Alþýðublaðið - 09.08.1927, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 09.08.1927, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐÍÐ IALÞÝÐUBLAÐI® j kemur 'út á hverjum virkum degi. ► Afgreiðsla í Alpýðuhúsinu við [ Hverfisgötu 8 opin írú kl, 9 árd. í til kl, 7 siðd. j Skrifstofa á sama stað opin kl. ► 9VS —lO'/a árd. og kl. 8-9 síðd. ! Simar: 988 (aígreiðslan) og 1294 ! ; (skrifstofan). í j Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,50 á £ 1 mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 í j hver mm. eindállia. ^ Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan ! ; (i sama húsi, sömu símar). Sala hafnarlóðanna. Svo langt cr þá komið óstjórn auÖvaldsfulltrúanna í bæjarstjóm Reykjavíkur, að nú eru þeir tekn- ir að Iosa bæinn við hafnarlóð- irnar, sem auðvitað verða afar- dýrmæt framtiðareign og geta orðið borg.inni að ómetanlegu gagni. Sölufluga þessi kom upp á hafnarnefndarfundi 2. raai í vta. Þar var fulltrúi alþýðunnar, Har- aldur Guðmundsson, einn á móti henni, en hinir hafnarnefndar- mennirnir með. Sama varð uppi á teningnum, þegar málið kom fyrir bæjarstjórnarfund í vor. Knútur og aðrir einstaklings- hyggjumenn sambyktu tillöguna, en peim þótti ráðlegast að tala Sem minst um slíka ráðstöfun op- inbcrlega, og sannaðist þar enn á þeim Knúti og aðferð þeirra það, sem sagt var um Bonifatius * páfa VIII.: ,,Hann kom inn eins og refur.“ Reykjavík fær síðar að súpa seyðið af þessari fá- sinnu. Alþýðuflokksfulltrúamir iögðust gegn þessari endemistil- lögu, eins og sjálfsagt var; en í atkvæðagreiðslu má enginn við margnum. Meiri hlutinn í bæj- arstjóminni, auðvaldsh-lutinn, var sameinaður um þessa þokkalegu ráðsmensku. Sölusamþyktin náði til hafnarlóðanna sunnan við Tryggvagötu, en vestan Eimskipa- fé’agshússins. Og nú hafa lóðim- ar verið auglýstar : til sölu. Þegar söíumálið var á döfinni í vor, létu margir aíhugulir menn, sem hugsa lengra fram í tímann Víkur í þessu máli -saman við að- gerðir jafnaðarmanna-bæjarstjórn- arinnar á isafirði. Þar er stöð- ugt verið að auka verðmætar eignir bæjarfélagsins og sérstök áherzla lögð á, að ná dýrmætustu kaupstaðarlóðunum í eigu kaup- staðarins, samfélagsheildarinnar, • og það hefir tekist mjög mynd- arlega á þessum fáu árum, sem Alþýðuflokkurinn hefir haft völd- in þar. Hér í Reykjavík neyta auðvalds- og samfélagssneyðing- ar-fu!ltrúarnir meirihlutavalds síns í bæjarstjórninni til þess að ko-ma dýrmætum lóðfum á einum af beztu framtíðarsvæðum borgar- innar úr eigu hennar, en í eigu sárfárra einstaklinga. Hér má líta stefnumuninn. Al- þýðuflokkurinn hiugsar fram i tím- ann. Hann veit, að skylt er og sjálfsagt að búa í haginn fyrir koinandi kynslóðir. Hann veit, að hverju bæjarfélagi og hverri borg er ómetanlegt gagn að ’því að hafa eignarráð á lóðum sínum og löndum. Samkeppnisfulltrúarnir eru ekki að skyggnast fram í tim- ann til þess að sjá, hvert stefnir. Þeir láta leiðast af hvellandi bjöllu samkeppninnar. Ef til vill eiga sumir þeirra eftir að sjá, hvílíkri óhæfilegri skammsýni þeir hafa gert sig seka í og hve fram- tíðaríbúar Reykjavikur eiga þeim grátt að gjalda. — Ef Alþýðuflokksmennim- ir hefðu verið í meiri hluta í bæjarstjórn Reykjavíkur árið 1927, eins og þeir voru þá pegar orðnir í sumum öðrum kaupstöðum landsins, þá þyrftum við ekki að lúta að því að kaupa eignirnar, sem þá voru í eigu