Tíminn - 08.02.1955, Qupperneq 5

Tíminn - 08.02.1955, Qupperneq 5
£1. blað. TÍMINN, þriðjudaginn 8. febrúar 1955. I, ] Þriðjud. 8. iebr. Glundroðastjórnin í Reykjavík Morgunblaðinu verður mjög tíðrætt eftir nefndakosning- arnar í bæjarstjórn Reykja- víkur um ósamkomulag og „glundroða“ minnihlutaflOKk anna þar. Bersýnilegt virðist því, að Mbl. ætlar að byggja á nrslitum þessara kosn. þann Jsöng, sem raunar er nú allt annað en nýr, að eina ráðið til að afstýra glundroða i Reykjavík sé að láta íhaldið hafa meirihluta í bæjarstjórn inni. Annars skapist þar upp- lausn og glundroði. Vissulega verður það ekki neitt á úrslitum þessara kosn- inga byggt, hvort glundroöi skapaðist í bæjarstjórninni, ef íhaldið missti þar meiri- hlútann. Þá væri um það að ræða að skapa bænum ábyrga stjórn, en ekki að skipta nokkr um smábitlingum. Að sjálf- sögðu myndu flokkarnir leggja sig meira fram í sam- bandi við það fyrrnefnda. Sú hefir líka orðið reynsl- an annars staðar. Enginn einn flokkur hefir meiri- hluta í bæjarstjórnum á eftirtöldum stöðum: Vest- mannaeyjum, Keflavík, Hafnarfirði, Akranesi, ísa- firði, Sauðárkróki, Siglufirði, Akureyri, Húsavík og Seyðis- firði. Samt hefir skapazt ábyrgur meirihluti á öllum þessum stöðum. í átta af þessum 10 bæjarfélögum lief ir sá meirihluti myndazt fyr ir atbeina Framsóknarflokks ins. Sýnir það ljóslega hæfni flokksins til að laða saman ólík öfl til samstarfs, þegar eitthvað er í húfi, og hindra þannig upplausn og glund- roða. Þessi reynsla er einnig i góðu samræmi við það, sem gerzt hefir á sviði landsmál- anna síðan þjóðin endur- heimti sjálfstæði sitt. Síðan 1918 hefir einn flokkur haft meirihluta í aðeins eitt kjör- .tímabil. Það var íhaldsflokk- urinn á árunum 1924—27. Allán hinn tímann hafa sam steypustjórnir farið hér meö völd og hefir Framsóknar- flokkurinn staðið að þeim öll- um, nema nýsköpunarstjórn- inni 1944—46. Óumdeilanlegt er, að aldrei hafa orðið meiri framfarir á íslandi en á þess- um tíma. Það er einnig óum- deilanlegt, að mestu kyrrstöðu árin á þessu tímabili voru ár- in 1924—27, þegar ihaldið eitt hafði meirihlutann. Þessi reynsla sýnir það ótví rætt, að ástæðulaust er að ótt ast glundroða, þótt einn flokk ur hafi ekki meirihluta, ef fyr ir hendi er frjálslyndur um- bótaflokkur, sem hefir milli- göngu um að fylkja ólíkum öflum til samstarfs og vinnur að því að tryggja viðkomandi þjóðfélagi eða bæjarfélagi sem starfshæfasta stjórn á hverjum tíma. Jafnhliða þessu er svo gott að vitna til þeirrar reynslu, að það er síður en svo trygg- ing gegn glundroða og óstjórn, að einn flokkur hafi meiri- hluta. Þvert á móti nær glund roði og óstjórn oft hámarki sínu, þegar sami flokkur er lengi búinn að hafa meirihlut ann. Varðandi þetta er t. d. aö finna mörg dæmi úr stjórn ERLENT YFIRLIT: Fall Mendes-France Seimilegí þykir, að það leiði til öngþvcitis nema Pínay Iieppnist stjórnarmymlmi Þau tíðindi gerðust í franska þing inu aðfaranótt laugardagsins s. 1., að felld var traustsyfirlýsing til stjórnar Mendes-France. Greiddu 319 þingmenn átkvæði gegn henni, en 274 þingmenn með. Tillagan var borin fram í sambandi við umræður um stefnu stjórnarinnar í málum frönsku nýlendnanna í Norður- Afríku. Raunverulega var það þó ekki andstaðan gegn stefnu stjórn- arinnar í þeim málum, sem varð henni að falli, heldur andstaðan gegn stefnu stjórnarinnar í varnar- málum Vestur-Evrópu. Þannig greiddu bæði kommúnistar og fylgis menn katólska flokksins atkvæði gegn stjórninni, þótt