Tíminn - 06.02.1955, Qupperneq 2
E
TÍMINN, snnnudaginn 6. febrúar 1955.
30. blað.
Langt umsátur um Cherry Hill, er
fjórum föngum mistekst að strjúka
Kikisfangelsið í Massachusetts er steinbygging í Charles- |
tonhverfi Bostonar. Þctta er elzta og illræmdasta fangelsið
ji Bandaríkjunum. Það var byggt árið 1805 og hefir haft það
orð ú sér síðastliðin áttatíu ár að vera óhæft til íveru. Síðast'
'iðin tvö ár hafa sextán uppþot orðið í fangelsinu, þar með
'taldar flóttatilraunir. Nú nýlega var seytjánda flóttatilraun-
:in.gerð, en hún fór út um þúfur eftir að hafa vakið mikla
athygli.
Fjórir vopnaðir fangar héldu
::imm fangavörðum og sex með-
::öngum sem gislum, en umsátrið
;;tóð yfir í áttatíu og tvær klukku-
stundir. Er það nasst lengsti tími,
sem fangelsið hefir verið umsetið,
<=n hundrað klukkustundir mun vera
metið. Uppþotið varð í svonefndri
Cherry Hill, en þar eru þeir fangar
geymdir sem einna órólegastir eru
taldir.’
íSöguðu járnrimlana.
Síðla dags þann 18. fyrra mánaðar
hófu hinir fjórir fangar að saga i
sundur þumlungsþykkar járnsteng-
«r sem voru fyrir klefum þeirra.
Notaðar voru sérstakar sagir sem
smyglað hafði verið til þeirra. Svo
að ekki heyrðist eins mikið sagar-
aljóð báru þeir feiti á sagirnar en
.henni höfðu þeir áður stolið í eld-
húsi fangelsins. Þegar rimlarnir
héngu aðeins saman á litlum parti,
hættu mennirnir að saga og földu
blöðin og biðu átekta. Um miðnætti
örutust þeir út og tóku tvo verði
til fanga. Klukkan eitt neyddu þeir
verðina til að gefa hið vanalega
merki um að allt væri í lagi. Jafn-
TEDDY GREEN
mér þykir það leitt
«- 1 ........ — -----------——;
Útvarpíð
'Ötvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
.11,00 Messa í Dómkirkjunni.
.'.3,15 Erindi: Heilsugæzla í skólum
(Jóhannes Björnsson læknir).
.7,30 Barnatími.
120,20 Leikrit: „Lögmaðurinn" eftir
Elmer Rice, í þýðingu Einars
Braga Sigurðssonar. — Leik-
stjóri: Rúrik Haraldsson.
.'22,00 Fréttir og veðurfregnir.
:22,05 Danslög (plötur).
:23,30 Dagskrárlok.
'Ötvarpið á morgun:
framt gcröu fangarnir .sér stiga úr
viðarbútum, beltum, spottum og
hálsbindisslitrum. Stiginn var of
stuttur og auk þess svo laus í sér,
að hann þoldi ekki þunga mann-
anna. Klukkan fjögur um nóttina
höfðu fangarnir tekið fasta þrjá
aðra íanga. Um klukkutíma síðar
kváðu aðvörunarhringingar við um
allt fangelsið og mönnum var þá
ljóst, lrvernig komið var. Fangarnir
höfðu alla þessa deild fangelsisins
á valdi sínu.
Kröfðust bifreiðar.
Morguninn eftir leyfðu óeirðar-
seggirnir tólf félögum sínum að fara
yfir í aðalfangelsið, en sex föng-
um héldu þeir eftir sem gislum.
