Tíminn - 15.01.1955, Blaðsíða 4

Tíminn - 15.01.1955, Blaðsíða 4
TIMINN, laugardaginn 15. janúar 1955. Séra Sigarbur Einarsson í Holti: Tvær bækur eftir Hagalín 11. blað. Guðm. G. Hagalín: Konan í dalnum og dæt urnar sjö. Blendnir menn og kjarnakonur. Norðri, Rvík 1954. Sumum mönnum er það gef :tð að geta farið hamförum og sópast svo fast um í starfi, að öðrum, er á horfa, fallast ná- tega hendur, þykir sér naum ast vært eða stætt á þeim vettvangi. Ég hef þekkt slíka vinnuberserki nokkra og verð að segja það eins og er, að :fremur kaus ég að jafnaði lag /iö þá, er ekki létu sér svo ótt. Þótti það betur henta vesalingi mínum. Var það og ekki fátítt, að meðalmenn hefðu það á orði, að afkasta jötnarnir væru stundum ekki svo vel verki farnir, sem þeim vannst mikið, og má vera að öfund hafi stundum ráðið. Er talið, að íslendingar séu ekki með öllu lausir við þann kvilla og gætí hans jafnvel meðal fyrirmanna á Hofmannafleti iistarlnnar, skálda, myndgerð armeistara og leikara. Ekki sel ég það dýrara'en ég keypti, og skal ekki framar meir um það rætt að sinni. En því komu mér þessir jþankar í hug, er ég las þær tvær bækur Guðmundar G. Hagalíns, er að ofan getur, að Guðmundur er nú aðsóps- mestur í starfi íslenzkra rit- höfunda. Þrjár bækur munu hafa komið út frá hendi hans árið sem leið og aðrar þrjár árið þar áður, en þar ofar mun :mega finna bláþráðu með svo sem einni bók á ári, eða ann að hvort ár, — en harla fáa. Þetíá 'þykir mér, sem var í þrjú ár að basla við að koma saman leikritinu „Fyrir kóngs ins mekt“, með slíkum ólíkind um, að ég fæ ekki orða bund izt. Og það er bezt að segja bað alveg eins og er, að inn- ■rætið mitt er ekki betra en svo, að mér hefði verið það 'íiltölulega sársaukalaust, ef ég hefði með góðri samvizku getað sagt: Þetta er ekki bók menntir. Þetta er rubb og þvaður og flýtisverk og fjós mokstur. En það er ekki því að heilsa. Guðmundur G. Hagalín skrifar ágætlega, þrátt fyrir hamfarirnar og 'iberserksganginn. — Hefir kannske aldrei á ævi sinni skrifað jafn vel, né verið eins skemmtilegur. Og það er ekki svo lítið sagt. Guðm. G. Hagalín kvilla og cnæmur fyrir þeim. Til þess er hann of menntaður rithöfundur — en fyrst og fremst of mennskur maður. Hann brá á gamalt sjómanna ráð í öldudalnum, eins og margar af söguhetjum hans hafa gert, dró segl aö hún og hakaði báruna. Nú er öldudal urinn langt að baki og sigling Guðmundar vaskleg og djarf mannleg. Og Guðmundi Haga lín ekkert að vanbúnaði að sigla þannig sjó sinn fram í bleika elli, sífrjór og skemmti legur við vaxandi vinsældir frá ári til árs. Konan í dalnum og dæturn- ar sjö er ævisaga og endur- minningar bóndakonu norður I Skagafirði, Moníku Helga- dóttur á Merkigili. Söguefni er ekki stórfellt né viðburða ríkt umfram það, sem gerist í lífi margra manna og kvenna í alþýðustétt, og hætt við að lítið hefði orðið úr þvi í höndum manns, sem minni var íþróttamaður i frásögn en Hagalín og ekkert, ef skrásetj arann hefði skort mannskiln ing og lífsvizku til þess aö skynja þau verðmæti, sem þarna var barizt fyrir og per sónulegt gildi þess, hvernig baráttan var háð. En hér var Hagalín réttur maður á rétt um stað. Því saga Merkigils húsfreyjunnar er hetjusaga í smáu broti, sem dýpkar öll og stækkar því vandlegar, sem hún er lesin, af því að Haga lín er nægiiega skyggn og kunnáttusamur til þess að mega teljast. Þá ætla ég, að það sé skrumlaust mál, að hlutur Guðmundar verði drýgstur. Sögur þessar eru að sönnu nokkuð misjafnar að kostum, allar góðar en sumar afbragsgóðar, hnitmiðaöar í uppbyggingu og smíð, og jafn an þannig sagðar, að þær vekja áhuga og forvitni les- andans. Og margar bráð- skemmtilegar, en aðrar stór- brotnar og átakanlegar. Guð- mundur kemur víða við í sögu efnum og er ómyrkur við að láta skoðanir