þeir hafi lýst sig hliðholla stefnu Mendes-France i nýlendumálunum. Ástæðan fyrir afstöðu kommúnista var sú, að þeir vildu fella stjórnina til þess að skapa glundroða í Frakklandi og torvelda þannig endanlega sam- þykkt Parísarsamninganna um varn armálin. Katólski flokkurinn hefir hins vegar ekki getað fyrirgefið Mendes-France, að hann lét sátt- málann um Evrópuherinn falla, en flokkurinn hafði átt frumkvæðið að honum og talið hann beztu lausnina á varnarmálum Vestur-Evrópu. Síðan hefir flokkurinn beðið eftir fyrsta tækifæri til að steypa stjórn Mendes-France úr stóli. Rene Mayer réði úrslitum. Afstaða þessara flokka var vituð fyrirfram, en þó var taiin nokkur von til þess, að stjórnin kynni að halda velli. Það var henni hins veg ar endanlega að falli, að nokkrir menn úr flokki Mendes-France, radi kalaflokknum, snerust gegn henni á seinustu stundu. Fremstur þeirra var René Mayer, fyrrv. forsætisráð- herra. Hann var á sínum tíma fylgj andi Evrópuhernum og hefir verið Mendes-France mjög gramur fyrir það, að sáttmálinn um hann féll. Við það bættist svo, að René Mayer er þingmaöur fyrir kjördæmi i Al- gier og meðal kjósenda hans þar er vaxandi andstaða gegn stefnu þeirri í nýlendumálunum, sem Mendes-France beitti sér fyrir. Upphaflega lýsti René Mayer sig fylgjandi þessari stefnu Mendes- France, en snerist nú gegn henni bæði vegna persónulegrar andstöðu við Mendes-France og vegna áhrifa frá kjósendum sínum. René Mayer er leiðtogi hægra arms radikala- flokksins og þótti um skeið liklegur til þess að verða aðalleiðtogi hans eftir Herriot, en nú bendir flest til að Mendes-France taki það sæti. René Maver er kominn af Gyðinga- ættum, eins og- Mendes-France, og þykir mikill gáfumaður. Ófriðlegar horfur í Norðpr-Afríku. Það var fyrst og fremst Túnis- \ málið, sem var til umræðu í franska þinginu að þessu sinni. Mendes-France hafði boðað, að hann ætlaði að veita Túnisbúum stóraukna sjálfstjórn og hafði hafið samninga um það við forvígismenn þjóðernissinna. Þeim samningum var þó ekki lokið, því að þjóðernis- sinnar kröfðust alltaf meira og meira eftir því, sem Mendes- France slakaði meira til. Einkum bar þó á milli, að Frakkar vildu fara áfram með hermál og utan- ríkismál í Túnis, a. m. k. fyrst um sinn. Það spillti áreiðanlega aðstöðu Mendes-France í þinginu, hve seint þessir samninyar gengu. Ætlun Mendes-France var að semja fyrst við Túnisbúa, en snúa sér þar næst að Marokkó, þar sem þjóðernissamtökin eru enn veik og auk þess klofningur milii helztu þjóðflokka landsins, Araba og Berba, um það, sem gera skuli. Berb ar vilia áfram samband við Frakka, en Arabar skilnað og fullt sjálf- stæði. Ætlun Mendes-France var að levsa bæði Túnisdeiluna og Mar- okkódeiluna með því að auka rétt- indi íbúanna, en varðveita þó tengsl in við Frakkland. Þá hafði Mendes-Ftance á prjón- unum að auka réttindi Algierbúa, en Algier er nú innlimað í Frakkland og kýs því þingmenn á franska þingið. Er René Mayer einn þeirra eins og áður segir. Raunverulega eru það eins Frakkar, sem kjósa þesa þingmenn, og er nú að mynd- ast vísir að sjálfstæðishreyfingu Ar aba í Algier. Allverulega er óttast, að fall Mend es-France geti ýtt undir óeirðir i nýlendum Frakka í Norður-Afríku, þar sem þjóðernissinnar þar bundu góðar vonir við fyrirætlanir hans á þessu sviði. Athafnasamur stjórnandi. Mendes-France lofaði miklu, þeg- ar hann tók við stjórnartaumunum. Hann lofaði að leysa Indó-Kína- deiluna, deiluna um þátttöku Þjóð- verja í vörnum