekki einungis þjóðfélaginu,
heldur og einstaklingum og
heimilum, sem eru undirstaða
frjáls þjóðfélags. í þessu efni
höfum vér íslendingar langa
og merka erfðasögu bæði að
varðveita og koma til meiri
þroska.
Það er margt sem vér þurf
um að varðveita, máske ekki
sízt vegna þess, hve miklar
breytingar eru á orðnar.
Margt er nú breytt við sjáv
arsíðuna, og einnig í sveitum.
Ég gat þess að ég sá Herðu
fjallkonu vantar sitt skáld.
Hún er á við fossana og öll
firnindi, sem skáldin hafa
kveðið um. Þegar ég var í
Möðrudal, kaupamaður, við
gott atlæti og tólf krónur um
vikuna, auk víðáttunnar,
stóðsins og fjallasýnarinnar
á hverjum björtum degi, þá
var þar ein útlend rakstrar
vél, sem við beittum hesti
fyrir, hið mesta þing. Ekki
man ég að ég hafi séð aðra
landbúnaðarvél, nema tað-
kvarnir, fyrr eða um langt
skeið síðan. Þá var vegalaust
og bændur töluðu um vega-
bætur, svo hægt væri að flytja
kol svo ekki þyrfti lengur að
brenna taðinu, heldur væri
hægt að nota það til áburðar
og nýræktar. Nú eru vegirnir
komnir og margs konar nýjar
vélar. Öll sú nýrækt, og allar
þær nýju vélar til margra
hluta, húsagerð og aðrar fram
kvæmdir eru bylting. Friðsam
leg sístarfandi bylting og land
nám. Ég hefi þar til saman
burðar fjörutíu og fimm ár.
Austfirðir til dæmis fengu
seint góðar samgöngur, og
víða vantar rafmagn, en þetta
er hvort tveggja höfuðstoðir
framtíðarinnar. Sveitir ís-
lands eiga mikla framtíð.
Moldin er góð og mennirnir.
En sárt svíður það hvað bónd
inn og konan eru viðbundin,
og geta ekki tekið sér frístund
frá mjöltum og gegningum.
Það er haftið á okkar sveita
fólki, hvað sem við má gera.
Ekki get ég séð, að veruleg
barátta sé milli sjávar og
sveita, nema um fólkshald.
Bæir eru markaður fyrir af-
urðir sveitanna og framleið-
endur iðnaðarvarnings og út-
flytjendur sjávarafurða, báð
um að gangi. En þó að land-
búnaðurinn, sjávarútvegur-
inn og iðnaðurinn sé allt eðli
leg verkaskipting frá gamla
tímanum, sem hét og var sveit
meðan engir kaupstaðir voru
til, þá er aö minnsta kosti
eina skuld að gjalda fyrir
alþjóð til allra sem nú búa
í sveitum. Þá skuld þekki ég
vel, það eru fósturlaunin.
Síðan um aldamót hefir öll
fólksfjölgunin lent í kaup-
túnum og kaupstöðum, og þó
heldur fækkað i sveitum.
Framleiðslan þar hefir þó
aukist stórlega, og margir
eru þeir enn, sem í sveitun-
um siíta sínum barnaskóm.
Og fleiri þó, sem eiga sveit-
unum að þakka gott uppeldi.
Ég fór í haust til að sækja
tvo drengi af fjalli — ég má
kalla það svo, þvi as kindur
eru reknar á fjall og kaup-
staðastrákar sendir í sveit.
Annar pilturinn sagði við
mig: „Hvaða vit er í þessu,
að ég eigi að fara í skóla i
Reykjavík, en gæti gert gagn
hér í sveitinni? Ég hafði ekki
búist við þessu, en þótti vænt
um. Og það rfjaði upp fyrir
mér eitt vort vandamál.
Vor þjóð er á millistigi.
Gömul þjóð með nýjum
kauptúnum og stórbæjum.
Ungt og fullorðið fólk flyt-
ur í bæi. En börnin, sem kom
ast aftur 1 sveit, fá þar sinn
bezta leik — og starfsvöll.
Þar er heimilið heild, ekki
bara til að borða og sofa,
heldur um allt daglegt starf.
Sú hin mikla verkaskipting
nútímans er góð fyrir full-
orðna og afkomu fjöldans.
En hún er ekki eins góð fyrir
uppeldið. Bæjarlifið getur
verið gott, og þarf að vera
það, nú þegar vex upp kyn-
slóð, sem hvorki þekkir sveit
eða sjó nema eltthvað sé að
gert. Sú kynslóð er ný í okk-
ar þjóðlífi, og mikilsvert að
hún geti fest rætur með ein
hverju móti í gamla tíman-
um.
(>!’ramhald á 5. síðu.)
Tilkynning
frá Sogsvirkjuninni
Tilboða er hér með leitað í hverfla, rafala og raf-
búnað í aflstöðina við Efra-Sog.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Sogsvirkjunarinn-
ar, Tjarnargötu 12. Réttur áskilinn til að taka hvaða
tilboði sem er eða hafna þeim öllum.
Tilboðsfrestur til 1. marz 1955.
STEINGRÍMUR JÓNSSON.
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS
Miðaldra hjón eða eldri
vön sveitastörfum, hreinleg og skapgóð, sem hætt eru
að standa í stríðum straumi lífsbaráttunnar, en vildu
í sveit starfa við góða aðbúð gegn sanngjörnum laun-
um, óskast n. k. vor til að annast snoturt bú á barn-
lausu heimili í samstarfi við eigandann. Jörðin er í
einni fjársveit Suðurlands. Hús öll nýbyggð með þæg-
indum, hlý og vönduö. Mjaltir litlar, 2—4 kýr. Þau
hjón, er sinna vildu framansögöu, eru beðin úm að til-
greina aldur, heimilisfang, væntanlega kaupkröfu og
aðrar upplýsingar er að gagni mættu verða og leggja
þær inn í lokað umslag er sendist til afgreiðslu Tim-
ans sem fyrst eða í síðasta lagi fyrir febrúarlok n. k.
merkt; GOTT FÓLK.
breið aftur í sumar. Þá miklu $js«irssssssss$ssssss$sssssssss$ssssssss$ss$ssss$ssss$s$sss$ssss$sss$sss