sínar í ljósi. En það er gert af þeirri kunnáttu semi, að höfundurinn prédik ar aldrei en dylzt á bak við taflstöðu persónanna og at- vikanna í frásögninni, og læt ur þau tala sínu ótvíræða máli. Guðmundi er það og mjög lagið að móta persónur ljóslifandi í fáum dráttum og segja langa forsögu í litlu at viki, og er engum brýnni nauð syn slíkrar íþróttar en smá- sagnahöfundi. Ekki þori ég að synja fyrir það, að lesendur kunni að láta sér detta í hug að finna megi fyrirmyndir Hagalíns víðs vegar um land- ið, en ærið hönduglega er með þann efnivið farið, og atvik og persónur haglega dulbúið, en Hagalín er svo skyggn og fljótur aö átta sig, að hann mun varla fara svo víða um bæi landsins, eða byggðir, að hann finni þar ekki frásagnar efni. Ég tel óþarfa að fara að benda á sögur, sem sérstak- lega beri af i þessu safni, því að sá, sem hefir bókina á ann að borð í höndum mun ekki láta sig muna um að lesa hana alla. En sérkennilega minnisstæðar hafa þær orðið mér, svo ólíkar sem þær þó eru: Draumur og vaka, Hús- freyjan í Sæluvík, í lífsins lander og Konan að austan. Öðrum kann að finnast meira til um. aðrar. En maöur, sem þannig ritar, þarf engan að biðja afsökunar á, þó að hann láti ekki handrit sín fúna í skúffunni. Norðri hefir gefið bækurnar út og gert þær vel úr garöi, sem veröugt var. Eg skal enga dul á það honum liggur í augum uppi Iraga, að á nokkrum árum ílhið almenna gildi þeirra ör- Sunnlenzkur jeppaeigantli sendir | Hvers vegna 1 að gera ekki öllum jafnt undir höfði, sem hér eiga hlut að máli, heldur en að vera að flokka þetta þannig, áð óhjákvæmilega hljótist óánægja af, eins og lika er komið á daginn. Vill nú ekki einhver gefa mér skýringu á þessu, sem getur rétt- lætt þetta fyrirkomulag?" Austfirðingur ræðir hér um land- helgisgæzluna s. 1. sumar: „Strandgæzluskipin hafa ekki ver ið við gæzlu s. 1. sumar. Þau hafa verið við allt annan starfa. Eitt við sjómælingar að nafninu til, annað við fiskirannsóknir, þriðja til að draga báta og pramma 4 milli hafna fyrir noroan, fjórða í snátt- ferðum og biliríi í Reykjavík og fimmta og síðasta uppi á þurru landi í allt sumar (bátanaust) til að þurrka það eftir sögu fróðra manna. Hvar er þá gæzlan í sumar. Það hefði verið eitthvað sagt, ef það hefði verið svona í tíð Pálma heitins Loftssonar. Það var á sinni tíð talað um það, að Pálmi hefði svo mikið að gera, að þetta starf hans við varðskipin væri aukastarf, en það held ég að það sé aukastarf hjá þessum for- stjóra. Hann er svo störfum eða bitlingum hlaðinn, að þau eru víst allt að 10 aukastörfin, sem hann hef ir. Það væri því áreiðanlega bezt og ódýrast að láta varðskipin undir Ríkisskip aftur. Það fór vel þá, og mundi fara vel enn. Þá kannske hættu Englendingar að hæla sér af því, hvað þeir gætu verið fljótir að fiska við landið. Menn, sem ferð ast mikið með ströndum fram, sjá nú oft skip í landhelgi en aldrei eða sjaldan varðskip, nema í höfn. Hér fyrir austan hafa þau oft ekki sézt tímunum saman“. eftirfarandi pistil: „Sæll vertu, Starkaður! Mig lang ar að koma á framfæri hjá þér eft irfarandi: Það er um það, hvernig mér finnst fyrirkomulagið á niður- greiðslu jeppa þeirra, sem fluttir voru inn til landsins frá ísrael. Þess ir jeppar voru allmiklu dýrari en jeppar innfluttir beint frá Ameriku eða um 10 þúsund krónum dýrari og lá sá mismunur aðallega í óeðli lega miklum flutningskostnaði, þar sem jeppinn var fyrst fluttur frá Ameríku til ísrael, settur þar saman og svo þaðan með viðkomu um ýms ar hafnir hingað til lands. Þeir, sem fengu þessa jeppa úthlutaða, töldu sig misrétti beitta samanborið við þá sem jeppa fengu beint frá Ameríku miklu ódýrari. En nú kom að því að verðjafna jeppana, þann ig að þeir fengju niðurgreitt verð sinna jeppa, er voru frá ísrael, sem mér finnst að