Vestur-Evrópu og nýlendudeilurnar í Norður-Afríku. Síðast, en ekki sizt, lofaði hann að rétta við íjármál og atvinnuvegi Frakka, en þetta síðastnefnda hefir hann alltaf talið mál málanna. Hann hefir sagt, að Frakkar gætu ekki haldið við stórveldisaðstöðu sinni, nema efnahagsmál þeirra kæmust á stórum traustari grund- völl en nú. Því verður ekki neitað, að Mend- es-France hefir orðið mikið ágengt í þá 714 mánuði, sem hann hefir setið að völdum. Styrjöldin í Indó- margra borga í Ameríku, þar sem sami flokkurinn eða sama klíkan hefir stjórnað lengi samfleytt. í skjóli hennar heí ir þá skapazt hvers konar mis notkun, spilling og kyrrstaða. Það þarf ekki heldur að fara til Bandaríkjanna eða annarra landa til að finna dæmi um slíka spillingu og glundroða. .Ef til vill er nú hvergi að finna gleggra dæmi um þetta en einmitt hér i Reykjavík. Það er vissulega ekki ofsagt, að vanstjórn og glundroði einkenni ^lest vinnubrögð Reykjavíkurbæj- ar og stofnana hans. Skipulag bæjarins, gatnagerðin, van- rækslan við að færa út hita- veituna og ofþenslan í starfs- mannahaldinu eru aðeins fá dæmi um þetta. Þessu er svo samfara margvísleg misnotk- un og spilling í svo til öllu stj órnarkerfi bæj arins. Það furöulega er, að þrátt fyrir þetta hefir íhaldinu tek izt að halda völdum. Með alls konar blekkingum um ágætl sitt hefir því tekizt að halda völdunum, jafnhliða því að hampa hinnl svonefndu glund roðakenningu. Með því að hampa henni eins ákaflega og það hefir gert, hefir því heppn azt að draga athyglina frá glundroðastjórn sinni ogspill- ingu hennar. Þessari blekkingahulu verð ur að svipta frá augum þeirra alltof mörgu Reykvíkinga, er hafa glæpzt til að veita bæjar stjórnarmeirihluta íhaldsins stuðning sinn. Þegar þeir sjá stjórn hans, eins og hún raunverulega er, verður fall hans mikið og þá fyrst munu skapast möguleikar fyrir við- reisn í stjórn bæjarins. PINA Y Kína er hætt. Franska þingið hefir samþykkt þátttöku Þjóðverja i vörn um Vestur-Evrópu. Nýlendumálin i Norður-Afriku haía verið færð á n; jan grundvöll, þótt beinn árang- ur hafi enn ekki náðst. í efnahags- málum Frakka hefir verið hafizt handa um ýms merk nýmæli. Merk- ust þeirra eru ráðstafanir i þá átt að koma á stóriönaði í stað smá- iðnaðar, sem enn viðgengst í Frakk landi með hálfgerðu miðaldasniði. í svipaða átt miða og ráðstafanir til að fækka milliliðum með breyttu og hagfelldara dreifingarkerfi. Stjórnmálamaður, sem ekki óttaðist óvinsældir. Athafnasemi Mendes-France hef- ir hins vegar síður en svo aflað hon um eintómra vinsælda. Hann hefir gengið hreint til verks hverju sinni og látið sig einu skipta, hvort hann aflaði sér vina eða óvina. Fram- koma hans í utanríkismálum hefir aflað honum öflugra andstæðipga, þar sem voru annars vegar komm- únistar, en hins vegar kaþólski flokkurinn. Stefna hans í efnahags málum hefir aflað honum and- stöðu smákaupmanna og smáiðju- rekenda. Barátta hans fyrir auknu bindindi, hefir aflað honum and- stöðu vínkaupmanna. En þrátt fyrir þetta, hefir hann þó aflað sér miklu meiri vinsælda en óvinsælda. Mikill hluti þjóðarinnar álitur hann mikilhæfasta foringja sinn og þess vegna er því nú almennt snáð, að hann muni brátt koma til valda aftur, þótt hann verði að láta völd- in af hendi nú. Tilraun Pinay. Mikil óvissa er ríkjandi i stjórn- málalífi Frakka eftir fall Mendes- France. Margir óttast, að hæglega geti nú skapazt ringuireið, er tefli (Framhaid á 6. síðu> Fleiri sýningar hjá LR en áður Um síðustu mánaðamót hafði