Tíminn - 19.02.1955, Blaðsíða 8
Fjöidi fallegra radda hér
segir Montanari söngkennari
Hcfir Iicr langan og strangan vinnudag við
að kcnna um 30 nemcndum söng
— Ég hefi heyrt margar fallegar raddir síðan ég kom til
Reykjavíkur, sagði ítalski sö?igkennarmn Monta?iari, þegar
blaðamen?? rædda við hann á Hótel Borg í gær. — En ég
kemst ekki yfir að kenna öllum það sem ég vildz'.
Sæmilegur afli í
Vestmannaeyjum
Segja má að vertíðin byrji
vel í Eyjum. Um 40 bátar kom
ust á sjó í fyrrinótt og komu
þeir í gærkveldi með sæmileg-
an afla. Var fjöldinn með 5 —
8 lestir og sá aflahæsti með
10 lestir.
Mannekla er mikil og var
fólk sótt til lands á vélbát í
gær. Er fólk þegar farið að
streyma í verið að nýju. Búast
má við, að róðrarbátum fjölgi
eftir helgina, þegar aukinn
mannafli er kominn til Eyja.
Kola- og saltlaust
á Patreksfirði
Hér á Patreksfirði má heita
að hafi verið kolalaust frá
Því fyrir áramót. Hefir verið
reynt að bjarga þessu með
því að fá smáslatta öðru
hverju frá Reykjavík. Hefir
meg því móti verið hægt að
láta fólk fá poka og poka,
sem það hefir svo notað með
ítrasta sparnaði. Hér hefir
lika verig mjög litið um salt.
Verður fólk að salta matinn
með borðsalti og þykir það
heldur ódrjúgt til slíkra nota.
220 lestir til
Akraness
Akranesbátar koma með
heldur lítinn afla að landi
þessa dagana nema helzt þeir
sem sækja mjög langt á mið
Snæfellinga. En sæki þeir
þangað, er varla hægt að
halda róðrum, sökum þess
hvað langt er að sækja þang-
að.
Bæjartogarinn Akurey kom
heim til Akraness í gær með
urn 220 lestir af fiski, sem aðal
lega verður hertur á vegum
bæjarútgerðarinnar.
Primo Montanari er sann-
ur fulltrúi hinnar ljúfu og
söngelsku þjóðar sinnar í
suðri. Ungur gekk hann í
þjónustu sönggyðjunnar og
hóf söngnám þegar á bernsku
árum vestur í Bandaríkjun-
um. Síðar varð hann á vegi
Caruso, snillingsins mikla,
sem sagði honum að fara
heim til Ítalíu og ljúka þar
söngnámi. _____
Sa??gið víða ?tm lönd.
Montanari hefir sungið
víða og mikið. Hann er nú að
mestu hættur og hefir helg-
að sig kennslu, en nafn hans
er þekkt við óperuhús á Ítalíu
og víöar. Söngskemmtanir
hefh hann haldið víða um
lönd.
Nekkrir íslendingar hafa
stundað nám hjá honum á
Ítalíu, rneðal annarra Þuríð-
ur Fálsdóttir, Magnús Jóns-
son og Jcn Sigurbjörnsson.
Því var vel fagnað, Þegar það
var ákveðið, að Montanari
kæmi hingað til söngkennslu
og hafa ísionzkir söngmenn
og konur notað sér þaö ó-
spart í vetur.
Hefir mikill fjöldi nemenda
stundað nám hjá Montanari
og hann haft í mörg horn að
líta. Er nemendafiöldinn um
30 og margir sækja tvo og
þrjá tíma í viku.
Þeir munu leita hans
að hausti.
Nokkrir nemendurnir eru
ný söngvaraefni og ýmsir eíni
legir, en líka ganga til meist-
arans nokkrir hinna eldri
söngvara.
Montanari er ráðinn hér til
vors. Ekki er ráðið, hvort hann
kemur hingað til að auka söng
mennt íslendinga að vetri.
Sjálfum er honum það ekki
fjarri skapi, enda þótt vetur-
inn sé kaldari í Reykjavík en
í heimahögum hans, og nem
endur hans munu margir leita
hans e.ð hausti, hvar sem þenn
an suðræna söngfugl verður
þá að finna.