Þessa gisla neyddu þeir til að fara
að grafa göng í gegnum steingólfið
í Cherry HiU. En göngin, sem þeir
ætluðu að nota til flóttans, fylltust
íljótt af vatni og varð því ekki að
frekari greftri. Fjórmenningarnir
kröfðust þess af fylkisstjóranum, að
liann sæi þeim fyrir bifreið. Einn
hinna fjögurra heitir Teddy Green,
bankaræningi og kunnur maður af
ýmsum lögbrotum, hafði orð fyrir
þeim félögum. Mikið lið hafði safn-
azt í krinsum fangelsið og Green
kallaði yfir múrinn: „Eitt skot, ein
gassprengja, og fangaverðirnir
munu allir deyja“. Saksóknari fylk-
isins svaraði um hæl og sagði, að
ef svo mikið sem einn fangavarð-
anna væri drepinn, mundu þeir
allir fjórir verða teknir af lífi í raf-
magnsstólnum.
Blaðamenn í koptum.
Þegar fréttir af þessu uppþoti
fóru aS berast út, dreif að fjölda
fólks, sem kom eingöngu tii að for-
vitnast. Ennfremur létu blaðamenn
ekki á sér standa, en þar sem þeir
komust ekki nógu nærri með venju-
legum hætti, leigðu þeir sér kopta
og voru því koptar á stöðugu sveimi
yfir Cherry Hill. Sumir blaðaljós-
myndarar leigðu sér stóran krana
og hengu í krananum fyrir innan
fangelsisvegginn meðan þeir tóku
myndir af því, sem fram fór hjá
fjórmenningunum. Herdeild var
kvödd á vettvang og einn skriðdreki
var hafður til taks. Presti var veitt
ur aðgangur að Cherry Hill og einn-
ig lækni fange'sisins, en einn varð-
anna hafði veikzt.
Dóttir Greens talar við föður sinn.
Á öði’um degi umsátursins talaði
dóttir Greens við föður sinn í síma.
Hún heitir Toby og er sextán ára.
Eftir venjulegar kveðjur spurði
Toby, hvað hann væri að gera. —
Green svaraði, að hann vildi að-
eins komast út. Hún: Það er
heimskulegt, pabbi. Hverr.ig held-
urðu, að þú komist út svona? Hann:
Toby, þú þekkir hann pabba þinn.
TOBY GREEN
kallaði yfir múrinn
Hún: Ég þþkki þig. Hann Ég skal
út... .hunangið mitt, mér þykir
þetta mjög leitt. Bíddu aðeins kæra,
Þeir hinir eru að undrast hvern ég
kalla „kæru“ og „hunang". Einn
spyr, hvort ég sé að tala við fanga-
vörð. Hún: Hvað eruð þið að gera
við verðina? Hann: Spila svolítið
bridds við þá eða eitthvað svoleiðis,
Hún: Hvað með manninn, sem er
veikur. Hann: Hvern? Ó, hann ligg
ur fyrir — og selur upp....Hún:
Hvað ætlið þið að gera við þá?
Hann: Ég vil helzt ekki tala um
það. Hún: Ef eitthvað kemur fyrir,
þá sver ég að þú ert ekki faðir minn
lengur. Hann: Mér þykir það leitt,
Toby, en ef þessir verðir hleypa
mér ekki út í bifreið, þá verð ég.
Þannig íinnst mér þetta. Þau töluðu
stutt saman eftir þetta og að iok-
um hengdi Toby heyrnartækiö upp
og grét. Seinna þennan sama dag
fór Toby til Cherry Hill og kallaöi
yfir múrinn til föður síns: „Gerðu
það fyrir mig, pabbi, að gera það
rétta í þessu. Mamma vill það“
Miili vonar og ótta.
Á þriðja degi voru fjórmenning-
arnir reiðubúnir til viðræðna. Þeir
sáu þá, að það hvorki rak né gekk
fyrir þeim og flótti var með öliu
óhugsandi. Sneru þeir sér því að
öðru máli, sem var engu síður nauð
synlegt fyrir þá, en það var að fá
einhverja bót á aðbúðinni 1 Cherry
Hiil. Samningafundur var settur
klukkan þriú eftir hádegi. Fjórmenn
ingarnir höfðu sjálfir kjörið menn-
ina, sem þeir vildu semja við. Einn
þeirra var ritstjóri stórblaðsins „The
Christian Science Monitor". Fjór-
menningarnir gáfu nefndinni kaffi
og síðan var talazt við. Einkum kom
til umræðu að lagfæra aðbúnaðinn
í Cherry Hill. Seinni daginn var enn
meiri spenningur við samningaborð
ið og þeir sem úti voru, biðu milli
vonar og ótta þess, hvernig tækist.