Leikfélag Reykjavíkur haft 60 leiksýningar á vetr- inum. Er það 22 sýningum fram yfir meðaltal sýninga- fjöda síðustu 10 árin miðað við sama tíma. Er þessi aukn ing fyrst og fremst aö þakka laugardagssýningunum, sem félagið hefir tekið upp, en sýningartími er þá kl. fimm. Félagið hóf starfsemi sína á vetrinum með sýningum á sjónleiknum Erfinginn, sem náði 18 sýningum, en Frænka Charleys he.fir verið sýnd 32 sinnum frá því í haust, en sýningar á Frænkunni eru orðnar 66, og er með hæstu sýningartölu, sem nokkurt leikrit hefir náð hjá L.R. á einu ári. Ný leikskrá hefir verið prentuð og er það fimmta prentun og' upplag þá orðið yfir 6000. Um 20. þús. manns hafa séð leikritið. Jólaleikritið, Nói, hefir verið sýndur 10 sinnum við ágæta aðsókn. Jöfnun raforku- verðsÉns Fyrir sameinuðu Alþingi liggur nú tillaga frá átta þingmönnum Framsóknar- flokksins þess efnis, „að Al- þingi feli ríkisstjórninni að undirbúa ráðstafanir til þess, að raforka til almennings- nota frá rafveitnm í opin- berri eigu verði seld á sama verði um land allt, og leggja tillögur um það efni fyrir Al- þingi hið allra fyrsta.“ f greinargerð tillögunnar er saga þessa máls rakin og segir þar: „Nokkrum sinnum áður hefir verið um það rætt og tillögur fram bornar um það á Alþingi aS koma á jöf?iun raforkuverðs. Á sumarþinginu 1942 fluttu nokkrir þi?igmenn Framsókn arflokksins tillögu í samein- uðu þingi um raforkumál. Yar þar lagt til, að kosin yrði 5 manna nefnd, er gera skyldi tillögur um f.iá?öflun til þess að byggja rafveitur í því skyni aS koma nægilegri raf orku í allar byggðir la??dsi?is, „enda verði raforkan ekki seld hærra verði í dreifbýll en stærstu kaupstöðunum á hverjum tíma.“ Þessi tillaga var samþykkt á Alþingi með 43 samhljóða atkv. Meirihluti raforkumála- nefndarinnar, sem kosin var samkvæmt framannefntYi á- lyktun árið 1942, samdi frv. til raforkulaga og skilaði því ti! ríkisstjórnarinnar í nóv. 1944. Skömmu síðar, í janúar 1945, hlutaðist nefndin ti! um, að frumvarpið var borið fram á Alþingi, sem þá var að störfum. Flutningsmenn frumvarpsins voru fimm, og fjórir þeirra höfðu átt sæti í nefndinni, sem samdi frum- varpið. í 12. gr. frv. var á- kvæði um, að verð raíor'kunn ar frá ríkisrafveitunum skyldi vera liið sama um land allt. En frumvarpið hlaut ekki full?iaðarafgreiðslu á þinginu. Á na*sta þingi, seint á ár- inu 1945, var fram borið frv. til raforkulaga að tilhlutun samgöngumá>aráðuneytis- ins, og var það afgreitt með nokkrum breyti??gum sem lög frá þinginu. í frumvarpinu voru engi?? ákvæði um jafnt rafoj'kuverð. FuIItrúi Fram- sóknarflokksins í iðnaðar- nefnd neðri deildar bar fram svohljóðandi breytingartil- lögu við frumvarpið: „Söluverð raforkunnar skal vera hið sama um allt land og eigi hærra til notenöa ut- an kaupstaðanna en íbúar þeirra þurfa að greiða á hverj um tíma að meðaltali.“ TiIIaga þessi var felld f þingdeildinni með 15 geg?l 13 atkvæðum. Þá fluttu þrír þingmenn Framsóknarflokksins svohljóð andi tillögu: „Heildsöluverðið skal vera hið sama um allt land.“ Tillaga þessi féll með jöfn um atkvæðum, 16 gegn 16. Á Alþingi 1952 flutti Eirík ur Þorsteinsson, þingm. V,- ísfirðinga, frumvarp til laga um jöfnun raforkuverðs, en það hlaut ekki fullnaðaraf- greiðslií. Eins og hér hefir verið rak ið, hafa verið gerðar nokkrar tilraunir til þess að fá lög- fest það fyrirheit, sem þing- menn gáfu ágreiningslaust með samþykkt þingsályktun- (Framhala á 6. slðu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.