Vasidaðyr vínbar settur upp í
veitisigasððum Hótel Borgar
' Hótel Bo?g hefir op??að bar I salarkynnum sínum, og cru
þar seld vín og vínblönditr á sama tíma og vínveitirtgaleyf?
er í veiiingasölttm hússins. Jóhannes Jósefsson, hóteleig-
cndi, sýnd? fréttamönnum harinn í gær.
Barnum er komið fyrir í
herbergi því, sem er innar af
Gyllta salnum og kallaðist
Dyngja. Bar þessi er hinn
vandaðasti að gerð, fluttur
inn í heilu lagi og er gerður
xir mjög vönduðum viði og út
skorinn. í hliðarvængjum
eru falleg blómaskot. í spegla
hillum er vínflöskum vel rað
að allt til lofts.
í barnum verða veittar vín
blöndur hvers konar, svo og
allar tegundir áfengis óbland
aðar og einnig óáfengir
drykkir.
Mun gestum Hótel Borgar
vafalaust þykja fengur að
fallegum og vel búnum bar
sem þessum, enda heyrir
hann til hverju vel búnu veit
ingahúsi, þar sem vín er á
annað borð haft um hönd.
Hér sést hið nýja tæki, sem Konráð Þorste???sson hefh funfi'-
ið app, og hvernig það er sett í þvottapottinn.
Vinsæl frönsk tónlist á
næstu sinfóníuhljómleikum
ÍBorvaMui’ Stcingrímsson lcikiir í Spánar-
smfóníu og Montanari syngur ópcrulög
Á tónleikwm S?'nfó??íuhljómsveitar ríkisútva?psi??s í Þjóð-
leikhúsi??u á þriðjudagskvöldið verðrtr leikm vinsæl frö??sk
tónlist. ^tjórnandi sveitariTinar er Róbert A. Ottósson, en
ítalski söngvarin?? Primo Mo??tanari syngur avíur úr óper-
am og Þorvaldztr Stei??grírasson leikur emleikshlwtverk á
fiðlu. —
Blaðamenn ræddu í gær
við stjórnanda, einsöngvara
og einleikara á fundi sem
haldinn var á Hótel Borg í
gær. Benti Róbert, stjórnandi
hijómsveitarinnar, á það, að
efnisskráin væri að þessu
cinni allmiklu léttari en oft
áður, en þó væri hér ein-
gö'ngu um góð tónverk að
ræða.
Frönsk tónlist er vinsæl
hér og munu því margir fagna
Því aö fá tækifæri til að.
heyi'a .sinfóníuhljómsveitina
flytja tónlist eftir þá Lalo,
Masrenet, Blzet og Dukas.
Spánarsi??fó?iían.
Tónleikarnir hefjast á
liinri svonefndu Spánarsin-
fóníu, eftir Lalo. Er það verk
fyrir einleiksfiðlu og hþóm-
sveit og íer Þorvaldur Stein-
grímsson með eihleiksh’ut-
ve’-'kið. Er það í fyrsta sinn
sem Þorvaídur kemur fram
sem einleikari með sinfóníu-
hljómsveitinni. en hann er á-
gætur fiðluleikari og kunn-
ur fvrir ágætan leik í út-
varn og við ýms tækifæri.
Sinfónía þessi var fyrst
ílutt fyrir 80 árum og hefir
haft mikil áhrif á danslaga-
gerð siðari tíma? Þannig má
segja, að hún sé eins konar
undanfari tangó.
Síðan gofst hlustendum
kostur á að heyra söng ítalska
söngvarans Primo Montanari
sem hér hefir dvalið að und-
anförnu við söngkennslu.
Syngur hann með hljómsveit
inni aríur úr óperunum
i Werther, Carmen, Marta og
gralsönginn úr Lohengrin
eftir Wagner. Er hér einstakt
tækifæri til að hlýða á söng
Montanari, sem á að baki sér
lanean og glæsilegan söng-
feril.