samfélagsins, aftur við miklu hærra verði handa borginni okkar, eða láta örfáa menn halda áfram að ráða yfir þeim, fá ágóðann, sem borgarféiagið átti ab fá og geta sett samfélaginu stólinn fyrir dyrnar, þegar hagsmunir þess og þessara fáu einstaklinga rekast á, sem, oft kemur fyrir. Líklega .verða ekki margir tugir ára þangað til reynslan hefir kent mestum hluta Reykvíkinga þessa hugsun og lagt þvflfk orð á tungu en til næstu vikna eða mánaða, undrun sina í Ijós yfir þessu háttalagi. Meðal annara lét Guð- mundur Björnsson landlæknir svo um mælt, að hann teldi þetta ráðlag hina mestu fásinnu um hag bæjarfélagsins. En Jóni Ólafssyni var svo mikið í mun, að hafnar- lóðasalan væri samþykt, að hann hélzt ekki við í þingsalnum, — enda gafst honum þann daginn ekkert tækifæri til að svívirða sjó- mannastéttina úr þinghelginni —, heldur hraðaði sér á bæjarstjórn- arfund til þess að stappa stálinu i hina íhaldsmennina, að þeir létu ekki hjá líða að koma þessum dýrmætu eignum samfélagsins í eigu einstakra manna-. Það er vert að bera athafnir auðvalds- og einstaklingshyggju- fulltrúanna i bæjarstjórn Reykja- þeirra. En þá verður líka hætt að auglýsa nauðsynlegustu fram- tiðareignir Reykjavíkur til sölu úr eigu borgarfélagsins. Enn á ný vdll Alþýðublaðið taka fram, að þegar það birtir aðsendar grein- ar, sem eru ritaðar með fullu höfundarnafni, þó gerir það ekki alt af athugasemdir við þær, þó að það sé ekki á sömu skoðun og höfundurinn. Et og lesendun- um kunnugt, að sum mál hafa verið rædd í blaðinu frá ýmsum h'iðum, og á það að geta orðið til að skýra þau þaim mun bet- ur. Álit einstakra manna, sem þeir skrifa nöfn sín undir, á mönnum og málefnum, er auðvit- að ritað á þeirra ábyrgð. Síldveiðar Norðmanna (einkun siðustu árin) Eftir Ólaf Friðriksson. (Það skifþr nokkru að vita, hvern- ig atvinnugreinar pær eru reknar er- lendis, er við íslendingar stundum, og á pað þó einkun við um fiskveið- arnar. En af því að ég hefi hvergi á einum stað séð það, er gat gefíð glögga hugmynd um sildveiðar Norðmanna, hefi ég samið grein þá, er hér fer á eftir. Hefir verið meiri fyrirhöfn að d-aga saman efni í þessa grein en i margar aðrar greinar jafhlegar). Norðmenn eru mesta fiskveiða- þjóð heimsins. Þeir eru þó ekki mesta síldveiðaþjóðin, því Bretar eru þar langtum meiri, því hvor- ir um sig, Skotar og Englending- ar, veiða eins mikið af síld og þeir, enda nemur verðmæti síld- arinnar, er Norðmenn veiða, ekki ne-ma þriðjungi móts við þorska- veiðar þeirra. Norðmenn stunda síldveiðar í námunda við land í lagnet, með fyrirdrætti og „nótabrúki", en lengra frá landi með reknetum og herpinótum. ,,Nótabrúk" hófst i Noregi um 1830, en rekneta- veiðar lærðu Norðmenn af Skot- um og Hollendingum. Herpinót- in eða pokanótin (the purse- seine) er uppfundin af Ameríku- mönnum. Fyrir fimmtíu árum sáu tveir fiskiTáðunautar, er sendir voru frá Noregi til Ameríku, hana notaða þar við makrílveiðar, og komu þeir því til leiðar, að herpi- nót var höfð til sýnis í Hauga- sundi 1887. Veiðimönnum leizt þó ekki á hana, og leið um það bil mannsaldur áður en hún var orð- in alment notuð í Noregi. Voru Svíar fljótari að gera hana að al- géngu veiðarfæri, og var þó þekkingin á henni komin til Svi- þjóðar frá Noregi. Norðmenn skifta síldinni í fjóra aðalflokka, sem eru þetta: 1. Smásíld, sem er alt að 19 c,m. löng (7 þuml.). Hún er með- fram allri Noregsströndu, en því meiri, sem norðar dregur. 