mætti teljast sanngjarnt. En hvernig er svo þessari niður- greiðslu háttað? Hún er þannig, að aðeins 20 jeppar eru niðurgreiddir af þessum ísraelsjeppum. Þessir 20 jeppar eru sagðir fá þessa endur- greiðslu vegna þess að þeir komu í sömu sendingu í vor, aðra skýr- ingu var ekki að hafa á skrifstofu Egils Vilhjálmssonar, er ég spurðist fyrir um þetta. Mér finnst það eng- in skýring, þar sem næstum allir þessir jeppar eru fluttir inn seinni part ársins 1953 og fyrri part árs 1954, og koma í mörgum og mis- stórum sendingum, svo að ég sé ekki neinn mismun á þvf, hvort jeppinn kemur vikunni fyrr eða seinna, þannig að sérstaklega þurfi að bæta upp vissa sendingu, þar sem hún er líka á sama verði og með sömu gæðum og göllum og allar hinar sendingarnar. Nú er mér spurn: Er þetta á nokk urn hátt-réttlátt? Ég sé það ekki. a Fjarðarheiði íring um 1945 var ég farinn ið verða talsvert uggandi im Guðmund Hagalín sem rithöfund. Á þeim árum ritar nann og gefur út „Móðir ís- :.'and“ og „Konungurinn á Kálfskinni", og liggur þá greinilega í öldudal. Hann er jpá einnig á hinum hættulega aldri, rétt innan við fimmtugt, pegar mörgum rithöfundi hef .r farið svo, að hann er búinn ið skrifa sig til þurrðar. Loks ív þess að minnast, að á þeim irum' apaðist margur listiðk- indi svo, að hann hefir ekki baðan af átt sér viðréttu von. 3irtu.st þeir annmarkar eink- m i ofstæki, andleysi, áróð- ■ .rssýki og hroka, og hafa lítt nljað batna mörgum síðan, ■ -n smittað margt ístöðulítið .ngmenni, svo að úr hefir orð : ð kröniskt perversitet — eða jpað, sem nefna mætti á vora mgu viðloðandi ónáttúra. Guðmundur G. Hagalín er í 'dungis laus við alla þessa laga, sem þarna er lýst og veig urinn í persónunni sjálfri. Það er mikill fengur að fá þessa bók -— og mættu að ósekju verða fleiri kvenlýsing ar af þessu tagi í nátímabók menntum vorum. Af nógu efni er að taka. Ennþá hefir eng inn sunnlenzkur snillingur haft rænu á að skrá sögu Krist ínar í Öndveröarnesi, og vís ast að það verði ekki gert, nema Hagalín taki sig til. Blendnir menn og kjarna- konur eru fimmtán smásögur og þættir og má segja, að, Hagalín fari þar á jöfnum kostum, enda enginn viðvan- ingur í þeirri grein skáldskap ar. Hitt mun sönnu nær, að Guðmundur Hagalín eigi fáa sína jafnoka.í smásagnagerð meðal íslenzkra rithöfunda • og engan, sem taki honum fram, og sízt, ef á þaö er litið, hve mikið liggur orðið eftir hann á þessu sviði þeirra sagna, sem gildar bókmenntir Austfirðingur sínu. hefir lokiö máli StarkaSur. Frá fréttaritara Tímans á Seyðisfirði. Undanfarna daga hefir ver ið frost og töluverð snjókoma stundum á Seyðisfirði, en þó einkum á Fjarðarheiði, svo að umferð yfir fjallið er nú með öllu teppt. Hefir snjór- inn hlaðizt upp í skafla á fjallinu. En samfara snjókom unni hefir oft verið hvass- viðri. Snjóbíll á Héraði hefir beð ið færis að komast til Seyð- isfjarðar þessa viku. En veð- ur hefir oft verið svo illt, eða ótryggt, að ekki hefir veriö lágt upp í ferðina yfir heið- ina. Leiðin er líka sums stað ar hættuleg og tæp, ekki sízt ef snjóskaflar standa utan í vegköntum á fjallsbrúnum þar sem hengiflug er fyrir neðan. Snjóbílum einum er fært yfir heiðina vegna snjó þyngsla. Til er snjóbill a Seyðisfirði, sem reyrizt hefir (Pramhald a 6. síSu) Þvotta- og efnalaugin HREINSIR opnai* í dag á Djarðarhaga 10 Tekið á móti fatnaði í kemiska hreinsun og pressun, einnig frágangsþvotti og blautþvotti. Fljót afgreiðsla Vöaduð vlima Rcyi|ið viðskiptin Þvotta- og efnalaugin HREINSIR ff jíi rifurhmíii 10 Sími 8 13 50 HJARTANLEGA ÞAKKA ég öllum þeim, sem veittu mér margskonar aðstoð og sýndu mér kærleiksríka samúð við fráfall og jarðarför föður míns GUÐMUNDAR FÁLSSONAR Ásdís Gwðmimdsdóttlí* frá Selskerjum -J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.