Að lokum leikur hljómsveit
in hið snjalla tónlistarverk,
Lærisveinn galdramannsins,
eftir Dukas, sem margir kann
ast við hér, þó ekki væri af
öðru en kvikmyndinni Fanta
síu, þar sem það var flutt með
teikningum Disney.
Þes.sir tónleikar Sinfóníu-
hli ómsveitarinnar eru þeir
siðustu. sem Róbert A. Ot'cós
son stjórnar að sinni, því
Föelland er að koma aftur og
tc'kur við Stjórn sveitarinnar
um skeið, samkv. samning-
v.rn, er eerðir voru við hann
1 þ nokkurra ára.
Stjórnin í Sviss
neitar að afhenda
spellvirkjana
Bern, 17. febr. Svissneska
ríkisstjórnin neitaöi í dag, aö
framselja spellvirkja þá, sem
á þriðjudagsnóttina réðust
inn í sendiráð Rúmeníu í Bern
og hertóku það. í tilkynningu
dómsmálaráðherrans segir, að
menn þessir hafi framið af-
brot á svissneskri grund og
heyri því undir svissnesk lög,
þar eð ekki sé í gildi milli
ríkjanna neinn samningur
um skipti á afbrotamönnum.
Verður nú höfðað mál gegn
mönnum þessum skv. sviss-
neskum lögum.
Lítil von, að þingið
votti Pineau traust
París, 18. febr. — Pineau
lagði ráðherralista sinn fyr-
ir fulltrúadeild franska
þingsins í dag. Flutti hann
ræðu ojj gerði grein fyrir
þeirri stefnu, sem stjórnim
myndi Þlgja, en hún er í
nálega öllum atriðum eins og
stjórnarstefna Mendes-
France, þar með talin stefna
í málefnum Norður-Afríku,
en einmitt hún varð stjórn
hans að falli. Þykir því von-
lítið, að fulltrúadeildin veiti
stjórn Pineau traust, en at-
kvæðagreiðsla fer fram í
nótt.
Rafmagn skammt-
að frá Andakíls-
árvirkjun
Frá fréttaritara Tímans
á Akranesi.
Orkuframleiðsla Andakílsár
virkjunar í Borgarfirði er með
minna móti þessa daga vegna
þess að vélarnar hafa of lítiö
vatn úr ánni. Langvarandi
þurrkar valda því að vatns-
magn þverr í ánni, sem renn-
ur úr Skorradalsvatni.
Rafmagnsskortur er því
nokkur á orkuveitusvæði
stöðvarinnar og verður þann-
ig að skammta rafmagn á
Akranesi. Er rafmagnið tekið
af kaupstaðnum að nóttunni
frá kl. 1 til 6 að morgni. Þó
háfa frystihúsin rafmagn á
þessum tíma og einnig höfnin.
Vetrarhörkur á
Norðurlöndum og
í Vestur-Evrópu
London, 18. febr. — Hvass-
viðri og snjókoma geisaði í
dag um mikinn hluta Vestur
Evrópu og Norðurlönd. Eink-
um er veðrið vont í Svíþjóð
o.g sagt, að slíkar hörkur hafi
ekki komið í Mið-Svíþjóð í
30 ár. Veðui’stofur spá áfram
haldandi kuldum. Tveir flug
menn fórust í dag, er flugvél
þeirra hlekktist á í lendingu
í Stokkhólmi. Fregnir frá
Frakklandi, Br,etlandi, Belg-
iu og Ve^tur-Þýzkalandi
segja allar §omu sögu: Kuld-
ar og mikil snjpkoma, sam-
gönguerfiðleikar og margvís
Ieg vandræði fvrir fólk. sem
iítt er búið undir slík veðra-
brigði sem þessi.
----0 m* ---------
Aðalfundur Starfs-
mannafél. Reykja-
víkurbæjar
Aðalfundur Starfsmannafé
lags Reykjavíkurbæjar var
haldinn s.l. sunnudag. Núver-
andi stjórn félagsins er þann
ig skipuð: Þórður Ág. Þórðar-
son form., Júlíus Björnsson
varaform., Kristín Þorláks-
dóttir ritari, Georg Þorsteins-
(Framhald á 2. síðu.)