2. Feitsíld, er þeir svo nefna, er millisíld, sem er að1 leita sér fæðu upp við land. Hún er 2V2 til 31/2 árs, og er stærðin 19 til 26 cm. (7 til 10 þuml.); kynfærin (hrogn og svil) eru enn þá ó- þroskuð-, en eru að byrja að vaxa hjá þeim stærstu. Hún er feitari en öll önnur síld, og fitulag um innyflin. Hún fæst meðfram mest- um hluta Noregsstrandar, en sízt nyrst og syðst, og langmest er hún á svæðinu frá Þrándheims- firði norður að Þrymsey. En hún heldur suður á bóginn um það bil áð hún nær kynþroska. 3. Stórsíldin er aðallega af stærðinni 27 til 32 cm. (IOV2 til 121/2 þuml.). Minstu síldar þessa flokks eru að verða kynþroska (þ. e. síld, sem árið. áður tald- ist til feitsíldar). En meiri hlut- inn af henni er síld, sem gotið hefir áður og hrogn og svil eru’ nú að þroskast á ný, og megrast hún eftir því, sem líður á tímann og sá þroski eykst. Stórsíldin veiðist úti fyrir miðjum sunnan- verðum Noregi (úti fyrir Raum- dælafylki og Syðri-Þrænda'ögum eða frá Stað norður undir Þránd- heimsfjörð). 4. Vorsíldin er síld með þrosk- uðum kynfærum; gýtur hún seinni hluta vetrar meðfram strandlengjur.ni frá Lista til Sunn- mæris. Hefir hún venjulega lok- ið goti í aprílbyrjun pg er þá orðin mjög mögur. Hún veiðist við syðsta hiu'.ann af vesturströnd Noregs, austur fyrir Líðandisnes og norður fyrir Stað, en þunga- miðja veiíanna er um það bil hjá Haugasundi. Síld þessi er aðal- lega 4 til 8 ára gömul. Dálítið af henni er þó að eins 3ja ára, en sumt hins vegar alt upp í 16 ára gamalt. Það er þó tiltölu- lega lítið, sem er eldra en 9—10 ára, því að eftir að síldin nær þeim aldri, virðist hún týna mjög töTunni. Hún er talin vera að meðaltali 32,4 cm. (I2V2 þuml.) þegar hún er 10 ára, en geta orðið um 40 cm. löng (liðl. 15 þuml.). Til sam- anburðar má geta, að íslenzka stórsíldin eða hafsíldin, sem er stærstallra eiginlegra sílda (Cul- pea herengus), er talin vera að meðaltali 34—36 cm. á lengd og 350—450 gr. á þyngd, en verða stærst 42 cm. (en þó sjaldan yfir 40 cm.). Þessi norska vorsíld, sem geng- ur upp að landinu til áð hrygna, gýtur alt frá eins faðms til sex- tíu faðma dýpis. Hrogn flestra nytjafiská fljóta, en svo er eklti um síldarhrognin; þau sökkva. Síldin gýtur því ekki þar, sem er leðjubotn eða lejrbotn, heldur ein- göngu þar, sem eru klappir, grjót, grófur sandur eða sjávargróður í botni. Hrognin erú límkend að utan og loða við þar, sem þau síga til botns, qg þá hvert við annað þar, sem mikið af síld gýt- ur. Getur þar orðið þumlungs- - þykt lag á botni, þó að hver síldarmóðir eigi að eins 25 til 50 þús. hrogn. (Þorskurinn á frá 2—3 millj. upp í 10—15 millj. eftir stærð.) Síldarhrognin klekjast út á 1 til 3 vikum, en sílin fá ekki full- komið síldar-lag og -lit, fyrr en þau eru 4 til 5 cm. löng (fram undir 2 þuml.). Ársgömul eru þau um 10 cm. og á þriðja ári eru nokkur þeirra komin í hóp feit- síldarinnar, en þau vaxa misjafn- lega hratt eftir því, hvert straum- urinn ber þau meðan þau eru ó~ sjálfbjarga og þau síðan hafa haldið sig. Síldarflokkar þeir, sem 'hér að framan eru taldir upp, eru alt sama kynið, er auk þess mun víða vera í norsku fjörðunum smástóð af sérstökum staðbundn- um síldarkynjum, sem vaxa ekki eins hratt. En auk þeirra fjögurra síldar- flokka, sem taldir hafa verið,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.