Að lokum samþykkti nefndin að
beita áhrifum sínum í þá átt að
Cherry Hill yrði hæfari fanga-
geymsla. Og að lokum ákváðu upp-
reisnarmenn að gefast upp og ját-
ast undir náð yíirvaldanna.
Kanill, bl. krydd, múscat, engifer, karrý, pipar.
Ávallt fyrirliggjandi.
KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F.
S$$5$S$$$53533$$533S$$S553S5SSS$$$$$SS$$$S$5$$$$$$5$$$$$$$$$$$5$$$$$J»
Menningartengsl íslands og Ráðstjórnarríkja
Fundur
og
kvikmyndasýnlng
í Stjörnubíói í dag, sunnud. 6. febrúar kl. 2 e. h.
Sverrir Kristjánsson: Litið um öxl.
TSU ÁRA KALT STRlÐ
★
Kvikmynd: MAÍ-NÓTT,
úkrainsk' mynd eftir sögu Gógóls.
FRÉTTAMYND.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Öllum heimill aðgangur.
Stjórn MÍR
HJARTANS ÞAKKIR fyrir auðsýnda samúð og
hluttekningu við fráfall og jarðarför
MARÍNAR GÍSLADÓTTUR
Vandamenn.
ÞÖKKUM INNILEGA auðsýnda vináttu og samúð
við andlát og jarðarför
GÍSLA KRISTJÁNSSONAR
frá Lokinhömrum.
Vandamenn.
_____________
Rrezkir sjómenn
(Framhald af 1. slðu).
Það moldviðri, sem brezk
blöð reyna hér að þyrla upp
getur aðeins leitt til þess eins
að gera deiluna enn óleysan
legri og auka enn andúð ís-
lendinga í garð Breta, sem
svöruðu sjálfsbjargarvið-
leitni íslendinga með því að
reyna að svelta þá til undan-
halds í málinu.
Þá kemur það úr hörðustu
átt frá Bretum að væna ís-
lendinga um að eiga aö
nokkru sök á dauða hinna
brezku sjómanna, því að öll-
um er kunnugt, að íslending
ar hafa þrásinnis lagt sig í
lífshættu til að bjarga brezk
um sjómönnum, og er strand
ið við Látrabjarg þar fersk-
ast í minni, og þeir hafa á
síðustu áratugum bjargað
tugum brezkra sjómanna.
Því verður vart trúað, að
brezk blöð haldi þessum leik
áfram, og ættu þau sóma
síns vegna að leiðrétta málið,
og láta rétt rök koma í Ijós.
Hinn óþrcvtti hcstur
Brjáns riddara gcystist
fram sem ör af bogu.
En Ivar £at aðeins komið
hinum örjíreyíta hcsti sín*
um til að brokka af stað.
ÍVAR HLÚJÁRN.Saga eftir Walter Scott. Myndir eftir Peter Jackson 129
Árnað heilia
Fastir liðir eins og venjulega.
.‘20,30 Útvarpshljómsveitin.
:20,50 Um daginn og veginn (Thor-
olf Smith blaðamaður).
,'21,10 Kórsöngur: Karlakórinn Geys
ir syngur.
:21,30 Útvarpssagan.
.12,00 Fréttlr og veðurfregnir.
.22,10 íslenzkt mál (Bjarni Vil-
hjálmsson cand. mag.).
22,25 Létt lög (plötur).
:»,I0 Dagskrárlok.
30 ára
er í dag Kristján Einarsson, fyrr-
.Tim bóndi k Hermundarfelli í Þistil
firði, nú til heimilis að Matthíasar-
götu 1, Akureyri.